Bændablaðið - 02.05.2006, Page 11

Bændablaðið - 02.05.2006, Page 11
11Þriðjudagur 2. maí 2006        !"###$%$        &'( )  * )   )  )+)  , )   )   *' ) ,  &   ) * %  - &  )   .&)/  , ) *)   0   & ,  % , / +     .&)/  )', - 1   ,- 1             .(&%,+    +  & / 2&*,+   ' ,+  &  &  & ,&  %* +) % )* %,&       Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is Landbúna›arháskóli Íslands Úr búfræ›inámi vi› LBHÍ útskrifast nemendur sem búfræ›ingar. Búfræ›i er einnig hægt a› taka í fjarnámi. Búfræ›inám vi› LBHÍ – tækifæri fyrir flig? Kynntu flér starfsmenntanám vi› LBHÍ, fla› gæti henta› flér. www.lbhi.is Síðar í þessum mánuði verður, í fyrsta sinn, útnefndur Frum- kvöðull ársins 2005 á Vestur- landi. Það eru Samtök sveitarfé- laga á Vesturlandi sem standa að þessu vali og auglýstu eftir til- nefningum úr héraðinu. Frestur til að setja fram tilnefningar rann út 10. apríl og bárust alls 15 slíkar. Dómnefnd er nú að störfum og er þess vænst að hún ljúki störfum fyrir maílok. Ólafur Sveinsson fram- kvæmdastjóri SSV sagði í samtali við Bændablaðið að hugmyndin að útnefningu frumkvöðuls ársins hefði sprottið upp úr námskeiðum fyrir unga frumkvöðla sem sam- tökin héldu í samstarfi við Impru. „Tilgangurinn er að gera frum- kvöðlum og frumkvöðlastarfi hærra undir höfði en gert hefur verið,“ sagði hann og bætti því við að þeir hefðu viljað sjá fleiri til- nefningar en þess væri tæpast að vænta í ríkjandi „góðærisdoða“ eins og hann orðaði það. Nú er dómnefnd sem sé að störfum og samkvæmt reglum keppninnar á hún að hafa eftirfar- andi að leiðarljósi við valið á frumkvöðli ársins: 1. Nýjabrum á svæðinu (viðkom- andi sveitarfélag eða allt Vestur- land eftir atvikum) - nýnæmi í framkvæmdum, atvinnulífi eða félagslífi. 2. Framfarir - hversu mikið fram- faraskref um er að ræða fyrir landshlutann. 3. Áræði - hversu mikil áræði og fyrirhyggju þurfti til að gera verk úr hugmyndinni. Frumkvöðull ársins valinn á Vesturlandi Þrátt fyrir það að ESB hafi ný- lega leyft notkun á nítríti í líf- rænum kjötvörum þá eiga danskir neytendur ekki á hættu að kaupa lífrænar kjötvörur sem innihalda efnasambandið. Dönsku fyrirtækin Farre A/S, Friland A/S, Hanegal A/S og He- degaard, sem samanlagt hafa með höndum fast að því öll viðskipti með lífrænt framleitt kjöt sem selt er í verslunum í Danmörku, hafa ákveðið að setja ekki á markað af- urðir sem innihalda nítrít. Nálægt því allar lífrænt framleiddar kjöt- vörur í Danmörku eru unnar í landinu. Afstaða okar til nítríts breytist ekki þó að ESB leyfi notkun á nítr- ati og nítriti til að auka geymsluþol matvæla, segir Paul Holmbeck, framkvæmdastjóri Ökologisk Landsforening. Nítrít liggur undir grun um að valda krabbameini en það er notað í kjötvörur til að lengja geymslu- tíma þeirra og bæta útlit varanna. Reglugerð ESB, sem heimilar notkun á nítríti, tekur gildi eftir 18 mánuði. Danir leyfa ekki notkun á nítrít í lífrænum kjötvörum

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.