Fréttablaðið - 06.02.2012, Qupperneq 6
6. febrúar 2012 MÁNUDAGUR6
BJÖRGUN Björgunarsveitir bera
ábyrgð á skemmdum sem verða
á bílum sem draga þarf úr snjó-
sköflum og ófærum. Sveitirnar
þurfa að borga á annað hundr-
að þúsund krónur fyrir hvern
bíl sem skemmist, ákveði eig-
andi bílsins að sækja rétt sinn til
tryggingarfélagsins.
„Það er auðvitað dapurlegt að
vera að aðstoða samborgarana, í
umboði lögreglunnar, og fá svo á
sig kostnaðinn ef eitthvað gerist,“
segir segir Gunnar Stefánsson,
sviðsstjóri björgunar- og slysa-
varnarsviðs hjá Slysavarnafélag-
inu Landsbjörgu.
Verði tjón á bíl sem björgunar-
sveitir draga úr skafli eða ófæru
á eigandi bílsins kröfu á björg-
unarsveitina. Sveitirnar eru
tryggðar fyrir tjóninu, en þurfa
að borga sjálfsábyrgð sem er
yfirleitt á bilinu 100 til 170 þús-
und krónur, segir Gunnar. Þessi
kostnaður fellur á þá björgunar-
sveit sem á bílinn sem veldur tjón-
inu. Gunnar segir kostnaðinn geta
sett öll áform björgunarsveita í
uppnám, sérstaklega minni sveita
sem hafi oft takmarkaða mögu-
leika til að fjármagna starfsemi
sína.
Hann segir að vegna þessar-
ar áhættu kjósi sumar björgun-
arsveitir frekar að bjarga fólki
úr föstum bílum og skilja bílana
eftir. Það sé þó á endanum ákvörð-
un hvers bílstjóra á bílum björg-
unarsveitanna. Menn velti þessum
möguleika óneitanlega fyrir sér.
Landsbjörg hefur ítrekað óskað
eftir því við stjórnvöld og þing-
menn að björgunarsveitirnar fái
undanþágu í lögum svo tjón af
þessu tagi falli ekki á sveitirnar
séu þær við björgunarstörf, án
þess að það hafi náð inn í nefndir
þingsins, hvað þá lengra.
- bj
Björgunarsveitir rukkaðar fyrir tjóni á bílum sem þeir draga úr sköflum og ófæru:
Dýrt að valda tjóni við björgun
ALÞINGI Fjármagn verður sett í
rannsóknir á umfangi og nýt-
ingarmöguleikum sjávarorku
á Íslandi, verði þingsályktun-
artillaga sem lögð var fram á
föstudag samþykkt. Tuttugu og
einn þingmaður í öllum flokkum
standa að tillögunni og verður
því að teljast líklegt að hún verði
samþykkt.
Í greinargerð með tillögunni
segir að leiða megi getum að
því að sjávarorka sé ein stærsta
ónýtta orkuauðlind Íslands.
Iðnaðarráðherra verði falið að
byggja upp gagnagrunn um nýt-
ingu sjávarorku, stuðla að tækni-
þróun á sviðinu og greina nýting-
arkosti á þeim landsvæðum sem
talin eru henta.
Skúli Helgason, fyrsti flutn-
ingsmaður tillögunnar, segir að
vonir standi til að nýting sjáv-
arorku gæti skilað heilmiklu í
framtíðinni. Hann segir Íslend-
inga skammt á veg komna í mála-
flokknum og er ánægður með hve
víðtækan stuðning hann fékk við
tillöguna.
„Menn eru komnir á fleygi-
ferð í löndunum í kringum okkur,
Bretar lengst og Írar og Danir
eru að kveikja á þessum mögu-
leikum. Stjórnvöld víða um heim
eru að móta sér stefnu um stuðn-
ing í málaflokknum,“ segir Skúli.
Hann segir málið ekki kalla
á miklar deilur og vonast til að
hægt sé að ljúka því með vor-
inu, en tillögunni var vísað til
atvinnuveganefndar.
„Ef þingið sýnir vilja sinn í
verki ætti að vera hægt að líta
til þessa við fjárlagagerð næsta
árs.“ kolbeinn@frettabladid.is
Rannsaka færi á
nýtingu sjávarorku
Tuttugu og einn þingmaður úr öllum flokkum stendur að tillögu um rannsókn-
ir á nýtingu sjávarorku. Lítið rannsakað hér en mörg lönd komin langt á veg.
Frumkvöðull segir orkumagn Íslendinga geta margfaldast með nýtingu sjávar.
KRAFTUR SJÁVAR Rannsaka á hvernig hægt verði að nýta sjóinn til raforkufram-
leiðslu. Þær hugmyndir sem lengst eru komnar gera ráð fyrir hverflum neðar-
sjávar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Valdimar Össurarson rekur fyrirtækið Valorku sem hefur hannað samnefnd-
an sjávarhverfil. Hann fékk í október fyrstu verðlaun í keppni Alþjóðasam-
taka félaga hugvitsmanna, IIA, fyrir hverfilinn. Valorka stefnir að því að virkja
hæga strauma sem eru í röstum og við annes. Hann segir vandræði hve lítið
hefur verið rannsakað af sjávarföllum í kringum landið. Helst hafi slíkt verið í
kringum fiskeldi og hafnargerð.
Valdimar segir gríðarlega orku liggja undir ef vel tekst til að nýta hana.
„Írar hafa gert vandaða úttekt á þeirri heildarorku sem þeir búa yfir. Þeir
telja sig geta nýtt 240 terawattstundir á ári og ef við yfirförum það á
Ísland eftir stærð mundi það gera um 330 terawattstundir á ári. Það er um
tuttuguföld sú orka sem við erum að nota í dag.“
Valdimar hefur gert forprófanir í keri á hverflinum og mun gera prófanir
á fleka í sumar, mögulega við Snæfellsnes. Gangi þær vel verður búin til
frumgerð sem er algjörlega neðansjávar. „Valorka er fremst í heimi í þessu
að reyna að virkja strauma fyrir utan strendur.“
Hægt að tuttugufalda orkuna
SAMKEPPNI Hæstiréttur hefur
staðfest þá niðurstöðu Sam-
keppniseftirlitsins að ógilda skuli
samruna Valitors á Euro Refund
Group North á Íslandi, sem rekur
starfsemi undir merkjum Tax
Free og sér um endurgreiðslu
virðisaukaskatts til erlendra
ferðamanna.
Samkeppniseftirlitið taldi að
markaðirnir sem fyrirtækin
störfuðu á væru nátengdir og
samruninn gæti skapað mikinn
möguleika, getu og hvata til úti-
lokunar keppinauta á mörkuðum
fyrir greiðslukortastarfsemi,
posaleigu, endurgreiðslu virðis-
aukaskatts til ferðamanna og
fleira. - sh
Hæstiréttur sammála SE:
Valitor og Tax
Free máttu ekki
renna saman
RANNSÓKNIR Persónuvernd veitti
í janúar fjórtán leyfi til aðgangs
að trúnaðargögnum vegna rann-
sókna fræðimanna. Meðal þeirra
eru „Opin áreitipróf hjá börnum
sem grunuð eru um sýklalyfjaof-
næmi“ og „Ríkisafskipti af sam-
skiptum unglingsstúlkna og setu-
liðsmanna“.
Í seinna tilvikinu fær sagnfræð-
ingur aðgang að skjalasafni vinnu-
hælisins að Kleppjárnsreykjum frá
árunum 1942 til 1943. Aðrar rann-
sóknir eru til dæmis „Árangur í
offitumeðferð Reykjalundar“. - gar
Fjórtán ný rannsóknarleyfi:
Skoða stúlkur
af vinnuhæli
BANDARÍKIN, AP Níu ára gömul
stúlka frá Maine í Bandaríkj-
unum er á batavegi eftir að hafa
gengist undir sexfalda líffæraíg-
ræðslu vegna krabbameins. Hún
er að öllum líkindum fyrsta mann-
eskjan til að fá vélinda grætt í sig.
Stúlkan, Alannah Shevenell,
fékk nýjan maga, lifur, milta, smá-
þarma, bris og hluta af vélinda.
Hún greindist með risastórt æxli
árið 2008, þegar hún var fimm ára.
Læknar reyndu í tvígang að fjar-
lægja æxlið án árangurs. Lyfja-
meðferð hafði ekki heldur áhrif á
æxlið og því var ákveðið að reyna
aðgerðina. Fjölskyldu hennar var
sagt að um helmingslíkur væru
á því að hún lifði aðgerðina af, en
án hennar átti hún enga batavon.
Aðgerðin var framkvæmd í októ-
ber og stúlkan var á spítala þar til
í síðustu viku. Hún barðist við sýk-
ingar og aðra fylgikvilla áður en
hún fékk leyfi til að fara heim.
Alannah er þó ekki úr hættu
enn. Hún þarf að vera undir stöð-
ugu eftirliti og taka níu lyf á hverj-
um degi. Ónæmiskerfi hennar er
mjög veikt og hún getur því ekki
verið innan um mikið af fólki.
- þeb
Níu ára gömul stúlka er líklega fyrsta manneskjan til að fá nýtt vélinda:
Sex líffæri grædd í litla stúlku
ÖRYGGISMÁL Varðskipið Þór lagði
úr höfn í Reykjavík í gærkvöld
áleiðis til Bergen í Noregi þar
sem gera á við aðalvél skipsins.
Það vakti athygli vegfarenda síð-
degis í gær að skipið var þá á leið
inn í Reykjavíkurhöfn.
Hjá Landhelgisgæslunni feng-
ust þær upplýsingar að um prufu-
siglingu væri að ræða. „Skipið
er búið að vera í alls konar próf-
unum að undanförnu,“ segir
Hrafnhildur B. Stefánsdóttir,
upplýsingafulltrúi Landhelgis-
gæslunnar.
Aðalvél skipsins hefur verið
í ólagi og vildi framleiðandinn,
Rolls Royce, að skipið færi í við-
gerð í Noregi. Ráðgert er að Þór
komi til Bergen á miðvikudag
og að viðgerðin taki um mánuð.
Landhelgisgæslan ber ekki
kostnað af viðgerðinni. Varðskip-
in Týr og Ægir munu sinna hlut-
verki Þórs meðan hann er ytra.
- fb
Varðskipið Þór sneri við:
Þór farinn í við-
gerð í Noregi
VARÐSKIPIÐ ÞÓR Lagði af stað til Noregs
í gær.
Rúðubrot við Þjóðleikhúsið
Tilkynnt var um rúðubrot í bifreið
á Hverfisgötu við Þjóðleikhúsið
aðfaranótt sunnudags. Þar hafði mjög
ölvaður maður kastað bjórflösku
á eftir bifreið og brotið afturrúðu
hennar.
Elti ölvaðan ökumann
Bifreið var ekið á ljósastaur við Miklu-
braut. Vegfarandi sá bílinn fara af
staðnum og fylgdi henni eftir. Vísaði
hann lögreglu á bílinn við Hólmavað.
Þar sat ölvaður karlmaður undir stýri
er lögregla handtók hann.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BOSNÍA, AP Þyrlur voru notaðar til
að koma mat og öðrum nauðsynj-
um til þorpa á fjalllendum svæð-
um Bosníu, þar sem fannfergi
hefur lokað öllum landvegum.
Sjúklingar voru einnig fluttir
frá þessum þorpum með þyrlum.
Ekkert lát virðist ætla að verða
á vetrarhörkunum í austanverðri
Evrópu næstu daga.
Úkraínubúar hafa orðið verst
úti. Kuldarnir hafa komist þar
niður í 33 stiga frost og hafa kost-
að meira en 130 manns lífið. - gb
Neyðarástand í Bosníu:
Innilokuð þorp
vegna fannkófs
Á SKÍÐUM Í RÓM Sjaldséð sjón í höfuð-
borg Ítalíu. NORDICPHOTOS/AFP
KOMIN HEIM Alannah ræddi við blaða-
mann ásamt ömmu sinni í síðustu viku.
Hún hefur verið á spítala undanfarna
þrjá mánuði að jafna sig eftir aðgerðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Landsbjörg hefur
kannað mögu-
leikann á því að láta
ökumenn bíla sem
þarf að draga skrifa
undir samning um
að afsala sér kröfu
á björgunarsveitina
verði skemmdir á
bílnum. Gunnar
Stefánsson hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörgu segir það ekki sam-
rýmast lögum. Lögum samkvæmt
falli tjón á bíl sem sé dreginn
á þann bíl sem dragi, og ekki
sé hægt að semja sig frá þeirri
ábyrgð.
Geta ekki samið
GUNNAR
STEFÁNSSON
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
Átt þú sparnað í ríkisskulda-
bréfum?
JÁ 8,4%
NEI 91,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Fylgist þú með frambjóð-
endum til embættis biskups
Íslands?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN