Fréttablaðið - 29.06.2012, Side 36
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma.
HULDA ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Lést á dvalarheimilinu Jaðri Ólafsvík
miðvikudaginn 27. júní. Jarðaförin auglýst
síðar.
Kristjana Huldudóttir Pétur Bogason
Sigurður Kristján Höskuldsson Guðmunda Wium
Magnús Höskuldsson Sæunn Jeremíasdóttir
Valur Höskuldsson Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir
Grétar Höskuldsson Olga Sædís Aðalsteinsdóttir
Bára Höskuldsdóttir Pétur Sigurðsson
Erla Höskuldsdóttir Sveinbjörn Benediktsson
Barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa, langafa og langalangafa,
VALBERGS GÍSLASONAR
matsveins,
síðast til heimilis að Hrafnistu Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og
hjúkrunarfólki Hrafnistu fyrir umönnun og hlýju.
Pálína Aðalsteinsdóttir
Pétur S. Valbergsson Bjargey Eyjólfsdóttir
Sigrún Valbergsdóttir Gísli Már Gíslason
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
HULDA SOFFÍA LONG
kennari,
Norðurbrún 1, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut
sunnudaginn 24. júní. Jarðarförin fer fram
frá Seljakirkju fimmtudaginn 5. júlí kl. 13.00.
Sigurbjörg Eyrún Þorvaldsdóttir
Kjartan Þór Þorvaldsson Hildur Ása Sævarsdóttir
Sandra María Kjartansdóttir
Kristófer Þór Kjartansson
Elskuleg eiginkona, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTJANA GUÐRÚN
EINARSDÓTTIR
Dvalarheimili aldraðra,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja mánudaginn 25. júní. Útförin
fer fram frá Landakirkju miðvikudaginn 4. júlí kl. 15.00.
Lárus Kristjánsson
Ólafur Einar Lárusson Emma Hinrika Sigurgeirsdóttir
Kristín Auður Lárusdóttir Jónas Kristinn Eggertsson
Hrönn Lárusdóttir Bergur Elíasson
Elín Lárusdóttir Ómar Jóhannsson
Iðunn Lárusdóttir Óðinn Guðmundsson
Lára Kristjana Lárusdóttir Bjarki Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Höfða á Völlum,
Arnarheiði 13 A, Hveragerði,
lést á Sjúkrahúsi Selfoss miðvikudaginn
13. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jóhannes Pálsson
Guðmundur Svavarsson Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Gísli J. Gíslason Hólmfríður Skaftadóttir
Ástríður G. Jóhannesdóttir Gunnlaugur Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR SIGRÚN
SÖRLADÓTTIR
Stararima 23,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 24. júní. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju 4. júlí kl. 13.00. Þökkum starfsfólki á 11-E
og Heimahlynningu Landspítalans fyrir góða aðhlynningu og
samhug.
Álfheiður Einarsdóttir Odd Stefán Þórisson
Kristín Einarsdóttir Sigurður Kristjánsson
Ólafur Friðbert Einarsson Henný Ása Ásmundsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR MARKÚSSON
Funalind 1, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 27. júní á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Útförin
fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 16. júlí kl. 13.00.
Markús Einarsson Hólmfríður Pálsdóttir
Árni Dan Einarsson Sigrún Dan Róbertsdóttir
Kristín Einarsdóttir Jón Karlsson
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ERLA JÚLÍUSDÓTTIR
(BÍBÍ),
Kópavogsbraut 1a,
er látin.
Birgir Stefánsson
Þorgerður Edda Birgisdóttir Jón Ellert Sverrisson
Brynhildur Birgisdóttir Einar Þór Jónatansson
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Óli Jón Ólason hefur örugglega einn
lengsta starfsaldur í ferðaþjónustu á
Íslandi. Hann hefur starfað í greininni
í rúmlega 50 ár og komið að rekstri
hótela og minjagripaverslana, farar-
stjórn og ráðgjöf.
Í dag rekur Óli Jón ferðaþjón-
ustuna Þemaferðir í Grundarfirði og í
Bjarnar firði á Ströndum. Þemaferðir
eru fjölskyldufyrirtæki sem hann og
eiginkona hans, Steinunn Hansdóttir,
reka ásamt dóttur sinni, Arnlín Óla-
dóttur, og tengdasyni, Magnúsi Rafns-
syni.
„Þegar ég byrjaði í ferðaþjónust-
unni þá var Ferðaþjónusta ríkisins
með einkaleyfi á móttöku erlendra
ferðamanna,“ rifjar Óli Jón upp. „Þá
var maður háður því hvað hún skaffaði
okkur marga kúnna. Þeir sögðu okkur
líka hvað maturinn átti að kosta og
gistingin. En nú eru breyttir tímar og
þó manni finnist hlutirnir ganga hægt
stundum þá hafa þeir breyst mikið til
batnaðar.“ Hann bendir á að í dag starfi
aðallega fagfólk í greininni og hægt sé
að mennta sig sérstaklega í ferðaþjón-
ustu.
Óli Jón hóf feril sinn í október 1959.
„Þá rak ég skíðaskálann í Hveradölum í
tíu ár,“ segir Óli Jón. „Raunar, tíu ár og
tvo daga ef þú vilt hafa það nákvæmt.“
Spurður hvernig fjölskyldufyrir-
tækið varð til segir hann að það hafi
verið að frumkvæði dóttur sinnar og
tengdasonar. „Þau fóru á vaxtarsprota-
námskeið og fengu þar verðlaun fyrir
hugmynd sína um að setja upp ferða-
þjónustu í sveit. Þau fengu mig til að
vera með í þessu og nú erum við öll í
ferðaþjónustu í fjölskyldunni. Við erum
hér í Grundarfirði og þau á Ströndum.“
Fyrirtæki þeirra í Grundarfirði sér
um sérleyfisferðir umhverfis Snæfells-
jökul ásamt hópferðabílafyrirtækinu
Sterna. Einnig reka þau handverks-
verslun sem opin er allan ársins hring.
En fyrirtækið heitir ekki Þemaferðir
fyrir ekki neitt og hefur Óli Jón lagt
áherslu á umhverfisvernd í starfi sínu.
„Þú veist hvað sagt er, maður á að
skila landinu betur en maður tekur við
því,“ segir Óli Jón. „Í vor ákváðum við
að gróðursetja eitt tré í hverri ferð.
Það hefur gengið mjög vel. Þá látum
við útlendingana í ferðunum gróður-
setja tré. Við bendum þeim svo á að
þeir geta komið aftur eftir fimmtán ár
og séð hversu hátt tréð er. Jafnvel sýnt
barnabörnum eða barnabarnabörnum
hvað þau hafi verið dugleg þegar þau
voru ung.“
Hugmyndin er fengin erlendis frá og
þeim fannst tilvalið að taka hana upp
hér. Gróðursetningin fer fram í lundi
fyrir aftan Sjómannagarðinn á Hellis-
sandi. „Þar ætlum við að gróðursetja
rúmlega 80 tré í sumar.“
birgirh@frettabladid.is
ÓLI JÓN ÓLASON: HEFUR STARFAÐ Í FERÐAÞJÓNUSTU Í 53 ÁR
Gróðursetur tré í hverri ferð
Í LUNDINUM Óli Jón man tímana tvenna í ferðaþjónustu á landinu. Þegar hann byrjaði hafði Ferðaþjónusta Íslands einkaleyfi á móttöku
erlendra ferðamanna og sagði fyrir um hvað matur og gisting átti að kosta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁGÚST GUÐMUNDSSON kvikmyndaleikstjóri á afmæli í dag.
„Nú ganga sögumenn ekki á milli bæja eða troða upp á
kvöldvökum eins og á árum áður en hæfileikinn lifir.“
65
Sextíu ár eru í dag frá því Ásgeir
Ásgeirsson var kjörinn forseti Íslands
til næstu fjögurra ára á eftir. Þá voru
fyrstu forsetakosningar sem fram
fóru á Íslandi og þær voru að aflok-
inni harðri kosningabaráttu. Þrír
menn höfðu boðið sig fram. Auk
Ásgeirs voru það séra Bjarni Jónsson
og Gísli Sveinsson.
Á kjörskrá voru rúmlega 86 þúsund
manns, en um 70.400 neyttu atkvæð-
isréttar síns. Ásgeir hlaut 32.924
atkvæði og séra Bjarni 31.042 þannig
að mjög var mjótt á munum. Gísli
Sveinsson fékk 4.225 atkvæði.
Ásgeir hafði setið á Alþingi fyrir
Alþýðuflokkinn, verið fjármálaráð-
herra og forsætisráðherra um skeið og
sumarið 1930 var hann forseti samein-
aðs þings og stýrði hátíðarfundum á
Þingvöllum vegna þúsund ára afmælis
Alþingis.
ÞETTA GERÐIST: 29. JÚNÍ 1952
Fyrstu forsetakosningar á Íslandi