Bændablaðið - 02.05.2006, Page 12

Bændablaðið - 02.05.2006, Page 12
12 Þriðjudagur 2. maí 2006 ESB lofar alifugla- rækt stuðningi Embættismannaráð ESB hefur ákveðið að létta fjárhagslega undir með alifuglarækt í lönd- um sambandsins vegna þeirrar ógnar sem stafar af fuglainflú- ensunni. Áætlað er að neysla fuglakjöts í ESB hafi dregist saman um að meðaltali 30% í löndum sambandsins af þeim sökum. Í Miðjarðarhafslöndunum, einkum í Ítalíu og á Kýpur, hefur sölusamdrátturinn numið 80%. Almennt styrkjakerfi ESB get- ur ekki tekið á máli sem þessu, en landbúnaðarstjóri sambandsins, Mariann Fischer Boel, hefur heitið því að þessar reglur verði teknar til endurskoðunar þannig að tekið verði á máli sem þessu, m.a. með því að kjúklingaframleiðendur dragi úr framleiðslu sinni. Í nokkrum löndum ESB eru geymslur fyrir kjúklingakjöt nú þegar fullnýttar, m.a. í Frakklandi, Hollandi og Þýskalandi. Fuglainflúensan og kreppan í Miðausturlöndum veldur því að fyrirtækið Danpo dregur veru- lega úr framleiðslu í sláturhúsi sínu í Farre í grennd við Give á Jótlandi. Frá og með 1. júlí verður dregið úr framleiðslunni um 65% og 70 - 85 starfsmönnum af 290 verður sagt upp. Með þessu dregur móð- urfélagið, Lantmännen Kronfågel, úr heildarframleiðslu sinni um 15%. Framleiðsla á sláturhúsinu í Års og tveimur sænskum slátur- húsum verður óbreytt, en fyrirtæk- ið hefur lagt í miklar fjárfestingar í þessum þremur sláturhúsum í því skyni að bæta afkomuna. Liður í þessum aðgerðum er að halda fundi með kjúklingabændum til að fjalla um samdrátt í fram- leiðslu þeirra. Þar er stefnt að því að skuldugustu bændurnir með nýjustu fjárfestingarnar haldi áfram en hinir dragi úr framleiðsl- unni tímabundið. Danpo hefur jafnframt lækkað verðið til bænda um 0,10 dkr. á kg kjöts. Mjólkurvörur frá Arla aftur í búðarhillum í Dubai Stórverslun Géant í Dubai í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum við Persaflóa hefur nú aftur á boðstólum vörur frá Arla Foods, en danskar vörur voru fjarlægðar úr hillunum vegna birtingar á teikningum af spámanninum Múhammeð í dönskum blöðum. Það var eftir auglýsingaherferð í arabískum blöðum að salan hófst á ný að sögn Jan E. Pedersen, yfir- manns viðskipta Arla við Miðaust- urlönd. Í auglýsingunum kveðst Arla skilja að teikningarnar hafi sært múslíma og að fyrirtækið sé á móti birtingu þeirra. Géant er til- tölulega lítill viðskiptavinur okkar en þetta er skref í rétta átt, segir Jan E. Pedersen. Vörur frá Arla eru hins vegar enn ekki í hillum stór- verslanakeðjanna, svo sem Car- refour og Coop í furstadæmunum né í Saudi-Arabíu. Ferðamáladeild Hólaskóla fékk nýverið styrk úr Starfsmennta- áætlun Evrópu (Leonardo) til að senda 12 verknema í starfs- þjálfun í ferðaþjónustu til landa innan Evrópu. Með þessu opn- ast nýr möguleiki fyrir nemend- ur Ferðamáladeildar til að stunda hluta náms síns erlendis og njóta til þess fjárhagslegs stuðnings. Greitt er fyrir tungumála- og menningarlegan undirbúning, ferðir og uppihald meðan á verknámi stendur, alls sem nemur EUR 2650 á nem- anda. Styrkirnir standa nem- endum í diplóma og BA námi við Ferðamáladeild til boða, jafnt nemendum í staðarnámi sem fjarnámi. Miklar breytingar og ör þróun í dreifbýli á undanförnum árum og áratugum hefur orðið til þess að margir hafa leitað nýrra leiða til atvinnusköpunar. Aukin menntun og færni er því sífellt að verða mikilvægari þáttur til að bæta möguleika fólks á vinnumarkaði. Víða til sveita hafa menn horft á ferðaþjónustu sem vænlegan kost til að auka nýtingu eigna og bæta atvinnumöguleika. Það er því ánægjulegt þegar ný tækifæri bjóðast fólki til að víkka sjón- deildarhringinn og auka hæfni sína og getu til margháttaðra starfa sem styrkt geta þróun byggðar og atvinnulíf á lands- byggðinni. Reglulega er úthlutað styrkjum vegna starfsmenntaáætlunar Evr- ópusambandsins, sem ætlað er að styðja við og efla starfsmenntun í Evrópu. Við síðustu úthlutun fékk Hólaskóli, háskólinn á Hólum þrjá styrki til starfsmenntaverkefna sem lúta að markmiðum áætlunar- innar. Var það næsthæsta úthlutun að þessu sinni hér á landi. Styrkj- unum er ætlað að stuðla að aukn- um samskiptum milli landa og gefa fólki tækifæri til að kynnast ólíkum menningarheimum, tungu- málum og jafnframt leita nýrrar þekkingar á fræðasviði sínu. Nemendur á ferðamálabraut Hólaskóla eru nú alls um 65 tals- ins, þar af 45 fjarnemar sem bú- settir eru vítt og breitt um landið. Stunda þeir nám með nútímatækni og á þeim tíma sem hentar að- stæðum hvers og eins. Þeir nem- endur sem nú eru við nám og þeir sem hefja nám á næsta skólaári, hafa allir möguleika á að sækja um styrk til að taka sitt verknám hjá ferðaþjónustuaðilum erlendis. Nánari upplýsingar um verknám ferðamáladeildar veitir Ingibjörg Sigurðardóttir, inga@holar.is. Sambærilegur möguleiki er einnig fyrir hendi við Fiskeldis- og fiska- líffræðideild skólans. Rétt er að benda á að umsóknarfrestur um nám við Hólaskóla fyrir skólaárið 2006-2007 rennur út 10. júní næstkomandi, en frekari upplýs- ingar um nám og aðstöðu má finna á vef skólans http://www.holar.is/ Kjúklingafyrirtækið Danpo dregur úr framleiðslu sinni vegna fuglainflúensu og myndbirtinga af Múhameð spámanni Mikill áhugi er í Danmörku meðal bænda, bæði í almenn- um búskap og garðyrkju, sem og stofnunum þeirra og fyrir- tækjum, á að taka í notkun nýj- ar framleiðsluaðferðir og tækni sem fara vel með umhverfið. Stjórnarskrifstofa matvælaiðn- aðarins (Direktoratet for Föde- vareerhverv) hefur fengið 29 um- sóknir um verkefni sem eiga að sýna, prófa eða aðlaga nýja tækni sem nota má í landbúnaði eða garðyrkju, að sögn Matvæla- og landbúnaðarráðuneytisins. Stjórnarskrifstofan hefur veitt alls 30,3 milljón dkr. til frum- kvöðlaverkefna á þessu sviði. Að auki veita sveitarfélög, ömt og sjóðir landbúnaðarins 21,5 millj- ónum dkr. í verkefnin eða kr. 51,8 milljónum alls. Meðal verkefna má nefna að Dönsku svínaræktarsamtökin fá styrk til að draga úr lykt og upp- gufun ammóníaks í svínahúsum. Þá fá samtök garðyrkjunnar styrk til ræktunar á lífmassa til að draga úr orkukostnaði og annars verkefnis þar sem varmi í gróður- húsum er endurnýttur í stað þess að hleypa honum út í andrúms- loftið. Danskir bændur taka í notkun nýja umhverfisvæna tækni Nokkrir af nemendum ferðamáladeildar. Ferðamáladeild Hólaskóla Nýr möguleiki á starfsnámi erlendis Unnur Birna og Þóroddur frá Þóroddsstöðum. Bæði njóta þau vinsælda fyrir sakir fegurðar og atgerfis þótt hlutskipti þeirra í lífinu sé að öðru leyti ólíkt. /MHH Áhugi er fyrir því að stofna framhaldsskóla í Rangárþingi ytra. Guðmundur Ingi Gunn- laugsson, sveitarstjóri í Rangár- þingi ytra, sagði í samtali við Bændablaðið að settir hafi verið af stað vinnuhópar til að skoða möguleikana á að stofna fram- haldsskóla í báðum Rangár- þingunum á sama tíma. Guðmundur Ingi segir að þeir líti mjög til þess sem gerst hefur á Snæfellsnesi þar sem komið var á framhaldsskóla í Grundarfirði fyr- ir öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi og hefur heppnast vel. ,,Við erum að byrja að þreifa fyrir okkur; erum búnir að senda erindi til sveitarstjórnanna í ná- grenni við okkur. Sveitarstjórnir Rangárþinganna beggja og Ása- hrepps eru mjög jákvæðar. Við höfum ekki fengið svar frá Mýr- dalshreppi en Skaftárhreppur vill bíða eftir niðurstöðum úr vinnu við menntamál í væntanlegum Vaxtarsamningi fyrir Suðurland áður en tekin er afstaða í málinu,“ sagði Guðmundur Ingi. Fræðsluhópurinn hefur hafið vinnu og er að byrja í gagnaöflun og eiga einn fund með skóla- meistara Fjölbrautaskóla Suður- lands, þar sem fengust miklar upplýsingar og fróðleikur um um- hverfi þessara mála. Fræðsluhóp- urinn er nú að undirbúa að fara dýpra í málið. ,,Vegna smæðar getur verið erfitt að hafa í starfi nægjanlegan fjölda kennara með nægjanlega fjölbreytta menntun. Þetta er gjarnan leyst með fjarnámi. Ég tel víst að við munum horfa til slíkra möguleika, sagði Guðmundur Ingi Gunnlaugsson. Áhugi fyrir stofnun fram- haldsskóla í Rangárþingi ytra Bændablaðið kemur næst út þriðjudaginn 16. maí

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.