Bændablaðið - 05.11.2009, Page 16

Bændablaðið - 05.11.2009, Page 16
17 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009 Umræðan um ræktun erfða- breyttra fóður- og matjurta hefur verið með líflegasta móti í Evrópu að undan- förnu en þrátt fyrir það virðist Evrópusambandið vera fjær því en áður að móta sér heildstæða skoðun á því hvort leyfa skuli aukið frjálsræði í viðskiptum með afurðir þeirra. Síðustu tíð- indi á þeim vígstöðvum eru að írsk stjórnvöld hafa lagt bann við allri ræktun erfðabreyttra jurta og gefið bændum og afurðastöðv- um leyfi til þess að merkja vörur sínar þannig að þær séu fram- leiddar án þess að erfðabreyttar jurtir komi þar við sögu. Nokkrum dögum eftir þessa ákvörðun Íra hittust landbúnaðar- ráðherrar Evrópusambandsins á fundi þar sem þeirra beið að taka ákvörðun um hvort leyfa beri rækt- un og innflutning þriggja erfða- breyttra maísafbrigða í Evrópu. Niður staða fundarins varð sú að eng inn meirihluti myndaðist, hvorki með né á móti tillögunni. Það þýðir að framkvæmdastjórn ESB tekur málið til endanlegr- ar afgreiðslu en þar sem verið er að skipa nýja framkvæmdastjórn þessa dagana er eins víst að það drag ist nokkuð að niðurstaða fáist í málið. Þar með dregst enn á langinn að hægt verði að flytja inn fóður frá Bandaríkjunum, Brasilíu og Argentínu. Þessi ríki flytja út mikið af fóðri, einkum maís og sojabaunum, sem að stærstum hluta er ræktað með erfðabreyttu útsæði. Þau geta samt boðið upp á hefðbundið fóður en reglur ESB eru svo strangar að ekki má finnast snefill af erfðabreyttum afurðum í farminum, þá er honum öllum vísað til föðurhúsanna. Þeir sem vilja aflétta þessum ströngu hömlum segja að þær muni áður en langt um líður leiða til þess að skortur verði á fóðri í Evrópu, útflytjendur vestanhafs taki ekki áhættuna á að þurfa að taka við korninu aftur og neiti að selja það til Evrópu. Andstæður magnast Ræktun erfðabreyttra jurta hefur vaxið hröðum skrefum frá miðjum tíunda áratug síðustu aldar. Nú er svo komið að 8% af landbún- aðarlandi heimsins hafa verið lögð undir ræktun jurta sem breytt hefur verið þannig að þær geti var- ist ágangi skordýra eða þoli betur illgresiseyði sem sprautað er yfir þær. Evrópuríkin hafa hins vegar haldið að sér höndum á þessu sviði og þess vegna er einungis 1% slíks ræktarlands að finna í álfunni. Í Evrópu hefur verið ríkjandi mikil tortryggni gegn beitingu erfða- tækni í þessu skyni og auk Írlands hefur ríkisstjórn Austurríkis lýst því yfir að landið skuli vera laust við erfðabreyttar jurtir. Að sjálfsögðu er ekki ein- ing um að andæfa gegn erfða- tækninni. Öflugir hagsmunahópar hafa reynt að koma því til leiðar að slakað verði á taumunum, en ekki haft erindi sem erfiði hingað til. Í þeim hópi er bæði að finna fyrirtæki sem vilja beita þessari tækni í hagnaðarskyni og bændur sem vilja fá öruggara útsæði og heimild til að flytja inn fóðurkorn hvaðan sem er úr heiminum. Andstæðingar erfðabreyttra jurta hafa heldur ekki legið á liði sínu og barist hart gegn tilraun- um með erfðatækni í ræktun mat- og fóðurjurta. Þar hafa samtök umhverfisverndarfólks verið áber- andi en einnig bændur sem stunda lífræna ræktun og talsmenn neyt- enda. Smám saman hafa þessir tveir armar grafið sér sínar skot- grafir og í raun hætt að tala saman svo heitið geti. Upp úr skotgröfunum? Danski matvælaráðherrann, Eva Kjer Hansen, var orðin leið á þess- um skotgrafahernaði og setti hóp vísindamanna, bæði úr umhverfis- og landbúnaðargeiranum, til verka við að reyna að skilja sauðina frá höfrunum í þessum umræðum. Þeir fengu það hlutverk að fara ofan í saumana á rökum and- stæðinga og fylgismanna erfða- tækninnar og freista þess að rífa umræðuna upp úr skotgröfunum, slátra helstu bábiljum sem henni tengjast og flytja hana fram á við. Niðurstaðan varð skýrsla, vel á þriðja hundrað blaðsíðna að þykkt, sem fengið hefur misjafnar við- tökur í dönsku pressunni. Helsta niðurstaða skýrsluhöf- unda er sú að erfitt sé að slá neinu föstu um hugsanleg áhrif erfða- breytinga á lífríkið og mannfólkið, til þess sé þekking okkar einfald- lega ekki nógu mikil. Það þarf að rannsaka meira. Á hinn bóginn slá þeir því föstu að með skyn- samlegri beitingu erfðatækninnar geti hún gagnast þeim bændum sem vilja notfæra sér erfðabreyttar jurtir. Auk þess leggi hún drjúg- an skerf til lausnar á brennandi vandamálum mannkyns um þessar mundir; fæðuöryggi, umhverfis- og loftslagsmálum. Hvað danska bændur varðar sérstaklega sýna líkanaútreikn- ingar skýrslunnar fram á að það sé einkum í ræktun á kartöflum og rófum sem erfðatæknin geti nýst þeim. Þar sé hægt að auka rekstr- arhagkvæmnina um 10-20.000 íslenskrar krónur á hektara. Hins vegar borgi sig ekki fyrir danska bændur að rækta erfðabreytt- an maís þar sem kostnaður við að uppfylla strangar kröfur um aðskilnað frá hefðbundinni ræktun og dýrara útsæði geri meira en að vega upp hugsanlegan sparnað við illgresis- og skordýraeyðingu. Framtaki ráðherra fagnað Dönsku bændasamtökin Fødevarer og Landbrug fögnuðu framtaki matvælaráðherrans, sem gæti orðið til þess að hleypa nýju lífi í umræðuna um erfðatæknina. Hún væri „mikilvægt tæki til að þróa þær jurtir sem við ræktum. Hún gerir okkur kleift að brauðfæða sívaxandi fólksfjölda á sama tíma og loftslagsbreytingarnar þrengja að framleiðslunni,“ sagði Bruno Sander ráðunautur og talsmað- ur samtakanna. Hann gagnrýndi seinaganginn í ESB við ákvarð- anatöku í þessum mikilvæga málaflokki en hann tefði það að evrópskir bændur gætu hagnýtt sér fóðurkorn frá þeim löndum sem rækta erfðabreyttar fóðurjurtir. Sander bætti því við að sam- tökin gerðu að sjálfsögðu þá kröfu að allar ákvarðanir um að heimila ræktun erfðabreyttra jurta styddust við ítarlegar rannsóknir og þekk- ingu. Það þyrfti einnig að tryggja að bændur sem kjósa að stunda lífræna ræktun gætu gert það án þess að eiga á hættu að erfða- breyttar jurtir bærust inn á rækt- arlönd þeirra. Hann kvað samtök- in þeirrar skoðunar að þær reglur sem settar voru fyrir allmörgum árum, í nánu samráði neytenda, umhverfisverndarsamtaka, land- búnaðar og þings, dygðu ágætlega til að tryggja friðsamlega sambúð lífrænnar og erfðabreyttrar rækt- unar. Samkvæmt þessum reglum ber bændum sem vilja beita erfða- tækni að tryggja ákveðna örygg- isfjarlægð frá annarri ræktun og þrífa öll tæki samkvæmt ströngum fyrirmælum, auk þess sem þeir eru skyldaðir til að sækja námskeið og afla sér heimildar til að stunda þessa tegund ræktunar. Tæknin hefur engu áorkað En hafi danski ráðherrann ætlað sér að rífa umræðuna upp úr þeim skotgröfum sem hún hefur hald- ið sig í er ekki að sjá að það hafi borið mikinn árangur, ef marka má viðbrögð þeirra sem verið hafa mótfallnir beitingu erfðatækninnar við ræktun. „Matvælaráðuneytinu hefur ekki tekist að rökstyðja nægilega vel þá fullyrðingu að erfðabreyttar jurtir geri manneskj- unni eitthvert umtalsvert gagn. Erfðatæknin hefur ekki dregið úr þörfinni fyrir eiturefnanotkun, afkoma bænda hefur ekki batn- að og matvælaframleiðslan ekki aukist,“ segir Paul Holmbeck, framkvæmdastjóri Økologisk Landsforening, sem eru landssam- tök danskra bænda sem stunda líf- ræna ræktun. Holmbeck telur að málið snú- ist ekki eingöngu um það hvort við segjum já eða nei við erfða- tækninni, „heldur hvernig við for- gangsröðum fjármagni til rann- sókna og í baráttunni gegn hungri í heiminum. Þar ættum við að leggja áherslu á aðferðir á borð við lífræna ræktun, sem hefur skil- að áþreifanlegum árangri í þróun- arlöndunum,“ segir hann og vísar þar til reynslu Sameinuðu þjóð- anna, sem hafi náð verulegum árangri í því að gera 1,6 milljónum afrískra smábænda kleift að fram- fleyta sér af lífrænni ræktun. Paul Holmbeck er heldur ekki trúaður á að beiting erfðatækni dragi úr kostnaði bænda við að úða akra sína með illgresis- og skordýraeitri. Þvert á móti sýni tölur frá Bandaríkjunum að þar hafi eiturefnanotkun stóraukist á ökrum þar sem erfðabreyttar jurtir eru ræktaðar. Ástæðan er sú að ill- gresið smitast af genum sem breytt hefur verið og þolir því eitrið jafn- vel og nytjajurtin erfðabreytta. Ný kynslóða erfðabreyttra jurta Þannig gengur umræðan, en þótt menn séu ekki sammála um margt eru þeir þó á einu máli um að það þurfi að rannsaka áhrif erfða- tækninnar betur. Þar gætu líka verið framundan nýjungar sem kunni að breyta afstöðu manna. Einn skýrsluhöfunda, Henrik Brinch-Pedersen landbúnaðarfræð- ingur við Árósaháskóla, bendir á að í Bandaríkjunum hilli nú undir næstu kynslóð erfðabreyttra jurta sem hafi aukið þol gegn eiturúðun. Einnig sé verið að þróa ný afbrigði af sojabaunum og maís sem þoli betur þurrk og gefi meira af sér á hektara. Þá megi vænta sojabauna- afbrigðis sem innihaldi ómega-3 fitusýrur og annarra jurta sem laus- ar verði við þekkta ofnæmisvalda. Þessi umræða á eflaust eftir að halda áfram og við munum fylgj- ast með henni hér í Bændablaðinu. –ÞH/Byggt á LandbrugsAvisen.dk, gmfreeireland.org o.fl. Umræður um erfðabreyttar jurtir upp úr hjólförunum? – Danski matvælaráðherrann gefur út skýrslu á sama tíma og Írar banna erfðabreytta ræktun, en ESB getur ekki komið sér upp skoðun Erfðabreytt repja sem á að þola úðun með illgresiseyðinum Roundup. Mynd af heimasíðu fyrirtækisins Monsanto. Danski matvælaráðherrann Eva Kjer Hansen. Menningarkvöld á Gömlu-Borg Í tilefni af Safnahelgi á Suður- landi verður efnt til menning ar- kvölds á Gömlu-Borg í Gríms- nesi föstudaginn 6. nóvember kl. 20:30. Menningarþríeykið Mar- grét, Ann-Helen og Skúli verða hvert með sitt innlegg. Ramm ís- lenskar veitingar á boðstólum: Dagskrá Menningarklasa uppsveita Árnes- sýslu þjófstartað. Menning upp- sveitanna skoðuð frá þremur sjón- arhornum. Af vatni og fólki – mannlíf við Þingvallavatn á 20. öld. Margrét Sveinbjörnsdóttir frá Heiðarbæ segir frá undarlegu áhugamáli sem á hug hennar allan. Baðmenning og notkun hand- klæðisins. Ann-Helen Odberg, íþrótta fræðingur á Laugarvatni, gluggar í gamla kennsluhætti Íþrótta skólans – og býður upp á sýni kennslu. Steinboginn í Brúará. Skúli Sæ land, sagnfræðingur í Reykholti, rifjar upp sögu steinbogans sem Helga Jónsdóttir biskupsmaddama lét brjóta niður árið 1603. (Fréttatilkynning) Aukin umsvif í varahlutaþjónustu hjá Jötni Vélum Í kjölfar þeirra miklu breytinga sem orðið hafa undanfarna mánuði hefur sala varahluta og rekstrar- vöru hjá Jötni Vélum vaxið mikið. Aukningin hefur bæði orðið í vara- hlutaþjónustu við þau vörumerki sem Jötunn Vélar selja og þjón- usta en einnig hefur beiðnum um útvegun varahluta í vélar annarra framleiðanda fjölgað mikið. Til að mæta þessari auknu eftirspurn hefur sölumönnum varahluta verið fjölgað frá og með síðustu mánaða- mótum. Nýr sölumaður varahluta er Gísli Örn Arnarson en hann er mörgum bændum að góðu kunnur þar sem hann hefur sinnt sambæri- legu starfi hjá Vélaver síðan 1987. Með tilkomu Gísla væntum við þess að geta sinnt enn betur varahlutaþjónustu við vörumerki félagsins en auk þess mun yfir- gripsmikil þekking Gísla nýtast vel við að leysa úr mörgum þeirra fyr- irspurna sem berast um varahluti í vélar frá öðrum framleiðendum. Starfsmenn Jötunn Véla sem sinna sölu varahluta og rekstr- arvara eru nú sjö talsins og starfs- menn í allt 16. (Fréttatilkynning)

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.