Orðlaus - 01.10.2002, Page 42
I-
ISRAEL PALESTINA
MÉR FINNST
ÞÆR SKOÐANIR SEM BiRTAST Á ÞESSARISÍÐU ERU EKKIÁ ÁBYRÐ ORDLAUS
4
Hvort styður þú ísraela eða Palesínumenn?
Þessa spurningu hef ég heyrt mun oftar enn
einu sinni. Lít ég út fyrir að vera hálfviti?
Hvaða heilvita maður þarf að spyrja sjálfan
sig þessarar spurningar. (sraelar eru að stela
landinu af Palestínumönnum, punktur. Þó ég
myndi hitta mann sem kæmi með öll heims-
ins rök fyrir því að (sraelar ættu landið, getur
enginnfengið mig ofan af þessari skoðun.Mig
langar að miðla smá upplýsingum til þín kæri
lesandi, svo þú þurfir aldrei að efast um það
hvoru megin þú stendur. Það sem gerðist í
stuttu máli var að árið 1917 kom maður að
nafni Balfour, utanríkisráðherra Breta með
hugmynd um stofnun "Þjóðarheimkynnis
Gyðinga í Palestínu"Balfourfannst þetta mjög
sniðug hugmynd til að tryggja Bretum stuðn-
ing Gyðinga um heim allan gegn Tyrkjum og
Þjóðverjum. Það var sammt smá vandamál til
staðar og það var að gyðingar voru einungis
4% af íbúum í Palestínu á þessum tíma. JÁ
stingum múslima í bakið, því ekki það. Hefði
ekki bara verið betra að gefa Gyðingunum ein-
hverja yfirgefna eyju í karabískahafinu?.
Árið 1933 komst Hitler til valda í Þýskalandi
og gyðingaofsóknir náðu hámarki í Evrópu.
Innflutningur Gyðinga til Palestínu jókst
gífurlega, því að Gyðingum sem flúðu frá
Þýskalandi var oft neitað um landvist í öðrum
ríkjum. Þessi þróun varð til þess að Arabar í
Palestínu gerðu uppreysn gegn Gyðingum
og Bretum sem voru að selja Gyðingum
landssvæði. Árið 1947 voru Bretar komnir í
þrot og vísuðu Palestínumálum til Sameinuðu
Þjóðanna. Meirihluti allsherjaþings SÞ sam-
þykkti áætlun um skiptingu sem úthlutaði
Gyðingum 56 af hundraði landsins. Og hvern-
ig komust þeir svo upp með þetta. Jú það er
náttúrulega "heilagur sannleikur" að (sraelar
eigi þetta land og við því er ekkert að gera. Ég
hlýt að spyrja sjálfa mig hvort þetta sé svona
svipaður"heilagur sannleikur" og að guð hafi
skapað heiminn á sjö dögum. Nú lærði ég eins
og flestir aðrir þróunarkenninguna í skóla og
veit því vel að Biblían inniheldur ekki einungis
heilagan sannleik, og ég leyfi mér þess vegna
að véfengja hana sem áreiðanlega heimild.
En það er enginn að spá í þetta frekar enn
einhverju öðru. Allt í lagi, (sraelar fá sitt land,
en ef þeir hefðu bara haldið sig á því þá væri
ekkert vandamál.
rassinn gripið, nú voru Palestínumenn nánast
orðnir þrælar (sraela í sínu eigin landi, ég end-
urtek í sínu eigin landi og samtök róttækra
uppreisnarmanna, (oftast nefnd hryðjuverka-
samtök) farin að skjóta upp kollinum. Það var
alls enginn friður í kjölfar þess að Palestínu-
menn fengu tilbaka Gaza og Vesturbakkann,
nú voru nefnilega Gyðingar orðnir frekar fyr-
irferðamiklir í Jerúsalem. Binyamin Netayahu,
fyrrum forsetisráðherra (sraela gekk svo langt
að opna hergöng undir heilögustu mosku
Palestínumanna. Tugir Palestínumanna og
ísraelskir hermenn létu lífið við gerð þessara
ganga en Netanyahu hélt áfram að niður-
lægja Palestínsku þjóðina. Þetta var samt ekki
nóg. Netanyahu fór að byggja gyðingasetur í
Jerúsalem, og hrakti þannig Palestínumenn
þaðan.Gyðingar í Hebron hræktu á æðsta spá-
mann Palestínumanna og kölluðu hann svín.
Niðurlægingin gerist ekki verri en allt þetta
gerðist ("nafni friðar"
Nei, það gerðu þeir ekki, nokkrum árum
seinna fór græðgi að hlaupa í Gyðingana. (
kjölfar sex daga stríðsins árið 1967 náðu (sra-
elar að hernema Gaza-svæðin, vesturbakka
Jórdaníu, Sinai og Syriu. Á Biblían einnig að
réttlæta þetta? Það tók Vesturlandabúa tæp
þrjátíu ár að fatta að þetta var nú kannski
ekki neitt mjög sanngjarnt. Til að koma til
móts við Palestínumenn fengu þeir til baka
Gaza-svæðin og Vesturbakkann. Því miður var
Er þetta þakklætið sem Palestínumenn fá fyrir
að leyfa (sraelum að flytja inní landið sitt? Fólk
er virkilega að voga sér að fordæma hryðju-
verkaárásir Palestínumanna, en staðan er ein-
faldlega sú að þetta er þeirra eina vopn. Það
vita nú allir hverjir standa á bak við hátækni
vopnaútbúnað (sraelshers, sem fsraelar nota
jú einungis til varnarl! Þetta hefur gengið svo
langt að Palestínumenn sem eiga að vinna í
þágu friðar, láta múta sér og nýta stöðuna til
að pynta samlanda sína. Yfirvöld í land-
inu eru farin að snúast gegn uppreisn-
armönnum til að þóknast (sraelum
og Palestínskiropinberirstarfs-
menn keyra nú um á glæsi-
kerrum og eru að byggja
sér villur. Þeir eru með
VlP-passa og keyra
í gegnum varð-
stöðvarnar, á
meðan eru hinir
skildir eftir til
að rotna. Það
gefur allavega
auga leið að
það er ekki á
óskalistanum hjá
neinum að sprengja upp
sjálfan sig, en flestir þessara
sjálfsmorðs-árásarmanna hafa
lifað undir niðurlægingu hernáms
allt of lengi og í þeirra huga er þetta eina
aðferð þeirra til einhversskonar uppreisnar.
Uppreysnar í algerri örvæntingu, og í þeirri
von um að handan lífsins bíði eitthvað betra.
Palestínubúar sem styðja sjálfsmorðs árásir,
segja að þær séu einungis þeirra leið ( þessu
stríði, til að verja land og heimili. (Þegar ég
segi að þeir styðji sjálfsmorðsárásirnar þá er
ég ekki að tala um dráp á saklausum borgur-
um heldur ísraelskum hermönnum. Yfirvöld
í Palestínu fordæma árásirnar þann 11. sept-
ember, eins og flestir aðrir Palestínubúar.)
Þeir lifa undir hernámi, og án æðri vopna sem
andstæðingarnir eiga, þeir líta á árásirnar sem
hetju-árasir áleiðis af að verða að píslarvætti.
Sjálfsmorðsárásirnar hafa nú orðið Palestínsk
útgáfa af mjög sniðugu vopni, það sniðuga
við þær er að þær eru ódýrar, ófyrirsjáanlegar,
auðvelt er að flytja þær á milli staða og hægt
er að fela þær algjörlega eða geyma til betri
tíma. Þrátt fyrir hátæknibúnað (sraelshers og
langa reynslu ( hernaðaraðgerðum, reynist
þeim ómögulegt að verjast árásunum.
Ólíkt lágtæknibúnaðar Palestínubúa (riffla,
handsprengjuro.s.frv.)Hafa sjálfsmorðsárásar-
mennirnir óendanlega yfirsýn sem gerir þeim
kleift að ráðast djúft inn í hjarta (sraels. Þetta
hefur valdið (sraelum mikinn ófögnuð. Nýlega
hefur þessum árásum fjölgað gífurlega,frá því
janúar á þessu ári hafa yfir 200 manns látist
í sjálfsmorðsárásum, en á hinn bóginn hefur
Israelsher drepið um ? manns. Rannsóknir
sem (sraelsher hefur verið að vinna í sýna að
nýlega hefur hópurinn sem stundar árásir
breikkað, fyrir ári var mikill meirihluti þessara
manna á aldrinum 17-22 og ókvæntir, þeir
voruflestirendurskapaðiraf hernaðar-leiðtog-
um, svo sendir í einangrun í nokkrar vikur til
að fá andlegan og tæknilegan undirbúning.
Nú koma árásarmennirnir úr mun breiðari
hóp í Palestínska samfélaginu, knúnir áfram
af einlægri þjóðerniskennd fremur en trúnni.
Sumireru eldri menn,sumiraf þeim hafa verið
giftir og þrjár hafa verið konur sem segir okk-
ur að ástandið sé orðið mjög slæmt. Ég er ekki
að hvetja fólk til að stunda sjálfsmorðsárásir
með þessari grein, en allavega kynnið ykkur
málið áður enn þið farið að fordæma hryðju-
verkaárásir á þessu viðkvæma svæði.
Auðvitað eiga allir að vorkenna brennda barn-
inu, en þegar brennda barnið fer og kveikir í
nágrannanum, þarf þá ekki aðeins að íhuga
málið upp á nýtt.
Ýr Þrastardóttir nemi.