blaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 15
blaðiö
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007
15
Heimsferðir brutu lög um alferðir
Óheimilt að krefjast auka-
greiðslu vegna gengisflökts
Heimsferðum var óheimilt
að krefja neytanda um viðbótar-
greiðslu fyrir alferð í tilefni af geng-
islækkun krónunnar. Þetta er niður-
staða samgönguráðuneytisins sem
staðfesti úrskurð Neytendastofu frá
því í fyrra.
Neytandinn hafði keypt sér ferð
með Heimsferðum sem fjórum
mánuðum síðar krafðist viðbótar-
greiðslu upp á rúmlega 13 þúsund
krónur. Rökin fyrir viðbótargreiðsl-
unni voru þau að gengi krónunnar
hefði lækkað á þeim fjórum mán-
uðum frá því að pöntun var gerð og
ferðin var greidd. I almennum skil-
málum og samningi aðila var hins
vegar hvergi tilgreint hvernig fram-
angreind hækkun skyldi reiknuð út.
Af þeim sökum taldi Neytendastofa
að um væri að ræða brot á lögum.
í niðurstöðu ráðuneytisins og
Ney tendastofu er Heimsferðum bent
á að orða skilmála sína með skýr-
ari hætti og tilgreina nákvæmlega
hvernig verðbreytingar séu reikn-
aðar og við hvaða gengi er miðað.
Hefur þessari ábendingu meðal ann- taka aðila í ferðaþjónustu.
ars verið komið á framfæri til Sam- magnus@biadid.net
Reader's Digest útnefnir „grænustu" löndin
ísland næstbest
Samkvæmt úttekt Reader’s Di-
gest er ísland „næst-grænasta“ land
í heimi. Tímaritið kaus að kanna
hvar væri hægt að vera í bestri snert-
ingu við náttúruna, jafnframt því
að lifa nokkuð mannsæmandi lífi
- og undanskildi þar með staði eins
og norðurheimskautið og svörtustu
frumskóga. Finnland hafnar í fyrsta
sætinu, en ísland er í öðru sæti og
fylgja Noregur og Svíþjóð þar fast á
eftir. Fékk Eþíópía lægstu einkunn
þeirra rúmlega 140 landa sem vegin
voru og metin.
Meðal þess sem tillit var tekið til
var hreinleiki vatns, orkubúskapur
og hve mikið er losað af gróðurhúsa-
lofttegundum, auk félagslegra þátta
á borð við menntunarstig og með-
altekjur. í tímaritinu kom fram að
jafnvel þau lönd sem báru af öðrum
áttu sína umhverfisdjöfla að draga,
en losun gróðurhúsalofttegunda er
yfir meðaltali í Finnlandi. Einnig
var tekinn saman listi yfir græn-
ustu borgir heims og bar þar Stokk-
hólmur sigur úr býtum, en Reykja-
vík var ekki ein þeirra borga sem
voru metnar.
arndis@bladid.net
Fáðu þér miða á www.hhi.is
eða í síma 800 6611.
Það tekur enga stund.
I dag drógum við ut
30 milljónamæringa.
Verður þú einn af þeim?
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings