Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.06.2012, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 29.06.2012, Qupperneq 18
FÓLK|HELGIN Barnafataverslunin Róló Glæsibæ. Sími 8948060 • www.rolo.is • Facebook Útsalan hefst í dag kl: 13:00 30-70% afsláttur. PÓSTHÚSSTRÆTI 13 / BORGARTÚN 29 / SÍMI: 561 0562 Heit veisla! 35 heitir bitar. Verð kr. 5750,- OSUSHI LUXUS VEISLA 60 blandaðir sushi bitar. verð kr. 8900,- 52 blandaðir sushi bitar 2 laxa sashimi, 2 tuna sashimi 1 laxa tartar. Verð kr. 11.900,- Sticks bakki með 60 bitum. verð kr. 10.900,- 42 blandaðir sushi bitar 2 laxa tartar, 2 túnfisk tartar. Verð 10.900,- Lítil veisla! 54 blandaðir litli maki bitar 12 laxa nigiri. Verð kr, 7000,- 1 2 3 4 5 6 WWW.OSUSHI.IS BESTU BROTIN ÚR ÞÁTTUM FM 957 FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Teddi er 77 ára gamall og unir sér vel á vinnustofu sinni á Kjalarnesi. Efniviðurinn sem hann notar er fjölbreyttur og oftast með sögu að baki. „Ég vinn mest með tré og sæki það víða. Til dæmis eru tíu verk á sýningunni sem unnin eru úr þingvíði sem Tryggvi Gunnars son gróðursetti í Alþingisgarð- inum í lok 19. aldar, koparverk úr skips- skrúfu af skipi sem strandaði á Bessa- stöðum 1940 og verk úr þyngsta viði heims, sem er járnviður.“ Teddi fer ekki varhluta af efnahags- ástandinu, það endurspeglast í sölunni á verkunum. Hann segir andlega deyfð vera yfir stórum hluta Evrópu. „Ég hef selt fyrir milljónir í gegnum árin og dans- að tangó við ríka fólkið áður en útfarar- víkingarnir, eins og ég vil kalla þá, gengu frá þjóðinni. Það er minni sala núna en á liðnum árum. Ég finn það á fólki í Norður-Evrópu, sem við erum andlega tengd, að það á líka í erfiðleikum.“ Teddi segist þó ekki skapa list pen- inganna vegna heldur sé þetta frumþörf sem hann hafi engin völd yfir. Listagyðj- an kalli og hann svari því kalli glaður. Aðspurður um ferli sýningarinnar og til- finningarnar sem fylgi því segir Teddi að það sé alltaf tilhlökkun að sýna en nú sé hann feginn að vera að taka saman. „Það er auðvitað galið að leggja í alla þessa vinnu og búa til öll þessi verk fyrir örfáar hræður,“ segir Teddi og hlær. Hann hefur ávallt mörg járn í eldinum og hugmyndirnar flæða í gegnum hann. Um þessar mundir eru hrunið og búsáhalda- byltingin honum hugleikin og nokkur stór verk að gerjast í undirmeðvitund- inni sem tengjast þeirri atburðarrás. Nái fólk ekki á sýninguna í Perlunni er hægt að skoða verk Tedda á vinnustofu hans á Kjalarnesi. Þar er fólk boðið velkomið og jafnvel fylgir kaffibolli með. Einnig er hann með heimasíðuna www.teddi.net þar sem allar upplýsingar er að finna um hann sjálfan og verk hans. ■ vidir@365.is VÖLUNDUR Á MÁLM OG TRÉ LOKASPRETTUR Listamaðurinn Magnús Theódór Magnússon eða Teddi, eins og hann er kallaður, lýkur sýningu á verkum sínum í Perlunni á morgun. LIST MEÐ SÖGU Magnús Theódór Magnússon hefur verið með sýningu í Perlunni en henni lýkur á morgun. MYND/ANTON ■ SKÁLHOLTSTÓNLEIKAR Opnunarhátíð Sumartónleika í Skálholtskirkju fer fram nú um helgina, 30. júní til 1. júlí. Tónleikarnir fagna 37 ára afmæli nú í ár. Sumartónleikarnir hefjast á morgun klukkan þrjú með tónleikum Skál- holtskvartettsins sem flytur Strengjakvartett í Es-dúr eftir F. Schubert og „Kvintakvartettinn“ eftir F.J. Haydn. Tveimur tímum síðar heldur Tríó Jaaps Schröder tónleika sem kallast Tvær aldir af tríóum. Þar verða flutt tríó frá miðri sautjándu öld fram á miðja nítjándu öld. Á efnis- skránni eru m.a. verk eftir Stradella, Sammartini, Haydn og J. Strauss eldri. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.