Orðlaus - 01.10.2002, Qupperneq 16
16
FYRSTI KAFLI
styttur til birtingar í Orðiaus
Daginn sem ég varð sjö ára breytt-
ist allt. Það skiptir engu hversu
margt gott hefur gerst, það verð-
ur aldrei hægt að breyta því að á
sjö ára afmælisdaginn minn hófst
martröð sem hefur kvalið mig alla
ævi.
Ég hentist upp úr rúminu mínu því ég gat ekki
beðið eftir því að fara í fínu afmælisfötin mín.
En þá heyrði ég æstar raddir í herberginu við
hliðina, svefnherbergi pabba og mömmu. (
maganum myndaðist óþægindaverkur og ég
skreið aftur undir sængina og breiddi yfir haus.
Ég vildi ekki heyra þau rífast,en ég heyrði það
nú samt. Mamma var farin að gráta en ég
stakk höfðinu undan sænginni og lagði eyrað
við vegginn. Sagði hún ófrfsk? Vorum við að
fara að eignast barn? Ég fengi barn f afmælis-
gjöf. Það yrði langbesta gjöfin. Ég þorði varla
að anda af ótta við að missa af þvf sem eyrað
á köldum veggnum heyrði. Þegar ég heyrði
að þau höfðu sæst hvarf vondi verkurinn í
magnum,ég stökk á
fætur og hoppaði í
rú m-
i n u
einsog
brjálaðurapi.Það varvoná litlu barni.Ég myndi
eignast lítinn bróður sem yrði algert krútt.
Ég hætti að hoppa. Ég vildi ekki strák. Ég
vildi stelpu og ég vissi alveg hvernig ég
gæti fengið hana. Ég bæði Guð um stelpu f
staðinn fyrir strák. Ég hoppaði niður úr rúm-
inu, lagði olnbogana á trébríkina í rúminu,
spennti greipar og lokaði augunum eins og
I átti að gera. Síðan hvíslaði ég svo mamma
og pabbi vissu ekki að ég var vöknuð: - Góði
besti Guð, passaðu alla þá sem eru svo fá-
. tækir eða eiga enga mömmu og pabba.
j Hjálpaðu líka öllum sem eru veikir að batna
■ og gerðu það, gerðu það, gerðu það láttu litla
! barnið okkar vera stelpu. Ég lofa að vera besta
systir í öllum heimi. Ég skal aldrei stríða henni
eða rífast við hana ef þú bara lætur barnið
vera stelpu. Amen.
Mamma var nefnilega búin að segja mér að ef
maður bæði Guð um eitthvað af öllu hjarta og
væri góð manneskja gæti hann gefið manni
það sem beðið væri um.
- Til hamingju með afmælið, sögðu þau
um leið og ég tróð mér á milli þeirra í
rúminu. Ég knúsaði mömmu fast og tróð
nefinu í hálsakotið á henni. Það var
alltaf svo góð lykt af mömmu. Einhver
mjúk lykt sem var af engum öðrum. Hún
undirbjó veisluna um daginn á meðan ég
skoppaðist um og beið eftir því að klukkan
yrði fimm.Til að hafa ofan af fyrir mér horfði
ég á tvisvar sinnum á Með allt á hreinu í víd-
eóinu. Ég ætlaði nefnilega að verða söngkona
eins og Ragga Gísla. Mér fannst Grýlurnar
flottastar í myndinni. Einu sinni málaði ég mig
meira að segja með svörtum túss til að vera
með pönkaramálningu eins og þær. Mamma
hafði alveg bilast svo ég þorði aldrei að gera
það aftur, jafnvel þótt mig langaði ofsalega til
þess.
En ég átti ekki bara mömmu og pabba. Ég átti
líka stóran bróður. Pabbi hafði átt aðra konu
áður en hann kynntist mömmu og með henni
eignaðist hann Jóhann sem alltaf kom til
okkar aðra hvora helgi í heimsókn. Jóhann var
langbesti bróðir sem ég vissi að væri til.
Hann kom um fimmleytið til að stjórna
leikjunum. Pabbi birtist svo með risastóran
pakka. Risastóran. Þetta var rautt nýtt hjól,
alvöruhjól en ekki lítið og smábarnalegt eins
og hitt hjólið sem ég átti.
Og þegar krakkarnir voru farnir settust pabbi
og mamma niður með okkur Jóhanni og
sögðu okkur tíðindin. Þau væru að fara að
eignast barn eftir fimm mánuði.
Þegar pabbi og mamma fóru út um kvöldið til
að fagna tíðindunum lofaði ég að vera stillt og
fara snemma að sofa. Um leið og hurðin lokað-
ist öskruðum við Jóhann af hlátri. Glætan að
ég færi snemma að sofa. Ég átti nú einu sinni
afmæli. Jóhann sagði að ég yrði bara að vera
sofnuð áður en þau kæmu heim.Við lögðumst
í sófann og kveiktum á sjónvarpinu. Jóhann
sagði mér frá stelpunni sem hann var hrifinn
af. En það mátti ég engum segja. Hann var
meira að segja búinn að kyssa hana. Jóhann
var orðinn svo stór. Þrettán ára.
- Jóhann, ætlarðu nokkuð að hætta að leika
við mig þegar þú verður stór? vildi ég vita.
- Nei,sagði hann.Það geri ég aldrei.Þú ert upp-
áhaldið mitt í öllum heiminum.
Við horfðum á einhverja bíómynd í
sjónvarpinu. Ég hef líklegast verið orð-
in úrvinda eftir daginn því ég
steinsofnaði í fanginu á bróður
mínum. Alsæl, Kfið hefði ekki getað
verið betra.
Ég vaknaði um það leyti er myndinni var
að Ijúka við skrýtin hljóð og óþægilega
snertingu. Jóhann lá fyrir aftan mig í sóf-
anum og það var eins og hann væri alltaf
að rekast í mig. Ég fann kulda leika um
fæturna á mér og leit niður. Náttkjóllinn minn
var kominn upp fyrir nafla og nærbuxurnar
niður á læri. Ég held að ég hafi fyrst og fremst
verið hissa. En mér leið illa. Ég sneri höfðinu
og leit á Jóhann. Hann var með lokuð augu
og frá honum komu skrítin hljóð. Eins og
hann væri að hlaupa og orðinn þreyttur. Ég
leit niður og sá að hann hélt utan um tippið
á sér og færði hendina fram og til baka. Þess
vegna var hann alltaf að rekast í mig. Svo kom
allt í einu eitt skrítið hljóð enn, hann opnaði
augun og horfði beint framan í mig.Ég vissi
ekki hvað ég átti að gera.Hann varð eldrauður
og vandræðalegur. Þá vissi ég að ég átti ekki
að hafa séð þetta. Svo ég gerði það eina sem
ég gat til að gera gott úr þessu. Ég reyndi að
láta eins og ég hefði aldrei séð neitt og klem-
mdi augun aftur. Mér fannst eins og það liðu
margir klukkutímar þótt það hafi eflaust ekki
verið nema örfáar mínútur. Bróðir minn brölti
þarna við hliðina á mér og ég vissi að hann var
að gyrða sig. Svo tosaði hann mínar nærbuxur
upp líka og kjólinn niður.
- Saga, þú mátt ekki segja neinum þetta, sagði
hann.
Ég kreisti augun áfram saman.Óskaði þess að
ég væri ekki þarna. Sagði ekkert. Kannski hann
léti mig þá bara í friði og allt gæti orðið eins
og það var.
- Saga, ég veit að þú ert vakandi, talaðu við
mig.
Ég opnaði augun og horfði á hann. En sagði
ekki neitt.
- Saga, þú verður að lofa að segja engum
frá þessu. Þetta verður leyndarmálið okkar.
Pabbi og mamma verða reið við okkur bæði
ef þú segir eitthvað. Þú veist að mér þykir svo
ofsalega vænt um þig. Lofaðu þessu nú,elsku
Saga besta litla systir mín.
Ég kinkaði kolli og lokaði augunum aftur.
- Saga, segðu að þú lofir upp á litla barnið að
þú segir aldrei frá.
Mér leið svo illa. Mér var ekki bara kalt eins
og venjulega. Ég var köld alls staðar, líka inni í
mér. Ég vildi bara fá að vera í friði.
- Ég lofa, sagði ég
- Þykir þér ekki ennþá vænt um mig, Saga?
spurði hann.
- Jú, Jóhann, mér þykir auðvitað vænt um
þig. Ég ætla að fara að sofa núna, er það ekki
í lagi?
Hann varð enn asnalegri og ég vorkenndi hon-
um svo. Ég átti ekki að vakna. Þá hefði þetta
ekki gerst.
- Jú, farðu bara upp í núna, ég ætla að horfa
á eina mynd svo kem ég líka, góða nótt stóra
stelpa.
Þessa nótt byrjaði ég áttunda árið mitt alein
og full af vanlíðan. Ég var svo dofin að ég gat
ekki hugsað og alls ekki sofnað. Hvað ef ég
sofnaði og hann gerði þetta aftur? Greyið Jó-
hann, hvað hann skammaðist sín fyrir að ég
skyldi sjá þetta. Ég myndi engum segja. Og
buxurnar mína á lærunum.Ætli ég hafi togað
þær niður meðan ég svaf? Mikið skammaðist
ég mín. Þessu væri best að gleyma alveg. Bro-
sa og láta eins og ekkert hefði gerst. Þá væri
hann ennþá besti bróðirinn í heiminum og ég
uppáhaldið hans. Ef hann myndi ekkert segja
þá yrði mamma ekkert reið og allt væri í lagi.
Daginn eftir vaknaði ég fyrst allra. Ég lá samt
kyrr í rúminu og sneri mér til veggjar. Grúfði
mig undir mjúku sængina með rauðu og
bláu röndunum. Mig langaði ekki að horfa
á Jóhann. Mér leið ennþá illa og var eins og
frosin. En það sem fyrst bærði á sér var hræðsl-
an. Ég hafði sofnað! Hafði hann kannski gert
þetta aftur á meðan ég svaf? Mig langaði alls
ekkert fram úr rúminu. Kíkti samt undir sæng-
ina mína til að athuga hvort ég væri samt ekki
klædd ennþá ( nærbuxurnar mínar. Þær voru
á sínum stað og mér leið örlítið betur við það.
Ég skynjaði frekar en vissi að það sem gerst
hafði hafði verið Ijótt.Ljótt leyndarmál.
Ég lá ( rúminu fram undir hádegi og grét.
Þegar Jóhann vaknaði þóttist ég sofa en
ég vissi ekkert hvernig ég átti að láta eða
hvernig hann myndi láta við mig. Og ég var
svo hrædd um að allir myndu sjá á mér hvað
hefði gerst. Að svona Ijótt leyndarmál hlyti að
sjást utan á mér. Þegar ég kom ekki fram kom
mamma inn og vakti mig. Hún hió og spurði
hvort ég hefði fengið að vaka iengur hjá
Jóhanni. Ég viðurkenndi það og rey-
ndi að brosa á móti. Það hlýtur að hafa
tekist ágætlega þv( mamma áttaði sig
ekki á því hve illa mér leið. Þegar ég kom
fram brosti Jóhann til mín og sagði:„Góðan
daginn svefnpurka."Ég brosti á móti og bauð
góðan daginn.
Pabbi var í baði þegar ég kom fram. Ég þurfti
að pissa og fór inn eins og ég var vön en í
fyrsta sinn leið mér ömurlega að sjá hann
þarna í baðkarinu. Ég reyndi að forðast að hor-
fa á hann og þegar hann bauð góðan daginn
tuldraði ég eitthvað niður í bringu. Ég hætti
við að pissa og fór aftur fram.Ég gat ekki hugs-
að mér að girða niður um mig fyrir framan
hann,eða bara vera nálægt honum fyrst hann
var í baði. Pabbi var allt í einu hættur að vera
bara pabbi minn, hann orðinn
maður - karl. Og hann hafði
tippi eins og Jó-
hann. Ég vildi alls
ekki reka augun
í það eftir þetta með Jóhann. Ég settist fyrir
framan sjónvarpið og horfði á skjámyndina.
Þar til ég uppgötvaði að mamma yrði undr-
andi við að sjá mig sitja yfir sjónvarpinu þegar
ekkert væri í þv(. Ég tróð teiknimynd í tækið
og sat dofin þar til hún var búin. Jóhann kom
og settist hjá mér þegar myndin var að klárast
og spurði hvort ég vildi ekki koma út að leika.
Við gætum spurt eftir einhverjum krökkum
og ég prófað nýja hjólið mitt. Hann var alveg
eðlilegur og mér fór að líða aðeins betur. Jú,
mig langaði að prófa hjólið mitt. Ég ákvað að
hætta að hugsa um þetta og ímynda mér að
þetta hefði aldrei gerst
Við fórum í langan hjólatúr og buðum Söndru
með. Vanlíðanin dvínaði hægt og rólega og
Jóhann var aftur eins og hann átti að sér að
vera, góður og skemmtilegur. Ég hugsaði með
mér þegar ég horfði á Jóhann hjóla að þetta
hefði ekki gerst. Mig hefði bara dreymt illa.
Já, það var örugglega málið, mig hafði bara
dreymt illa.
„ Ég kreisti augun áfram saman.Óskaði þess að ég væri ekki þarna.Sagði
ekkert. Kannski hann léti mig þá bara í friði og allt gæti orðið eins og það var"
„Ef hann myndi ekkert segja þá yrði
mamma ekkert reið og allt væri í lagi
H