Fréttablaðið - 13.01.2012, Síða 4
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR4
Bragðgott tyggjó
með 100% náttúrulega
sætuefninu Xylitol sem
stuðlar að betri tannheilsu
Spry TYGGJÓ
100%
Xylitol
Fyrir alla sem vilja forðast
sykur í matvælum!
Xylitol er ekki aðeins bragðgott sætuefni heldur stuðlar það
hreinlega að betri tannheilsu! Heilbrigðissamtök víða um heim
mæla eindregið með Xylitoli sem sætuefni í tyggigúmmí.
Brosum og verum hraust!
Fæst í heilsubúðum & apótekum
DÓMSMÁL Meirihluti þeirra beiðna
um heimild til hlerana sem lög-
regla hefur lagt fyrir dómstóla á
undanförnum árum hefur verið
samþykktur. Fyrrverandi ríkis-
saksóknari segir að túlka verði
þröngt heimildir til hlerana.
Ríkissaksóknari hefur eftirlit
með símhlerunum lögreglu, sem
og öðrum hlerunum, notkun eftir-
fararbúnaðar og annars eftirlits.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissak-
sóknari boðaði nýverið auknar
áherslur á eftirlit með þessum
rannsóknum, og hefur nú fengið
alla úrskurði frá dómstólum frá
ársbyrjun 2009.
„Menn þekkja hver skilyrðin
eru og fara ekki fram með kröfur
nema líklegt sé að dómstólar fall-
ist á þær, með hliðsjón af dóma-
framkvæmd,“ segir Sigríður.
„Símhleranir eru gríð-
arlegt inngrip í persónu-
leg réttindi manna, og það
verður að mínu mati að túlka
lögin mjög þröngt,“ segir
Valtýr Sigurðsson, fyrrver-
andi ríkissaksóknari.
Valtýr starfar nú sem lög-
maður og gætir meðal annars
hagsmuna einstaklinga sem hafa
verið til rannsóknar hjá embætti
sérstaks saksóknara. Embættið
hefur ítrekað beitt símhler-
unum við rannsóknir
sínar.
Valtýr þekk-
ir dæmi um
rannsókn sér-
staks sak-
sóknara þar
sem maður
var boðaður
til yfirheyrslu sem vitni. Á sama
tíma fékkst heimild til að hlera
síma viðkomandi. „Lögin taka
ekki fyrir að hlerunum sé beitt
gegn vitni, en þetta lítur út eins
og menn hafi hreinlega verið að
fiska. Ef svo er er það ekki í sam-
ræmi við lög,“ segir Valtýr.
„Það vekur í það minnsta spurn-
ingar að maður sé boðaður til yfir-
heyrslu sem vitni og svo er fylgst
með í hvern hann hringir í kjölfar-
ið. Og upptökur úr símtölum hans
svo spilaðar fyrir þriðja aðila,
meðal annars samtöl hans við
eiginkonu og bróður,“ segir Valtýr.
Hann segir það einnig umhugs-
unarefni að dæmi séu um að eitt
og hálft ár líði frá því að atvik
sem eru til rannsóknar eigi sér
stað þar til símar séu hleraðir.
Það rími illa við að aðeins megi
hlera þegar líklegt sé að upplýs-
ingar sem fáist með hlerununum
fáist ekki fram með öðrum rann-
sóknaraðferðum.
„Dómstólar hafa metið það svo
að þetta væri þess eðlis að eðlilegt
væri að heimila þetta. Svo kemur
í ljós við meðferð málanna fyrir
dómi hvaða þýðingu öflun þess-
ara sönnunargagna hefur,“ segir
Sigríður.
„Hagsmunirnir af því að sækj-
ast eftir þeim upplýsingum sem
gætu fengist eru til staðar í
þessum málum eins og
öðrum,“ segir Sigríð-
ur. „Þetta er aðeins
öðruvísi en í öðrum
málum. Til dæmis
er í umfangsmikl-
um fíkniefnamálum
yfirleitt eitthvað í
gangi sem tengist
brotinu, en þarna
er ekki um það að
ræða. Það er helsti
munurinn.“
brjann@frettabladid.is
GENGIÐ 12.01.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,9174
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,24 124,84
190,65 191,57
158,49 159,37
21,306 21,430
20,643 20,765
17,926 18,032
1,6148 1,6242
189,67 190,81
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
8°
4°
5°
7°
4°
4°
4°
22°
7°
16°
10°
16°
-1°
8°
15°
0°
Á MORGUN
8-15 m/s.
SUNNUDAGUR
8-13 m/s.
4
4
4
5
5
2
6
6
6
7
8
12
13
15
9
13
10
9
8
8
6
4
0
3
6
6
2
0 -1
-2
0
4
MILT OG BLAUTT
á landinu í dag og
víða asahláka. Á
morgun gengur í
suðvestanátt með
kólnandi veðri og
éljum síðdegis um
vestanvert landið
en úrkomulítið
norðaustan til. Á
sunnudag verður
úrkomulítið í fyrstu
en lítur út fyrir rign-
ingu syðra undir
kvöld.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Samþykkja flestar
beiðnir um hleranir
Dómstólar samþykkja meirihluta beiðna lögreglu um heimild til símhlerana.
Túlka verður lög um hleranir þröngt segir fyrrverandi ríkissaksóknari. Segir
einstök tilvik líta út eins og sérstakur saksóknari sé að fiska með hlerunum.
SIGRÍÐUR
FRIÐJÓNSDÓTTIR
VALTÝR
SIGURÐSSON
Lögin taka ekki fyrir
að hlerunum sé beitt
gegn vitni, en þetta lítur út
eins og menn hafi hreinlega
verið að fiska.
VALTÝR SIGURÐSSON
FYRRVERANDI RÍKISSAKSÓKNARI
SAMFÉLAGSMÁL Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar hefur ákveð-
ið að draga til baka ákvörðun um
að taka gjald fyrir hádegisverð á
þeim stöðum þar sem fatlað fólk
sækir dagþjónustuúrræði. Borgin
mun endurskoða málið í samráði
við hagsmunasamtök fatlaðs fólks
og notendur þjónustunnar.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2012 var ákveðið að samræma
gjaldtöku vegna matarþjónustu.
Tekin var ákvörðun um að gjaldið
yrði alls staðar það sama eða 610
krónur frá 1. febrúar. - shá
Fatlaðir borga ekki i bili:
Fæðisgjald ekki
sett á 1. febrúar
SVEITARSTJÓRNIR „Ljóst er að Hafnar-
fjörður hefur orðið af tekjum sem
skipta tugum ef ekki hundruðum
milljóna vegna þessa,“ bókuðu full-
trúar minnihluta Sjálfstæðisflokks
eftir að meirihluti skipulags- og
byggingarráðs Hafnarfjarðar ákvað
að gera átak í að leiðrétta skráningu
fasteigna.
Meirihluti Samfylkingar og VG í
ráðinu sagði það mikið hagsmuna-
mál fyrir bæjarsjóð og íbúa Hafn-
arfjarðar að byggingarstig fast-
eigna væri rétt skráð. Umtalsverður
árangur hafi náðst í þessu á undan-
förnum árum en áhersla yrði lögð á
málið á næstu vikum og mánuðum.
„Samkvæmt staðfestum upplýs-
ingum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
í Skipulags- og byggingarráði hefur
verið verulegur misbrestur á réttri
skráningu byggingarstigs og þar af
leiðandi innheimtu réttra fasteigna-
gjalda af íbúðar-, verslunar- og iðn-
aðarhúsnæðis undanfarin ár. Eig-
endum fasteigna í Hafnarfirði sem
hafa hirt um að skrá fasteignir sínar
og greiða réttmæt gjöld til Hafnar-
fjarðarbæjar hefur verið stórlega
mismunað í innheimtu fasteigna-
gjalda vegna þessa,“ bókuðu sjálf-
stæðismenn. Þeir lögðu til rann-
sókn á ástæðu þess að skráningin
hafi misfarist og úttekt á tekjutapi
Hafnarfjarðar vegna þess. - gar
Átak í Hafnarfirði vegna rangrar skráningar atvinnuhúsnæðis í fasteignaskrá:
Verða af hundruðum milljóna króna
HAFNARFJÖRÐUR Bent var á það í skipu-
lagsráði Hafnarfjarðar að þeim sem skrá
fasteignir sínar á réttu byggingarstigi sé
mismunað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í sex mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og til að greiða
fyrrverandi sambýliskonu sinni
tæplega 1,6 milljónir króna í skaða-
bætur eftir að hann kastaði skó í
andlit hennar. Afleiðingarnar urðu
meðal annars þær að konan missti
tvær tennur og sú þriðja losnaði.
Þá hlaut konan áverka í andliti.
Maðurinn neitaði sök og bar að
hurð hefði skollið framan í konuna.
Framburður hans þótti ótrúverð-
ugur. Konan var hins vegar talin
trúverðug. - jss
Skilorð og skaðabætur:
Missti tennur
eftir skókast
JAFNRÉTTISMÁL Framlag Íslendinga
til UN Women, stofnunar Sam-
einuðu þjóðanna í þágu kvenna og
jafnréttis, jókst um 140 prósent
á fyrsta starfsárinu. Stofnunin
var mynduð úr fjórum stofnun-
um innan SÞ og aðildarríki sam-
þykktu að leggja meira fé í jafn-
réttismál og að tryggja konum í
fátækustu löndum heimsins líf án
ofbeldis og mismununar.
Yfir 2.400 Íslendingar styrkja
nú starf UN Women mánaðar-
lega. Framlag íslensku lands-
nefndarinnar er þannig næst-
hæst í heiminum á eftir Ástralíu,
segir Inga Dóra Pétursdóttir,
framkvæmdastýra UN Women á
Íslandi. - þeb
2.400 styrkja UN Women:
Framlag aukist
um 140 prósent
VÍSINDI Stjörnufræðingar við Cal-
tech-háskólann í Bandaríkjunum
hafa uppgötvað þrjár minnstu
reikistjörnur sem sést hefur til
utan sólkerfisins.
Reikistjörnurnar þrjár eru á
sporbaug um stjörnu sem nefn-
ist KOI-961 og er í 130 ljós-
ára fjarlægð frá jörðinni. Er
radíus þeirra 0,78, 0,73 og 0,57
sinnum radíus jarðar. Reiki-
stjörnurnar eru taldar vera úr
bergi eins og jörðin en fæstar
þeirra reikistjarna sem fund-
ist hafa eru úr bergi. Þá eru þær
of nálægt stjörnunni sem þær
eru á sporbaug um til að teljast
lífvænlegar.
Stjörnufræðingarnir studd-
ust við gögn frá Kepler-sjón-
auka bandarísku geimferða-
stofnunarinnar. Sjónaukinn var
tekinn í notkun árið 2009 og
hefur það hlutverk að leita að
reikistjörnum í Vetrarbrautinni.
- mþl
Minnsta sólkerfi sem sést hefur:
Uppgötvuðu
smáplánetur
UMHVERFISMÁL Fuglavernd styður
eindregið niðurstöðu meirihluta
svartfuglanefndar umhverfisráð-
herra um að veiðar á svartfugli
verði bannaðar í fimm ár. Í til-
kynningu segir að ástundun veiða
úr hnignandi stofnum sé siðlaus
umgengni við náttúruna og veiði-
bann eina siðlega viðbragðið við
stofnhruni tegunda.
Þá segir að það hljóti að vera
hagsmunir allra sem nýta svart-
fugla að stofnarnir séu sterkir og
sjálfbærir, en öll sérhagsmuna-
varsla geti spillt tiltrú almennings
á siðferði veiðimanna. Ívilnanir á
fyrirkomulagi veiðistjórnunar séu
í andstöðu við varúðarreglu sem
leyfir sjófuglum að njóta vafans.
- shá
Vernd svartfugla:
Fuglavernd
styður bannið
STUTTNEFJA Í BJARGI Stofninn hefur
minnkað um 44% á landsvísu á 25
árum. MYND/JÓHANN ÓLI HILMARSSON