Bændablaðið - 02.05.2006, Side 16

Bændablaðið - 02.05.2006, Side 16
16 Þriðjudagur 2. maí 2006 Um garnaveiki: Garnaveiki er ólæknandi bakteríu- sjúkdómur, sem barst til Íslands með ógæfulegum innflutningi á karakúlfé árið 1933. Hún sýkir kindur, kýr, geitur og hreindýr og getur borist á milli tegunda. Sýkill- inn er skyldur berklasýklum. Hann berst úr líkamanum með saurnum og getur lifað eitt ár í óhreinindum í húsum og umhverfis þau, einnig úti í högum, smitar um munn með menguðu fóðri og vatni. Með- göngutími í fé er oftast 1-2 ár, lengri hjá kúm. Fé veikist oftast 1 1/2 árs eða eldra, kýr 2 1/2 árs og eldri. Dæmi eru um gamlar ær og gamlar kýr (14 ára og 18 ára), sem urðu garnaveikar er þær fóru að fella af vegna elli, en höfðu trúlega dreift smiti annað kastið alla sína löngu ævi. Þar sem veikin hefur komið upp, er oftast eitthvað, jafn- vel margt smitbera, sem engan grunar að dreifi smiti, hvar sem þeir fara. Þegar garnaveiki berst í óbólusetta hjörð, getur tjónið orðið mikið. Dæmi eru um að meira en 50 af 300 fullorðnum kindum hafi veikst og drepist eða verið lógað á einum bæ, 2-3 árum eftir að bólu- setningu var hætt of snemma. Sjaldgæf veiki í fólki Crohns-veiki líkist garnaveiki. Á síðustu árum hefur vaknað sá grunur, að garna- veikisýklar í dýrum geti átt þátt í henni. Það gerir útrýmingu garna- veiki enn brýnni. Einkenni: Einkenni garnaveiki eru hægfara vanþrif, sútarsvipur, skituköst, langvinn garnabólga, sem byrjar aftast í mjógörninni við langann, breiðist út um meltingarveginn og eitla hans, til lifrar og víðar. Sýklar finnast í saur annað kastið, stund- um í miklum mæli. Aðgerðir: Mikilvægasta vörnin er bólusetn- ing áður en smit verður. Mótefni í broddi bólusettrar ær tryggja lömbum hennar vörn fram að hausti. Lömb smitast af veikum mæðrum sínum og smitberum eftir það. Tveim sinnum höfum við fundið garnaveiki í haustlambi. Bólu- setning eftir að smit hefur orðið getur leitt til fjölgunar heilbrigðra smitbera, sem er mjög óheppi- legt. Áríðandi er því að velja ekki til ásetnings lömb und- an veikum ám eða smitberum sem virðast heilbrigðir og að láta ásetnings- lömbin ekki ganga með smitberum á túnum, bólusetja þau snemma (sept. - okt. - nóv.), gleyma ekki að bólusetja síðheimt lömb og ganga þrifalega um fóður og vatn. Aldrei má gefa garnaveikinni færi á að búa um sig, hvorki í s a u ð - fé, kúm né öðrum jórturdýrum. Aldrei má setja vanþrifakindur til lambanna. Verja þarf svæðið og hver þarf að verja sinn bæ gegn að- flutningi á smiti (fóður, vélar, flutningstæki, óhrein hlífðar- föt, aðkomufé o.fl.) Árangur: R e y n s l a n sýnir, að það er hægt að u p p r æ t a g a r n a v e i k i . Það nægir að bólusetja ósmit- aðar kindur einu sinni til að verja þær ævi- langt. Tekist hefur (vonandi) með sam- stilltu átaki að upp- ræta veikina af nokkr- um svæðum þar sem hún olli tjóni áður fyrr: Vest- fjörðum, frá Hrútafirði að Hvammstanga, frá Skjálfandafljóti að Jökulsá á Fjöllum, af Austur- landi norðan Reyðarfjarðar, Jök- ulsár í Fljótsdal og Kárahnjúka og loks úr Eyjafjallahólfi. Bólusetn- ingu er hætt á öllum þessum stöð- um. Aðeins á Vatnsnesi kom veikin upp, þegar hætt var að bólusetja. Á nokkrum svæðum mallar garna- veikin áfram, jafnvel breiðist út á ný vegna þess að menn sofa á verði og bólusetning er í ólestri. Það má þakka varnaraðgerðum m.a. varnarlínum, sem hindra sam- gang og flutninga og hömlum á verslun innan varnarsvæða að garnaveiki hefur aldrei fundist í Skaftafellssýslum frá Kolgrímu í Suðursveit að Jökulsá á Sólheim- asandi, aldrei í Dalasýslu norðan Laxárdalsheiðar og aldrei í Strandasýslu norðan Bitru, ekki í Austur-Barðastrandarsýslu, ekki í Mývatnssveit, ekki í Grímsey eða Vestmannaeyjum. Átak til útrýmingar: Framhaldið veltur á sveitarstjórn- um (landbúnaðarnefndum) og bændum. Þeir þurfa að hafa frum- kvæði og taka þátt í baráttunni. Annars er hún vonlítil. Það þýðir ekki að hætta bólusetningu fyrr en 10 árum eftir síðasta garnaveikitil- felli á viðkomandi svæði og leita þarf að veikinni í sláturfé og van- þrifa- og vanhaldafénaði og í kúm með blóðprófum. Skipa þarf hóp trúnaðarmanna úr röðum bænda á hverju svæði þar sem barátta stendur, eins konar innra eftirlit eða heilbrigðisnefnd m.a. til að auðvelda bændum samskipti við stjórnvöld og öfugt. Skipuleggja þarf sameiginlega söfnun, lógun og rannsókn á vanþrifakindum tvisvar á ári hið minnsta á útmán- uðum og að hausti en láta dýra- lækni alltaf vita um kindur sem eru að tærast upp, láta enga van- þrifakind órannsakaða. Rannsókn skal vera eigendum að kostnaðar- lausu. Sama gildir um kýr. Næstu svæði til að hætta bólusetningu, ef bændur óska þess og ef ekkert kemur upp, gætu orðið þessi: svæðið frá Eyjafirði til Skjálfanda og Austurland frá Reyðarfirði að Hamarsá, Snæfellsnes vestan girð- ingar, Dalahólf norðan Laxárdals- heiðar og loks Biskupstungur frá Brúará að Hvítá, ef samstaða næst um að farga þar öllu fé, sem eftir er vegna riðuvarna. Rangárvalla- sýsla milli Markarfljóts og Ytri- Rangár verður að bíða vegna þess að garnaveiki var staðfest í einni kind á Bakkabæjum í haust, en það þýðir að veikin er enn að malla á því svæði. Önnur svæði þar sem veikin er og þar sem nokkurra ára átak þarf til að upp- ræta veikina með því að skipu- leggja bólusetningu betur, eru Rangárvallasýsla vestan Ytri- Rangár, Árnessýsla, Gullbringu- og Kjósarsýsla, Borgarfjarðar og Mýrasýsla, Húnavatnssýslur aust- an Miðfjarðar, Skagafjarðarsýsla, Eyjafjarðarsýsla og S.-Þing. að Skjálfandafljóti, S.-Múlasýsla sunnan Hamarsár og A.-Skaft. austan Fljóts og vestan allt til Kol- grímu. Það sem þarf til að uppræta garnaveiki, auk vel framkvæmdrar bólusetningar snemma, er þrifnað- ur, samstæður vilji og samvinna sveitarstjórna, bænda og dýra- lækna. Hægt er að uppræta garnaveiki, ef menn vilja Sigurður Sigurðarson, dýralæknir, Keldum Eins og kunnugt er hóf Landbúnaðarstofn- un störf um síðustu áramót á Selfossi. Stofnunin er með starfsemi sína að Austur- vegi 10 þar sem Lánasjóður landbúnaðar- ins var áður til húsa. Á dögunum var hins vegar undirritaður leigusamningur við eignarhaldsfélagið Merkiland ehf. um framtíðarhúsnæði fyrir höfuðstöðvar stofn- unarinnar að Austurvegi 64 á Selfossi á lóð MS. Það húsnæði er í byggingu og verður afhent 15. september í haust. Þá hefur Landbúnaðarstofnun umdæmisskrifstofur um allt land og þar starfa héraðsdýralækn- ar, auk þess sem inn- og útflutningseftirlit er staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Haustið 2006 verða starfsmenn stofnunarinnar á Selfossi um 30 og svipaður fjöldi starfar við umdæmisskrifstofur og verða starfsmenn því samtals um 60 talsins. Fjölþætt verkefni Með stofnun Landbúnaðarstofnunar hafa embætti Yfirdýralæknis, Aðfangaeftirlits, Veiðimálastjóra og Yfirkjötmats verið samein- uð á einum stað, auk verkefna sem flytjast til stofnunarinnar frá landbúnaðarráðuneytinu, Landbúnaðarháskóla Íslands og Bændasam- tökum Íslands. Verkefni þessi eru á sviði heil- brigðis dýra og dýraverndar, matvælaeftirlits, kjötmats, eftirlits með fóðri, áburði og sáð- vöru, plöntusjúkdóma, lax- og silungsveiði og fiskeldis. Þá fer Landbúnaðarstofnun með verkefni vegna lífrænnar framleiðslu landbún- aðarafurða og stjórnsýslu vegna búfjárafurða og búfjáreftirlits. Verkefni stofnunarinnar eru því fjölþætt. Nýtt stjórnskipulag Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur sett reglur um starfsemi og innra stjórnskipu- lag Landbúnaðarstofnunar. Nýtt stjórnskipu- lag tók gildi 1. apríl sl. og fara tvö fagsvið með eftirlitsmál, þ.e. dýraheilbrigðissvið og mat- væla- og umhverfissvið, og síðan eru tvö stoð- svið sem fara annars vegar með stjórnsýslu og hins vegar með rekstur og þjónustu. Þar við bætast 14 umdæmisskrifstofur víða um land. Stefnumótun og árangursstjórnun „Á þessum tímamótum, þegar fjölþætt verk- efni eru sameinuð í nýrri stofnun, er brýnt að móta stefnu í störfum, setja mælanleg mark- mið, skilgreina verkferla og koma á virkri starfsmannastefnu. Til að aðstoða stofnunina við þessi verkefni hefur verið gerður samn- ingur við Hið íslenska ráðgjafahús. Stefnt er að því að þetta verkefni verði komið vel á veg árið 2007 og að þá verði gerður árang- ursstjórnunarsamningur við landbúnaðar- ráðuneytið,“ sagði Jón Gíslason, forstjóri Landbúnaðarstofnunar, í samtali við blaðið. /MHH Samið um nýtt húsnæði á Selfossi undir starfsemi Landbúnaðarstofnunar Hér handsala Jón Gíslason, forstjóri Landbúnaðarstofnunar (t.v), Guðni Ágústsson, land- búnaðarráðherra og Birgir Guðmundsson, formaður stjórnar Merkilands leigusamninginn um nýja húsnæðið á Selfossi eftir undirritun hans í fundarsal Búnaðarsambands Suðurlands. /Bændablaðsmynd/MHH Rekstur og þjónusta Forstöðumaður Áætlanagerð Fjármál Starfsmannamál Stoðþjónusta Stjórnsýsla Forstöðumaður Alþjóðasamningar Leyfisveitingar Lögfræði Löggjöf Matvæli og umhverfi Forstöðumaður Áburður og sáðvara Fóður Matvælaöryggi Plöntusjúkdómar Veiðieftirlit Dýraheilbrigði Yfirdýralæknir Dýrasjúkdómar Dýravernd Heilbrigði dýra Sóttvarnir Störf dýralækna Landbúnaðarstofnun Agricultural Authority of Iceland Forstjóri Umdæmisskrifstofur Héraðsdýralæknar Inn- og útflutningseftirlit* Gullbringu- og Kjósarumdæmi* Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi** Yfirkjötmat** Borgarfjarðar- og Mýraumdæmi Snæfellsnesumdæmi Þingeyjarumdæmi Austur-Húnaþingsumdæmi Vestur-Húnaþingsumdæmi Vestfjarðaumdæmi Austur-Skaftafellsumdæmi Vestur-Skaftafellsumdæmi Dalaumdæmi Austurlandsumdæmi nyrðra Austurlandsumdæmi syðra Suðurlandsumdæmi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.