Fréttablaðið - 29.06.2012, Page 22
4 • LÍFIÐ 29. JÚNÍ 2012
UNNUR BIRNA
VILHJÁLMSDÓTTIR
ALDUR: 28 ára.
STARF: Lögfræðingur hjá Íslensku
lögfræðistofunni.
MENNTUN: Meistarapróf í lögfræði.
MAKI: Pétur Rúnar Heimisson.
BÖRN: Erla Rún og Lilja Karitas
Pétursdætur.
LÍFSTÍLL: Lifi heilbrigðu og hamingju-
sömu fjölskyldulífi.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir upp-
lifði sitt fyrsta landsmót að-
eins tólf ára gömul og hefur
hún haft mikla unun af öllu sem
tengist hestamennsku síðan þá.
Það lá því vel við að hitta Unni
á Landsmóti hestamanna sem
haldið er í Víðidal í ár.
Hver er þín fyrsta reynsla (minn-
ing) af hestamennskunni? Ég
á óteljandi minningar úr hesta-
mennskunni og geri mér litla eða
enga grein fyrir því hverjar eru þær
fyrstu. Svo mikinn tíma og rúm
hefur hestamennskan tekið í mínu
lífi síðan ég man eftir mér. Ég man
þó eftir fyrsta hestinum sem ég
byrjaði almennilega að brúka og
keppa á, Garpi frá Skollagróf. Á
honum fór ég fyrstu alvöru útreið-
artúrana ásamt því að keppa á inn-
anfélagsmótum hjá hestamanna-
félaginu Fáki. Garpur reyndist
okkur fjölskyldunni afskaplega vel,
var barnvænn og þægur fjölskyldu-
hestur og mikill töltari.
Hvenær fórstu fyrst á landsmót
og hvernig var upplifunin? Mitt
fyrsta stórmót var fjórðungsmót
1996 á Gaddstaðaflötum á Hellu.
Það var þá nánast eins og lands-
mót en fyrir árið 1998 var landsmót-
ið aðeins haldið á fjögurra ára fresti
og fjórðungsmót þess á milli, einnig
á fjögurra ára fresti. Ég keppti í
barnaflokki á fjórðungsmótinu 1996
og gekk stórvel, endaði í 2. sæti á
hryssunni Svertu frá Stokkhólma og
stoltið var mikið. Það var þó einn
maður sem var nánast stoltari en ég
en það var hinn margfrægi hesta-
maður Hafliði Halldórsson sem
hafði verið plataður af mömmu og
pabba til að taka okkur Svertu í
smá þjálfun fyrir þetta mót. Gelgju-
tilburðir snemma á unglingsárunum
gerðu það nefnilega að verkum að
mér þótti erfiðara að taka tiltali og
leiðbeiningum frá foreldrum mínum
heldur en öðrum.
Hafliði var frábær en strangur
þjálfari og hittumst við í Víðidalnum
alla daga sama hvernig viðraði og
fórum í gegnum alls konar æfingar.
Þar á meðal voru jafnvægisæfingar
þar sem hann setti merina í langa
tauma og mig hnakklausa á bak
og hljóp á eftir okkur um hesthúsa-
hverfið. Þá spennti hann léttikerru
á merina og sat sjálfur í kerrunni
og keyrði um á meðan ég dinglaði
hnakklaus á merinni sjálfri. Hesta-
menn í hverfinu ráku upp stór augu
og hvorki fyrr né síðar, svo ég viti til,
hafa slíkar aðferðir verið notaðar. En
þær skiluðu sér svo sannarlega og
kann ég Hafliða bestu þakkir fyrir.
Hann kenndi mér margt og mikið og
gerði mig að þeim öfluga reiðmanni
sem ég var á mínum yngri árum.
Eftir fjórðungsmót 96 varð ekki
aftur snúið og áhuginn meiri en
Ég, tólf ára, og mamma að taka þátt í firmakeppni Fáks árið 1996. Unnur og Hrafn frá Ríp
á landsmóti 1998, á Melgerði
smelum.
MYNDIR/EINKASAFN
Unnur og Hróarr frá Vatnsleysu á landsmóti í Víðidal. MYNDIR/SIGURJÓN RAGNARFramhald á síðu 6
Unnur og Hafliði Halldórsson, fjórðungsmót 1996.
NÁNDIN OG
SAMSPILIÐ
VIÐ HESTINN
ER ENGU LÍKT
Laugavegi 178 - Sími: 568 9955
www.tk.is