Orðlaus - 01.10.2002, Side 22

Orðlaus - 01.10.2002, Side 22
" segir í tíunda boðorð- inu. Þetta boðorð brjóta margir en einn þjóðfélagshópur stundar það sérstak- lega, með samþykki náungans og hafa þeir fengið heitið „Swingers" Makaskipti, eða „swinging" eins og það er kallað, er félagslegt eða kynferðislegt samneyti við einhvern annan en maka þinn. Það getur farið fram í hópum í þar til gerð- um partýum eða klúbbum, á tvöföldu stefnumóti eða með þriðju manneskjunni í „threesome" Sama á hvernig hátt það er stundað er hér um að ræða óhefðbundið kynlífsviðhorf sem stangast á við það sem flestir telja rétt. „Swinging" hefur ekki verið mikið í umræð- unni hér á landi, en þessi lífstfll er mun útbreiddari en fólk gerir sér grein fyrir. Upp- tökin má rekja allt aftur til seinni heimsstyrj- aldarinnar á flugherstöðvum bandarískra hermanna víðs vegar. Flugmennirnir gerðu sér grein fyrir þvl að starf þeirra var ekki hættulaust og mundi að minnsta kosti þriðj- ungur þeirra ekki lifa lok stríðsins. Peninga áttu þeir nóg og gátu þeir því flutt eiginkon- ur sínar til sín á herstöðvarnar þar sem mynd- uðust lítil og fremur óvenjuleg samfélög. Hermennirnir vildu ekki að eiginkonur sínar giftust út fyrir þennan litla hóp ef þeir snéru ekki heim úr orrustunum og fannst betra að þær myndu vera með einhverjum úr þeirra röðum. Þeir ákváðu því að stunda makaskipti. Eftir að styrjöldinm lauk dreifðust hóparnir þegar hermennirnir og konur þeirra snéru til síns heima og lífstíllinn breiddist út. A Þ' eim árum sem liðin eru frá lokum stríðsins hafa hópar sem iðka makaskipti breiðst út um allan heim og miðað við þjóðfélagsþróun nú- tímans má gera ráð fyrir því að fjöldinn muni margfaldast á næstu áratugum. Erfitt er að benda á eina þjóðfélagsstétt sem stundar hvað helst makaskipti. Það breytir litlu af hvaða kynþætti eða þjóðerni fólkið er né hvort það sé gamalt eða ungt. Yfirleitt eru § þetta pör, gift eða ógift, sem hafa mikla ævin- týraþrá, eru tilbúin til að prófa nýja hluti og í„heilbrigðu" sambandi sín á milli. Einhleypar konur eru ávallt meira en velkomnar,eins og á flestum öðrum stöðum og stunda þær það gjarnan að fara í partýin til að fá nýja sýn á kynlöngun slna. Hinum elskulega karlpeningi er þó ekki alltaf tekið eins opnum örmum og það heyrir til undirtekninga að þeir komist inn án þess að hafa platað einhverja dömu með sér. Einkamáladálkar voru upphaflaga eina leiðin til að komast í samband við önnur pör með sama ( huga, en það var þó fljótt að breytast. Frá árunum 1960 hafa verið stofnaðir fjöld- inn allur af „Swing"-klúbbum sem einungis eru ætlaðir fólki sem vilja stunda makaskipti. Misjafnt er hvort kynlíf sé stundað inni á þess- um stöðum eða ekki en oft eru klúbbarnir einungis ætlaðir sem staður til að hitta pör í sömu hugleiðingum. Þá kynnist fólkið og ákveður stað og stund fyrir stefnumótið utan hans. Þeir staðir sem bjóða upp á kynlífsiðkun eru þó fjölmargir og hafa þeir verið hannaðir með það í huga að bjóða upp á afslappað um- hverfi fyrir hópana. Það er hægt að slappa af I heitum potti, ræða heimsmálin í setustofunni eða sleppa öllum formlegheitum og skella sér beint upp í herbergi. Þar er hægt að fá einkaherbergi ef fólki finns það ekki hæfa sin- ni siðferðiskennd að láta horfa á sig, en sumir eru það frjálslegir að þeim er alveg sama, því fleiri því betra, henda sér úr fötunum, skella sér á gólfið og byrja að hamast í miðju marg- menninu.Smekklegt,ekki satt? Tilbreytingaleysi, hver kannast ekki við það? Hver dagur er öðrum líkur og maður tekur vart eftir hve mánuðirnir líða. Margt er þó hægt að geratilaðaukatilbreytinguna íl(finu,fara (fall- hlífastökk, á Ijósmyndanámskeið eða ganga á Esjuna á góðum degi.„Swingers"bregða á það ráð að ganga á maka náungans. hyglin sem þeir fá frá hinu kyninu veldur því að þeim Ifður meira aðlaðandi og kynþokkafyllri. Þeir fá tækifæri til að prófa hluti sem þeir hefðu ekki þorað að hugsa um með fólki sem þeir hefðu ekki þor- að að láta sig dreyma um og að þeirra sögn auka þessir hlutir ánægju og fullnægju innan sambandsins.Ef fólki fyndistalmennt ánægju- legt að hugsa til maka s(ns uppi í rúmi með einhverjum öðrum þá myndi það nú spara heilmikil rifrildi og hjónaskilnaði. („Swinging"-samfélaginu gilda reglur eins og annars staðar. Það er talin ókurteisi að mæta á svæðið án þess að hafa gert boð á undan sér og mikilvægast af öllu er að báðir aðilar séu fullkomlega sáttir við afstöðuna. Ef allt fer í háaloft þegar samkvæmið er byrjað er ætlast til að fólk fari afsíðis og ræði málin í einrúmi. Fólk klæðist kynæsandi fatnaði á stöðum þar sem kynlíf er ekki stundað,en engu skiptir um hina staðina, þar er enginn I fötum. Gott væri þó að hafa með sér slopp ef rassinn verður kaldur,vera búinn að fara (sturtu.bursta tenn- urnar og svoleiðis. Flestir minnihlutahópar hafa fengið sinn toll af gagnrýni og háði í gegnum tíðina og er það engin undantekning með„Swingers"Fjöl- miðlar hófu að fjalla um málefnið rétt áður en fyrstu klúbbarnir voru stofnaðir og töluðu um þetta sem„konuskipti"Samfélagið át upp nei- kvæðar skoðanir þeirra og hafa„swingers"þv( verið dæmdir harkalega af fólkinu í kringum þá. Þegar útbreiðsla alnæmis var tekin fyrir ( fjölmiðlum lentu þeir einnig ( harkalegum átökum, því meðal þeirra giltu engar reglur um notkun smokka. Öll þessi neikvæða um- fjöllun varð til þess að maður að nafni Dr. Robert McGinley stofnaði samtökin„The Life- styles Organization" og „NASCA" til að bæta almenningsálitið og til þess að klúbbarnir ættu samtök til að leita til ef mála- ferli á hendur þeim kæmu upp. ( forvitni minni um hvaða álit (slendingar hefðu á makaskiptum lagði Ég inn spurn- ingu á femin.is. Ekki er þó hægt aðalhæfa að þetta sé hin dæmigerða afstaða því ég veit ekki hverskonar fólk svarar spurn- ingum á femin, en ég fékk allavega mis- munandi viðtökur. Annars vegar var ég spurö:„hvað finnst þér svona spennandi við þetta?? Ef þig langar til að sofa hjá einhverjum öðrum af hverju ertu þá ekki bara á lausu og sefur hjá þeim sem þér sýnist?" Annar svarandi sagði:„Sammála! Ég held að maður hljóti að vera farin að fá leið á kynlífinu með maka sínum ef manni færi að langa að sofa hjá öðrum manni og hvað þá að sætta sig við að maðurinn sé með annarri konu." Það voru þó ekki allir á þessari skoðun og fékk ég jákvæðari viðtökur við spurningu minni. Einn sagðist hafa hitt fólk sem stundaði þetta og léti bara vel af.„Þetta er bara eins og allt annað, hentar sumum og öðrum ekki. Sakar engan svo lengi sem allir eru á sömu bylgjulengd, - og kemur öðrum ekkert við." Þar sem ég er ekki hjónabandsráðgjafi, sálfræðingur eða sérfræðingur af einu eða neinu tagi er ekki mitt að dæma hvort þetta sé rétt eða rangt. Sumum gæti fund- ist þetta siðlaust, jafnvel ógeðslegt, aðrir hugsa sem svo að einstaklingurinn hafi frelsi til athafna á meðan það skaðar ekki aðra. Ég leyfi þv( lesendum að dæma sjálf- um, þeir sem eru áhugasamir geta sent inn auglýsingu á einkamál.is (þar er víst fólk ( svipuðum hugleyðingum) en hinir geta bara haldið áfram sínu daglega l(fi og hætt að velta sér upp úr málum annarra. f>

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.