blaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 20
36
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007
blaðið
LÍFSSTÍLLFERÐIR
heilsa@bladid.net
Uppbyggingin er hins vegar afar hröð
í stórborgunum enda streymir fólk úr
sveitum og bæjum landsins þangað til
þess að fá einhverja almennilega vinnu.
Rússland er sér á báti
Frosthörkur og áfengismenning
Páskaferðir
Nú þegar er hægt að panta sæti
í ýmsar páskaferðir sem ferða-
skrifstofur landsins bjóða upp á.
Dæmi um slíkar ferðir er sérferð
Heimsferða til Dóminíska lýð-
veldisins frá 17. mars í 10 nætur.
Dvalið er í bænum Puerto Plata
á norðurhluta eyjunnar auk þess
^ sem boðið verður upp á skoðunar-
ferðir til annarra borga og bæja.
Ísland-Danmörk
Icelandair býður upp á ferð til
Kaupmannahafnar í lok nóv-
ember í tilefni af landsleik Dana
og f slendinga í Parken þann 21.
nóvember. Innifalið í tilboðinu er
flug, flugvallarskattar og miði á
leikinn ásamt því sem hægt er að
bæta við hótelgistingu á Centrum
Hotel Copenhagen.
Rússland er afar áhuga-
vert land að mati Sigur-
jóns Svavarssonar sem
bjó í Pétursborg og
bænum Okulovka um
nokkurra mánaða skeið.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Rafvirkinn Sigurjón Svavarsson
bjó og starfaði í Rússlandi samtals í
sjö mánuði á síðasta og næstsíðasta
ári eftir að hafa dvalið í Kirgisistan
um tveggja mánaða skeið árið 2003,
en þar í landi kviknaði áhugi hans
á að læra rússnesku. „Rússneska er
reyndar ekki opinbert tungumál
í Kirgisistan en þar búa þó margir
Rússar enda tilheyrði landið áður
Sovétríkjunum sálugu. Svo er rúss-
neskan þar í raun eins og enskan er
hérna á Islandi - flestir kunna hana
og nota hana mikið í samskiptum
við útlendinga," segir hann. „Eg var
á mismunandi stöðum í Kirgisistan
en mest í borg sem heitir Osh.“
Sérstakur bær
1 Rússlandi starfaði Sigurjón
í Pétursborg og í bæ að nafni Ok-
ulovka sem er staðsettur mitt á
milli Moskvu og Pétursborgar.
„Okulovka er lítill iðnaðarbær og
mjög svo frábrugðin þessum stærri
borgum landsins. Þar var alveg
rosalega mikil áfengisdrykkja
og maður var oft að keyra fram á
áfengisdauða menn á almannafæri
um hábjartan dag. Þar datt fólk
gjarnan rækilega í það í marga
daga eða jafnvel vikur í senn og
ekki er óalgengt að karlmenn deyi
um fimmtugt vegna þess að þeir
hafa drukkið svo mikið um æv-
ina. Með þennan samanburð get
ég ekki sagt að mér finnist áfengis-
drykkja vera mjög mikið vandamál
á fslandi," segir hann.
Hið sama gildir um veðrið „Skól-
unum var lokað þegar frostið fór
niður fyrir 25 mínusgráður og hið
sama gilti um ýmsar verksmiðjur.
Það kaldasta sem ég man eftir að
hafa upplifað var 32 stiga frost í Pét-
ursborg þannig að ég kvarta ekki
undan kulda hér á fslandi."
Langar í austurhlutann
Mœlirðu með Rússlandi fyrir
ferðamenn?
„Rússland er mjög áhugavert land
þannig að ég get vel mælt með því.
Að vísu held ég að það geti verið
mjög erfitt að ferðast annars staðar
en í Pétursborg, Moskvu og svona
þessum stærri borgum ef maður
kann ekki rússnesku. Ég held að
það sé voða erfitt að redda sér á
enskunni í dreifbýlinu og smábæj-
unum og auðvelt að lenda í veseni,"
segir Sigurjón. „Reyndar er það
svo að víða í landinu hefur lítið
sem ekkert breyst frá tímum Sov-
étríkjanna og sú held ég til dæmis
að sé raunin í borginni Múrm-
ansk, sem ég heimsótti sjálfur.
Þar standa sömu blokkirnar enn í
röðum og borgin er mjög grá. Upp-
byggingin er hins vegar afar hröð í
stórborgunum enda streymir fólk
úr sveitum og bæjum landsins
þangað til þess að fá einhverja al-
mennilega vinnu.“
Aðspurður segist Sigurjón ekki
eiga von á því að flytja aftur til Rúss-
lands í framtíðinni. „Aðstæður
hafa breyst töluvert hjá mér svo
að ég held það sé ekki alveg í boði.
Hins vegar væri ég meira en til í að
fara þangað í smáferðalag, kannski
um mánaðarskeið eða svo. Ég hef
bara verið í vesturhluta landsins og
mig dauðlangar að heimsækja aust-
urhlutann og kíkja til Mongólíu í
leiðinni,“ segir hann að lokum.
GLæsilegt úrval
Sisal og Kókos
Heimilisgólfdúkar
Tilboðsverð
frá kr. 890 á m2
Plastparket
Eik, beiki, hlynur, kirsuber
Tilboðsverð kr. 990 á m2
Fullt verð kr. 1.190 ánf
Stigateppi
Níðsterk og létt í þrifum
Click xpres;
SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: 510 5510
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8-18.
KJARAN
GÓLFBÚIMAÐUR
Kynning á knatt-
spyrnumótum
Fulltrúar frá tveimur alþjóð-
legum knattspyrnumótum verða
staddir á íslandi dagana 26. til
29. september til að kynna mótin
fyrir forráðamönnum íslenskra
unglingaliða. Kynningarfundur
Football Festival í Árósum verður
í fþróttamiðstöðinni í Laugardal
á morgun, miðvikudaginn 26.
september klukkan 17.30 og á laug-
ardaginn 29. september klukkan 11
verður kynningarfundur Liverpool-
mótsins á sama stað.
Einnig verður kynning á
Liverpool-mótinu í Vallarhúsinu
við Hringbraut í Reykjanesbæ
föstudaginn 28. september klukkan
16. Fundirnir eru einkum ætlaðir
þjálfurum yngri flokka, unglinga-
ráðum, foreldraráðum, fram-
kvæmdastjórum knattspyrnudeilda,
foreldrum og öðrum sem koma að
ákvarðanatöku um utanlandsferðir
knattspyrnuliða.
'4. ‘ *ó|»^;
Heimaleikir Arsenal
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn er
í opinberu samstarfi við Arsenal
Football Club um sölu á 20 miðum
á Club Level-hæðinni á hvern
heimaleik Arsenal á Emirates
Stadium. Club Level-hæðin er með
bestu sætin á vellinum og þar eru
einungis átta sætaraðir allan hring-
inn. Inn af sætunum er aðgangur
að frábærum veitingastöðum og
börum og hverjum miða fylgir
þriggja rétta máltíð fyrir leikinn.
Úrval-Útsýn á 20 Club Level-miða
á heimaleiki Arsenal hvort heldur
sem er í deild, bikarkeppnum eða
Evrópukeppni.
Uppselt er á nokkra leikina en
enn eru laus sæti í leik Arsenal og
Sunderland helgina 5. til 8. október
og á leik Arsenal og Chelsea helgina
14. til 17. desember. Nánari upplýs-
ingar má nálgast hjá íþróttadeild
Úrvals-Útsýnar.