Fréttablaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 12
11. júní 2012 MÁNUDAGUR12 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS JÓNSSON fyrrverandi skólastjóri, lést miðvikudaginn 6. júní sl. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðju daginn 12. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Grundar, s.: 530 6100. Sigrún Jónsdóttir Gyða Magnúsdóttir Ársæll Jónsson Jón Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN JÓNA JÓHANNSDÓTTIR Boðahlein 8, Garðabæ, sem lést sunnudaginn 3. júní, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju mánudaginn 11. júní kl. 13.00. Símon Þór Waagfjörð Kristín Sigríður Vogfjörð Jónína Waagfjörð Gunnar S. Sigurðsson Jóhanna Waagfjörð Páll K. Pálsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, LAURI OLAVI HENTTINEN Urðarstekk 4, Reykjavík, sem andaðist 25. maí, verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Álftanesi, miðvikudaginn 13. júní kl. 13.00. Auður Gísladóttir Henttinen Guðrún Hannele Henttinen Karl Alvarsson Hans Vihtori Henttinen Ingunn Alda Sigurðardóttir Ívar Esa Henttinen Egill Kalevi Karlsson Irma Gná Henttinen Gréta Liisa Karlsdóttir Auður Ilona Henttinen Elín Eva Karlsdóttir Styrmir Eero Henttinen Íris Saara Henttinen Karlsdóttir Hekla Toini Henttinen Viktor Hugi Henttinen og barnabarnabörn. AFMÆLISBÖRN JOSHUA JACKSON leikari er 34 ára í dag. ROBYN tónlistarkona er 33 ára í dag. GENE WILDER leikari er 79 ára í dag. JOEY SANTIAGO bassaleikari Pixies er 47 ára í dag. Leikir sem fram fara á Evrópu- mótinu í knattspyrnu í Póllandi og Úkraínu þessar vikurnar eru sýndir í hágæðum í Kamesinu á 5. hæð Borgarbókasafns, Tryggva- götu 15. Daglegar útsendingar eru á leikjunum á opnunartíma safns- ins. Einnig er heitt te á könn- unni, tónlist þátttökuþjóðanna í útstillingu á 1. hæð og bækur um þátttökuþjóðirnar og fótbolta á 5. hæð. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis eins og ávallt á Borgar- bókasafnið. EM á bóka- safninu EVRÓPUMÓTIÐ Það er fleira hægt að gera en að lesa bækur á Borgarbóka- safninu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ég hafði Laufeyju vinkonu mína í huga allan tímann meðan ég samdi þetta lag og þennan texta,“ segir tónlistarmaðurinn Jónas Björg- vinsson sem, ásamt hljómsveitinni Ummhmm, hefur sent frá sér lagið Laufin lifa. Lagið tileinkar höfundur- inn minningu Laufeyjar Ingibjarts- dóttur, vinkonu sinnar sem hann tengdist einnig fjölskylduböndum, sem lést af völdum krabbameins í maí á síðasta ári. „Auk þess að til- einka minningu Laufeyjar lagið til- einka ég það einnig vinum, kunn- ingjum og ættingjum sem barist hafa við þennan erfiða sjúkdóm. Ég þekki margra sem hafa glímt við krabba- mein,“ segir Jónas. Laufey lætur eftir sig tvíbura- drengi og voru haldnir styrktartón- leikar fyrir þá í fyrrahaust, en faðir þeirra er einnig látinn. Lagið verð- ur aðeins gefið út á rafrænu formi á vefsvæðinu Tónlist.is. Það kostar 349 krónur og mun öll innkoma af netsölu lagsins skiptast jafnt á milli Krabbameinsfélagsins og styrktar- sjóðs drengjanna í heilt ár. Allir sem að laginu koma, tónlistarmenn, hljóð- ver og Tónlist.is, gefa vinnu sína. Jónas stofnaði hljómsveitina Ummhmm árið 1998 utan um tón- list sína og gaf hún út plötuna Haust sama ár. „Það var söngkonan Þórunn Pálína Jónsdóttir sem kom með hug- myndina að þessu nafni á hljómsveit- ina þegar það vantaði eitthvað í flýti. Þetta nafn fer stundum í taugarnar á útvarpsfólki sem veit ekki hvernig á að bera það fram,“ segir Jónas og hlær. „Sveitin hefur verið í nokkuð góðri pásu lengi en það er alltaf eitt- hvað á döfinni og hefur lengi staðið til að gera eitthvað meira. Einmitt núna er ný plata á teikniborðinu og hugsanlegt að þetta nýja lag, Laufin lifa, verði kveikjan að frekari vinnu við hana.“ Auk Jónasar og söngkonunnar Þór- unnar Pálínu Jónsdóttur skipa hljóm- sveitina Ummhmm þau Eðvarð Lár- usson á gítar, Þórður Högnason á kontrabassa, Birgir Baldursson á trommur, Unnur Birna Björnsdóttir á fiðlu og Eiríkur Rafn Stefánsson á trompet. kjartan@frettabladid.is JÓNAS BJÖRGVINSSON OG HLJÓMSVEITIN UMMHMM: GEFA ÚT STYRKTARLAG Tileinkað öllum þeim sem hafa glímt við krabbamein UMMHMM Frá vinstri: Birgir Baldursson, Unnur Birna Björnsdóttir, Þórður Högnason, Jónas Björgvinsson, Eðvarð Lárusson, Þórunn Pálína Jónsdóttir. Á myndina vantar Eirík Rafn Stefáns- son. Leikarinn ástsæli John Wayne lést af völdum magakrabba þann 11. júní 1979 á UCLA Medical Center í Los Angeles. Hann hafði krafist þess að áletrunin „Feo, Fuerte y Formal“ eða „Ljótur, sterkur og vandur að virðingu sinni“, yrði grafin á legstein sinn, en við því urðu afkomendur hans ekki. Gröfin í Pacific View Memorial Park kirkjugarðinum var ómerkt í tuttugu ár en skartar nú legsteini með tilvitnun í frægt Playboy-viðtal við Wayne. John Wayne hét í raun Marion Robert Morr- ison og fæddist í Winterset í Iowa-ríki þann 26. maí 1907. Hann sló fyrst í gegn sem leikari í myndinni Stagecoach, sem John Ford leikstýrði árið 1939. Eftir það varð ekkert lát á vinsældum hans og lék hann alls í 142 kvikmyndum á ferlinum, aðallega vestrum. Meðal frægustu mynda hans eru Rio Grande og True Grit sem fyrir skemmstu var endurgerð með Jeff Bridges í hlutverkinu sem Wayne gerði ódauðlegt. ÞETTA GERÐIST: 11. JÚNÍ 1979 John Wayne deyr úr magakrabba HUGH LAURIE leikari á afmæli í dag. „Að fá að þykjast vera eitthvað sem ég er alls ekki er bæði frelsandi og spennandi.“53 1535 Greifastríðinu í Danmörku lýkur með sigri Kristjáns 3. í orr- ustunni við Øksnebjerg. 1870 Bruggverksmiðjan Amstel er stofnuð í Hollandi. 1910 Gasstöð Reykjavíkur tekur til starfa og starfar til 1955. 1911 Melavöllurinn í Reykjavík vígður. 1957 Handknattleikssamband Íslands er stofnað. 1975 Lög um fóstureyðingar við sérstakar aðstæður taka gildi á Íslandi. 1982 Orrustan um Stanley, lokaorrusta Falklandseyjastríðsins, hefst. 1987 Margaret Thatcher verður fyrsti breski forsætisráðherrann sem sigrar í þrennum kosningum í röð í 160 ár. 1994 Sveitarfélögum á Íslandi fækkar um 18 er 25 sveitarfélög sameinast í 7 ný. 2004 Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er borinn til grafar. Merkisatburðir 11. júní Flosason-Olding, kvartett sænska gít- arleikarans Hans Olding og íslenska saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar kemur fram á næstu tónleikum djass- tónleikaraðarinnar á KEX Hostel, Skú- latúni 28, annað kvöld, þriðjudaginn 12. júní klukkan 21. Auk þeirra Hans Olding og Sig- urðar Flosasonar skipa hljómsveitina íslenski kontrabassaleikarinn Þor- grímur Jónsson og sænski trommu- leikarinn Erik Qvick. Kvartettinn mun flytja valda djassstandarda, meðal annars eftir Benny Golson, Dizzy Gillespie og Bud Powell. Sem fyrr er aðgangur ókeypis, Flosason-Olding kvartett á KEX DJASSTÓNLEIKARÖÐ Sigurður Flosason kemur fram með kvartett sínum og sænska gítarleikarans Hans Olding. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.