Orðlaus - 01.10.2002, Page 38

Orðlaus - 01.10.2002, Page 38
BEYGLUR KOMA SÉR ÁFRAM Leiksýning Skjallbandalagsins„Beyglur með öllu" sem sýnd er í Iðnó við miklar undirtektir hefur vart farið framhjá landsmönnum. Sýningin hefur fengið gríðar- lega umfjöllun, auglýsingar prýða miðbæinn og í hverju horni heyrist fólk tala um hana. Nú eru sýningar fimm sinnum í viku og yfirleitt er uppselt. Ég skellti mér því á sýninguna síðastliðið laugardagskvöld og verð ég að segja að ég hef sjaldan skemmt mér eins vei. Ég, sem og aðrir leikhúsgestir, grenjaði úr hlátri frá upphafi til enda og næstu daga á eftir hugsaði ég lítið um annað. Til að fræðast ögn um hugmyndina á bak við leiksýninguna hitti ég þær stöllur í Iðnó og við ræddum málin yfir kaffibolla. Vert er að taka fram að leikritið er samið í heild sinni af leikkonunum, Arndísi Hrönn Egilsdóttur, Elmu Lfsu Gunnarsdóttur, Jó- hönnu Jónas, Þrúði Vilhjálmsdóttur og leik- stjóranum Maríu Reyndal sem heldur þessu öllu gangandi. María hóaði hópinn saman og fóru þær að hittast einu sinni í viku fyrir rúmu ári síðan. „Við komust að því að við gátum blaðrað endalaust um konur og datt því í hug að gera sýningu um líf kvenna. f upphafi var þetta einskonar tilraunaleikhús, við skrif- uðum í samræmi við það hvernig gekk að leika/'svöruðu þær aðspurðar um framgang verksins. Stefnumótunum fjölgaði, skrifin fóru að taka á sig mynd og þegar mennta- málaráðuneytið ákvað að veita þeim styrk fór boltinn að rúlla. Tími til kominn að fjalla um geðsýkina á léttu nótunum. Umræðan um viðkvæm efni eins og homma, lesbíur, fitu, kynsjúkdóma og ekki síst um konuna sjálfa hefur til þessa yfirleitt verið á háalvarlegu nótum og hefur ef til vill frekar verið til að minnka álitið held- ur en að auka það. Fólk lítur á málefni minni- hlutahópa oftast sem eitthvað viðkvæmt efni og eins og allir vita er ekki ætlast til að gert sé grín af þeim. Beyglurnar sýna hins vegar að það er allt í lagi að gera grín af sjálf- um sér. Fólk verður að hafa húmor fyrir sjálf- um sér og göllum sínum. Þá fór hugmyndin að fæðast. Af hverju ekki að gera leikrit um líf kvenna og hafa smá húmor fyrir því? Þær brugðu því á það ráð að sletta smá gríni inn í umræðuna og reyna að hrista upp í fólki. Samfélag nútímakonunnar, eðli hennar og hegðun er tekið fyrir á nýstárlegan hátt, mark- aðsvæðingin og dramatíkin sem henni fylgir skellt upp I gr(n og útkoman hreint glæsileg. „Okkur fannst kominn tími til að gera smá grín að konum,fjalla um þessa geðsýki á léttu nótunum og fá fólk til að hafa gaman af hlut- unum í stað þess að velta sér upp úr þeim úti í horni. Af hverju má gera grín af öllum nema minnihlutahópum.Þeir verða að slaka á í vörn- inni, fólk meinar ekkert illt með því. Maður þarf fyrst og fremst að læra að gera grín að sjálfum sér til að geta gert grín að öðrum." Beyglurmeð öllu Persónusköpunin er engri l(k. Þar birtist strippgellan Ólöf, sjálfstyrkingarþerapistinn Jóhanna, Magga lessa,eiginkonan og viðhald- ið og Ijóshærða barbídúkkan svo eitthvað sé nefnt. „Hugmyndin var sú að allar konur gætu fundið einhverja eiginleika í karakterunum sem þær þekkja f sjálfri sér.einhverri vinkonu, mömmu eða frænku. Við byggðum þetta út frá okkar eigin reynslu og reynslu annarra, mixuðum það saman og útkoman var Beyglur með öllu." Vildum kveikja í fólki En voruð þið ekkert hræddar við að hneyksla landann með þv( að gera gr(n af svona„háal- var!egu"málefni? „Sumum finnst við ef til vill vera of grófar, en það var það sem við vildum. Við vildum kveik- ja í fólki, vekja eftirtekt, undrun og hneykslun og það er bara staðreynd að maður nær miklu betur að koma skilaboðum til skila í gegnum húmor. Ef við hefðum farið að taka konur fyr- ir á alvarlegu nótunum myndi það eingöngu gera þær enn dramatískari. Það að gera grín af vandamálum gerir þau líka einfaldlega minni en þau eru.Við slógum því til.markaðssetning- in var gtfurleg og byrjuð áður en við vorum ( rauninni tilbúnar.Verkið vekur athygli og áður en við fórum út í þetta ákváðum við að vera bara stoltar af því sem við erum að gera. Konur eiga það til að minnka sjálfar sig svo mikið.Við fundum einnig fyrir því hjá sjálfum okkur þegar við vorum að byrja að gera leik- sýninguna og byrja að kynna hana.Við vildum ekkert vera að mikla hana, frekar minnka, þan- nig að enginn yrði fyrir vonbrigðum. Svona eru konur í hnotskurn. Þær trúa aldrei á sjálfar sig. Maður verður bara að reyna að vera stolt- ur af sjálfum sér og hætta að hugsa svona. Hvernig eiga hlutirnir annars að ganga upp? Endalaus samanburður við háleitar fyrirmynd- ir er að fara með nútlmakonuna. Aðra stund- ina erum við á toppi sjálfsöryggisins, finnst ekkert geta stoppað okkur en hina stundina getum við varla hugsað okkur að stlga út fyr- ir þröskuldinn þv( þá gæti fólk séð hvað við erum ómögulegar. Hvað er það sem lætur okk- ur haga okkur á þennan hátt? Hver getur tek- ið okkur alvarlegar þegar við reynum alltaf að brjóta sjálfar okkur niður? Hvað finnst Beygl- unum um þetta mál og hvað er til ráða? „Það þurfa ekkert allir að elska mann til þess að manni líði vel. Stundum er bara gott að gefa skít (allt og gera það sem Kfið hefur upp á að bjóða. Maður nær að vera maður sjálfur ef maður er bara nákvæmlega það sem mað- ur er og er sama hvort fólki l(ki það eða ekki. Mikilvægast af öllu er að vera sterkur karakter, allt annað kemur í kjölfarið." Ekki eintómt kerlingavæl Þessi málefni varða ekki einungis (slenskt kvenfólk heldur kvenfólk yfir höfuð. Væri því ekki hugsanlegt að setja leikritið upp úti í heimi? „Jú, vissulega væri það möguleiki og við stefnum að þv(. Þetta er ekkert bara fyrir ís- lenskan markað, konur annars staðar hefðu líka gott af þessari slettu frá okkur, fá smá gusu í andlitið. Einnig er það hollt fyrir strá- ka að kíkja á sýninguna, þeir halda kannski að þetta sé bara kerlingavæl en þegar þeir eru mættir á sýninguna hlægja þeir alveg jafn mikið. Það þurfa allir að læra að losa um komplexana, læra að rétta úr öllum beygl- unum sem eru í manni. Allir eru beyglaðir á einhvern hátt, enginn er fullkominn og það gildir jafnt um konur sem karla." Cosmo er mannskemmandi Undir lokin langaði mig að fræðast ögn um skoðun þeirra á glanstímaritum á borð við Cosmo og Glamour, sem stelpur elska að lesa og strákar glugga í þegar enginn sér til. Ég fékk stutt og laggott svar: „Cosmo er mannskemmandi og fyrir enga konu að lesa en samt er hægt að hafa gaman af því. Konur sem lesa þessa vitleysu og lifa eftir henni eru bara hálfklikkaðar." Með þetta á bak við eyrað kveð ég þær að sinni, stoltar og ánægðar og mega þær vissuiega vera það. Þær stóðu fyrir sínu, vöktu mig i það minnsta til vitundar og ég labba út úr Iðnó ákveðin I því að taka þær mér til fyrirmynd- ar og gera framvegis gott úr því sem ég hef fram að færa.

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.