Bændablaðið - 02.05.2006, Síða 19
19Þriðjudagur 2. maí 2006
Siglt inn Hvalfjörð
Uppsetning háhraðatengingar í
Skagafirði hefst í vor. Ársæll
Guðmundsson, sveitarstjóri
sveitarfélagsins Skagafjörður,
sagði að þetta ætti sér langan
aðdraganda. Fyrirtækið Fjöl-
net hf. á Sauðárkróki hefur
verið að leggja ljósleiðara á
Sauðárkróki um nokkurra ára
skeið. Nú hefur verið stofnaður
fjarskiptasjóður, sem fékk fjár-
muni við sölu Símans, og er
honum ætlað að veita fé til að
bæta fjarskipti í dreifbýli. Þar
með opnast möguleiki á að fara
í þessi mál af fullum krafti.
,,Sveitarfélagið hefur verið að
skoða með Skagafjarðarveitum
ehf., sem eru í eigu sveitarfélags-
ins, Fjölneti hf. og fleiri aðilum
að stofna nýtt félag til að annast
ljósleiðaravæðingu og gagna-
veitu Skagafjarðar og byrja á
þéttbýlisstöðunum í sveitarfélag-
inu. Það tekur nokkur ár að ljós-
leiðaravæða allan Skagafjörð og
því verður unnið að almennum
tengingum í dreifbýli samhliða
ljósleiðaratengingum í þéttbýl-
inu. Það verða því aðrar lausnir
til að byrja með fyrir dreifbýlið
og fjármagn hefur þegar verið
eyrnamerkt til þeirrar vinnu. Með
þessu mikla átaki verður farið í
að kippa öllum Skagfirðingum
inn í nútímann,“ sagði Ársæll
Guðmundsson.
Hann segir að nýja félagið
sem stofnað verður um þetta
verkefni muni sækja um styrk úr
fjarskiptasjóði. Hann er ekki
byrjaður að veita styrki en það
gæti orðið á þessu ári.
Orðsending til
nautgripabænda!
Við, - forsvarsmenn Os Husdyrmerkefabrikk as
í Noregi höfum ákveðið hvernig við hyggjumst
standa að því að bæta eyrnamerki í nautgripi
sem hafa upplitast og eru ó- eða illlæsileg. Um
er að ræða merki sem framleidd voru á tímabil-
inu september 2003 til desember 2005.
Við teljum að við séum búin að finna varanlega
lausn á þessu vandamáli, sem mun duga við öll
venjuleg umhverfisskilyrði í fjósum.
Fyrirkomulagið verður sem hér segir:
Fram til 19. maí 2006 er nautgripabændum, sem
þetta á við um, gefinn kostur á að panta ný merki.
Gengið skal frá pöntun í töluvukerfinu MARK.
Þessi merki er eingöngu hægt að panta sem ,,end-
urpöntuð merki“ þ. e. aðeins er hægt að panta
merki með gripanúmerum sem áður hafa verið
pöntuð og verða þessi merki því auðkennd með
bókstafnum N. Merkin verða framleidd og póst-
send til hvers bónda án endurgjalds.
Við væntum þess að nautgripabændur nýti sé
þetta tilboð okkar
f.h. Os Husdyrmerkefabrikk as
Wenche Wikan Ligård,
framkvæmdastjóri.
Skagafjörður
Ljósleiðaravæðing
og háhraðatengingar L a m b o o s tLamboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Lamboost veitir þessum lömbum aukna orku sem er
þeim lífsnauðsynleg eftir fæðingu. Lamboost stuðlar
að jafnvægi þarmaflórunnar og getur þannig komið í
veg fyrir skitu
F l o r y b o o s t
Floryboost er þarmastyrkjandi pasta til inntöku fyrir
lömb með meltingartruflanir. Floryboost inniheldur
sérstakan leir (montmorillonite), sölt, dextrósi,
frúktó-ólígósakkaríð og nauðsynlegar olíur úr
blóðbergi og rósamarín. Þetta fæðubótarefni er notað
ef meltingartruflanir hafa gert vart við sig.
Auðvelt í notkun og er með íslenskum
leiðbeiningum.
Þarfnast ekki blöndunar og má nota strax.
Sauðfjárbændur athugið!!!
Nánari upplýsingar getur þú fengið hjá dýralækninum
þínum eða hjá umboðsaðila.
Umboðsaðili: Dýraheilsa ehf. Sími: 564 2240
Heildsöludreifing: Vistor hf.
Lamboost og Floryboost
Ómissandi í sauðburðinum!!
Pasta til inntöku fyrir lömb
Nú fæst einnig Floryboost fyrir lömb
!"#! $#%&'()*)
+
,$!-