Orðlaus - 01.10.2002, Side 18

Orðlaus - 01.10.2002, Side 18
4 Brasilía Brasilía er stærsta land Suður-Ameríku og þekur næstum helming heimsálfunnar; er 8.511.965 km2 að stærð. Þar finnirðu allt sem þú vilt finna í einu landi, stærstu strendur heims, regnskóga, fallegar borgir, baðfatatísku og ekki má nú gleyma, sætustu strákana. Höfuðborg: Brasilía Stærstu borgirnar Sao Paulo Rio de Janero Porto Alegre Recife Salvador Belo Horizonte. fbúar Fjórir stærstu hóparnir eru: Innfæddir Ameríkubúar, búa aðallega fyrir norðan og vestan. Portúgaiar,forfeður þeirra stofnuðu þar nýlendurá 15. öld. Afríkubúar,forfeður þeirra voru fluttir þangað sem þrælar. Ýmsir Evrópu- og Asíubúar, innflytjendur sem komu þangað í byrjun 18. aldar. Trúarbrögð: 89% íbúa landsins eru róm- versk-kaþólskir. Þar eru líka um 9.7 milljónir mótmælendur og talsvert af lúterstrúarmönn- um, meþódistum, biskupum og smá samfélag gyðinga.l landinu erekki þjóðkirkja. Tungumál: Portúgalska er opinbert tungu- mál Brasilíu, þó svo að Brasilíubúar hafi til- einkað sér slettur og orð frá innfæddum og innflytjendum. Þýska og ítalska er gjarnan töluð af Brössum, mest þó í borgum sunn- arlega. Einnig er töluð spænska, enska og franska víða. Menntun: Grunnskólamenntun er ókeypis og skylda fyrir krakka á aldrinum 7-14 ára. U.þ.b. 81 % þjóðarinnar 15 ára og eldri er læs og skrifandi. Gjaldmiðill: Real. 1 real er 22 Islenskar krónur. Tips fyrir þá sem ætla sér að fara til Brasilíu ■ Brasilíumenn tala portúgölsku, ekki spæn- sku og líta ekki á sig sem Spánverja. Ef nöfn eru stafsett eða borin rangt fram getur það talist móðgun. - Hafa ber í huga að þegar bankað er á dyr á að stíga aftur og bíða eftir að opnað sé fyrir þér. ■ Hlutlæg rök eru aðeins metin af Brasilíu- mönnum ef þau þykja henta þeim. Annars ráða tilfinningar oft ákvörðunum. - Heilsast er með handabandi þegar við komu og brottför alls staðar. Ef þér er boðið í heima- hús er það mjög mikill heiður. Athuga ber að ekki er bankað á hurðir í heimahúsum; tekið er eitt skref aftur á bak og klappað.Ekki er ráð- legt að færa gestgjafanum fjólublá blóm þar sem þau tákna dauðann. • Skerðu mat með hníf, einnig ávexti og sam- lokur. Ekki skera með gafflinum. - Samtalsfjarlægð er oft frekar lítil í Brasilíu. Handaband varir oft nokkuð lengi með stöð- ugu augnsambandi; nánir vinir faðmast oft. Það er merki um velvilja ef fólk togar í eyrna- snepla sína. ■ Til að kalla á einhvern ber að rétta höndina út með lófann niður og veifa fingrunum að líkamanum. * Hafa ber í huga að umferðin í Brasilíu er ákaf- lega hröð. ■ Ef vísa þarf til Bandaríkjanna á ekki að segja „Ameríka" þar sem Suður-Ameríkubúar líta á sig sem„ameríkana" Ferðasaga Sumarið 2001 pakkaði ég ofan í tösku og lagði af stað í ævintýraferð til Brasilíu. Ég lenti í Sao Paulo sem er næst stærsta borg í heimi. Mannlífið í Sao Paolo er rosalega fjölbreytt, maturinn er góður, fólkið fallegt, tónlistin skemmtileg og skemmtanalífið er frábært en bilið á milli ríkra og fátækra er skuggalegt. Ef þú ferð og gengur um í venjulegu hverfi, sem eru fátækrahverfi á okkar mælikvarða (favel- las), eru miklar líkur á því að verða rændur, sér- staklega ef þú ert með vasadiskó eða síma. Þú getur ekki látið sjást að þú sért með verðmæti. Strákur sem ég kynntist þarna úti var drepinn því hann var nýbúinn að kaupa sér nýja vespu, en þar sem ég er hvít og frá íslandi (gringa) þá lágu mér allir vegir færir. Ég kynntist strax vel efnaða liðinu og þá er ég að tala um VEL EFN- AÐA liðinu. Mér var boðið í hús vinar míns sem var á þrem hæðum með átta baðherbergjum, sundlaug, þrem þernum og bíósal svo fátt eitt sé nefnt.Seinna komst ég að því að þetta var einungis sumarhúsið hans þar sem hann gat haldið teiti og boðið vinum að vild. Þetta kvöld fórum við á stærsta diskótek í nágrenni Sao Paulo, Avellinios, sem rúmar 120.000 manns. Þegar ég kom að diskótekinu borg- uðu strákarnir dyraverðinum háa upphæð og fengum við öll armband sem veitti okkur frían aðgang að öllum VIP herbergjum þar sem voru fríar veitingar. Á þessu diskóteki voru sjö salir og þar var að finna.alla tegund tónlistar; Rock, hip hop, techno, house, drum 'n' base og auðvitað brasilíska tónlist. Ég hef aldrei á ævinni skemmt mér jafn vel. Þegar þú kemur frá Evrópu þá þýðir það aðeins eitt fyrir þeim, þú ert vel efnuð og með góð menntun. Þeir koma fram við þig eins og prinsessu og vilja allt fyrir þig gera. (búðin sem ég bjó í var við ströndina í venjulegu hverfi. Fólkið sem bjó þar átti enga peninga og það hafði enga menntun en var samt sem áður hamingjusamt og lífsgleðin geislaði af þeim.Virku dögunum eyddi ég á ströndinni og lék mér í öldunum á brimbretti eða sleikti sólina með innfæddum. Það var sumar hjá okkur en vetur hjá þeim og þess vegna varð ég ekki vör við neina ferða- menn.Verðlagið er algjört grín þarna úti, samt var ég í Brasilíu áður en gengið féll, þannig ( dag er allt mun ódýrara. Þú gast fengið poka af brauði á 40 krónur, kassi af bjór í verslun kostaði 140 krónur og ef þú fórst út að borða fór reikningurinn aldrei yfir 350 krónur. Hins- vegar ef þú ferð á bestu veitingastaðina í Sao Paulo getur verðið á steikinni farið yfir 3000 kr. Reynslan mín af Brasilíu er hreint út sagt frábær. Endalausar strendur, fjölbreytt mann- líf, fáklætt fólk, skemmtileg menning og villt skemmtanalíf gerðu það að verkum að þarna fann ég pardís á jörðu. Ýr„ferðamaður" Þrastardóttir Saltfiskur að brasilískum hætti 1 kg saltfiskur 1 laukur 1-2 hvítlauksskeiðar 1 rauð paprika 1 græn paprika 3-4 tómatar 4 vorlaukar 200 ml heitt vatn 3 msk olía 200 mlkókosmjólk pipar 1/2 tsk paprikuduft 1/2 tsk túrmerik Saltfiskurinn og grænmetið skorið í bita. Olía hituð á pönnu og laukur, paprika og hvít- laukur látin steikjast við meðalhita í 5 mín. Tómatarnir maukaðir í matreiðsluvél og settir á pönnuna ásamt saltfiskbitunum. Hitað að suðu og látið malla í 12-15 mín. undir loki. Kryddað með paprikudufti, túrmeriki og pipar. Að síðustu er kókosmjólkinni hrært saman við. Gott er að bera réttinn fram með hrísgrjónum og fersku salati. Rio deJaneiro Rio de Janeiro var fundin 1. janúar (Janeiro ) 1502 af Portúgölskum sæfara og fram til árs- ins 1960 var hún höfuðborg Brasilíu. En þann dag í dag er rætt um hvort borgin sem slík hafi batnað eða hlotið skaða af að missa tit- ilinn sem höfuðborg landsins.en margir líta svo á að hún sé alger höfuðmiðstöð menn- ingar í brasilíu. Rio býður upp á stórbrotna fegurð, hún hreiðrar um sig á milli stórkost- legrar strandlengju og snarbrattra fjallgarða, umvafinn gróðurmiklum regnskógum. Menn- ingarlíf Rio er afar mikið og fjölbreytt og þar er haldið hið árlega þriggja daga carneval sem samanstenduraftónlist,söng,veisluhöld- um og dönsurum dansandi á götum úti. ( borginni búa í dag um 6 milljónir. Hvað kostar að fara þangað? Með nettilboði flugleiða til London kostar 19.982 kr - Frá London til Rio með Varig flugfélaginu kostar 84.410 kr - Samtals eru þetta 104.392 kr. Það er hugsanlega hægt að finna eitthvað ódýrara. Giesele Bundchen Heitasta súpermódel Brassana, einstaklega sæt og að gera það gott sem fyrirsæta út um allan heim.Hún er fædd 20.júlí 1980 og hefur setið fyrir á svo mörgum Vogue forsíðum að það mætti halda að það væri engar aðrar fyrirsætur til. Árið 1999 kom hún 4 sinnum framan á forsíðu Vogue og kusu þeir hana einnig módel ársins.

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.