Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.01.2012, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 13.01.2012, Qupperneq 20
Nýlókórinn eða Íslenski hljóðkórinn heldur tónleika í Nýlistasafn- inu í kvöld klukkan 20. Kórinn var stofnaður árið 2003 og fæst við flutn- ing hljóðljóða. Hann kemur fram tvisvar til þrisvar á ári. Í kvöld verða flutt verk eftir íslenska höfunda. Hrollvekjur voru viðfangs- efni Bjartmars Þórðarsonar, leikara og leik- stjóra, í loka- ritgerð hans við Háskóla Íslands. „ Á þ e s s u m degi er vita- skuld viðeig- andi að horfa á Friday the 13th, en þó mæli ég eindregið með The Shin- ing eftir Stan- ley Kubrick í kvöld. Hún er með betri hryllingsmynd- um sögunn- ar og á einkar vel við þegar landsmenn eru grafnir í fönn á heimilum sínum á föstudag- inn þrettánda, því fannfergið eykur enn á upplifun hryllings- ins í meðförum Jacks Nicholson,“ segir Bjartmar sem með hrollin- um mælir með blóðrauðum drykk og óhugnanlegu sælgæti, eins og súkkulaðikóngulóm. Og hann segist ekki bera kvíð- boga fyrir deginum. „Ég er lítt hjátrúarfullur og léti hiklaust vaða á þrjóskunni ef mér byð- ist hótelherbergi 13 á þrettándu hæð.“ Úlfhildur Dagsdóttir bók- menntafræðingur er kunn fyrir dálæti sitt á hroll- vekjum. „Ég mæli með Trick ´r Treat í leikstjórn Micha- els Dougherty í tækið í kvöld. Myndina sá ég mér til mikillar gleði um jólin og hún er skemmtileg- asti hrollur sem ég hef séð lengi. Mynd- in tekur á hrekkja- vökuþemanu sem er ekki svo óskylt þema dagsins, þegar alls kyns yfirnáttúru- legar vættir ganga lausir,“ segir Úlfhild- ur á þessum hryll- ingsdegi, tilbúin með Blóð-Maríu í hrímuðu glasi yfir ónotunum. „Allt sem tengist hryllingi er gleðilegt í mínum huga og ég er aldrei hrædd í þessari kynngi. Þvert á móti er ég tilbúin að trúa að þetta séu dálítið góðir skrímsla- dagar.“ thordis@frettabladid.is Hryllilegur föstudagur Föstudagurinn 13. janúar er í dag en föstudagurinn 13. er jafnan sveipaður dulúð og hjátrú. Í kvöld ætti því að halda sig heima yfir hryllingsmynd, en því mæla tveir valinkunnir hrollvekjusérfræðingar með. Tvíburasysturnar leikfúsu í The Shining gleymast engum sem séð hafa myndina. Úlfhildur Dags- dóttir bókmennta- fræðingur. Bjartmar Þórðar- son, leikari og leikstjóri. Raunfærnimat mi›ar a› flví a› meta færni og flekkingu sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›. A› loknu raunfærnimati fara flátttakendur í skóla og ljúka flví námi sem eftir stendur til a› útskrifast. Inntökuskilyr›i í raunfærnimat er 5 ára starfsaldur í greininni og 25 ára lífaldur. Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu- Hefur flú starfa› vi› húsasmí›i e›a pípulagnir í 5 ár og vilt ljúka námi í greinunum? .0 37 Fæst í Bónus Nú er tíminn fyrir harðfisk og bitafisk! Þegar litið er til innihalds og næringargildis kemur í ljós að Gullfiskur harðfiskur og bitafiskur er einhver besti prótíngjafi sem völ er á. Það fara 5 kíló af nýrri roðlausri ýsu í að búa til 1 kíló af harðfiski / bitafiski. Vatnið er dregið út með kældri þurrkaðferð, en næringarefnin halda sér. Örlítið salt til bragðbætis. Gullfiskur harðfiskur og bitafiskur inniheldur rúmlega 80% prótín og önnur næringarefni, sem eru líkamanum nauðsynleg. Gerumeitthvað er við- burðavefur fyrir alla fjölskylduna. Þar er hægt að fá upplýsing- ar um alls kyns við- burði og afþreyingar um allt land. Þetta eru menningarviðburðir, viðburðir fyrir börn, viðburðir fyrir 20+ og eldri borgara. Heimild: www. gerumeitthvad.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.