Bændablaðið - 05.11.2009, Page 23
24 Bændablaðið | fimmtudagur 5. nóvember 2009
1 3
5 3
4 7 9
7 6 5
2 7
8 4 3
6 5 9
2 4
1 8
9 1 4
1 2 3 6
3
2 5 7
6 4
1 8 9
4
1 8 7 5
9 6 8
3 4
9 8 4 5
7
5 9 6
2 1
1 2 7
5
7 8 1 6
8 4
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Gamla handskrifaða uppskrifta-
bókin kemur að góðum notum
Þórunn Júlíusdóttir, skóla-
stjóri í leikskólanum Kærabæ
á Kirkjubæjarklaustri, býr í
Seglbúðum í Landbroti. Hún
hefur gaman af því að elda úr
góðu íslensku hráefni og helst því
sem til fellur heima hjá henni eins
og lambi, sjóbirtingi, kartöflum
og öðrum rótarávöxtum. Einnig
finnst Þórunni ómissandi að geta
gengið út og náð sér í krydd sem
hana langar í eins og blóðberg og
birkilauf, sem á mjög vel við með
öllu kjöti.
„Af uppskriftabókum mínum
má álíta sem svo að ég hafi mikinn
áhuga á matseld. Ég á mikið af upp-
skriftum sem ég hef viðað að mér
héðan og þaðan. En ég á líka eina
gamla uppskriftabók, handskrifaða,
sem ég byrjaði að skrifa í þegar ég
var fimmtán ára eða þegar ég fór að
heiman. Þar eru auðvitað uppskrift-
ir frá mömmu, svo sem pönnukök-
ur og þess háttar, sem alltaf eru jú
bestar hjá mömmu og alveg ómiss-
andi. Uppáhaldsmaturinn minn er
veturgamalt lamb, helst hryggvöðv-
inn, grillaður með gratíneruðum
kartöflum og piparostasósu ásamt
nýju soðnu grænmeti.“
Grillaður sjóbirtingur
sjóbirtingsflök
sykur
sítrónupipar
Aðferð:
Stráið örlitlum sykri yfir flökin og
sítrónupipar. Flökin mega gjarnan
vera vel þakin. Setjið þau síðan á
grillbakka á vel heitt grillið (eða í
eldfast mót inn í ofn við 180°C ) í
um 10 mínútur eða þar til þau eru
fullelduð. (Það sést þegar þau eru
orðin ljósbleik inn að miðju.)
Með þessu er best að bera fram
soðnar kartöflur og soðnar gulræt-
ur og spergilkál, sem má vel sjóða í
sama potti. Bráðið íslenskt smjör er
alveg ómissandi.
Heimatilbúinn ís
3 egg
125 g sykur
vanilludropar, eða
önnur bragðefni
500 ml rjómi
Aðferð:
Þeytið egg og
sykur vel saman.
Bætið bragðefnum
út í eftir smekk.
Stífþeytið rjómann
og blandið honum
varlega saman við
e g g j a b l ö n d u n a .
Setjið í frysti og frystið í að minnsta
kosti sólarhring áður en borið er
fram. Með ísnum er mjög gott að
bera fram rifsber eða bláber ásamt
heitri súkkulaðisósu.
Heit súkkulaðisósa
2 msk. kakó
2 msk. strásykur
vatn
(vanilludropar ef vill)
Aðferð:
Blandið hráefnum saman í pott og
sjóðið saman þangað til sósan er
orðin seig, eða í um 45 mínútur.
ehg
MATARKRÓKURINN
Þráinn og Málfríður fluttu frá
Reykjavík árið 1977 að Kletti í
Geiradal og bjuggu með kind-
ur og svín. Árið 1990 fóru þau
í samstarf um saufjárbúskap
við Reyni Halldórsson og Giselu
Hall dórsdóttur á Hríshóli í
Reyk hólahreppi, Austur Barða-
stranda sýslu.
Árið 2000 seldu þau Klett og
fluttu að Hríshóli, en Reynir og
Gisella fluttu í Búðardal. Vorið
2009 hófu búskap með þeim
sonur þeirra Vilberg og tengda-
dóttirin Katla. Þau búa með
sauðfé og hesta.
Býli?
Hríshóll.
Staðsett í sveit?
Reykhólahreppi Austur Barða-
strandasýslu.
Ábúendur?
Þráinn Hjálmarsson, Málfríður
Vilbergsdóttir og Vilberg
Þráinsson og Katla I.
Tryggvadóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Þráinn og Málfríður eiga fjögur
börn sem öll eru farin að heiman.
Vilberg og Katla eiga Elísu Rún,
þriggja ára, og Bergrós, tæplega
fimm mánaða. Einnig eru hund-
arnir Terry og Skata á bænum.
Stærð jarðar?
Um 2500 hektarar.
Tegund býlis?
Sauðfjárrækt og hrossarækt í smáum
stíl.
Fjöldi búfjár og tegundir?
Verður um eitt þúsund fjár á fóðrum
í vetur, nokkur hross og tveir hundar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Breytilegur eftir árstíðum. T.d. í
dag fór Þráinn rétt fyrir klukkan
sjö í skólaakstur,Vilberg ók Elísu
Rún í leikskólann og um kl. 9.30
var haldið áfram við að taka ull-
ina af hrútum og lömbum. Katla
og Málfríður unnu við heimilis-
störf og annað tilfallandi. Þannig
leið dagurinn til kl.19.Annars er
reynt að gera einthvað til gagns á
hverjum degi annað en að borða,
sofa og lesa.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Skemmtilegast er þegar verkefnin
ganga vel og leiðinlegast þegar
allt gengur á afturfótunum.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5
ár?
Vonandi verður blómlegur
búskapur hér með blóm í haga.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda?
Hún er góð við erum þakklát því
fólki sem starfar á þeim vettvangi.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Við höfum mikla trú á íslenskum
landbúnaði vegna þess að
neytandinn veit alltaf við hvaða
aðstæður varan verður til.
Hvar teljið þið að helstu
tækifærin séu í útflutningi
íslenskra búvara?
Við teljum að hross og lambakjötið
séu sterkast og þá helst til Evrópu.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Útrunnin mjólk, lýsi og skemmdir
ávextir.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Stórt og meyrt lambalæri með ofn-
bökuðum kartöflum.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Það er svo margt sem er eftirminni-
legt en þegar folöld og lömb líta
dagsins ljós þá er mikil gleði á
bænum.
Hríshóll, Reykhólasveit
Bærinn okkar
Frá vinstr er Vilberg með Terry, Katla
og Elísa Rún, Þráinn með Skötu,
Kristín Sólveig og dóttir hennar
Kolfinna Eir.
Þórunn Júlíusdóttir gefur hér uppskriftir að grilluðum sjóbirtingi og
heimatilbúnum ís með heitri súkkulaðisósu.
Heimatilbúni ísinn er einfaldur í lögun og borinn fram
með himneskri heitri súkkulaðisósu og rifsberjum.