Bændablaðið - 12.07.2012, Side 6

Bændablaðið - 12.07.2012, Side 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 20126 LOKAORÐIN Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 6.600 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.300. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Tjörvi Bjarnason (ábm.) tjorvi@bondi.is – Sími: 563 0339 Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf. Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621 LEIÐARINN Blaðamenn Bændablaðsins fara víða um sveitir í sínum störfum. Eitt af því ánægjulega við blaðamennskuna er að kynnast ólíku fólki sem fæst við fjölbreytt verkefni sem eru jafn misjöfn og þau eru mörg. Sjálfbjargarviðleitni og dugnaður eru orð sem koma upp í hugann þegar maður heimsækir bændur sem eru að reyna nýja hluti, breyta og bæta eða skapa nýja atvinnu. Raunar er þrjóskan ekki langt undan í mörgum tilvikum. Hún er bráðnauðsynleg til þess að sjá til lands í krefjandi verkefnum sem við fyrstu sýn virðast óframkvæmanleg. Fréttir af nýjum ferðaþjónustufyrirtækjum eða repjurækt eru gott dæmi um þau verðmæti sem bújarðir á Íslandi búa yfir. Landið er svo fjölbreytt og gjöfult að tækifærin virðast óendanleg – bara ef hugmyndaflugið er í lagi og ekki er verra að eiga einhverja aura í sparibauknum. En það er ekki allsstaðar jafn auðvelt að hefja rekstur eða þróa þá starfsemi sem fyrir er til sveita. Fyrir örfáum árum birtist frétt í Bændablaðinu um stúlku í Meðallandi í Skaftárhreppi sem var í fjarnámi við skóla á höfuðborgarsvæðinu. Hún þurfti að ferðast á Kirkjubæjarklaustur til þess að senda tölvupóst og ná í kennslugögn vegna þess að nettengingin var ekki nógu góð heima hjá henni. Því var blessunarlega kippt í liðinn í kjölfar eldgosanna á Suðurlandi. Hér hefur margoft verið fjallað um mikilvægi góðra fjarskipta og samgangna enda eru þau ein af undirstöðum í rekstri nútímafyrirtækja og ekki síst heimila. Annar nauðsynlegur rekstrar- þáttur er rafmagn. Þar er ekki fullkomið jafnræði á milli byggðanna frekar en í nettengingunum því þriggja fasa rafmagn er víða ekki í boði. Þetta háir til dæmis nýrri kornþurrkunarstöð bændanna í Skaftárhreppi sem fjallað er um hér í blaðinu. Þeir verða að nota díselolíu til þess að keyra kornþurrkarann sem er margfalt dýrara en að nota rafmagn. Talið er að það myndi kosta Rarik um 200 milljónir króna að leggja þriggja fasa rafmagn á alla bæi í Meðallandi. Það er verið að tala um jarðstrengi og háspennulínur fyrir marga milljarða til að þjóna álverum og annarri stóriðju. Af hverju er ekki lögð meiri áhersla á að treysta grunnþætti byggðanna? Víða er hægt að byggja upp blómlega og fjölbreytta atvinnustarfsemi ef viljinn er fyrir hendi. Er virkilega ofrausn að leggja þriggja fasa rafmagn í Meðallandið? /TB Tækifærin og jafnræðið Sókn er besta vörnin Dyggir lesendur Bændablaðsins hafa um langa hríð fengið innsýn í frumkvöðlastarf bænda með fjölmörgum viðtölum og greinum. Nýsköpun í landbúnaði er mikil og vaxandi. Bændur leitast við að treysta búskap sinn og skjóta undir hann styrkari stoðum með því að vera leitandi og óragir við tilraunastarf- semi. Í þessu blaði er sagt frá ræktun á repju í Skaftárhreppi. Framtakssemi og samvinna bænda í þessum efnum er virðingarverð og til eftirbreytni. Skaftárhreppur er dæmigerð sveit þar sem búseta og tilvera samfélagsins byggist á landbúnaði. Þar er mikið ræktunarland ónotað og mikil tækifæri í verðmætaframleiðslu byggð á því. Byggðarlag sem gæti tekið stakkaskipt- um þegar tækifærin opnast, þegar matur og annar jarðargróður verður á ný metinn að verðleikum. Þetta er sagt vegna þess hugar- fars sem undirrituðum finnst hafa heltekið umræðu undanfarinna áratuga, að matur megi ekki kosta og að þeir sem hann framleiða bera stöðugt minna úr býtum. Framtak bænda og annarra sem þar koma að málum er sönnun þess að með markvissum vinnu- brögðum má gjörbreyta búsetuskilyrðum og efla byggð, atvinnu, menningu og velferð íbúa. Við höfum tapað miklum tíma á undanförnum árum með því tómlæti sem hefur ríkt um möguleika sveitanna til að eflast innan frá. Við sitjum föst í yfir 30 ára gömlum hugsunarhætti um að besta ráðið fyrir sveitirnar sé að fækka bændum og stækka búin. Í raun höfum við nú alið í um aldar- þriðjung feimni við að takast á við að styrkja landbúnað. Mantra undanfarinna ára er að spara útgjöld til landbúnaðar, hagræða og fækka. Við þurfum nýja viðspyrnu, nýja hugsun. Íslenska leið, ekki eftirapaða landbúnaðarstefnu annarra landa. Samningsafstaða í landbúnaðarmálum er skýr og klár Stefán H. Jóhannesson, svokallaður aðalsamningamaður Íslands í aðlögunarferli að ESB, hefur svarað bréfi Bændasamtakanna sem reyndar var sent utanríkisráðherra. Tilefni bréfsins var viðtal í blaði sem dreift var um sveitir í vor. Það blað átti að vera svokölluð upplýst umræða um ESB-aðild og landbúnað. Aðildarsinnum hefur lengi gramist að heildarsamtök bænda hafi unnið að því að gæta að hagsmunum íslensks landbúnaðar. Þeir hafa ýmist sagt að Bændasamtökin geri ekkert til að „upplýsa“ félagsmenn sína um kosti aðildar eða kennt samtökunum um að stunda hræðsluáróður. Hvorug þessara ásakana á við rök að styðjast. Bændasamtökin hafa einvörðungu ástundað faglega vinnu og öfluga fræðslu. Má m.a. rifja það upp hér að nú er ár liðið síðan bók um landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins og Evrópska efnahagsvæðisins kom út á vegum samtakanna. Sú bók inniheldur langumfangsmestu samantekt á íslensku um lagaumhverfi ESB og landbúnaðar sem komið hefur út. Samantekt Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors er grundvallarrit þeirra sem vilja láta taka sig alvarlega í umræðu um hvað ESB-aðild myndi þýða. Má þar til að mynda nefna skorinorða ályktun hans um margtuggna klisju varðandi svokallaða undanþágu sem finnskur landbúnaður á að hafa fengið. Þeir sem vilja kynna sér það mál nánar geta lesið blaðsíður 66 til 68 í umræddu riti. Meginatriðið er að samkvæmt aðildarákvæðum Finnlands er heimilt að veita tímabundnar undanþágur, í raun aðeins sérstaka útfærslu ESB- réttar. Þar getur ESB ákvarðað öll skilyrði og eftir atvikum fellt á brott með breyttri stefnu. Bókinni hefur þegar verið dreift í hundruðum eintaka. Það er skemmtilegt að bera efni þeirrar bókar saman við upplýstu umræðuna í fjölritinu sem sent var um sveitir landsins í vor. Þar fer aðal- samningamaðurinn mikinn í viðtali um góðan skilning á sérstökum hagsmunum íslensks land- búnaðar. Bændasamtökin spurðu því beint hvar þessi skilningur hefði komið fram og hvar mætti finna um hann gögn. Ekki verður á móti mælt að slíkt væru allnokkur tíðindi. Því var svarbréfið mikil vonbrigði. Þar fer aðalsamningamaður Íslands mikinn í stílæfingum og í ljós kemur að ekkert var á bakvið fullyrðingar hans í fjölritinu. Aðalsamningamaðurinn gat ekki bent á neinar áþreifanlegar upplýsingar sem fram hefðu komið af hálfu ESB, aðeins vitnað til einhverra óljósra viðbragða manna þar innanborðs. Einkum var það utan fundarsala, í tveggja manna tali þar sem menn tala án þess að nokkuð sé skráð eða hægt sé að vitna til þess síðar. Aðalsamningarmaðurinn klykkir svo út með því í svarbréfi sínu að hann vænti samvinnu við BÍ um mótun samningsafstöðu í landbúnaðarmálum. Að því máli hafa Bændasamtökin stöðugt viljað vinna. Rétt er að geta þess að samtökin hafa unnið að athugasemdum við greinargerð íslenskra stjórn- valda í fleiri köflum. Vinna við samningsafstöðu landbúnaðarkaflans ætti hins vegar ekki að þurfa að vefjast fyrir aðalsamningamanni eða samn- inganefnd í ljósi þess að varnarlínur BÍ, grunnur að samningsafstöðu, hafa verið kynntar á fundi ríkisstjórnar Íslands. Þar fór fyrrverandi land- búnaðarráðherra, Jón Bjarnason, yfir þær, kynnti og lýsti afdráttarlaust yfir að þetta væri stefna hans í málaflokknum. Þannig er stefna ríkisstjórnar í málinu skýr. Hana má finna í fundargerðum ríkis- stjórnarinnar, án athugasemda. /HB Mun fleiri vinnuslys í landbúnaði en skráningar Vinnueftirlits gefa til kynna Bændur sýna af sér andvaraleysi og fara á mis við réttindi sín Vinnuslys meðal bænda eru mun fleiri en skráningar hjá Vinnueftirliti segja til um, þannig að takmarkaðar upplýsingar eru til um vinnuslys meðal íslenskra bænda. Það hefur í för með sér að ekki er vitað um eðli og afleiðingar slysa í bændastétt, sem leiðir svo aftur til þess að ekki er með góðu móti hægt að sinna forvörnum eða fræða bændur um helstu hætturnar sem störfum þeirra fylgja og grípa til aðgerða gegn þeim. Þetta er mat Kristins Tómassonar, yfirlæknis hjá Vinnueftirlitinu. Ársskýrsla Vinnueftirlitsins fyrir árið 2011 er nýlega komin út en þar kemur m.a. fram að í fyrra voru skráð 16 vinnuslys í landbúnaði, 10 hjá körlum og 6 hjá konum. Á síðastliðnum fimm árum, á tímabilinu frá 2007 til 2011, voru skráð vinnuslys í landbúnaði alls 72 talsins, nokkru fleiri að jafnaði hjá körlum en konum. Til samanburðar má nefna að alls voru skráð 256 vinnuslys í matvælaiðnaði, við vinnslu landbúnaðarafurða. Kristinn telur að mun fleiri bændur verði fyrir vinnuslysum en tölur Vinnueftirlits gefi til kynna og veltir fyrir sér hvort algengt sé að bændur leiti ekki aðstoðar, verði þeir fyrir slysum við störf sín, og tilkynni þau þar af leiðandi ekki. „Mér finnst líklegt að það séu aðeins alvarlegustu slysin sem eru tilkynnt til okkar,“ segir Kristinn. Tilkynna yfirleitt ekki um slys Fyrir fáum árum gerði Kristinn rannsókn á vinnuslysum í bændastétt ásamt Gunnari Guðmundssyni, sérfræðingi á Landspítala, en niðurstaða hennar var sú að vinnuslys eru algeng meðal bænda, alls höfðu um 44% bænda lent í vinnuslysi og verið fjarverandi frá vinnu í tvær vikur vegna þess. Kristinn segir þær tölur sem fram koma í ársskýrslu Vinnueftirlitsins vekja upp spurningar um hvort bændur tilkynni yfirleitt ekki um þau slys sem þeir verði fyrir og leiti þá heldur ekki eftir þeim rétti sem þeim stendur til boða. Skráð vinnuslys meðal bænda eru mun færri en hjá öðrum stéttum, tilkynningar síðastliðinn áratug benda til að árlega verði 5-10 vinnuslys að jafnaði í landbúnaði. „Ég áætla að rétt um það bil helmingur þeirra bænda sem verða fyrir slysum við störf sín tilkynni þau, líklega eru það einungis alvarlegustu slysin sem ná inn á skrá. Ég myndi áætla að vinnuslys meðal bænda séu um 30 til 35 talsins á ári, þannig að þetta er verulega vantalið,“ segir Kristinn. Full ástæða til að hafa áhyggjur Hann segir að bændur fari á mis við réttindi sín með því að sýna af sér andvaraleysi. „Bændur eiga, líkt og aðrir þegnar þessa lands, rétt á samfélagslegum stuðningi verði þeir fyrir vinnuslysum og ætli þeir að halda þessu rétti virkum þurfa þeir að gera eitthvað í þessum málum, því á endanum mun það koma niður á þeim sjálfum og þeirra réttindum. Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af fálæti bænda í þessum efnum, þeir eru alls ekki nægilega vakandi,“ segir Kristinn. „Því miður held ég að ansi mörg slys verði í landbúnaði sem ekki eru tilkynnt til okkar. Það þýðir að við höfum ekki nægilega vitneskju um eðli slysanna og afleiðingar, en hefðum við yfir þessum upplýsingum að ráða væri hægt að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða, m.a. hrinda af stað fræðslu- og forvarnarátaki.“ Slys við umhirðu búpenings algengust Algengustu vinnuslysin í landbúnaði eru meðal bænda sem stunda blandaðan búskap, þá hjá kúabændum og loks sauðfjárbændum, en tíðnin er minni í öðrum búskap. Slys við umhirðu búpenings eru tíðust en einnig er mikið um slys sem verða við notkun fjölbreytts tækjabúnaðar. Kristinn segir það sína skoðun að Búnaðarþing ætti að taka málið upp og fjalla af meiri krafti um vinnuverndarmál bænda, þessum málum hafi ekki verið nægur gaumur gefinn. Meðal annars sé brýnt að gera átak í skráningu vinnuslysa meðal bænda. /MÞÞ Kristinn Tómasson yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.