blaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 blaöiö FÉOGFRAMI vidskipti@bladid.net Við ætlum okkur að vera mikilvægur þátttakandi í íslensku samfélagi og skapa hughrif, stemningu og umtal. Verðlaun Vefur flugfélagsins Iceland Express var valinn besti vefurinn á heims- ráðstefnu lággjaldaflugfélaga sem fram fór í síðustu viku. Yfir hundrað veflr lággjaldaflugfélaga tóku þátt í forvali fyrir verðlaunin. Dollarinn lækkar enn Gengi Bandaríkjadollars hefur hríðlækkað að undanförnu vegna lækkunar stýrivaxta þar í landi. Er svo komið að gengi kanadíska dollarsins er orðið hærra en þess bandaríska, sem hefur ekki gerst í þrjátíu ár. Skýrist það einnig af því hversu sterkur kanadíski dollarinn er um þessar mundir. Gengi dollarans gagnvart evru er einnig í sögulegu lágmarki og fór það í 1,4065 í gær. Þá styrkt- ist gengi íslensku krónunnar gagnvart dollaranum og var það 62,32 krónur. Gengi krónunnar gagnvart evru er 87,78 og pundið kostaði í gær 126,01 kr. mge í «* _ 1C|\. ANDAIR GAKBÖ Fljúga með hross til Svíþjóðar Icelandair Cargo ætlar að hefja nýtt vikulegt fraktflug milli Keflavfkur og Stokkhólms frá og með 10. október næst- komandi. Flogið verður alla miðvikudagsmorgna. Samkvæmt fréttatilkynningu frá féiaginu er áætlað að fljúga með lifandi hross og frakt sem á uppruna sinn í Bandarfkjunum frá Keflavík en með almennar innflutningsvörur til baka frá Stokkhólmi. Icelandair Cargo hefur til þessa þjónað Norður- landamarkaði með fraktflugi um helgar auk þeirrar flugfraktar sem flutt er með farþegavélum Icelandair. þsj md/Ásdís Baugur kaupir í Debenhams Baugur Group og fjárfestingarfélagið Unity hafa í formi framvirkra samninga tryggt sér 13,5 prósenta hlut í bresku verslanakeðjunni Debenhams. Baugur fer með 6,7 prósent en Unity Investment, sem er í eigu Baugs, FL Group og Kevins Stanford, á um 6,8 prósent. Félögin hafa frá í sumarbyrjun verið að bæta við eignarhlut sinn í breska félag- inu en fyrrnefndur hlutur er metinn á tæpa fjórtán milljarða króna. Þá hefur breska blaðið The Times rætt um að Baugur hyggist gera yfirtökutiiboð í Debenhams á næstu mánuðum. Rekstur verslanakeðj- unnar hefur gengið illa það sem af er ári vegna dræmrar sölu í sumar. Hafa hlutabréf í félaginu fallið um helming frá áramótum. mge Sigríður Margrét Oddsdóttir „Við ætlum okkur að vera mikilvægur þátttakandi í íslensku samfélagi og skapa hughrif, stemningu og umtal,' segir Sigríður um framtíðarsýn Skjásins. Hræðist ekki sjónvarpsrisana ■ Sérstaðan mikils virði í samkeppninni ■ Engar stórar breyting- ar í vændum hjá Skjánum ■ „Viljum vera þess virði að sjá" Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Sigríður Margrét Oddsdóttir, nýr sjónvarpsstjóri Skjásins, seg- ist óhrædd við risana á sjónvarps- markaðnum. Hún hefur verið fram- kvæmdastjóri Skjásins frá því í júní en er nú einnig orðin sjónvarpsstjóri eftir að Björn Þórir Sigurðsson lét af störfum sem sjónvarpsstjóri Skjás- ins síðastliðinn föstudag. Skýr sérstaða „Það er gríðarlega skemmtilegt að vera í umhverfi þar sem er mikil samkeppni því það heldur manni á tánum,“ segir Sigríður Margrét, aðspurð um það hvort hún hræðist risana tvo í íslenskum sjónvarps- markaði, og bætir við: „Ég er líka sannfærð um sérstöðu Skjásins á íslenskum fjölmiðlamarkaði." Hún segir sérstöðu fyrirtækisins meðal annars felast í þeirri stöðu sem fyr- irtækið hafi tekið sér í stafrænu sjón- varpi og vísar þar til þjónustunnar sem fyrirtækið rekur undir nafninu Skjár bíó. Ný framtíðarsýn „Við ætlum að halda áfram að MARKAÐURINNÍGÆR bjóða Islendingum upp á gott efni og gera það ókeypis undir merkjum Skjás eins. Við ætlum einnig að efla markaðssetningu á hinum miðlunum okkar sem eru Skjár bíó og Skjár heimur,“ segir Sig- ríður Margrét þegar hún er spurð hvort henni fylgi stefnubreyting hjá Skjánum. Þá segir hún að nýbúið sé að mynda nýja framtíðarsýn fyrir fyr- irtækið. „Hún er einfaldlega sú að við viljum vera þess virði að sjá. Við ætlum okkur að vera mikilvægur þátttakandi í íslensku samfélagi og skapa hughrif, stemningu og um- tal. Til þess ætlum við að styrkja þá miðla sem við bjóðum upp á.“ Sigríður Margrét segir að innlend dagskrárgerð á Skjá einum verði áfram með svipuðu sniði. „Við erum nú þegar með mjög góða íslenska þætti á dagskrá auk þess sem nú í haust eru að fara af stað frábærir nýir þættir,“ segir hún. Engar stórar breytingar „Það eru engar stórar breytingar hjá okkur. Ég er búin að vera fram- kvæmdastjóri hjá Skjánum frá því í júní og mun nú einnig vera skráð fyrir útvarpsleyfinu og bera titil SIGRÍÐUR MARGRÉT ► Er 31 árs og með stúdents- próf frá Verslunarskóla íslands og BS-gráðu í rekstrarfræðum frá Háskól- anum á Akureyri. ► Hóf störf hjá Ráðgarði á Akureyri sem síðar rann inn í Gallup sem heitir nú Capacent. Stýrði stofnun nýs fyrirtæk- ^ is, undir nafninu Já, utan um útgáfu símaskrárinnar, rekstur upplýsingasímans 118 og vefsíðunnar sim- askra.is. ► Varð framkvæmdastjóri Skjás miðla þegar fyrirtæk- ið var stofnað í sumar utan um þær einingar innan Skipta sem sjá um miðlun upplýsinga og afþreyingar. Skipti er einnig móðurfélag Símans. sjónvarpsstjóra,“ segir Sigríður Margrét um þær skipulagsbreyt- ingar sem hafa orðið í kjölfar þess að Björn Þórir Sigurðsson lét af störfum sem sjónvarpsstjóri síðast- liðinn föstudag. Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 24. sept. 2007 Viöskipti í krónum Heildar- ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fiöldi viðskipti Tilboö í lok dags: verð breyting viösk.verðs viöskipta dagsins Kaup Sala Félög í úrvalsvísitölu a Atorka Group hf. 10,20 0,99% 24.9.2007 9 313.005.384 10,19 10,20 a Bakkavör Group hf. 66,10 0,92% 24.9.2007 22 207.811.228 66,10 66,20 ▼ Existahf. 30,46 -0,49% 24.9.2007 23 259.330.488 30,30 30,55 ▼ FLGrouphf. 24,55 -1,60% 24.9.2007 32 413.562.251 24,35 24,60 a Glitnir banki hf. 28,35 0,71% 24.9.2007 64 7.476.957.521 28,20 28,35 ▼ Hf. Eimskipafélag fslands 39,15 -0,13% 24.9.2007 6 23.984.016 39,15 39,55 a lcelandair Group hf. 26,15 0,19% 24.9.2007 3 2.620.794 25,90 26,15 ▼ Kaupþing banki hf. 1080,00 -0,18% 24.9.2007 53 728.880.932 1077,00 1080,00 ♦ Landsbanki íslands hf. 40,00 0,00% 24.9.2007 42 469.167.652 40,00 40,35 Mosaic Fashions hf. 17,50 - 14.9.2007 - - - 18,00 Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 19,30 0,26% 24.9.2007 37 799.497.174 19,15 19,30 ▼ Teymihf. 6,18 -0,64% 24.9.2007 1 1.737.921 6,18 6,22 ▼ össurhf. 98,70 -0,30% 24.9.2007 5 12.591.100 98,60 99,50 Önnur bréf á Aðallista ▼ 365 hf. 2,48 -1,59% 24.9.2007 4 3.740.000 2,46 2,49 a Alfescahf. 6,35 0,63% 24.9.2007 1 190.500 6,30 6,35 a Atlantic Petroleum P/F 1420,00 0,71% 24.9.2007 6 1.847.683 1417,00 1425,00 ▼ EikBanki 653,00 -0,61% 24.9.2007 9 6.960.324 650,00 662,00 ♦ Flaga Group hf. 1,43 0,00% 21.9.2007 - - 1,42 1,44 ▼ Foroya Bank 217,00 -1,14% 24.9.2007 7 1.285.330 217,00 219,50 ▼ lcelandic Group hf. 5,86 -1,35% 24.9.2007 3 5.860.000 5,82 5,90 a Marelhf. 99,20 0,10% 24.9.2007 11 51.747.769 99,00 99,50 ♦ Nýherjihf. 21,90 0,00% 21.9.2007 - - 21,80 21,90 Tryggingamiöstööin hf. 47,00 . 24.9.2007 4 64.529.874 46,00 47,10 Vmnslustööin hf. 8,50 - 22.8.2007 - - - - First North á íslandi Century Aluminium Co. 3125,00 - 24.9.2007 2 18.795.000 3098,00 3138,00 HB Grandi hf. 11,50 - 7.9.2007 HHI - - 12,50 Hampiðjan hf. 6,50 . 5.9.2007 . - - 6,55 • Mest viðskipti i Kauphöll OMX í gær voru með bréf Glitnis, fyrir um 7,5 milljarða króna. Næstmest viðskipti voru með bréf Straums- Burðaráss, fyrir 800 milljónir. • Mesta hækkunin var á bréfum Atorku, eða 0,99%. Bréf Bakka- varar hækkuðu um 0,92% og bréf Glitnis um 0,71%. • Mesta lækkunin var á bréfum FL Group, eða 1,60%. Bréf 365 lækkuðu um 1,59% og bréf Icelandic Group um 1,35%. • Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,01% í gær og stóð í 7.889 stigum í lok dags. • íslenska krónan styrktist um 0,04% í gær. • Samnorræna OMX40-vísitalan lækkaði um 0,54%. Breska FTSE- vísitalan hækkaði um 0,1%, en þýska DAX lækkaði um 0,1%.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.