Fréttablaðið - 13.01.2012, Qupperneq 36
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR24
Fulltrúar Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum á síðasta
ári voru þau Libia Castro
og Ólafur Ólafsson. Í kvöld
verður opnuð sýning í
Listasafni Íslands þar sem
gefur að líta verkin sem þau
sýndu í Feneyjum.
„Það var mjög ánægjuleg upp-
lifun að taka þátt í Feneyjatvíær-
ingnum. Við fengum afar góð við-
brögð og færri komust að en vildu
á opnunina,“ segir Ólafur Ólafs-
son spurður um þátttökuna í þeim
merka myndlistarviðburði sem
Feneyjatvíæringurinn er. Í kvöld
verður opnuð sýningin Í afbygg-
ingu í Listasafni Íslands en þar
gefur að líta verk Ólafs og Libiu
Castro sem voru fulltrúar Íslands
þar á síðasta ári.
Meðal þess sem ber fyrir augu
eru útgáfur verksins Landið þitt
er ekki til sem þau hafa unnið að
síðan árið 2003. „Hugmyndin að
verkinu kviknaði þegar Banda-
ríkjamenn lýstu yfir stríði gegn
Írak og rökstuddu það með skýr-
ingum sem síðar kom í ljós að
stóðust ekki. Þrátt fyrir hávær
mótmæli gegn stríðinu víða
í Evrópu að minnsta kosti þá
studdu fjölmargar ríkisstjórnir
Bandaríkjamenn, þar á meðal sú
íslenska. Í framhaldinu fórum við
að velta fyrir okkur hvað hugtak-
ið „Landið mitt“ þýðir, er það not-
hæft ef maður hefur engin völd
og áhrif á stefnu þess?“ segir
Ólafur.
Hluti af þessu verki sem stöð-
ugt bætist við er ljósaskilti þar
sem ritað er Landið þitt er ekki
til og málverk með sömu áletr-
un sem Gunnar Snorri Gunn-
arsson sendiherra málaði. „Við
fengum utanríkisþjónustuna í lið
með okkur við þetta verk. Teikn-
uðum áletrunina á striga og svo
átti Gunnar að mála í fletina sem
voru númeraðir,“ útskýrir Ólafur
og bætir við að utanríkisþjónust-
an hafi hafnað fyrstu umleitan
um samstarfið við listamennina.
En eftir samningaviðræður hafi
Gunnar fallist á að taka þátt í
verkinu. „Hann ákvað hins vegar
að mála ekki alla fletina og áletr-
unin endaði sem Landið þitt er til
sem okkur þótti áhugavert,“ segir
Ólafur.
Listaverk Ólafs og Libiu hafa
verið til sýninga víða í Evrópu og
segir Ólafur samfélagslegar skír-
skotanir verkanna skila sér jafnt
í Frakklandi, á Spáni og Íslandi.
„Við lítum ekki á pólitík sem fjar-
lægt fyrirbæri, hún er persónuleg
og kemur öllum við,“ segir Ólaf-
ur og bætir við að eftir hrun hafi
orðið meiri áhugi á pólitískri list
og forsendur skapast fyrir hana.
„Hrunið breytti þannig skilyrðum
listarinnar.“
Ólafur og Libia munu verða
með leiðsögn um sýninguna á
sunnudag klukkan tvö.
sigridur@frettabladid.is
24
menning@frettabladid.is
Í KVÖLD KLUKKAN 21.30 hefjast tónleikar hljómsveitarinnar Skuggamyndir frá Býsans á Café Haiti, Geirs-
götu 7b. Hljómsveitin hefur haldið mánaðarlega tónleika á staðnum síðan í ágúst 2011 en hún leikur Balkantónlist af
fjölbreyttu tagi. Hljómsveitina skipa Haukur Gröndal, Ásgeir Ásgeirsson, Þorgrímur Jónsson og Erik Qvick.
ÓLAFUR ÓLAFSSON OG LIBIA CASTRO Sýning þeirra sem opnar í Listasafni Íslands
stendur til 19. febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
siminn.is
Fleiri v
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
9
4
2
0
Um leið og þú tengist Sjónvarpi Símans
geturðu horft á opnu, íslensku stöðvarnar
og færð fjórar erlendar stöðvar að auki.
Á Plús-stöðvunum geturðu séð
útsendinguna með klukkutíma seinkun.
Sjónvarpið beint eða með
klukkutíma seinkun
Nýtt!
Nú fylgja fjórar
erlendar
stöðvar
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 13. janúar 2012
➜ Tónleikar
20.00 Salon Islandus og Þóra
Einarsdóttir söngkona halda tónleika
í Salnum, Kópavogi. Á efnisskránni er
Vínartónlist. Sigrún Eðvaldsdóttir, kons-
ertmeistari, mun einnig leika einleik.
20.00 Nýlókórinn eða Íslenski hljóð-
ljóðakórinn kemur fram í Nýlistasafninu.
Flutt verða verkin Ekið úr bænum, Á
strönd og sjó og Samhverfun. Aðgangur
er ókeypis.
➜ Sýningar
09.00 Sýningin Ein stök hús verður
opnuð á kaffihúsinu Mokka á Skóla-
vörðustíg. Þar sýna listamennirnir Marsi-
bil G. Kristjánsdóttir og Jóhannes Frank
Jóhannesson verk sín byggð á eyðibýl-
um á Vestfjörðum. Allir velkomnir.
➜ Uppákomur
19.00 Lionsklúbburinn Njörður heldur
sitt árlega Herrakvöld í Súlnasalnum
á Radisson BLU Hótel Sögu. Glæsileg
dagskrá og ljúffengur matur. Allur ágóði
kvöldsins rennur í styrktarsjóð Njarðar.
Miðaverð er kr. 16.000.
➜ Tónlist
21.00 Haldið verður Grapevine
Grassroots kvöld á Hemma og Valda.
Fram koma hljómsveitirnar Veenox
Seven, Amaba Dama og Klikk. Aðgangur
er ókeypis.
22.00 Beatur skemmtir með hljóð-
færaslætti og uppistandi á Ob-La-Dí
Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
23.00 Gaukur á Stöng býður til Grunge
veislu. Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Sendiherra málaði eitt verkanna