Fréttablaðið - 13.01.2012, Blaðsíða 26
6 föstudagur 13. janúar
Smokkasjálfsalar á Hrafnistu
Í nýlegum pistli líkti ég kynlífi saman við líkamsrækt. Það getur verið erfitt að koma sér af stað en um leið og reglulegri mætingu er náð þá
verður þetta ekkert mál og mæting kemur af sjálfu sér.
Ég hef hugsað meira um þetta, sérstaklega nú þegar fésbókin fyllist af
metnaðarfullum fyrirheitum um dugnað og hreysti. Ef þú myndir skipta út
orðunum kynlíf fyrir ræktina þá væri landinn sko hraustur! Svo virðist sem
að ekki ein einasta manneskja hafi tekið ráðum mínum og sett sér kynferð-
islegt markmið fyrir árið. Ef hún hefur gert það fer hún alls ekki hátt með
það. Af hverju ætli það sé? Hvernig væri það ef kynlíf væri ekki sveipað
dulúð og fólk ræddi það á opinberum vettvangi sem eðlilegan hluta af lík-
amsrækti og hreysti. Ég sé fyrir mér að fésbókin yrði töluvert meira krass-
andi; Sigga Dögg: byrjaði daginn á fullnægingu í sturtu, mæli með því! Ég
er viss um að ég myndi fá þó nokkurn stuðning með smellum á „líkar vel
við“ takkann og kannski nokkrar athugasemdir.
Mig dreymir um tíma þar sem kynlíf er ekki feimnismál sem drukknar í
mýtum. Kynlíf væri eitt af málefnum dagsins sem hægt væri að
ræða og leita sér ráðlegginga án þess að roðna ofan í tær. Þetta
hljómar kannski kjánalega en mín reynsla er sú að umræð-
an er þörf og það hjá öllum aldurshópum. Ungt fólk vafrar
um netið og á erfitt með að skilja raunveruleikann frá fant-
asíunni. Fólk á miðjum aldri lendir í villigötum í sam-
bandinu sínu því það kann ekki að tala saman um það
sem máli skiptir. Eldri borgarar smitast af kynsjúkdóm-
um því engum dettur í hug að gamalt fólk stundi kynlíf
og lítið er um smokkasjálfsala á Hrafnistu.
Það er því enginn undanskilinn því að þurfa að læra að
tala um kynlíf á hreinskilinn og opinskáan hátt. Um dag-
inn fékk ég spurningu frá ungri stúlku í kynfræðslutíma
sem ég stóð fyrir. Stúlkan vildi vita hvort píkan hennar
víkkað með vaxandi fjölda rekkjunauta. Ég útskýrði fyrir
bekknum hvernig kynfæri karla og kvenna starfa. Leggöng
konu víkka ekki eftir fjölda getnaðarlima sem inn í hana
fara, ekki frekar en að typpi lengist því oftar sem það er
strokkað! Einföld kynfæravitund er af skornum skammti
og þegar þekking um verkfæri er takmörkuð, hvernig er
hægt að ætlast til að það sé notað á rétt?
Þetta er ekki eina dæmið sem situr í mér í tengslum
við samræður um kynlíf. Kynlíf er eitt af líkamlegum at-
höfnum dýra og manna. Það sýna flestir hægðartregðu
skilning en risvandamál má ekki tala um. Auðvitað er
þessi pistill að drukkna í samlíkingum en æfum okkur í
samræðum um kynlíf. Það er gott áramótaheiti!
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um
umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is
S öngkonan Deborah Harry sló í gegn í lok áttunda áratugarins með hljóm-
sveitinni Blondie. Harry þótti með ein-
dæmum töff með sitt aflitaða hár og
pönkaða fatastíl og þykir það enn þann
dag í dag.
Hún fæddist árið 1945 í Míamí í Flór-
ída og var ættleidd af hjónunum Cath-
erine Harry og Richard Smith sem bú-
sett voru í New Jersey og skírð Deborah
Ann Harry.
Eftir útskrift starfaði Harry um hríð
sem ritari hjá skrifstofu breska ríkis-
útvarpsins BBC í New York. Hún starf-
aði einnig sem þjónn, dansari og sem
Playboy-kanína.
Harry hefur verið í þó nokkrum hljóm-
sveitum yfir ævina og byrjaði söngfer-
ilinn með sveitinni The Wind in the
Willows, sem lék sveitatónlist upp á
ameríska vísu. Því næst gekk hún í
raðir The Stilettos þar sem hún kynnt-
ist kærasta sínum og gítarleikara Blon-
die, Chris Stein. Harry og Stein stofn-
uðu svo hljómsveitina Angel and the
Snake áður en Blondie varð til.
Árið 1999 var Harry kosin tólfta magn-
aðasta kona rokksins af sjónvarpsstöð-
inni VH1.
Hljómsveitin Blondie hætti um hríð í
byrjun níunda áratugarins þegar Stein
veiktist af sjaldgæfum húðsjúkdómi.
Harry tók sér þá frí frá tónlistinni á
meðan hún hjúkraði Stein aftur til
heilsu. Parið hætti saman í byrjun tí-
unda áratugarins en þau eru enn nánir
vinir.
Fimm hlutir sem þú vissir ekki um:
DEBBIE HARRY
Ung og dökkhærð Harry árið 1968
þegar hún var meðlimur sveitarinnar
Wind In The Willows.
Blondie Harry orðin ljóshærð og
pönkuð.
Flott Harry þótti sérstaklega töff bæði
á sviði og í daglegu lífi.
Ástfangin Harry ásamt kærasta
sínum og samstarfsfélaga, Chris Stein,
árið 1981.
Rokkari Harry á sýningu Victoria‘s
Secret árið 2010. Hún er enn jafn töff
og fyrir þrjátíu árum.
ÚTSALA
50%
afsláttur
Þyngdarstjórnun – orka – úthald – árangur
Ert þú einn af mörgum
Íslendingum sem hafa
grennt sig með Metasys ?
Metasys hefur verið fáanlegt hérlendis
sl. 6 ár og á stóran aðdáendahóp
Þessi 100% náttúrulega vara er unnin úr kjarna
græna telaufsins og hefur það reynst fjöl-
mörgum hjálp við að auka brennslugetu
líkamans auk þess að vera mjög orku-
og úthaldsaukandi.
Fjölmargir hafa einnig fundið
að húð og melting stórbatnar við inntöku Metasys.
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á græna telaufinu,
sem er ríkt af egcg catechins (endilega googlið),
sem er mjög andoxunarríkt og hefur einnig
góð áhrif á hjarta- og æðakerfi.
Metasys er fáanlegt í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum flestra stórmarkaða
100%náttúrulegt
www.metasys.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI Á
HVERJUM MORGNI!