Fréttablaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 11. júní 2012 19
FÓTBOLTI Kristján Finnbogason
varð 41 árs í síðasta mánuði en tók
sig samt til og bætti enn við meta-
skrá sína í bikarleik Fylkis og FH
í 32 liða úrslitum Borgunarbikars-
ins á föstudaginn. Kristján varði
þrjár síðustu spyrnur FH-inga í
vítakeppninni og tryggði Fylki sæti
í sextán liða úrslitum keppninnar
aðeins sex dögum eftir að liðið tap-
aði 8-0 fyrir FH á sama stað í deild-
inni.
Þetta er langt frá því að vera í
fyrsta sinn sem Kristján sýnir snilli
sína í vítakeppnum og það er orðið
óhætt að kalla hann konung víta-
spyrnukeppna á Íslandi. Kristján
hefur nefnilega unnið allar fjórar
vítakeppnir sínar í aðalkeppni bik-
arsins og þetta var í þriðja sinn sem
hann ver tvö víti eða fleiri í víta-
keppni.
Kristján vann einnig vítakeppni
í 8 liða úrslitum 2006, 16 liða úrslit-
um 2005 og í 8 liða úrslitum 1995 en
í öll þau skipti var hann markvörður
KR-liðsins.
Kristján hefur gert gott betur en
að stoppa vítaspyrnur andstæðing-
anna því hann hefur einnig skor-
að sjálfur í tveimur vítakeppnum.
Kristján hefur samtals varið 8 af 19
vítaspyrnum sem hann hefur reynt
við í vítakeppnum í aðalkeppni bik-
arsins en það gerir magnaða 42 pró-
sent markvörslu.
Kristján komst í hóp með fjórum
öðrum markvörðum sem hafa náð
að verja þrjú víti í einni vítaspyrnu-
keppni en það eru þeir Gunnleifur
Gunnleifsson (FH-Breiðablik 3-1,
2010), Amir Mehica (Haukar-Fram
4-3, 2007), Sandor Matus (KA-ÍBV
3-0, 2004) og Þorsteinn Bjarnason
(Keflavík-Selfoss 2-1, 1990).
Kristján setti einnig nýtt met með
því að verða fyrsti markvörðurinn
til að verja tvo víti eða fleiri í þrem-
ur vítakeppnum. Hann átti áður
metið með þeim Bjarna Sigurðssyni
(1984 og 1990) og Hauki Bragasyni
(1994).
KR-ingar hafa sem dæmi farið
í eina vítakeppni eftir að Kristján
missti sæti sitt í aðalliðinu og sú
vítakeppni tapaðist 0-3 á móti Val
árið 2007. - óój
VELKOMIN Á BIFRÖST
Opið fyrir umsóknir
til 15. júní á bifrost.is
Frumgreinanám
Nám í frumgreinadeild er góð leið fyrir fólk sem hefur
ekki lokið stúdentsprófi, eða verið frá námi í langan
tíma, til að bæta grunnmenntun sína áður en ráðist er í
háskólanám.
- skilvirkur undirbúningur
fyrir háskólanám
Kristján Finnbogason konungur vítakeppna á Íslandi:
Hefur aldrei tapað
KRISTJÁN FINNBOGASON Varði þrjú síðustu víti FH-inga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vítakeppnir Krisjáns
Finnbogasonar:
2012 með Fylki á móti FH
Varði 3 af 5 spyrnur, Fylkir vann 3-2
2006 með KR á móti ÍBV
Varði 1 af 4 spyrnum, KR vann 4-2
2005 með KR á móti Víkingi
Varði 2 af 7 spyrnum, KR vann 6-5
1995 með KR á móti Þór Ak.
Varði 2 af 3 spyrnum, KR vann 3-1
Samtals 4 vítakeppnir - 4 sigrar
8 víti varin af 19, 42 prósent
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR ÍR-ingurinn
Einar Daði Lárusson stóð sig frá-
bærlega á mjög sterku tugþraut-
armóti í Kladno í Tékklandi um
helgina en hann fékk 7.898 stig
og endaði í fimmta sæti á mótinu.
Einar bætti sinn besta árangur um
308 stig en hann náði lágmarki inn
á EM í Helsinki í lok júní og var
aðeins 52 stigum frá því ná lág-
marki á Ólympíuleikana í London.
Einar Daði varð í þrettánda
sæti á þessu móti og er því búinn
að bæta sig mikið á einu ári. Hann
var með 19. besta árangurinn inn
á mótið en það voru bara fjórir
kappar sem gerðu betur en hann.
Dmitriy Karpov sigraði í þraut-
inni með 8.173 stig. Roman Ser-
brle frá Tékklandi varð annar og
náði lágmarki á Ólympíuleikana í
fjórða sinn, með 8.097 stig. Pelle
Rietveld frá Hollandi náði einnig
Ólympíulágmarki en hann náði 3.
sætinu með 8.073 stig. Einar Daði
var 146 stigum á eftir Tékkanum
Adam Sebastian Helcelet sem varð
í fjórða sætinu.
„Það gekk bara allt upp. Þetta
eru tíu greinar og stundum gerist
þetta að allar greinarnar smella.
Það er bara frábært að þetta skyldi
ganga svona vel því það er ekki
sjálfsagt að það gangi svona vel og
að maður fari í gegnum þessar tíu
greinar án þess að neitt klikki. það
þarf mikið til,“ sagði Einar Daði
sem var ánægður með þjálfara-
liðið sitt. „Ég var meða þrjá með
hér úti, Þráinn þjálfara minn sem
hefur yfirumsjón með þjálfun-
inni, Kristján Gissurarson stang-
arstökksþjálfara og Stebba Má
(Ágústsson nuddari og aðstoðar-
maður) sem er gömul kempa. Það
var þvílík stemning hjá okkur og
sjúklega gaman,“ sagði Einar.
„Ég vissi að þetta væri hægt en
það er skemmtilegt að sjá þetta
gerast. Það er eitt að vita að þetta
sé hægt en það er annað að fram-
kvæma þetta. Ég er búinn að vera
að einbeita mér að þessu í fyrra
og í ár. Það er frábært að það sé
að skila sér og þetta er þvílíkt
gaman,“ sagði Einar Daði kátur.
„Ég hvíldi vel fyrir þessa þraut
sem var gott. Ég tók því rólega
síðustu vikuna fyrir mót þannig að
það væri kraftur í mér. Það skilaði
sér greinilega,“ sagði Einar.
Einar Daði er nú kominn í hóp
með Jóni Arnari Magnússyni en
þeir eru nú þeir tveir Íslending-
ar sem hafa náð flestum stigum í
einni tugþraut. Einar Daði bætti
besta árangur þjálfara síns Þrá-
ins Hafsteinssonar. Þráinn náði
mest 7.592 stigum árið 1983 en
Íslandsmet Jóns Arnars er 8.573
stig sett í Götzis 1998. Þráinn var
ánægður með sinn mann. „Þetta
var frábært. Hann hefur fært sig
upp á annað getustig í þessu og
er kominn í heimsklassaárang-
ur. Einar var vel tilbúinn og var
búinn að undirbúa sig. Hann hélt
einbeitingu allan tímann í gegn-
um allar þessar greinar. Það er
rosalega erfitt að halda haus
í þessu í tvo heila daga,“
sagði Þráinn og bætti
við: „Hann bætti
sig í hverri grein-
inni á fætur ann-
arri. Við vissum
svo sem að hann
ætti inni en það er mjög erfitt að
raða því öllu saman í svona flotta
þraut. Hann var bara 52 stig-
um frá Ólympíulágmarkinu sem
eru 7.950 stig en 52 stig er mjög
lítið. Hann átti ógilt stökk í lang-
stökkinu upp á 7,50 en fór 7,35.
Það hefði dugað honum til þess að
komast inn á leikana en það mun-
aði hálfum sentímetra að hann
næði gildu stökki,“ sagði Þrá-
inn en Einar Daði mun reyna við
Ólympíulágmarkið á EM í Hels-
inki 27. til 28. júní.
„Það yrði bara bónus að kom-
ast til London. Maður er ennþá til-
tölulega ungur í þessum tugþraut-
arheimi og þetta tekur allt saman
tíma. Það væri hrikalega gaman
að komast á Ólympíuleik-
ana en ég ætla ekki að
setja þá pressu á mig
eða vera eitthvað
að svekkja mig á
því að hafa ekki
náð því núna,“
sagði E i na r
Daði.
ooj@frettabladid.is
ÞAÐ VAR SJÚKLEGA GAMAN HJÁ OKKUR
Einar Daði Lárusson var aðeins 52 stigum frá því að ná lágmarkinu fyrir tugþrautarkeppnina á Ólympíuleikunum í London. Hann
bætti sig um 308 stig meðal stóru nafnanna í Kladno og er núna orðinn annar besti tugþrautarkappi Íslandssögunnar.