Bændablaðið - 12.07.2012, Page 30

Bændablaðið - 12.07.2012, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 2012 Girnilegir grillréttir Nýlega kom út uppskriftabókin Grillréttir Hagkaups þar sem Hrefna Rósa Sætran á heiðurinn af öllum uppskriftunum. Þar er að finna allt sem þarf fyrir grillveislur sumarsins og fyrir grillmáltíð hversdagsins, eins og úrbeinuð sítrónu-kjúklingalæri sem hér kemur uppskrift að. Úrbeinuð sítrónu-kjúklingalæri fyrir 4 150 ml ólífuolía 80 ml nýkreistur sítrónusafi 4 msk. agavesíróp 4 hvítlauksrif 1 msk. rósmarín, þurrkað 2 lárviðarlauf 400 g úrbeinuð kjúklingalæri salt pipar 2 sítrónur til að grilla smá sykur Aðferð: Blandið saman ólífuolíunni, sítrónu- safanum og agavesírópinu. Skrælið hvítlaukinn og rífið hann út í. Bætið einnig lárviðarlaufunum saman við. Marinerið kjúklingalærin upp úr leg- inum í 2-4 klst. Grillið lærin í 8 mín. á skinnhliðinni. Snúið þeim svo við og grillið í aðrar 8 mín. Skerið sítrónurnar í tvennt, penslið með ólífuolíu og veltið þeim upp úr smá sykri. Grillið þær í 5 mínútur eða þar til sykurinn hefur karamellast. Grillsósa úr grískri jógúrt safi úr 3 appelsínum 1 dós grísk jógúrt 1 tsk. „bitter sweet“ reykt paprikuduft 1/2-1 tsk. kummin, malað 1/2-1 tsk. kóríander, malaður 1 msk. tamari sojasósa agavesíróp að smekk salt pipar Aðferð: Sjóðið appelsínusafann niður um rúmlega helming og kælið. Setjið hann og allt kryddið í jógúrtina og hrærið vel. Smakkið og bætið í því sem ykkur finnst helst vanta þangað til grillsósan er tilbúin. /ehg Ragnar Bragason er uppalinn á Heydalsá en Sigríður Jónsdóttir er frá Broddanesi 1 í Kollafirði. Þau tóku við búskap af foreldrum Ragnars, Braga Guðbrandssyni og Sólveigu Jónsdóttur árið 2003. Frá árinu 2006 hafa þau einnig nytjað jörðina Gestsstaði í sömu sveit en þar bjuggu móðursystkini Ragnars, þau Guðjón Jónsson og Ragnheiður Jónsdóttir. Foreldrar Ragnars, auk Ragnheiðar frá Gestsstöðum, taka enn mikinn þátt í búskapnum og eru ómetanlega góð hjálp við bústörfin Býli? Heydalsá 1. Staðsett í sveit? Heydalsá er við sunnanverðan Steingrímsfjörð í Sveitarfélaginu Strandabyggð í Strandasýslu. Ábúendur? Ragnar Kristinn Bragason og Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Ragnar og Sigríður eiga 3 börn: Branddís Ösp 14 ára, Stefán Snær 11 ára og Þórey Dögg 6 ára. Á bænum eru Border-Collie hundarnir Fluga frá Smáhömrum og Pjakkur frá Broddadalsá, kötturinn Mýsla, kanínan Kalli og yrðlingurinn Helga. Stærð jarðar? Um 2.800 hekt- arar, sameiginlegt land beggja bæjanna á Heydalsá. Tegund býlis? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? Við vorum með 650 fjár á fóðrum síðastliðinn vetur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Vinnudagurinn er breytilegur eftir árstíðum. Um þessar mundir sinnir bóndinn tófuveiði á grenjum en húsmóðirin starfar á Sauðfjársetrinu á Sævangi. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegastur er sauðburður ef tíðarfar er gott, heyskapur og smalamennskur. Leiðinlegast þegar vélarnar bila. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Með svipuðu sniði, vonandi auknum afurðum eftir hverja á og betri gerð, einnig aukna endurræktun túna. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Þeir sem verja tíma sínum í að sinna félagsmálum bænda á óeigingjarnan hátt eiga þakkir skildar fyrir. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Vel, takist okkur að vera utan Evrópusambandsins. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Hágæða lambakjöti, mjólkur- afurðum og hrossum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, egg, ostur, smjör, sultur af ýmsum gerðum, lýsi og reyktur rauðmagi. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Sunnudagslærið, létt- reyktur lambahryggur og hreindýr. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar við fluttum féð í nýju fjárhúsin 4. desember 2008. Líf og lyst Bærinn okkar Heydalsá 1 Branddís Ösp Ragnarsdóttir, Sigurey Íris Jónsdóttir, Stefán Snær Ragnarsson, Elísabet Ósk Jónsdóttir og Þórey Dögg Ragnarsdóttir. Sigurey Íris og Elísabet Ósk eru dætur Jóns Bjarna Bragasonar og Laufeyjar Karlsdóttir, en Jón Bjarni er bróðir Ragnars bónda á Heydalsá. Í baksýn á myndinni sést bærinn Heydalsá og í mynni Steingríms- fjarðar er eyjan Grímsey, lengra í burtu sést í glæsileg húnvetnsk fjöll. Í sumarbyrjun bættist í flóru uppskriftabóka þegar Grillréttir Hagkaups komu út á vegum verslunarinnar. Þar eru uppskriftirnar hver annarri glæsilegri og girnilegri. Staðgreiðsla fyrir sumarbústaðinn þinn Átt þú sumarbústað sem þú vilt selja á góðu verði ? Okkur langar að kaupa góðan sumarbústað helst í ekki lengri akstursleið en 1,5 klst frá Reykjavík Skjólsamur með góðu útsýni og nálægt golfvelli er draumurinn. Viljum helst vera á suðurlandi. Erum ekki að leita að mjög stórum bústað. Áhugasamir vinsamlegst sendið okkur upplýsingar um nákvæma staðsetningu með myndum og verði ásamt öðrum upplýsingum á netfangið: godurbustadur@gmail.com Einungis kaup á mjög hagstæðu verði koma til greina. Staðgreiðsla getur verið í boði fyrir rétta bústaðinn. Nýr Belarus 1221.3 Verð kr. 5.145.000 án vsk. Rafvörur ehf. Dalvegur 16c. 201 Kópavogur. Uppl. Í síma 568-6411 www.rafvorur.is Til sölu nýtt ónotað Hobby hjólhýsi. 560 CFE exellent árg. 2012 kr. 3.990.000 kr. Markaðsverð kr. 4.695.000 kr. Upplýsingar í síma 866 5395

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.