Bændablaðið - 05.11.2009, Page 22
23 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009
ar stöðum á Skarðsströnd. Þetta
er tvílembingur á móti lambinu
í fyrsta sæti.
Þessi lambahópur var í heild
frábær. Tvílembingarnir frá Geir-
mundarstöðum með fádæmum
þroska miklir, 56 og 60 kg að
þyngd, sá léttari, sem skipar efsta
sætið, með fádæmum fágað og vel
gert lamb, hinn enn bollengri, en
aðeins hrjúfur um herðar. Hrúturinn
frá Bæ, fádæma þéttholda og
breiðvaxin kind með frábæra gerð.
Hrúturinn á Hallsstöðum feikilega
þroskamikill með fádæma mikla
vöðvafyllingu en virtist öllu feit-
ari en hinir hrútarnir. Hrúturinn í
Stóra-Vatnshorni ákaflega fágað og
vel gert lamb.
Þau Bryndís og Þórður á Geir-
mundarstöðum fengu því hinn
glæsilega farandgrip héraðssýning-
anna til varðveislu næsta árið fyrir
lamb númer 188. Lambahópurinn
sem þau sýndu var sérlega glæsi-
legur þar sem þrír af fjórum sýnd-
um hrútum skipa sér í efstu sætin
eins og fram hefur komið.
Eins og ætíð gætir áhrifa sauð-
fjársæðinganna mjög mikið og var
meira en helmingur sýndra lamba
þannig tilkominn. Flestir og jafn-
framt kostamestu gripir sýningar-
innar voru synir Kveiks 05-965 en
þeir voru samtals 10 og einstaklega
glæsilegur hópur. Bogi 04-814 var
áhrifamikill hjá kollóttu hrútunum
þar sem hann átti sjö syni. Þá átti
Fannar 07-808 þarna sex syni og
þeir Púki 06-807 og Dökkvi 07-809
áttu hvor um sig fimm syni þarna.
Á síðasta ári hófu Dalamenn
einnig að verðlauna bestu ærnar í
héraðinu á grunni niðurstaðna úr
afurðaskýrsluhaldi. Allar skýrslu-
færðar ær, sem eru enn lifandi,
og eru fimm vetra gamlar keppa
og er samanburðurinn byggður á
BLUP kynbótamati ánna. Fyrsta
sætið í þeirri keppni skipar ær
04-451 á Sauðafelli í Miðdölum,
en aðrar ær sem fengi viðurkenn-
ingu voru 04-547 og 04-548 á
Geirmundarstöðum, sem eru tví-
lembingssystur, 04-418 á Háafelli
og 04-175 á Lambeyrum. Allt eru
þetta frábærar afurðaær og eiga
sumar þegar stóran hóp afkom-
enda.
Þessi sýning var feikilega glæsi-
leg og sauðfjárbændum í Dalasýslu
til mikil sóma. Aðsókn að sýning-
unni var meiri en nokkru sinni og
hafði þar einhver áhrif að sýninga-
haldið var samtvinnað opnu húsi á
sýningabúunum þar sem fólki var
boðið að koma og skoða nýlegar
breytingar á fjárhúsunum á þess-
um búum sem eru einstaklega vel
heppnaðar og verulegrar athygli
verðar. JVJ
Finnur og Guðrún í Háafelli og Birgir í Bæ í Miðdölum.
Bryndís og Þórður á Geirmundarstöðum áttu bestu lömbin á sýningunni.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Miele vinnuþjarkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Svipmyndir frá
Hausthátíð í
Dölum
Eins og fram kemur í grein Jóns
Viðars um hrútasýningu Dala-
manna hafa sveitungar í Dölum
komið sér upp þeim ágæta sið
að halda veglega upp á haust-
ið og fer sú hátíð að mestu
fram í Dalabúð í Búðardal. Hér
sjást nokkrar svipmyndir sem
Bændablaðið fékk að láni hjá
Skessuhorni.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, vígir Guðrúnarlaug við Laugar í
Sælingsdal.
Ráðunautar og hrútadómarar bíða eftir því að maturinn verði á borð borinn í sviðamessunni – og hér kemur hann!
Hagyrðingar lögðu sitt af mörkum til að skemmta mannaskapnum, frá
vinstri: Kristján Hreinsson úr Skerjafirði, Hlédís Sveinsdóttir á Fossi, Helgi
Björnsson á Snartarstöðum og Georg Jón Jónsson á Kjörseyri.
Glaðbeittir sauðfjárbændur.
Harmónikkuleikarar á ýmsum aldri
léku fyrir gesti á sviðaveislu en á
sama tíma var rokkhátíðin Slátur í
fullum gangi.
Torfufell Eyjafjarðarsveit
Upplýsingar gefur
Gellir fasteignasala Akureyri
Sími 461 2010
Til sölu