Fréttablaðið - 13.01.2012, Page 38
13. janúar 2012 FÖSTUDAGUR26
folk@frettabladid.is
Engin hörgull var á stórstjörnum þegar People‘s
Choice Awards voru afhent í Nokia-höllinni í Los
Angeles þrátt fyrir að helstu sigurvegarar kvölds-
ins hefðu verið víðsfjarri.
Bandaríska söngkonan Katy Perry stóð uppi sem sigur-
vegari á People‘s Choice Awards sem haldið var á mið-
vikudagskvöld. Perry hlaut fimm verðlaun en ákvað að
draga sig út úr verðlaunaafhendingunni á þriðjudags-
kvöld. Ástæðan var augljós, flutningabílar voru mættir
að villu hennar og Russells Brand, fyrrverandi eigin-
manns söngkonunnar, til að tæma hana en eins og komið
hefur fram í fjölmiðlum skildu Brand og Perry eftir
rúmlega tveggja ára hjónaband skömmu eftir jól.
Alls eru veitt fjörutíu verðlaun á People‘s Choice
Awards og því óþarfi að fara nákvæmlega ofan í
saumana á hverjum einasta verðlaunaflokki en
hátt í tuttugu milljónir atkvæða bárust gegnum
annaðhvort net eða síma samkvæmt upplýsing-
um frá skipuleggjendum hátíðarinnar. Meðal
annarra verðlaunahafa má nefna að Emma
Stone fékk tvenn verðlaun sem besta drama-
og gamanleikkonan, Johnny Depp var valinn
leikari ársins og Adam Sandler var heiðraður
fyrir gamanleik sinn þrátt fyrir að kvikmynd-
ir hans í ár hafi verið rifnar á hol af gagn-
rýnendum. „En það sem mestu máli skiptir er
að þið, áhorfendur, kunnið að meta verk mín,“
sagði Sandler. Þá var Morgan Freeman heiðrað-
ur fyrir framlag sitt til hvíta tjaldsins.
Í sjónvarpsflokknum skiptust verðlaunin
nokkuð jafnt en gamanþátturinn How I Met
Your Mother fékk tvenn verðlaun: Neil Patrick
Harris var kosinn besti gamanleikarinn og þátt-
urinn sjálfur besti grínþátturinn. Nina Dobrev úr
Vampire Diaries var valin besta drama-leikkonan
en Nathan Filion úr Serenity fékk sömu verðlaun
í karlaflokki. Það var síðan Lea Michele sem var
útnefnd besta gamanleikkonan í sjónvarpi fyrir
frammistöðu sína í Glee. freyrgigja@fretttabladid.is
Óli Ofur heldur upp á tíu ára
plötusnúðsafmælið sitt á laugar-
daginn með því að slá upp stóru
klúbbakvöldi
á Nasa. Hann
ætlar sjálfur að
spila allt kvöld-
ið, eða í um
fimm klukku-
tíma.
Óli ætlar að
líta yfir feril-
inn og spila
seiðandi dans-
tónlist, bæði nýja og gamla. Hann
hefur komið víða við síðan hann
steig sín fyrstu skref á Akra-
nesi árið 2002. Á ferilskrá hans
er spilamennska á Þjóðhátíð í
Eyjum, Broadway, Nasa og á
flestum dansklúbbum þjóðarinn-
ar við góðar undirtektir.
Spilar í fimm
klukkutíma
ÓLI OFUR
Miðar á sérstakar miðnætursýningar The
Dark Knight Rises, nýjustu Batman-mynd-
arinnar, eru þegar orðnir uppseldir í Banda-
ríkjunum, um sex mánuðum áður en myndin
kemur út, 20. júlí.
Aðdáendur Batman eru greinilega æstir í
að sjá þessa þriðju mynd leikstjórans Chri-
stophers Nolan um grímuklæddu ofurhetj-
una því miðarnir á miðnætursýningar í New
York, Los Angeles og San Francisco ruku
út á örskammri stundu. Ekki er vitað hvort
einhverjum sýningum verði bætt við en ljóst
er að eftirspurnin er fyrir hendi og rúmlega
það.
Leikstjórinn Nolan hefur viðurkennt að
hafa fundið fyrir miklum utanaðkomandi
þrýstingi við gerð myndarinnar. „Ég held
að þetta sé góður þrýstingur vegna þess að
þessar myndir og væntingar áhorfendanna
eiga það skilið,“ sagði hann.
Tom Hardy leikur illmennið Bane í The
Dark Knigt Rises. Með önnur hlutverk
fara Christian Bale sem Batman, Anne
Hathaway, Joseph Gordon-Levitt, Marion
Cotillard, Michael Caine og Gary Oldman.
Uppselt hálfu ári fyrir sýningu
KATTARKONAN Anne Hathaway leikur kattarkonuna í nýjustu
Batman-myndinni.
SIGURVEGARI Einn af sigurvegurum kvöldsins var hin
unga Emma Stone. Hún var valin bæði leikkona ársins í
drama-og gamanflokki og þá þótti klæðaburður hennar
einstaklega vel heppnaður af tískuspekúlöntum.
RÍSANDI STJARNA Lea Michele er eitt skærasta nýstirnið í Hollywood um þessar mundir en hún leikur aðalhlut-
verkið í Glee. Michele var kjörin besta gamanleikkonan og ræddi málin við Kristen Bell. NORDICPHOTOS/GETTY
HEIMA Í ÁSTAR-
SORG Katy Perry
var sigursæl á
People‘s Choice
Awards. Hún
forfallaðist hins
vegar enda
stendur hún
í skilnaði við
eiginmann sinn,
Russell Brand.
KYNNIR KVÖLDSINS
Kaley Cuoco var
kynnir kvöldsins og
þótti bæði smekkleg
í klæðnaði og fram-
komu. Cuoco leikur
eitt aðalhlutverkanna í
The Big Bang Theory.
DAGBÆKUR VAMPÍRA
Nina Dobrev var
valin leikkona ársins
í dramaflokki. Hún
leikur í sjónvarpsþátt-
unum Vampire Diaries.
Stjörnu-sýning í Nokia-höllinni
Madonna hefur í hyggju að fara í
tónleikaferð um heiminn á þessu
ári. Tilefnið er tólfta hljóðvers-
plata hennar, MDNA, sem kemur
út í vor.
„Ég verð að eiga fyrir salti
í grautinn,“ sagði hún í gríni í
sjónvarpsþættinum The Graham
Norton Show. „Satt best að segja
þá hef ég mjög gaman af þessu.
Að fara í tónleikaferð er mest
gefandi af því sem ég tek mér
fyrir hendur.“ Fyrsta smáskífu-
lag nýju plötunnar, Gimme All
Your Luvin, fer í loftið 7. febrúar
en prufuútgáfu af því var lekið á
netið fyrir skömmu.
Tónleikaferð
um heiminn
NÝ PLATA Nýjasta plata Madonnu hefur
fengið nafnið MDNA.
krakkar@frettabladid.is
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
JÓN JÓNSSON
Grét á sinni fyrstu fótbolta-
æfingu og fór að semja tónlist
þegar hann var ellefu ára.
12 SINNUM hefur Hulk Hogan orðið heimsmeistari í amerískri fjölbragðaglímu. Hann ætlar nú að raka af sér yfirvaraskeggið sem
hefur verið einkennismerki hans.