Fréttablaðið - 11.06.2012, Side 11
MÁNUDAGUR 11. júní 2012 11
Umræða um sjávarútvegsmál hér á landi beinist alltaf
fyrr eða síðar að kaffidrykkju
og búsetuháttum sem tengdir
eru tilteknu borgarhverfi. Það
er athyglisvert. Ýmsum kann
að þykja það til marks um ósiði
í umræðuháttum hér á landi og
enn eitt dæmið um það hvílíkir
asnar Íslendingar séu (með
hinni óhjákvæmilegu tilvitnun
í Steinar Sigurjónsson um að
Íslendingar séu hænsn) – en ég
er ekki viss um að málið sé svo
einfalt.
Málið er aldrei einfalt. Málið:
orðin sem við notum til að tala
saman – og sundur.
Sameiningartákn
„Þegar kaffið kemur inn / kætist
okkar sinni. /Undarlegan yl ég
finn / orna sálu minni,“ orti Þor-
móður Ísfeld Pálsson um kaffið.
Blessað kaffið: það er sjálfur
þjóðardrykkurinn. Það fylgir
okkur frá morgni til kvölds.
Það vekur okkur á morgnana og
hjálpar okkur að horfast í augu
við amstur komandi dags. Það
yljar okkur á köldum stundum.
Það róar okkur þegar við erum
í uppnámi. Það hressir okkur
þegar við erum dáðlaus.
Ekkert er hversdagslegra
en kaffi; enginn drykkur jafn
nátengdur dagsins önn í lífi
venjulegs Íslendings. Þetta er
drykkur stundarinnar milli
stríða. Kaffið er okkar friðar-
pípa. „Ætlarðu ekki að kíkja
bráðum í kaffi?“ segjum við
hvert við annað þegar okkur
langar að friðmælast eða tengja
aftur rofin bönd; við ræðum
málin yfir kaffibolla. Slík
unaðssæla fylgir áhrifunum
að það er óhugsandi að vera í
vondu skapi að drekka kaffi.
Kaffið er sameiningartákn
íslensku þjóðarinnar – það færir
okkur saman. Þetta er drykkur
samræðu og sáttar, þar fylgir
vinátta vellíðan.
Hvernig viltu hafa kaffið? Það
segir sína sögu um manninn:
fólk sem fær sér mjólk í kaffið
vill mýkja bragðið, er makráð-
ara og skrautgjarnara en þau
hin sem drekka kaffið svart
og sykurlaust – umbúðalaust –
stælalaust. Fólk sem drekkur
uppáhelling – helst kaffi með
þessu gamla moldarbragði sem
við kennum við Braga (guð
skáldskapar) vill ekkert pjatt
og hugsar fyrst og fremst um
notagildi matar og drykkjar,
að þetta virki eins og það á að
virka – og hver segir að þetta
þurfi að vera eitthvað bragð-
gott líka? – og svo eru sumir
sem hafa sterkar skoðanir á því
hvernig uppáhellingurinn fari
fram, allt frá hitastigi vatns-
ins til þess hvernig kúrfan á
kaffinu í trektinni skuli vera.
Kaffið talar. Að kaffibollan-
um drukknum er saga þín skráð
handa þeim sem lesa kann. Þar
eru ferðalög, giftingar, fjall-
göngur, barnalán og dauðsföll
– gæfa og ólán. Það er engin
hégómaiðja að drekka kaffi með
annarri manneskju. Maður er
að samneyta henni, deila með
henni líðandi og komandi stund-
um – lífi sínu.
Sundrungartákn
Ásökunin er þessi: þú vilt ekki
drekka með mér kaffi; vilt bara
drekka þitt útlenska kaffi með
heiti sem ég fatta ekki. Þú býrð
til eitthvað ókunnuglegt úr því
kunnuglegasta af öllu. Er hægt
að hugsa sér meiri uppskafn-
ingshátt? Café latte er eintómt
pjatt. Það er tákn um yfirborðs-
mennsku og merkilegheit. Það
er drykkur þess sem leitar út
en ekki inn, leitar að sjálfsmynd
sinni í evrópskri menningu í
stað þess að finna hana inni í
sér, í stuðlum og höfuðstöfum,
pelastikki og bragðvondu
kaffi. Það er drykkur þess sem
yfirgaf. Þess sem segir: ég er
kominn lengra en þú, drekk
öðruvísi kaffi en þú; það heitir
útlensku nafni sem þú skilur
ekki og það er mjög fínt. Caffé
latte er drykkur froðusnakks-
ins, enda einkum mjólkurfroða
og ekkert inntak; það er drykk-
ur letingjans, maður verður
saddur og latur af því að drekka
það en ekki hress og æstur í að
fara að djöflast.
Nei nei. Þetta er í raun og veru
alþýðlegt mjólkurkaffi drukkið
úr glasi, eins og maður man eftir
í sveitinni þar sem kexi var dýft
ofan í það. Kaffi sem hefur verið
umvafið orðum. Bærinn er skrýt-
inn, hann er fullur af orðum.
Við brosum yfir mynstrinu sem
gert hefur verið á mjólkurfroð-
una og súpum svo varlega á og
finnum þykka og mjúka froðuna
gæla við varirnar og síðan dökkt
og bragðmikið kaffibragðið sem
leynist þar undir. Við finnum að
Reykjavík er alls konar, stund-
um meira að segja borg; hér eru
núðlustaðir og skóbúðir, snyrti-
fræðingar, rapparar og gangandi
vegfarendur. Og letingjar. Og
fólk sem talar með handasveifl-
um, fólk með alls konar göngu-
lag, alls konar fólk sem fæddist á
alls konar stöðum en á hér heima;
alls konar litir og – auðvitað –
alls konar orð. Því að útlönd hafa
alltaf verið á Íslandi og íslensk
menning sem er ekki um leið
útlensk menning – hún deyr.
AF NETINU
„Bara” Árni Johnsen
Ekki eru miklar kröfur gerðar til
sumra íslenskra þingmanna. Þeim
leyfist að opinbera fávisku sína,
fordóma, vanþekkingu og rang-
hugmyndir, auk þess sem fyllilega
er leyfilegt að móðga heilar
þjóðir með einhverjum rugluðum
heilaspuna.
Og það þykir ekki taka því að
minnast á það, hvorki í fjölmiðlum
né af öðrum þingmönnum þegar
boðið er upp á svona bull á Alþingi
Íslendinga:
„Þýskaland og Frakkland eru
þrælabandalög nútímans....”
Ég veit að nú munu ýmsir segja:
„Æi, þetta var nú bara hann Árni
Johnsen. Þú veist hvernig hann er.”
Já, reyndar veít ég hvernig Árni
Johnsen er.
Er það gild afsökun fyrir því að
þingmaður fari með ruddalegt rugl
eins og þetta? Hefur þessi maður
enga sómatilfinningu?
blog.eyjan.is/illugi
Illugi Jökulsson
Vilja lyfta og brenna
Börn í dag kunna lítið af leikjum
og vilja bara æfa einsog fullorðna
fólkið, þau vilja fá að „lyfta“ og
„brenna“, þetta hef ég lært af
biturri reynslu í gegnum starf mitt
með börnum og unglingum. Sú
staðreynd að börn segi tæpitungu-
laust að þau hafi „borðað óhollt í
gær en það sé í lagi þar sem þau
brenndu svo miklu“ er sorgleg.
Börn, sama á hvaða aldri þau eru
eiga ekki að kunna þessi hugtök
og hvað þá kunna að tengja þau
inn í sitt daglega líf, þarna er
komið vandamál sem er alfarið
okkur að kenna.
pressan.is/pressupennar
Fannar Karvel
Ekkert er hversdagslegra en kaffi; enginn
drykkur jafn nátengdur dagsins önn í lífi
venjulegs Íslendings. Þetta er drykkur
stundarinnar milli stríða. Kaffið er okkar friðarpípa.
„Ætlarðu ekki að kíkja bráðum í kaffi?“ segjum við hvert
við annað þegar okkur langar að friðmælast eða tengja
aftur rofin bönd; við ræðum málin yfir kaffibolla.
FRÁBÆR STAÐSETNING MIÐSVÆÐIS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU!
TIL LEIGU
Áhugasamir hafi samband við Stein Jóhannsson í síma 842-4909 eða í tölvupóstfangið steinnj@smaragardur.is.
Smáragarður, Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík, sími 585 2900, www.smaragardur.is
Frábærlega staðsett atvinnuhúsnæði í Breiddinni Kópavogi.
500 – 1800 m2 rými við Skemmuveg 2, neðri hæð, þar sem áður var lagnadeild BYKO.
Húsnæðið hentar vel fyrir lager eða verslun.
Latte og annað pjatt
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG