blaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 6
FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 blaöið Ráðherrar ræða loftslagsmál í New York SÞ leysi málin Rannsókn Fáskrúðsfjarðarmálsins í fullum gangi Islenskir lögreglumenn rannsaka málið í Færeyjum „Utanríkisráðherra lagði á það áherslu í sinni ræðu að þetta ferli færi fram og að þessi samningur væri innan vébanda Sameinuðu þjóðanna þannig að þær væru með,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra um ræðu Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur utan- ríkisráðherra á ráðstefnu um lofts- lagsmál sem fór fram í New York í gær. „Aðalritari Sameinuðu þjóðanna vill að ríki heims sýni lit og geri sér ljósa þá miklu ábyrgð sem er á þeirra herðum,“ segir Þórunn. Hún segir að á fundinum sé mikil áhersla lögð á að ríki heims grípi til aðgerða strax sem fari að segja Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverf- isráðherra Tók þátt í ráðstefnu um loftslagsmál í New York í gær ásamt utanríkisráðherra. til sín á næstu árum því nú sé tæki- færið til þess að hægja á breyting- unni og það þurfi að nýta núna. „Nú reynir á það hvort ríkin nái saman,“ segir hún. elias@bladid.net Rannsókn á fíkniefnamálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði fyrir helgi miðar vel að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Islenskir rannsóknarlögreglumenn fóru utan til Færeyja seinnipartinn í gær og munu vinna með færeysku lögreglunni að áframhaldandi rann- sókn málsins þar. Einn maður situr í gæsluvarðhaldi ytra en ekki hefur verið ákveðið hvort farið verður fram á að hann verði framseldur hingað til lands. Áframhaldandi rannsókn stendur yfir í Noregi, Dan- mörku og fleiri löndum I gær staðfesti Hæstiréttur fjög- urra vikna gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir tveimur mannanna sem handteknir voru í tengslum við málið en þeir höfðu kært úrskurð- inn. freyrr@bladid.net Fíkniefni Um 50 kíló af am- fetamíni fundust í skútunni á Fáskrúðsfirði auk 14 kílóa af e-töfludufti og 1800 e-taflna fS|jÞ Hreinsar loftið Eyðirlykt Drepur bakteríur Bolholti 4 105 Reykjavík Sími 511 1001 www.ecc.is Apakettir á vélhjólum ■ Sex vélhjól ollu varanlegum skemmdum á Arnarvatnsheiði ■ Veiðivörðurinn á svæð- inu öskuillur ■ Mestu skemmdirnar á bökkum eins fallegasta vatnsins á svæðinu Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@bladid.net „Þetta eru bara apakettir sem fara ekki eftir reglum og það er al- veg skelfilegt til þess að vita,“ sagði Snorri Jóhannesson, bóndi og veiðivörður á Arnarvatnsheiði, um skemmdir sem mótorhjólamenn unnu á viðkvæmu landi á Arnar- vatnsheiði. „Hluti svæðisins verður mörg ár að gróa,“ sagði Snorri, en að hluta til er um votlendi að ræða. „Þarna er viðkvæmur gróður. Mestu skemmdirnar eru á bökkum eins fal- legasta vatnsins á svæðinu. Þetta er náttúruparadís." Fimm torfæruvélhjól og eitt fjór- hjól ollu skemmdunum og kom sjónarvottur að mönnunum. Snorri segir að kæra hafi nú verið lögð fram til lögreglu og að upplýsinga um nöfn mannanna sem þarna voru að verki hafi nú þegar verið aflað. Sönnunarbyrði þykir mjög þung í þessum málum og því er Snorri ekki sérstaklega vongóður um að hinir seku verði dregnir til ábyrgðar, en segir engu að síður að hann treysti því að málið verði tekið alla leið í dómskerfinu. „Það verður að taka á þessum málum. Þetta sýnirbara að mönnum er ekki treystandi. Lögreglan hér er svo fámenn að hún hefur ekki mögu- leika á því að fylgjast með því þegar menn eru að koma með hjólin í tuga- tali í sumarbústaði og svo ræður enginn neitt við neitt,“ segir Snorri og bætir því við að staðarval mann- anna virðist hafa helgast af því að svæðið sést ekki frá veginum. Þarf þrýsting innan frá „Svona einstaklingar eru að eyði- leggja fyrir heildinni. Sem betur fer er meirihluti þeirra sem eru með UTANVEGAAKSTUR Ný reglugerð um utanvega- akstur var gefin út árið 2005. ► Vélhjólaíþróttaklúbburinn hefur barist ötullega gegn ut- anvegaakstri síðastliðin ár. ► Torfæruvélhjól verða æ vin- sælli afþreyingartæki svona hjól til fyrirmyndar og er með þau á þar til gerðum svæðum. En það vantar virkilega þrýsting innan úr samtökum vélhjólamanna," segir Snorri, sem óttast að fyrr muni þessi ósiður ekki upprætast. „Þetta er sorglegt að eftir alla þessa umræðu og umtal um utan- vegaakstur skuli menn ekki sitja á strák sínum og haga sér eins og menn.“ ÞEKKIRÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Jeppadekk 35 ára gamall fangi fannst látinn á Litla-Hrauni Dánarorsök liggur ekki fyrir 35 ára gamall karlmaður fannst látinn í klefa sínum í fangelsinu á Litla-Hrauni á laugardagsmorgun. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangels- ismálastofnunar, segir málið vera í rannsókn en að ekkert bendi til þess á þessu stigi málsins að mað- urinn hafi framið sjálfsvíg. Dánar- orsök liggur ekki fyrir en stefnt er að því að framkvæma krufningu á næstu dögum. Maðurinn var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 1998 fyrir mann- dráp af ásettu ráði og hafði afplánað tæp tíu ár af þeim dómi. Hann strauk af áfangaheimilinu Vernd, á Laugateig 19, sunnudaginn 9. sept- ember síðastliðinn en var handsa- maður nokkrum dögum síðar. í kjöl- farið var maðurinn sendur aftur á Litla-Hraun í afplánun. Valtýr segir Litla-Hraun Maðurinn sem fannst látinn var að afplána 16 ára fangelsisdóm fyrir manndráp af elsismálastofnunar harmar fráfall mannsins og vottar aðstandendum hans samúð sína. þsj að þar hafi hann verið undir læknis- hendi og notið aðstoðar sálfræðinga. Allt starfsfólk fangelsisins og Fang-

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.