Bændablaðið - 23.09.2010, Qupperneq 28
12 | ÖRÆFANETIÐ
Milli sanda
Öræfasveit er stundum kölluð sveitin
milli sanda, þ.e. Skeiðarársands í vestri
og Breiðamerkursands í austri.
Skeiðarársandur nær frá Fljótshverfi í
Vestur-Skaftafellssýslu yfir í Öræfasveit í
Austur-Skaftafellssýslu. Um hann renna
margar jökulár og mest þeirra var
Skeiðará. Brúin yfir hana er sú lengsta á
landinu, 904 m, vígð árið 1974.
Breiðamerkursandur var áður gróinn
og kemur nafnið af höfuðbólinu Breiðá
sem talið er að hafi verið vestan við svo-
kallaðar Nýgræður. Jörðin fór undir jökul
um aldarmótin 1700. Á Breiðá bjó Kári
Sólmundarson ein helsta hetja Njálu-
sögu. Sker sem er tiltölulegu nýkomið
undan jökli hefur nú verið skírt Kárasker
eftir þessari fornu hetju.
Þægileg setustofa, bað og hvíldaraðstaða með heitum potti, gufubaði og sturtum.
Allt sameiginlegt rými er skreytt með íslenskri nútímamyndlist.
Hofi-Öræfum | sími: 478-2260 | fax: 478-2261 | www. frostogfuni.is | hof@frostogfuni.is
Þægindi og góður aðbúnaður
Sveitahótel með 37 herbergjum staðsett miðja vegu milli þjóðgarðsins í Skaftafelli og Jökulsárlóns.
Ferðir í friðlandið í Ingólfshöfða hafa átt vax-
andi vinsældum að fagna undanfarin ár. Það
var Sigurður Bjarnason bóndi í Hofsnesi sem
byrjaði árið 1991 að bjóða ferðafólki upp á
ferðir út í höfðann á heyvagni sem var
hengdur aftan í dráttarvél. Í dag er það hins
vegar sonur hans Einar Rúnar sem hefur
tekið við rekstrinum og sem aðalleiðsögu-
maður í Ingólfshöfðaferðunum og nýtur við
það dyggrar aðstoðar konu sinnar Matthildur
Þorsteinsdóttur. Nú hefur þriðja kynslóðin
bæst við þar sem sonur þeirra Aron er einnig
farinn að taka virkan þátt í starfinu. Enn sem
fyrr er notast við dráttarvélar og sérútbúna
vagna til að flytja ferðafólkið út í höfðann.
Frumkvöðlastarf í ferðaþjónustu
„Þetta var mikið frumkvöðlastarf þegar pabbi
byrjaði með ferðirnar út í Ingólfshöfða. Hann
var þá tiltölulega ný hættur með fjárbúskap
og þetta var hans leið til að skapa sér verk-
efni og afla tekna. Þegar Einar sá hve frum-
kvæði föður hans í ferðaþjónustu gekk vel
ákvað hann að fara sjálfur af stað með fjalla-
leiðsögn árið 1994 meðfram störfum sínum
sem landvörður í Skaftafelli. „Þegar umsvifin
hjá pabba héldu áfram að aukast og hann að
eldast þá endaði á því að ég fór með honum
í þetta sem aðalstarf á sumrin en hélt þó
áfram að sinna fjallaleiðsögninni meðfram.
Ég tók síðan við af föður mínum sem aðal-
leiðsögumaður í Ingólfshöfða ferðunum
2000/2001.“
Ferðatímabilið út í Ingólfshöfða er þrír og
hálfur til fjórir mánuðir frá byrjun maí og
fram yfir miðjan ágúst. Í sumar var farin ein
ferð alla daga vikunnar nema sunnudaga af
sandinum fyrir neðan Hofsnes kl. 12:00. Að
sögn Einar voru það fyrst og fremst hópar
með fararstjóra sem fóru í þessar ferðir í
upphafi en nú hefur þetta snúist við og í dag
eru einstaklingar sem skipuleggja sínar ferðir
sjálfir í gegnum Internetið í miklum meiri-
hluta. Einar segir að sumarið hafi verið mjög
gott og gerir ráð fyrir að næsta sumar verði
einnig gott ef ekki verða einhver meiriháttar
áföll alþjóðlega. „Það er ljóst að gengi krón-
unnar hefur orðið til þess að erlendir ferða-
menn eyða meiru og nýta sér afþreyingu
eins og þessa í ríkari mæli en áður.“
Viðkvæmt lífríki lundans
Að sögn Einars er það fyrst og fremst lund-
inn sem fólk hefur áhuga á að skoða í Ing-
ólfshöfðaferðunum og hann er yfirleitt farinn
upp úr miðjum ágúst. Einar segist ekki hafa
skynjað dramatískar breytingar á lundavarp-
inu í Ingólfshöfða á sama hátt og gerst hefur
í Vestmannaeyjum þar sem skortur á æti
ógnar tilveru lundans. Hann segir hins vegar
að svo virðist sem að ekki megi mikið út af
bregða til að það sé nóg af æti fyrir lundann
í höfðanum. „Ég tók eftir því í fyrsta skipti í
sumar að dauðar pysjur voru við holur í
höfðanum einn daginn. Þá var búið að vera
mjög slæmt veður og úfinn sjór í nokkra
daga og kannski hefur það dugað til þess að
lundinn náði ekki að afla nægrar fæðu.
Skúmurinn og langvían virðast hins vegar lifa
ágætu lífi í Ingólfshöfða,“ segir Einar Rúnar
Sigurðsson, ferðaþjónustubóndi í Hofsnesi.
www.oraefaferdir.is
Það er ljóst að gengi krón-
unnar hefur orðið til þess að
erlendir ferðamenn eyða
meiru og nýta sér afþreyingu
eins og þessa í ríkari mæli en
áður.
Einar Rúnar Sigurðsson ferðaþjónustubóndi segir lundann enn lifa góðu lífi í Ingólfshöfða þótt vís-
bendingar séu um að ekki megi mikið út af bregða með fæðuframboð.
Ferðir á opnum vagni í friðlandið í Ingólfshöfða hafa átt vaxandi vinsældum að fagna meðal
ferðafólks undanfarin ár.
Friðlandið í Ingólfshöfða:
Lundinn er að al að dráttar aflið