blaðið - 25.09.2007, Síða 27

blaðið - 25.09.2007, Síða 27
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 43 Kidd sagt upp Verslunarkeðjan Marks og Spencer hefur sagt upp samn- ingum sínum við bresku ofurfyr- irsætuna Jodie Kidd eftir að í ljós kom að hún hafði reynt að selja blaðamanni dagblaðsins News of The World eiturlyf. Samkvæmt forsvarsmönnum fyrirtækisins kemur ekki til greina að endur- nýja samning Kidd þar sem það getur skaðað orðstír keðjunnar. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem stórfyrirtæki segir upp samn- ingum sínum við ofurfyrirsætu en á síðasta ári sleit tískukeðjan H&M samstarfi sínu við fyrirsæt- una Kate Moss eftir að myndir birtust af henni þar sem hún neytti kókaíns í hljóðveri þáver- andi kærasta síns Pete Doherty. Bíða mis- spenntir eftir Sigur Rós Von er á tvöfaldri breiðskífu frá hljómsveitinni Sigur Rós þann 5. nóvember næstkomandi eins og greint hefur verið frá í Blaðinu. Skífurnar kallast Hvarf og Heim og eru lögin á plötunum 11 talsins alltíallt. Lesendur tónlistarsíðunnar Drownedinsound.com bíða þó misspenntir eftir plötunum og sjá sig knúna til þess að segja skoðun sína á bandinu sem er þekkt fyrir að vinna hug og hjörtu útlendinga. Að minnsta kosti að mati íslendinga. Sumir lesendur síðunnar fagna þó tvö- faldri plötu frá Sigur Rós en aðrir segjast ekki muna hvort þeim líki enn við sveitina. Öðrum stendur á sama en hljómsveitin höfðar greinilega eícki til allra. Einn bendir á að Sigur Rós geti sent frá sér nánast hvaða efni sem er, gagnrýnendur séu alltaf himinlif- andi og tali um snilligáfu þeirra. Viðkomandi er þó ekki á þeim buxunum og segir bandið hljóma eins og U2 ef lög þeirra væru spiluð á hálfum hraða með Bono haldandi fast um klof sitt, syngj- andi aftur á bak. Stjörnurnar fjölga sér Leikkonan Salma Hayek eignað- ist dóttur í fyrrakvöld, en þetta er fyrsta barn stjörnunnar. Hayek eignaðist dóttur sína á Cedars- Sinai-spítalanum í Los Angeles og hefur stúlkan fengið nafnið Valentina Paloma Pinault. Faðir barnsins er franski auðjöfur- inn Francois-Henri Pinault en stúlkan er þriðja barn hans. „Móður og barni heilsast vel og foreldrarnir eru f skýjunum,“ segir fjölmiðlafulltrúi stjörn- unnar. Söngkonan Charlotte Church eignaðist einnig dóttur í vikunni en hún ólíkt Hayek kaus að fæða dóttur sina á heimili sínu. Church og unnusti hcnnar Gavin Henson hafa enn ekki ákveðið nafn á frumburðinn en segjast hafa nokkur í huga. Ellý Armanns hefur sagt skilið við þulustarfið á RÚV Kvaddi þjóðina með kossi „Ég kvaddi þjóðina með kossi seint á laugardagskvöld,“ segir Ellý Ármannsdóttir, fyrrverandi þula á Ríkissjónvarpinu. Ellý sagði skilið við þulustarfið á laugardagskvöld og kvaddi þjóðina í beinni útsend- ingu eins og henni einni er lagið. „Tilfinningin er tregablandin, það er rosalega gott fólk að vinna þarna.“ Ellý hefur ráðið sig til Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins og Blaðsins. Hún mun framvegis sjá um undirsíðu Mbl.is sem hefur hlotið nafnið Sviðsljósið og tekur púlsinn á þekktum einstaklingum. „Vefsíðan fer í loftið í vikunni, það er verið að vinna að henni dag og nótt. Þetta er svona sjónvarp á Netinu. Það er ástæðan fyrir því að ég kvaddi RÚV. Þegar maður vinnur hjá Sjónvarpinu er maður samningsbundinn og getur ekki unnið hjá öðrum miðlum. “ Fer óhefðbundnar leiðir „Það er ekkert vel liðið að maður sé að kveðja með kossi í Ríkissjón- varpinu,“ segir Ellý ómyrk í máli, aðspurð hvort kveðja hennar hafi einhver eftirmál. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Ellý fór óhefð- bundnar leiðir í dagskrárkynn- ingum sínum, en skemmst er að minnast þess þegar hún kynnti sjónvarpsdagskrána með nýfædda dóttur sína í fanginu. „Það var margt sagt úti í bæ þegar ég var með stelpuna,“ segir hún. „Það er umdeilt að draga athygli frá dagskránni.“ Athygli vakti fyrir nokkrum vikum þegar Ellý læsti bloggi sínu á Mbl.is án útskýringa, en bloggið hafði verið eitt það vinsælasta á landinu um nokkra hríð. „Ég var kannski komin út í svolitlar öfgar á blogginu og það var kannski ekki vel liðið,“ segir Ellý og bætir við að hún viti ekki hvort hún byrjar aftur að blogga á næstunni. atli@bladid.net

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.