Fréttablaðið - 11.06.2012, Síða 6
11. júní 2012 MÁNUDAGUR6
EVRÓPUMÁL Innan við helmingur
Íslendinga, um 44 prósent, telur
sig vel upplýstan um Evrópu-
mál, að því er fram kemur í nýrri
könnun Eurobarometer sem var
kynnt á málstefnu Evrópustofu og
Háskólans á Akureyri á föstudag.
Þetta er talsverð aukning frá
síðustu könnun, sem gerð var árið
2010, en þá taldi um þriðjungur sig
vel upplýstan um málaflokkinn.
Þetta er þó ekki lágt hlutfall
miðað við ESB-ríki, en aðeins
Finnland og Lúxemborg státuðu
af hærra hlutfalli.
Íslenskir svarendur voru hins
vegar almennt á því að þeir væru
betur upplýstir en aðrir lands-
menn. Alls töldu 74 prósent að
Íslendingar væru almennt illa upp-
lýstir um Evrópumál.
Sitthvað fleira kemur í ljós í
könnuninni, þar á meðal að Íslend-
ingar standa öðrum Evrópubúum
framar í notkun samfélagvefja.
Rúm 54 prósent segjast nota sam-
félagsvefi daglega eða allt að því,
en aðeins 21 prósent notar aldrei
slíka vefi.
Lettar koma næstir, en 38 pró-
sent nota samfélagsvefi daglega og
37 prósent Dana. Meðaltal í ríkjum
ESB er 20 prósent.
Þá fannst svarendum almennt
of lítil umfjöllun um ESB í frétta-
miðlum hérlendis. Alls telja 42 pró-
sent umfjöllun í sjónvarpi of litla
en 9 prósent of mikla. - þj
Ný viðhorfskönnun Eurobarometer um Ísland og Evrópumál gerð opinber:
Tæpur helmingur vel upplýstur
MENNTAMÁL Aldrei áður hafa
jafnmargir sótt um skólavist í
Háskólanum í Reykjavík og fyrir
næstu haustönn. Alls bárust skól-
anum 2.100 umsóknir.
Samkvæmt upplýsingum
Háskólans í Reykjavík er þetta
aukning um 22 prósent frá síð-
asta hausti og 44 prósenta aukn-
ing frá haustinu þar á undan. For-
ráðamenn skólans rekja þennan
vöxt til „vaxandi áhuga á þeim
námsleiðum sem háskólinn býður
upp á í tækni, viðskiptum og
lögum“. - þj
Háskólinn í Reykjavík:
Aldrei fleiri
umsóknir í HR
NEYTENDUR „Magntollar á sykur
er það eina sem virkar til þess
að stýra neyslunni þannig að hún
minnki. Með magntolli skattlegg-
ur maður magnið af óhollustunni í
vörunni. Virðisaukaskattur hvet-
ur bara til kaupa á stærri einingu
þar sem hún er hlutfallslega ódýr-
ari en lítil eining.“
Þetta segir Guðmundur Löve,
framkvæmdastjóri SÍBS, sem í
leiðara í nýjasta tölublaði samtak-
anna bendir á að um leið og virð-
isaukaskattur á matvælum var
lækkaður á Íslandi árið 2007 hafi
verið felld niður vörugjöld af mat-
vælum öðrum en sykri, sykurvör-
um og súkkulaðivörum. Við þessa
aðgerð hafi virðisaukaskattur á
gosdrykkjum lækkað úr 24,5 pró-
sentum í 7 prósent og vörugjöld
verið afnumin af þeim en hafi
verið hækkuð á ný 2009.
„Þótt Íslendingar séu opinber-
lega feitasta Norðurlandaþjóðin
höfum við enn ekki tekið það skref
að skattleggja óhollustuna sjálfa,
eins og nágrannalöndin hafa gert,“
segir Guðmundur.
Hann getur þess að í Danmörku
hafi til dæmis svokallaður súkku-
laðiskattur verið lagður á í allmörg
ár. „Hann var upphaflega bara á
sælgæti, gosdrykki og ís en nú á
að útvíkka hann þannig að hann
leggist almennt á viðbættan sykur.
Danir eru að útvíkka þetta vegna
þess að þeir telja að árangur af
skattlagningunni hafi verið góður.“
Guðmundur vitnar í grein eftir
lækna sem birtist í New England
Journal of Medicine 2009. „Sam-
kvæmt könnun sem þeir gerðu
drógu þeir þá ályktun að sérstakur
skattur á óhollar matvörur myndi
draga úr neyslu þeirra um 10 pró-
sent. Mat læknanna var að neyslu-
stýring með sköttum virkaði betur
en fræðsla.“
Vegna umræðunnar um of mikið
sælgætisát íslenskra barna hafa
verið sett upp skilti til leiðbein-
ingar um hóflegt magn af sæl-
gæti fyrir ákveðna aldurshópa við
nammibari í þremur verslunum
Krónunnar. Skilti verða komin upp
í öllum verslunum nú í vikunni, að
sögn Kristins Skúlasonar rekstrar-
stjóra. „Við ákváðum að sýna þetta
frumkvæði og gerðum þetta í sam-
vinnu við næringarfræðing hjá
Matís. Við munum sjá af sölutölum
hvort þetta hefur áhrif.“
Kristinn segir að hvorki hafi
komið til tals að hætta að bjóða
helmingsafslátt á nammibarnum á
föstudögum og laugardögum né að
fjarlægja sælgæti frá afgreiðslu-
kössunum. „Leiðbeiningaskiltin eru
fyrsta skrefið,“ tekur hann fram.
Setja á upp leiðbeiningaskilti við
nammibari í verslunum Hagkaups.
Í verslunum Víðis hefur nammi-
barnum verið lokað. „Þetta var gert
að ósk viðskiptavina auk þess sem
við ætlum að leggja meiri áherslu
á hollar vörur í verslunum okkar,“
segir Matthías Eiríksson kaupmað-
ur. ibs@frettabladid.is
Magntollur á sykur
það eina sem virkar
Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, segir að skattleggja þurfi óholl-
ustuna burt eins og nágrannalöndin hafi gert. Leiðbeiningaskiltum um hóflegt
magn komið fyrir við nammibari Krónunnar. Nammibarnum lokað hjá Víði.
HÓFLEGT MAGN Leiðbeiningaskiltum um hóflegt magn sælgætis fyrir ákveðna
aldurshópa hefur verið komið upp við nammibari Krónunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NEYTENDUR Hættulegum kveikjur-
um hefur snarfækkað á markaði
í kjölfar átaks á vegum samevr-
ópska verkefnisins PROSAFE, að
því er fram kemur á vef Neytenda-
stofu. Neytendastofa hefur tekið
þátt í verkefninu frá árinu 2010.
Niðurstöður eftirlits síðari hluta
síðasta árs sýna að öryggi kveikj-
ara er mun betra en fyrir tveim-
ur árum. Um átta prósent höfðu
hættulega annmarka, samanborið
við 35 prósent árið 2009. Prófuð
var 31 tegund kveikjara. - óká
Hugað að öryggi neytenda:
Kveikjarar eru
orðnir öruggari
SVÍÞJÓÐ Kannabisræktun í Svíþjóð
fer vaxandi og lögreglan telur að
neytendur þurfi varla að flytja inn
maríjúana. Samtímis hefur heima-
brugg minnkað verulega.
Á fréttavefnum metro.se er haft
eftir fíkniefnalögreglu í Stokk-
hólmi að fyrir fáum árum hafi
hún oftast verið að finna nokkrar
plöntur í skápum eða slíku. Nú sé
ekki óvenjulegt að menn slái upp
ræktunartjöldum með hundruðum
plantna.
Í upphafi síðasta áratugar sam-
svaraði heimabruggið um þremur
prósentum af áfengisneyslunni
í Svíþjóð. Nú samsvarar það um
einu prósenti af neyslunni. - ibs
Breyttar venjur í Svíþjóð:
Landinn víkur
fyrir kannabis
STOKKHÓLMUR Ekki mun óvenjulegt að
menn komi sér upp risastórum tjöldum
undir kannabisræktun í Svíþjóð.
FERÐAÞJÓNUSTA Gert er ráð fyrir
því að um 2.500 ferðamenn muni í
sumar nýta sér flugleið Icelandair
á milli Akureyrar og Keflavíkur.
Flugfélagið hóf flug á milli bæj-
anna í síðustu viku og verður flog-
ið fjórum sinnum í viku út sumar-
ið. Um er að ræða tilraunaverkefni
Icelandair til að auðvelda Norðan-
mönnum að komast til útlanda sem
og að bregðast við auknum vin-
sældum Norðurlands hjá erlendum
ferðamönnum.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, býst við því að
verkefnið reynist vel.
„Þetta lítur þokkalega vel út. Í
raun erum við að bjóða upp á aukna
þjónustu og sjáum til hvort fólk nýti
sér það,“ segir hann. „Þetta er til-
raun og við munum framkvæma
próf á ferðunum bráðlega til að
meta stöðuna.“
Stjórnarfundur Icelandair Group
fundaði á Akureyri í síðustu viku
og kom fram í máli Björgólfs þar
að eftir góða reynslu á síðasta vetri
hafi nú komið í ljós á vormánuðum
að mjög mikill áhugi er erlendis á
ferðum sem samanstanda af dvöl í
Reykjavík og á Akureyri og dags-
ferð að Mývatni í leit að norðurljós-
um. Má gera ráð fyrir að margfalt
fleiri muni njóta þessara ferða á
næsta vetri en á þeim síðasta.
Gert er ráð fyrir að um 80 pró-
sent farþeganna verði erlend-
ir ferðamenn. Búist er við því að
Danir, Bretar, Svíar og Þjóðverjar
verði fjölmennastir í hópnum. - sv
Icelandair flýgur á milli Akureyrar og Keflavíkur fjórum sinnum í viku í allt sumar:
Búist við mikilli aðsókn í flug
FLOGIÐ BEINT TIL OG FRÁ AKUREYRI Búist er við því að erlendir ferðamenn muni
nýta sér flugleiðina töluvert.
BANDARÍKIN Þrír féllu í skotárás í
Auburn í Alabama í Bandaríkjun-
um á laugardag. Þrír til viðbótar
særðust í árásinni.
Lögreglan leitaði í gærkvöldi
hins 22 ára gamla Desmonte
Leonard sem talinn er hafa
hleypt af byssu í slagsmálum sem
brutust út í teiti. Fórnarlömbin
eru karlar á tvítugsaldri.
Lögreglan segist vita hvað
manninum gekk til en vill ekki
gefa út hver ástæðan fyrir árás-
inni sé. „Sem samfélag verðum
við að fara að virða mannslíf á
ný,“ sagði Tommy Dawson yfir-
lögregluþjónn í Auburn. - bþh
Hóf skotárás í samkvæmi:
Myrti þrjá og
flúði vettvang
SAMGÖNGUR Mikil aska safnaðist
saman á vegum víða á Suðurlandi
um helgina og skapaði töluverða
hættu. Lögreglan á Hvolsvelli
beinir því til ökumanna að fara
með gát og hægja verulega á ef
þeir koma auga á eitthvað brúnt á
veginum.
Stöð 2 greindi frá því í gær að
ökumaður hefði misst stjórn á
bíl sínum þegar hann ók í ösku-
skafl á veginum skammt vestan
við Gígjukvísl á laugardagskvöld.
Hann líkti reynslunni við að
lenda í snjóskafli og skemmdist
bíllinn mikið. Vegagerðin hefur
að undanförnu sett upp merking-
ar og rutt ösku þar sem hún hefur
safnast saman. - sv
Missti stjórn á bílnum í ösku:
Skaflar af ösku
skapa hættu
VETTVANGURINN Lögreglumenn lokuðu
svæðið af.
tvær nýjar bragðtegundir!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
46
40
7
E
N
N
E
M
NÝ
BRAGÐTEGUND- SÍTRÓNA OG KARRÍ
NÝ
BRAGÐTEGUND- BÉARNAISE
KJÖRKASSINN
Þótt Íslendingar séu
opinberlega feitasta
Norðurlandaþjóðin höfum við
enn ekki tekið það skref að
skattleggja óhollustuna sjálfa.
GUÐMUNDUR LÖVE
FRAMKVÆMDASTJÓRI SÍBS
íslenskra svar-
enda segjast
nota samfélags-
vefi daglega.
KÖNNUN EUROBAROMETER
54%
Telur þú mikil tækifæri felast í
vinnslu olíu á Drekasvæðinu?
Já 79,5%
Nei 20,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Átt þú þér uppáhaldslið á EM í
knattspyrnu?
Segðu þína skoðun á visir.is