Bændablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 9
9 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009
Í BÆNDABLAÐINU þann 22. október
sl. biður ritstjórinn um „örlitla
kurteisi“ í umræðum um orku-
mál. Erindinu er meðal annars
beint til Samorku. Skammar hann
samtökin og fleiri fyrir að „öskra“
ítrekað á umhverfisráðherra og
saka hana meðal annars um lög-
brot, og segir menn „göslast
áfram“ og heimta að stjórnvöld
víki frá gildandi lögum og reglum.
Þá fjallar ritstjórinn um nýlega
grein Sigmundar Einarssonar
jarðfræðings á Smugunni, þjóð-
málavef Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs. Í greininni lýsir
Sigmundur efasemdum um að
nægt orkumagn sé til staðar fyrir
þær álversframkvæmdir sem hér
hafa verið í umræðunni. Kvartar
ritstjóri Bændablaðsins meðal
annars undan því að Samorka – og
aðrir „orkualkar“ – hafi ekki svar-
að Sigmundi.
Samhengi framboðs og
eftirspurnar
Um allt þetta er margt að segja.
Hvað grein Sigmundar varðar þá
er þetta ekkert einföld umræða,
allra síst nú þegar verkefnisstjórn
um rammaáætlun er að störfum og
á að skila af sér kringum áramót.
Orkumálastjóri væri trúlega rétt-
asti viðmælandinn um málið og
Ríkisútvarpið hefur einmitt leit-
að hans viðbragða, en hann benti
einmitt á gerð rammaáætlunar
þar sem 70-80 hugsanlegir virkj-
unarkostir eru til umfjöllunar.
Auðvitað er miklum mun meiri
orka þar undir en Sigmundur
fjallar um, en það er alltaf spurn-
ing hvað menn vilja virkja og
hvað ekki. Orkufyrirtækin eru
hins vegar ekki á fullri ferð að
undirbúa kostnaðarsamar virkj-
unarframkvæmdir nema kaupend-
ur að orkunni séu í augsýn. Þess
vegna er ákveðið samhengi milli
þekktra stærða í orkueftirspurn og
virkjanaundirbúningi.
3.000 megavött úr 0,2% forðans
Samorka, Orkustofnun, ÍSOR,
Jarðhitafélag Íslands, Iðnaðar-
ráðu neytið og vísindavettvangur-
inn GEORG stóðu fyrir opnum
fundi á Hilton Nordica 21. októ-
ber sl., daginn áður en umrætt
tölublað Bændablaðsins kom út,
um sjálfbæra nýtingu jarðhitans.
Fundurinn var öllum opinn og
auglýstur í fjölmiðlum, enda sóttu
hann 230 manns. Um fundinn
hefur meðal annars verið fjallað
í Ríkisútvarpinu, Morgunblaðinu
og Viðskiptablaðinu. Þarna var
meðal annars brugðist við grein
Sigmundar. Ólafur G. Flóvenz,
forstjóri ÍSOR-Íslenskra orku-
rannsókna, sagði það ranga full-
yrðingu í grein Sigmundar að
„stóri sannleikurinn um hinar
miklu orkulindir Íslands“ væri
tómt plat. Hann sagði orkuna hér
vera gríðarmikla en við byggj-
um hins vegar enn aðeins yfir
tækni til að nýta hluta hennar á
hagkvæman hátt. Næg orka til
álvera á Bakka og í Helguvík væri
vissulega til staðar, en ekki væri
búið að ná henni og ekki víst að
það tækist með hefðbundnum
og fremur ódýrum aðferðum að
vinna alla þessa orku á sjálfbær-
an hátt úr jarðhita. Þetta væri sú
óvissa sem alltaf fylgdi jarðhita-
vinnslu og oft skorti skilning á.
Guðni Axelsson, deildarstjóri á
ÍSOR, sagði frá því að fræðilega
séð mætti vinna 3.000 MW af
raforku úr 0,2% þess varmaforða
sem er að finna á 3 km dýpi.
Ritstjóri Bændablaðsins fyrirgef-
ur vonandi, í þessu samhengi, að
Samorka skuli ekki hafa komið
fram með einhverja eina meinta
rétta tölu um það hvaða orku hér
sé að finna, þótt Sigmundur hafi
skrifað sína grein á Smuguna. Sú
tala er ekki til.
Grjót úr glerhúsi
Hvað varðar kvartanir Samorku
um að umhverfisráðherra hafi
brotið lög þá liggur það algerlega
fyrir að ráðherrann tók rúmlega
þremur mánuðum lengri tíma
til að fella úrskurð sinn varð-
andi Suðvesturlínur, en áskilið
er í lögum um mat á umhverfisá-
hrifum. Í þokkabót kollvarpaði
úrskurðurinn í raun fyrri úrskurði
fyrri umhverfisráðherra frá árinu
2008, um sameiginlegt umhverf-
ismat vegna álversins í Helguvík
og tengdra framkvæmda. Þetta er
óboðlegt starfsumhverfi og undan
því er ærin ástæða að kvarta. Hér
hefur því ekki verið beðið um
neina afslætti af lögum og reglum.
En nýting heimildarákvæðis í
lögum, rúmum þremur mánuðum
eftir tilskilinn frest, til að tefja
eða stöðva framkvæmdir, er ekki
ásættanlegt starfsumhverfi.
Ritstjórinn, sem samhliða
beiðni um kurteisi uppnefn-
ir menn „orkualka“ og segir þá
öskra og göslast um, ætti nú e.t.v.
að fara varlegar með grjótið í gler-
húsi sínu.
„Kurteisi“ í umræðum um orkumál?
Gústaf Adolf Skúlason
aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku,
samtaka orku- og veitufyrirtækja
Orkumálaumræða
RAFORKU OG húshitunarkostnaður er
víða þungur baggi á rekstri heim-
ila og fyrirtækja á landsbyggðinni.
Árum saman börðumst við margir
þingmenn í landsbyggðarhéruðum
og úr öllum flokkum fyrir því að
þessi kostnaður yrði lækkaður til
móts við verðlagningu á húshit-
un og raforku til að mynda á höf-
uðborgarsvæðinu. Skemmst er frá
því að segja að mikill árangur náð-
ist í þessum efnum, sem betur fer.
Því miður er nú að slá í bakseglin
og orku- og húshitunarkostnaður
hækkar að raungildi.
Frá árinu 2005 hafa nýjar regl-
ur gilt, sem byggjast á nýjum og
umdeildum raforkulögum. Þær
reglur hafa það í för með sér að
nú er landinu í raun skipt í tvennt;
þéttbýli þar sem búa fleiri en 200
manns og dreifbýli þar sem búa
200 manns eða færri. Reglurnar
sem gilda um dreifbýlið eru í sem
skemmstu máli þessar:
Reglurnar
Tekið er mið af hæstu gjaldskrá
dreifiveitu að dreifbýlisgjaldskrám
undanskildum, þannig að nið-
urgreiðslan verður ekki meiri en
svo að verðið í dreifbýlinu, þ.e. á
dreifbýlustu svæðum, verður aldrei
lægra en svarar til hæstu gjald-
skráa hjá dreifiveitum í þéttbýli. Í
framhaldi af þessu voru síðan sett-
ar ýmsar reglugerðir til að ramma
þetta mál betur inn og sérstök
gjaldskrá sem gildir varðandi raf-
orkuframleiðslu og lækkun á orku-
kostnaði þar sem dreifbýlissvæðin
voru skilgreind. Þau voru skil-
greind þannig að það væri strjál-
býli þar sem byggju innan við 200
manns og þeir nytu ekki tengingar
við flutningskerfi eða stofnkerfi.
Markmiðin voru sem sé skýr.
Það átti að niðurgreiða rafmagnið
sérstaklega inn á dreifbýlu svæðin.
Og sú niðurgreiðsla átti að tryggja
að raforkukostnaður yrði svipaður
og í þéttbýli þar sem gjaldskrárnar
eru hæstar.
En hefur þetta gengið eftir?
Svarið er því miður nei. Það hefur
dregið illilega í sundur og raforku-
kostnaður þar með talið húshitunin
orðið hlutfallslega meiri í dreifbýl-
inu. Það er þess vegna rétt sem
bændur og sveitarstjórnarmenn
meðal annars hafa haldið fram.
Orkukostnaðurinn hefur hækkað
hlutfallslega meira í dreifbýlinu.
Orkukostnaður eykst miklu meira
í dreifbýli
Ég grennslaðist fyrir um þetta á
Alþingi í sumar með fyrispurn sem
ég mælti fyrir 19. júní sl. Í svari
iðnaðarráðherra fólst staðfesting á
þessu. Þar kom fram að á árunum
2005 til 2009 hefði raforkukostn-
aður í þéttbýli hækkað um 15,8%
að jafnaði. Í dreifbýlinu hækkaði
raforkukostnaðurinn tvöfalt meira
og rúmlega það, eða um 38,7%.
Þetta er auðvitað gjörsamlega óvið-
unandi og alveg úr takti við þau
fyrirheit sem voru gefin við setn-
ingu nýrra raforkulaga.
Það er svo önnur saga og dap-
urleg, að þessar athyglisverðu
upplýsingar vöktu ekki athygli
nokkurs fjölmiðils, ekki einu sinni
hins ágæta Bændablaðs, sem hefði
þó átt að láta sig þetta mál varða.
Verður því þó ekki um kennt að
athygli fjölmiðla hafi ekki verið
vakin á þessu máli. Segir þetta sína
sögu um fréttamatið í þjóðfélagi
okkar.
Snúum bökum saman þvert á
flokksbönd
Nú er enn komið að því að við
þingmenn landsbyggðarinnar
snúum bökum saman. Illu heilli
boðar ríkisstjórnin að hækka
skuli raforkuverðið með sérstök-
um sköttum og með því að draga
skuli úr fjárveitingum til orkunið-
urgreiðslu á landsbyggðinni. Þessu
þarf að snúa við og reyna fremur að
lækka húshitunarkostnaðinn, þrátt
fyrir þrengingar ríkissjóðs.
Ég er þeirrar skoðunar að tak-
ist okkur að fá aukið fé til nið-
urgreiðslu á raforku eigi að láta
hlutfallslega mest af því fé til þess
að lækka raforkukostnað í dreifbýl-
inu. Þar hallar mest á, þar er órétt-
lætið mest og þar er þörfin mest
himinhrópandi, án þess að lítið sé
gert úr þeim málum annars staðar.
Við þingmenn eigum að sýna þann
myndarskap að sameinast um að
beina hlutfallslega meiru af því fé
sem vonandi fæst til aukinna orku-
niðurgreiðslna þar sem þörfin er
mest. Um það eigum við að sam-
einast þvert á stjórnmálabönd.
Orkukostnaður í dreif-
býli er óviðunandi
Einar K. Guðfinnsson
alþingismaður
Orkumálaumræða
JEPPADEKK
Útsölustaðir Útsölustaðir Útsölustaðir
SÍMI 440 1000
WWW.N1.IS
N1 er leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði bílatengdrar starfsemi fyrir einstaklinga og fyrirtæki
M+S
ST
STT
AT
MT
LT
ATR
SXT
Stærð Neglanleg vetrardekk Verð með VSK
235/75R15 Cooper M+s 105s 23.740
265/70R15 Cooper M+s 112s 26.879
265/75R15 Cooper M+s 112s 30.430
31x10.50R15 Cooper M+s 109q 34.890
215/70R16 Cooper M+s2 91t 24.995
215/75R16 Cooper M+s 103s 22.147
225/70R16 Cooper M+s2 103t 28.450
225/75R16 Cooper M+s 104s 28.539
235/70R16 Cooper M+s 106s 30.998
235/75R16 Cooper M+s 108s 24.177
245/70R16 Cooper M+s 107s 24.011
245/75R16 Cooper M+s 111s 27.999
255/65R16 Cooper M+s 109s 27.598
255/70R16 Cooper M+s 111s 30.260
265/70R16 Cooper M+s 112s 33.880
265/75R16 Cooper M+s 116s 33.560
235/65R17 Cooper M+s 108h 31.900
245/65R17 Cooper M+s 107s 32.897
245/70R17 Cooper M+s 110s 33.403
255/60R17 Cooper M+s 106s 31.634
265/70R17 Cooper M+s 115s 34.910
275/60R17 Cooper M+s 110s 33.599
275/70R17 Cooper M+s 114q 57.710
255/55R18 Cooper M+s 109s 42.900
275/60R20 Cooper M+s 110s 57.340
Stærð 32-35 tommu jeppadekk Með vsk.
32x11.50R15 Bfgoodrich At 113 R Tl 41.900
32x11.50R15 Bfgoodrich Mt 113q Tl 36.500
32x11.50R15 Cooper Lt 113q 39.900
33x12.50R15 Bfgoodrich At 108r Tl 43.900
33x12.50R15 Bfgoodrich Mt 108q Tl 36.882
33x12.50R15 Cooper Lt 108q 42.900
33x12.50R15 Cooper St 108q 44.900
33x12.50R15 Cooper Stt 108q 46.900
33x12.50R15 Dean M Terrain Sxt 108q 39.800
33x12.50R15 Dean Wildcat Lt All Terr 39.800
35x12.50R15 Bfgoodrich At 113q Tl 49.900
35x12.50R15 Bfgoodrich Mt 113q Tl 43.900
35x12.50R15 Cooper St 113q 48.900
35x12.50R15 Cooper Stt 113q 41.900
35x12.50R15 Dean Durango At 41.900
35x12.50R15 Dean Durango Xtr 41.900
305/70R16 Cooper Atr 118r 44.486
305/70R16 Cooper St 118r 49.165
305/70R16 Dean Wildcat At 42.870
33x12.50R16.5 Dean Wildcat Lt All Terr 39.900
35x12.50R16.5 Bfgoodrich At 123q 61.730
285/70R17 Bfgoodrich At 121q Tl (33" 65.000
285/70R17 Cooper Stt 121q (33") 58.970
315/70R17 Bfgoodrich At 121r Tl (35" 64.900
33x12.50R17 Cooper St 114q 56.900
33x12.50R17 Cooper Stt 114q 47.992
33x12.50R17 Dean M Terrain Sxt 114q 48.900
35x12.50R17 Cooper St 119q 62.900
35x12.50R17 Cooper Stt 119q 67.900
35x12.50R17 Dean M Terrain Sxt 119q 54.900
35x12.50R20 Cooper Stt 122n 80.576
Verð geta breyst án fyrirvara
Suðurland
Bifreiðav. Gunnars Klaustri 487-4630
Framrás Vík 487-1330
Gunnar Vilmundar Laugarvatni 486-1250
Vélaverkstæðið Iðu 486-8840
Hjólbarðaþjón. Magnúsar Selfossi 482-2151
Bifreiðav. Jóhanns Hveragerði 483-4299
Bílaþjónustan Hellu 487-5353
Varahl.v. Björns Jóh. Lyngási ,Hellu 487-5906
Hvolsdekk Hvolsvelli 487-8005
Austurland
Bifreiðav. Sigursteins Breiðdalsvík 475-6616
Vélsmiðja Hornafjarðar 478-1340
Bíley Reyðarfirði 474-1453
Réttingav. Sveins Neskaupsstað 477-1169
Höfuðborgarsvæðið
N1 Mosfellsbæ 440-1378
N1 Réttarhálsi 440-1326
N1 Fellsmúla 440-1322
N1 Reykjavíkurvegi 440-1374
N1 Ægissíðu 440-1320
N1 Bíldshöfða 440 1318
Vesturland/Vestfirðir
N1 Akranesi 431-1379
KM. Þjónustan Búardal 434-1611
Dekk og smur Stykkishólmi 438-1385
Bifreiðaþ. Harðar Borgarnesi 437-1192
Vélaverkst. Sveins Borðeyri 451-1145
Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar 456-3501
Bílaverkstæði S. B. ehf. Ísafirði 456-3033
Græðir sf. Varmadal, Flateyri 456-7652
KB bílaverkstæði ehf, Grundarfj. 438-6933
G. Hansen Dekkjaþjónusta Ólafsvík 436-1111 Norðurland
Vélav. Hjartar Eiríkss. Hvammstanga 451-2514
Kjalfell Blönduósi 452-4545
Bílaverkstæði Óla Blönduósi 452-2887
Vélav. Skagastrandar Skagaströnd 452-2689
Pardus Hofsósi 453-7380
Hjólbarðaþ. Óskars Sauðárkróki 453-6474
Kf. Skagfirðinga Sauðárkróki 455-4570
B.H.S. Árskógsströnd 466-1810
Bílaþjónustan Húsavík 464-1122
Reykjanesbær
N1Ásbrú 552 440-1372
Bændablaðið
Smáauglýsingar
5630300