Bændablaðið - 12.07.2012, Qupperneq 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 20122
Barist við elda á Snæfellsnesi
Slökkvilið Borgarbyggðar ásamt
bændum barðist á mánudag
við sinueld sem kviknaði í landi
Rauðkollsstaða á sunnanverðu
Snæfellsnesi. Eldurinn logaði á
nokkrum hekturum mólendis og
gekk hægt að ná tökum á honum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-Líf, tók þátt í slökkvistarfinu
og gerði gæfumuninn.
Bjarni Kristinn Þorsteinsson
slökkviliðsstjóri segir að mjög erf-
itt hafi verið að komast að svæðinu
með slökkvitæki. Um mólendi er
að ræða sem verið var að búa undir
skógrækt og búið að kílræsa og
því erfitt að fara um landið með
haugsugur. Ekki var fært fyrir
tankbíl slökkviliðsins að eldinum.
Þá var talsverður vindur á svæðinu
sem gerði slökkvistarf erfiðara. Að
sögn Bjarna er talið líklegt að elds-
upptök megi rekja til suðuvinnu á
jarðýtu sem var í notkun á svæðinu.
Seint á mánudagskvöld tókst loks að
slökkva eldinn að mestu en þá var
TF-Líf komin á svæðið og búin að
fara einar 20 ferðir með slökkvifötu
sem tekur 2.100 lítra.
Gríðarlegur þurrkur hefur verið
á Vesturlandi um tveggja mánaða
skeið og segir Bjarni að fólk verði
að hafa varan á vegna þess. „Ég
kalla líka eftir því að hagsmuna-
aðilar eins og Bændasamtökin,
Náttúrufræðistofnun, Skógræktin,
Samtök sveitarfélaga og fleiri komi
saman og myndi vinnuhóp um þessi
mál. Menn hafa fengist við gróður
og sinuelda í meira mæli en við
Íslendingar og kannski við gætum
nýtt okkur þekkingu þaðan. Eftir
Mýraeldana ól ég þá von í brjósti
að eitthvað yrði gert í þessu en ég
verð að játa það að ég varð ansi
súr þegar settar voru 70 milljónir í
Náttúrufræðistofnun til að rannsaka
gróðurfar eftir eldana en ekki króna
í tækjabúnað eða áætlanir varðandi
slökkvistarf,“ segir Bjarni. /fr
Fréttir
Eins og undanfarin ár verða
greiddir styrkir vegna gras-,
grænfóður- og kornræktar og koma
fjármunirnir úr mjólkur,- sauðfjár-
og búnaðarlagasamningi. Það kemur
ekki í ljós fyrr en í lok ársins hver
styrkurinn á hvern hektara verður,
m.a. vegna þess að það ræðst af
umfangi ræktunarinnar á landsvísu
og heildarfjárhæð. Til samanburðar
má geta þess að á síðasta ári var
hann 13.050 krónur á fyrstu 20
ha en 8.700 krónur á ha upp að 40
ha ræktun. Óska þarf eftir úttekt
ráðunautar fyrir 10. september.
Reglur og umsóknareyðublað er að
finna á bondi.is. Hægt er að sækja
um rafrænt á Bændatorginu. Bændur
eru hvattir til að tilgreina tegund
ræktunar og yrkja. Sækja þarf um á
kennitölu rekstrareiningar þar sem
búnaðargjaldsskyld framleiðsla
er stunduð sem er með sérstakt
virðisaukaskattsnúmer.
Styrkir til
jarðræktar
árið 2012
Á aukaársfundi Lífeyrissjóðs
bænda, sem haldinn var 8. júní
síðastliðinn, var samþykkt tillaga
stjórnar sjóðsins um að áunnin
réttindi sjóðfélaga verði skert
um 10%. Tillaga þessi er byggð
á ráðleggingum tryggingastærð-
fræðings sjóðsins miðað við
tryggingafræðilega stöðu 31.
desember 2011. Skerðing rétt-
inda gildir jafnt fyrir þá sem
njóta lífeyris úr sjóðnum og þá
sem eiga geymd lífeyrisréttindi.
Lækkun lífeyrisgreiðslna kemur
til framkvæmda við greiðslu 1.
október 2012.
10% lækkun lífeyris
Ólafur K. Ólafs, framkvæmdastjóri
sjóðsins, segir að vegna samspils
tekna frá lífeyrissjóðum og greiðslna
frá Tryggingastofnun hafi lækkun
lífeyris hjá sjóðnum engin eða afar
lítil áhrif á heildarlífeyrisgreiðslur
sjóðfélaga m.v. núgildandi reglur
Tryggingastofnunar. „Við 10%
lækkun lífeyris munu greiðslur
frá Tryggingastofnun hækka sam-
svarandi í tilfelli meirihluta ellilíf-
eyrisþega en það fer þó eftir öðrum
tekjum þeirra og hjúskaparstöðu. Ef
ekki er reiknað með öðrum tekjum
frá lífeyrissjóðum má ætla að heildar-
greiðslur til ríflega 90% ellilífeyris-
þega breytist ekki og meðallækkun
annarra verði innan við 2%. Þeim líf-
eyrisþegum sem einnig fá greiðslur
hjá Tryggingastofnun ríkisins er því
bent á að nauðsynlegt er að leggja
þar inn nýja tekjuáætlun fyrir árið
2012 vegna minnkandi greiðslna úr
lífeyrissjóðnum þar sem flestir geta
átt rétt á samsvarandi hækkun lífeyris
frá Tryggingastofnun,“ segir Ólafur.
Ekki áður skert
Réttindi hafa ekki áður verið skert
hjá Lífeyrissjóði bænda, öndvert
því sem gerst hefur hjá nær öllum
öðrum lífeyrissjóðum að sögn
framkvæmdastjórans. „Með skerð-
ingunni næst fyrr jöfnuður milli
eigna og skuldbindinga sjóðsins,“
segir Ólafur.
Skert lífeyrisréttindi bænda
– framkvæmdastjóri reiknar þó með að heildargreiðslur 90% ellilífeyrisþega breytist ekki
Dómstólar
staðfestu
bætur
vegna riðu
Ábúendum í Skollagróf í
Hrunamannahreppi voru í síð-
ustu viku dæmdar 13,9 milljóna
króna bætur frá íslenska ríkinu í
Héraðsdómi Reykjavíkur vegna
riðusmits sem greindist á bænum
árið 2007. Matsnefnd eignarnáms-
bóta mat tjónið á sínum tíma á
13,9 milljónir króna en ríkið var
ósátt við niðurstöðu nefndarinnar
og fór með málið fyrir dómstóla.
Öllu fé af bænum var farg-
að í desember 2007 að kröfu
Matvælastofnunar og ráðist í
hreinsun á húsum og umhverfi á
svæðinu með tilheyrandi kostnaði.
Ágreiningur aðila snérist um það
hvort stefnda væri að lögum skylt
að greiða stefnendum „eignar-
námsbætur“ í samræmi við úrskurð
matsnefndar eignarnámsbóta og ef
ekki, hvort og þá hve háar bætur
og kostnað stefnda bæri að greiða
stefnendum til viðbótar vegna niður-
skurðar fjárins. Niðurstaða mats-
nefndar eignarnámsbóta var sú að
hæfilegar bætur vegna niðurrifs,
hreinsunar og jarðvegsskipta væru
6.800.000 krónur. Dómari féllst á að
bætur fyrir afurðatjón yrðu miðaðar
við fjárleysi í þrjú ár í samræmi við
niðurstöðu matsnefndar eignarnáms-
bóta eða samtals 3.080.422 krónur.
Annar kostnaður, sem landeigendur
báru vegna tjónsins, var förgunar-
kostnaður og lögmannskostnaður
sem ríkið greiddi að fullu samkvæmt
dómnum.
/ TB
Miklir þurrkar eru víða um land og eldhætta umtalsverð. Mynd: hlh/Skessuhorn
Leyfilegt að koma með osta úr
ógerilsneyddri mjólk til landsins
Í maí tók gildi breyting á 10. grein
laga um dýrasjúkdóma þar sem
bann við innflutningi á ósoðinni
mjólk var fellt úr gildi. Því fá
ferðamenn nú leyfi til að flytja til
landsins allt að eitt kíló af osti úr
ógerilsneyddri mjólk til einkanota.
Hingað til hefur ekki verið leyfi-
legt að flytja inn mjólkurafurðir
úr ógerilsneyddri mjólk í varn-
aðarskyni gegn útbreiðslu dýra-
sjúkdóma. Landbúnaðarráðherra
getur heimilað innflutning á meira
magni en eingöngu til einkaneyslu.
Reglugerðarbreytingin kemur að
frumkvæði stjórnvalda en ekki
eftir erlendri forskrift og er aðeins
um takmarkað magn að ræða.
Nær eingöngu til einkaneyslu
„Það hefur verið allur gangur á
merkingum á þessum ostum og
þessi reglugerðarbreyting er til
einföldunar og nær eingöngu til
einkaneyslu fólks. Hér er ekki um
frjálsan innflutning að ræða heldur
er þetta hugsað fyrir ferðamenn
sem hafa neytt álíka osta erlendis.
Þannig að ég get ekki séð að þetta
sé ógn við matvælaöryggi hérlendis,
segir Sigurgeir Þorgeirsson, ráðu-
neytisstjóri í sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu. Aðspurður um
hvort þetta muni leiða til rýmkunar á
reglum fyrir framleiðendur hérlendis
segir Sigurgeir:
„Þessi breyting hefur ekki áhrif á
það í bili og það er engin reglugerð-
arbreyting í farvatninu hvað varðar
innlenda framleiðendur.”
„Óskiljanleg ráðagerð”
„Fyrir mér er þetta alveg óskiljanleg
ráðagerð og hún getur haft alvarlegar
afleiðingar í för með sér. Það hefur
verið litið á það á Íslandi og í allri
Norður-Evrópu að ógerilsneyddir
ostar séu varhugaverðir vegna
listeríu sýkingar og því hefur verið
ákveðið í þessum löndum að banna
markaðssetningu og sölu á þessum
vörum til að vernda neytendur. Í
frönskumælandi neysluheimi hafa
reglulega komið upp listeríusýkingar
vegna neyslu á ostum sem búnir eru
til úr ógerilsneyddri mjólk.
Ég sé alls ekki þörfina á að þetta
sé gert með þessum hætti og að opna
á þetta er mjög einkennilegt því hér
er verið að rjúfa ákveðinn eldvegg
sem við höfum sett upp. Rökin eru
sú að verið sé að liðka til fyrir inn-
flutningi ferðamanna og að auðvelda
tollayfirvöldum en ég blæs á þau rök.
Einnig myndi ég segja að kíló á mann
sé frekar óhóflegt og það er sérkenni-
legt að leyfa þennan innflutning á
meðan innlendir framleiðendur mega
ekki framleiða samskonar vöru,”
segir Sigurður Ingi Jóhannsson,
alþingismaður Framsóknarflokksins.
Neytendur þurfa að vera upplýstir
„Þetta er merkilegt skref sem er verið
að taka hér. Við vitum öll að geril-
sneyðingin er ekki að ástæðulausu,
hún er til að tryggja að hættulegar
bakteríur berist ekki í mjólkurvörur
og osta. En þetta hefur verið leyft
í Evrópusambandslöndunum með
þeim skilyrðum að framleiðendur
sæta ströngu öryggiseftirliti. Þessu
fylgir auðvitað smávægileg áhætta,
hún er til, en ef allir öryggisþættir
eru í lagi þá sé ég ekkert að þessu.
Það geta verið slæmar bakteríur í
ógerilsneyddum mjólkurvörum eins
og listería sem er hættuleg fyrir
fólk með brenglað ónæmiskerfi og
ófrískar konur. Einnig eru dæmi um
kamfýlóbakter í hrámjólk og ostum,”
útskýrir Haraldur Briem sóttvarnar-
læknir og bætir við:
„Ég vil að fólk sé meðvitað og
viti að hér er smávægileg áhætta.
Neytendur þurfa að vera upplýstir
þannig að þeir viti hvað það þýðir
að vera með ógerilsneydda vöru í
höndunum.”
/ehg
Mega koma með frosið, hrátt kjöt
Fleiri breytingar hafa verið gerðar eins og að vottorðskrafa fyrir soðnar
vörur hefur verið felld niður. Einnig hefur verið opnað á það að ferðamenn
geti komið með frosið, hrátt kjöt til landsins sem hefur verið salmónelluprófað.
Sé magnið undir þremur kílóum þarf ekki að greiða toll af kjötinu en þó þarf
leyfi hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu fyrir fram.
Ólafur K. Ólafs framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs bænda. Mynd: TB
Breyting á 10. grein laga um dýrasjúkdóma tók gildi í maí þar sem bann við
innflutningi á ósoðinni mjólk var fellt úr gildi. Nú geta ferðamenn tekið með
sér allt að eitt kíló af osti úr ógerilsneyddri mjólk til einkaneyslu til landsins.
Ostarnir á myndinni eru úr Ostahúsinu og þeir eru gerilsneyddir. Mynd: EHG
Lífrænt og vænt
á Lækjartorgi
Lífgrænn ávaxta- og grænmetis-
markaður hefur opnað aftur á
Lækjartorgi í Reykjavík en þetta
er annað sumarið í röð sem ferða-
mönnum og öðrum gestum mið-
bæjarins er boðið upp á ferskar
lífrænar vörur með þessum hætti.
Ari Hultqvist rekur markaðinn
alla daga ásamt nokkrum starfs-
mönnum. Ari hefur unnið í tengslum
við sölu á lífrænni matvöru seinustu
ár. Í boði eru fjölbreytt fæða og þegar
líður á sumarið eykst úrvalið af glæ-
nýrri uppskeru sem kemur daglega
beint frá bændum. Opið er alla daga
nema sunnudaga.