Bændablaðið - 23.09.2010, Qupperneq 30
14 | ÖRÆFANETIÐ
Þórbergssetur á Hala í Suðursveit var opnað í
byrjun júlí 2006 til minningar um ævi og störf
Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar. Í Þór-
bergssetri eru sýningar, helgaðar sögu
Suðursveitar og lífi og verkum Þórbergs. Þar
er fjölbreytt menningarstarfsemi, safn,
minjagripasala og veitingahús. Aðalsýning
setursins tengist ævi og verkum Þórbergs og
sögu þjóðarinnar á hinum ýmsu æviskeiðum
skáldsins.
Sýningin um Þórberg hefur vakið mikla at-
hygli en hún er sambland af fræðslu-
spjöldum og safni og er meðal annars
gengið inn í leikmyndir þar sem leitast er við
að ná andblæ liðinna ára um leið og gestir
njóta lýsinga meistarans sem leiðsögn um
svæðið. Gestum er m.a. boðið upp á loft í
fjósbaðstofunni á Hala, eins og hún var á
uppvaxtarárum Þórbergs, en einnig inn á
skrifstofu Þórbergs á Hringbraut 45 í Reykja-
vík.
Fjölbreytt sýning
Auk sýningarinnar um Þórberg eru breyti-
legar sýningar á Þórbergssetri á hverjum
tíma. Undanfarið hefur verið uppi sýningin
Leyndardómar Suðursveitar, sögusýning um
Papa og fyrstu búsetu manna á Suð-
austurlandi. Sýningin er hluti af verkefninu
Söguslóð á Suðausturlandi og í tengslum við
sýninguna verður í haust haldið málþing í
Þórbergssetri. Þar munu erlendir fræðimenn
fjalla um siglingar fyrr á öldum og um Papa
og þá sem fyrir voru í landinu þegar nor-
rænir menn námu hér land. Í sumar hefur
einnig mátt skoða sýninguna Fjallasýn, sem
er samstarfsverkefni Þórbergsseturs og
Skriðuklausturs í Fljótsdal. Þar er fjallað um
viðhorf til fjalla og óbyggða í gegnum ald-
irnar og er uppistaða sýningarinnar málverk
og textar um efnið auk mynda sem varpað
er á stóran vegg. Á Þórbergssetri er sýnd
málverk af Öræfajökli en á Skriðuklaustri eru
það málverk af Snæfelli og Herðubreið.
Ný vídd opnaðist
Þorbjörg segir að með opnun Þórbergsseturs
hafi bæst ný vídd í íslenska ferðaþjónustu
um leið og setrið styrki ferðaþjónustuna sem
fyrir var á svæðinu. Tengingin við verk Þór-
bergs og frásagnir Steinþórs á Hala hafi legið
beint við og verið mjög aðgengileg. „Hér á
Hala erum við með menningartengda ferða-
þjónustu þar sem við tökum á móti fólki að
íslenskum sveitasið og segjum frá staðnum,
búskapnum og því sem hér er að gerast. Hér
hefur sama fjölskyldan búið kynslóð fram af
kynslóð og þekking á umhverfinu og nátt-
úrunni er mikil. Þessa ríku alþýðumenningu
reynum við draga fram þegar við kynnum
sérstöðu svæðisins“. Þorbjörg segir að til
þessa hafi erlendir ferðamenn fyrst og
fremst verið að sækjast eftir náttúruupplifun
en þeir sýni nú í sívaxandi mæli áhuga á að
kynnast menningunni.
Ljósleiðarinn er bylting
„Koma ljósleiðarans hingað er algjör bylting í
búsetuaðstæðum hér. Möguleikar til að nýta
netið eru nú orðnir sambærilegir við það
sem best gerist á suðvestur horninu og í
fyrsta skipti eftir að RÚV hóf útsendingar
erum við loksins farin að sjá í sjónvarp al-
mennilega og getum nú valið um fjölda
stöðva. Ég sé fram að nú gætu opnast
möguleikar til að skapa hér störf fyrir fólk
sem getur unnið í gegnum netið, óháð bú-
setu,“ segir Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðu-
maður Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit.
www.thorbergssetur.is
Hús Þórbergsseturs vekur vissulega athygli þeirra sem leið eiga um þjóðveginn þar sem það blasir við eins og risavaxin bókahilla með bókum meistarans.
Þórbergssetur í Suðursveit:
Ný vídd í íslenskri ferðaþjónustu
Þorbjörg í skrifstofu Þórbergs á Hringbraut 45 sem hefur verið endurbyggð í Þórbergssetri á Hala.
Koma ljósleiðarans hingað er
algjör bylting í búsetuað-
stæðum hér. Möguleikar til að
nýta netið eru nú orðnir sam-
bærilegir við það sem best ger-
ist á suðvestur horninu.