blaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007
blaöió
Útgáfufélag: Árvakur hf.
Ritstjóri: Ólafur Þ. Stephensen
Fréttastjórar: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Elín Albertsdóttir
Kristján er
maður að meiri
Kristján L. Möller samgönguráðherra er maður að meiri eftir að
hann bað Einar Hermannsson skipaverkfræðing afsökunar, m.a. í
viðtali hér 1 Blaðinu á laugardaginn. Ráðherrann hefur fundað með
Einari og beðið hann afsökunar á að hafa nefnt hann, einan manna,
þegar fjölmiðlar spurðu um ábyrgð á Grímseyjarferjuklúðrinu
margumrædda.
Það er því miður alltof sjaldgæft að stjórnmálamenn komi svona
hreint fram og viðurkenni mistök sín. En auðvitað eru þeir ekki
óskeikulir frekar en aðrir. Að biðjast afsökunar á mistökum er ekki
veikleikamerki. Það er miklu fremur merki um styrk og sjálfstraust.
Það er samt dálítið sérstakt að eini maðurinn, sem axlar einhverja
ábyrgð og biðst afsökunar í hinu stórfurðulega Grímseyjarferjumáli,
sé sá sem áreiðanlega ber enga ábyrgð á öllum mistökunum og fjár-
austrinum við kaup og endurbætur á ferjunni. Þvert á móti vakti
Kristján Möller athygli á því áður en hann tók við embætti sam-
gönguráðherra, að pottur væri brotinn í ferjumálinu.
Kristján segir í viðtalinu við Blaðið að margt hafi farið úrskeiðis í
málinu, en meginþunginn og ábyrgðin sé hjá Vegagerðinni og sam-
gönguráðuneytinu. Ráðherrann segist hafa farið rækilega í gegnum
málið innan ráðuneytisins.
Niðurstaða hans er eftirfarandi: „Ábyrgðin er endanlega ráð-
herrans eins og Sturla Böðvarsson, forveri minn, sagði í yfirlýsingu
sinni um málið.
Ég hef farið vandlega yfir þetta mál innan ráðuneytisins og sé
ekki að tilefni sé til að áminna starfsmenn þar.“
Er hægt að skilja þetta öðruvísi en svo að Kristján telji ábyrgðina
liggja hjá forvera sínum? Hvernig ætlar forverinn að bregðast við
því? Ætlar hann að biðjast afsökunar á einhverju?
Hugmynd samgönguráðherra, sem hann setti fram í Blaðinu á
laugardaginn, um að sameina Vegagerðina og Siglingastofnun gæti
verið skynsamleg. Það virðist hafa sýnt sig að lítið vit sé í því að
sérfræðingar í vegum sýsli mikið með skip. Hugsanlega væri því
hægt að sameina þekkingu þessara stofnana með sameiningu, fækka
í leiðinni ríkisstofnunum og hagræða í rekstrinum. Ekki væri verra
ef um leið tækist að tryggja að fleiri Grímseyjarferjuklúður kæmu
ekki upp.
Ólafur Þ. Stephensen
|jf| SÆKTU LEIÐARANN A WWW.MBL.IS/PODCAST
Auglýsingastjóri: Stann Kári Ragnarsson Ritstjóm & auglýsingan Hádegismóum 2.110 Reykjavík
Aðalsímh 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net frettir@bladid.net auglysingar@bladid.net
Prentun: Landsprent ehf.
Rúnar
Geirmundsson
SigurOur
Runarsson
Alhliða útfararþjónusta
Simar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • nuiar@utfarir.is
Utfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
<r<
vWi VERÉ HRÆPP ÍTí^r^JöR.G-. f’E-rrflFTi
fé&TZXÍMAÞl L-W
Opinská umræða um ESB
Viðskiptanefnd Alþingis, sem
ég á sæti í, hefur að undanförnu
heimsótt fjármálafyrirtæki og
aðra hagsmunaaðila í viðskiptalíf-
inu. Tilgangur heimsóknanna var
fyrst og fremst að hlusta eftir því
sem forsvarsmenn í viðskiptalíf-
inu telja mikilvægustu áhersluat-
riði næstu misserin til að tryggja
samkeppnishæfni íslands. Um-
ræðan var í takt við það sem ég
hef heyrt í formlegum og óform-
legum samtölum við fjölmarga
aðila í viðskiptalífmu á undan-
förnum vikum, sem telja höfuð-
nauðsyn að ráðist sé gegn óstöð-
ugu gengi krónunnar og háum
vöxtum. Um leið er kallað eftir
opinskárri umræðu um evruna og
mögulega aðild Islands að Evr-
ópusambandinu (ESB).
Evran og ESB
Forsvarsmenn í viðskiptalífmu
leggja vitanlega mikla áherslu á að
brjótast úr viðjum hárra vaxta og
gengisóstöðugleika. Gengisþró-
unin er sögð óviðunandi fyrir út-
flutningsfyrirtækin og hefur af-
drifaríkar afleiðingar í för með
sér. I þessu samhengi kalla margir
í viðskiptalífmu á faglega um-
ræðu um efnahagslegan stöðug-
leika annars vegar og hins vegar
um upptöku evru og aðild að
ESB. Ekki eru bein tengsl milli
þessara tveggja þátta, stöðugleik-
inn er forsenda aðildarumsóknar
í ESB, en ekki endilega öfugt.
Peningastefna á Islandi einkennist
nú að hluta til af því að sveiflu-
jöfnun er handstýrt með vaxta-
stigi, sem virðist virka illa til að
halda aftur af eftirspurn en veldur
um leið hinu háa gengi gjaldmið-
ilsins. Miðlunarferli peninga-
stefnunnar virkar ekki sem skyldi.
Stór hluti vaxtamyndunar er utan
seilingar seðlabankans. Þannig
eru ríflega 80 prósent skulda
heimila í landinu verðtryggð og
fyrirtæki í útrás og útflutningi
vinna mest með erlenda gjald-
miðla. Óstöðugleikinn hefur kall-
að á erlenda sem innlenda um-
ræðu um stöðu íslensks
efnahagslífs. Erlend athygli á
efnahagsástandinu hefur jafnvel
áhrif á ímynd íslenskra fyrirtækja
á alþjóðavísu.
Æ
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Áhrifamenn stærstu fyrirtækj-
anna telja margir að erfitt muni
reynast til framtíðar að nota
krónuna sem starfrækslumynt,
þar sem umsvif þeirra eru mest-
megnis erlendis og efnahagslíf
okkar er orðið samþætt alþjóða-
mörkuðum. Flestir gera sér grein
fyrir því að tal um evru á íslandi
tengist víðtækari umræðu um
ESB-aðild og að einhliða upptaka
evrunnar sé ekki raunhæfur kost-
ur. Við eigum að setja viðamikla
og vandaða vinnu í að meta fýsi-
leika ESB-aðildar án þess að vera
fyrirfram búin að ákveða niður-
stöðuna. Skýrsla Evrópunefndar
forsætisráðherra frá í mars gæti
reynst ágætis grundvöllur fyrir
frekari umræðu. Við þurfum að
móta okkur skýra stefnu í Evr-
ópumálum og fylgja henni eftir.
Evran á dagskrá
Ég fagna því að atvinnulífið
ætlar að taka evruumræðuna föst-
um tökum á næstunni. Eins og
fram kom í 90 ára afmælisfagnaði
Viðskiptaráðs í sl. viku, telur það
mikilvægt að halda uppi faglegri
og virkri umræðu um stöðu
krónunnar og mun ekki skorast
undan ábyrgð sem leiðandi aðili í
þeirri umræðu. Formaður Við-
skiptaráðs telur ákvörðun um
gjaldmiðil landsins vera stærstu
einstöku ákvörðun sem stjórn-
völd standa frammi fyrir, ætli þau
sér að koma hér á stöðugu og
hagfelldu umhverfi fyrir fyrirtæki.
Þá telur forysta SUS tímabært að
taka til alvarlegrar skoðunar kosti
og galla þess fyrir íslenskt hag-
kerfi, almenning og athafnalíf, að
halda úti eigin mynt. Við þurfum
að taka umræðuna um evru og
ESB út úr skotgröfum vanþekk-
ingar og þegar þar að kemur að
velja eða hafna ESB-aðild á fag-
legum forsendum sem byggja á
þróaðri umræðu. Stjórnvöld
hljóta að taka virkan þátt í þessari
mikilvægu umræðu.
Höfundur er alþingismaður
-er besta auglýsingin
§ Við erum snöggir að afgreiða áprentuð límbönd.
Hringdu núna í síma 567 88 88
! n/muohf. www.pmt.is
1 Krókhálsi 1-110 Reykjavík - sfmi 567-8888 - fax 567-8889 “
wwtrm wwww mwwm wwwm wwwm m wwm wwwm wm wm wwwm iMu IXH IIII a wmmm mÆMÆ iij11 ■ MM■ KJQ
KLIPPT OG SKORIÐ
að vakti tölu-
verða athygli
þegar Stein-
grímur Hermanns-
son, fyrrverandi
forsætisráðherra,
sagði í viðtali við Evu Maríu
Jónsdóttur í Sjónvarpinu á
sunnudagskvöld að Framsókn
hefði frekar átt að slíta stjórn-
arsamstarfinu en að fallast á
stuðning við traksstríðið. Hann
telur þessa ákvörðun vera eina af
ástæðum þess að flokkurinn fékk
ekki stuðning í síðustu kosn-
ingum. Þá sagði hann flokkinn
hafa verið alltof frjálshyggjusinn-
aðan og ýtt undir græðgisvæð-
inguna, eins og hann orðaði það.
The Economist birti nýlega
könnun um lífsgæði fólks
í veröldinni. Þar kemur
ýmislegt for-
vitnilegt í ljós.
The
Economist
Meðal þess er
hvar best sé að
búa í heim-
inum. t fyrsta sæti er Noregur en
ísland er í öðru sæti, Ástralía í
því þriðja. Ástralska blaðið Her-
ald Sun fjallar um könnunina og
eru menn þar ekkert sérstaklega
hrifnir af því að vera fýrir aftan
þessi tvö köldu lönd í könn-
uninni. Telja sig hafa sól og
hvítar strendur umffam köldu
löndin. tsland hefur það eitt
ffam yfir okkur að þar eru engar
moskítóflugur og snákar, segir
í Herald Sun.
Margir velta fyrir sér
hvað Ásdís Halla
dóttir fari að
gera þegar hún
lætur af starfi
forstjóra BYKO.
Menn telja sig
sjá breytingar
ffamundan hjá Símanum og
að Brynjólfur Bjarnason sé á
förum þaðan. Vilja sumir
meina að Ásdís Halla muni
taka sæti hans og verða for-
stjóri Símans.
elin@bladid.net