Fréttablaðið - 29.06.2012, Qupperneq 8
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR8
VEISTU SVARIÐ?
STJÓRNMÁL Stefnt er að því að frum-
varp að nýjum heildarlögum um
málefni útlendinga verði lagt fram
á Alþingi í haust. Þetta kom fram á
fundi í gær þar sem skýrsla nefnd-
ar, sem fjallað hefur um málefni
útlendinga utan Evrópska efna-
hagssvæðisins, var kynnt.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir tillögurnar sem
kynntar voru í gær mjög mikil-
vægar. Hann segist vilja að frum-
varp verði orðið að lögum fyrir
kosningar. „Þetta þýðir að það
þyrfti að koma fram í haust, alveg
tvímælalaust.“ Hann segir mikil-
vægt að skýrslan fari nú í opið
umsagnarferli jafnframt því sem
hafist verði handa við gerð frum-
varps. „Ég held að það væri óráð
að skilja þetta að vegna þess að
okkur liggur á. Við þurfum að
reyna að fá niðurstöðu eins fljótt
og hægt er.“
Í tillögum nefndarinnar, sem
Halla Gunnarsdóttir stýrði, eru
lagðar til ellefu tillögur að breyt-
ingum. Fyrir það fyrsta er lagt til
að sett verði heildarlög um útlend-
inga, sem verði á ábyrgð innan-
ríkisráðuneytisins. Hingað til hafa
lögin verið tvískipt og atvinnuleyfi
heyrt undir velferðarráðuneyti á
meðan dvalarleyfi heyra undir
innan ríkisráðuneytið.
Lagt er til að dvalarleyfis-
flokkum verði breytt og réttinda-
söfnun útlendinga jöfnuð meðal
dvalarleyfishafa. Þannig fái þeir
sjálfkrafa atvinnuleyfi nema í
undantekningartilvikum skamm-
tímadvalarleyfa. Þá verði það
megin stefna að útlendingar sem
hér hafa dvalarleyfi fái heimild til
að fá fjölskyldur sínar til sín.
Í málefnum hælisleitenda og
flóttamanna er lagt til að lögfest
verði bann við refsingum vegna
ólöglegrar komu til landsins. Jafn-
framt munu fyrstu hælisviðtöl fara
fram hjá Útlendingastofnun en
ekki lögreglu eins og verið hefur.
Að sama skapi leggur nefndin til að
stofnuð verði sjálfstæð úrskurðar-
nefnd, að minnsta kosti í málefnum
hælisleitenda. Þá verði komið á sér-
stakri málsmeðferð vegna hælis-
leitenda á barnsaldri, og hælisleit-
endur eiga að geta valið búsetu sína
án þess að það hafi áhrif á þjón-
ustuna sem þeir njóta.
„Eftir veru mína í ráðuneytinu,
ráðuneyti dómsmála og mann-
réttinda, hef ég sannfærst um að
ef okkur tekst að ráða bót á þeim
vanköntum og brotalömum sem er
að finna í lagasmíðinni þá væri það
eitt mikilvægasta framlag okkar
til mannréttindamála sem ég get
hugsað mér,“ segir Ögmundur.
thorunn@frettabladid.is
Mikilvægt framlag
til mannréttinda
Nefnd um málefni útlendinga utan EES hefur skilað skýrslu með tillögum að
breytingum á útlendingalögum. Vill ýmsar breytingar á fyrirkomulagi dvalar-
leyfa og komu hælisleitenda til landsins. Frumvarp í haust, segir ráðherra.
SKÝRSLAN KYNNT Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og for-
maður nefndarinnar, kynnti tillögur nefndarinnar í gær. Ögmundur Jónasson innan-
ríkisráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra héldu einnig ávörp.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HAPPDRÆTTI Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna, UNICEF á Íslandi,
stendur fyrir happdrætti þar sem
einn heppinn þátttakandi fær árit-
aða treyju Barcelona, knattspyrnu-
liðsins katalónska. Knattspyrnulið-
ið gaf landsnefndum UNICEF um
allan heim treyjur. Aðeins ein er í
boði á Íslandi.
Fimm Börsungar árituðu treyj-
una sem ber merki UNICEF. Þeir
eru Gerard Pique, Victor Valdés,
Xavi Hernandez, Carles Puyol og
David Villa. Tilkynnt verður um
vinningshafann í EM-kvöldi á RÚV
eftir úrslitaleikinn á sunnudaginn.
Hægt er að taka þátt með því
að senda smáskilaboð með orðinu
„unicef“ í númerið 1900. Hver
skilaboð kosta 1.500 krónur og
rennur ágóðinn beint til UNICEF.
- bþh
Happdrætti UNICEF:
Börsungar gefa
áritaða treyju
TREYJAN GÓÐA Hér fær Einar Örn
Jónsson treyjuna úr höndum Hólmfríðar
Önnu Baldursdóttur. MYND/UNICEF
VIÐSKIPTI D3 miðlar, dótturfélag
Senu, hefur fallið frá kaupum
á fyrirtækinu Miði.is. Skilyrði
Samkeppniseftirlitsins gerðu
kaupin óhagstæð fyrir D3 og
hefðu ekki skapað þau tækifæri
sem stefnt var að með kaupun-
um, að sögn fyrirtækisins.
„D3 er nýsköpunarfyrirtæki
sem miðlar afþreyingu á netinu
til Íslendinga og stendur frammi
fyrir mikilli samkeppni frá
alþjóðlegum risafyrirtækjum á
borð við Apple, Amazon, Netflix
og Spotify,“ segir í tilkynningu
frá Engilbert Hafsteinssyni,
framkvæmdastóra D3. Með
kaupum á Miða.is var ætlunin
að skapa íslenskt mótvægi við
erlendu afþreyingarveiturnar.
- sv
Kaupin metin óhagstæð:
D3 hættir við
kaup á fyrir-
tækinu Miði.is
1. Í hvaða bæjarfélagi á höfuð-
borgarsvæðinu eru flestir á biðlista
eftir félagslegum íbúðum?
2. Hvað heitir ný bók Hugleiks
Dagssonar?
3. Hvaða lið slógu Spánverjar út í
undanúrslitum EM í knattspyrnu?
SVÖR:
1. Kópavogur 2. Enn fleiri íslensk
dægurlög 3. Lið Portúgala
Ferðamaður þakklátur
Lögreglan fékk heimsókn niðurlútrar
konu á lögreglustöðina við Hverfisgötu
í gær. Hún hafði týnt myndbands-
upptökuvél sinni. Hún kættist þó við
að heyra að klukkustund áður hefði
samviskusamur borgari fundið vélina á
Austurvelli og komið í hendur lögreglu.
LÖGREGLUMÁL