Fréttablaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 8
4. ágúst 2012 LAUGARDAGUR8 Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað í Volkswagen Passat Comfortline Plus er nú fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti ásamt bakkmyndavél. www.volkswagen.is Ratvís og víðsýnn Volkswagen Passat EcoFuel Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat Passat Comfortline Plus sjálfskiptur kostar aðeins 4.390.000 kr. Nú á enn betra verði FÓLK 27 manna hópur nemenda við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands tók á dögunum þátt í alþjóðlegu hönnunar- keppninni Formula Student sem fram fór á Silverstone-kappaksturs brautinni í Bretlandi. Hópurinn hefur síðustu tvö ár hannað raf- knúinn kappakstursbíl en þetta var í annað sinn sem hann tekur þátt í keppninni. „Við gerðum bílinn í raun alveg upp á nýtt fyrir keppnina í ár, það var svo margt sem þurfti að bæta. Við lögðum mikla vinnu í þetta og bíllinn í ár er algjör stökkbreyting frá bílnum í fyrra,“ segir Ari Elísson, meistara- nemi í iðnaðarverkfræði og einn liðsmanna. Alls 20 úr hópnum fóru til Bretlands til að taka þátt í keppninni sem skiptist í tvo hluta. Í þeim fyrri er hönnun bílsins kynnt sem og hugmyndafræði og viðskiptalíkan hópsins. Í seinni hlutanum er aksturshæfni bílsins metin en til að fá að taka þátt í þeim hluta þurfa bílarnir að standast öryggispróf. Lið frá 110 skólum tóku þátt að þessu sinni en keppnin er haldin árlega. Svo fór að raf- kerfi íslenska bílsins stóðst ekki öryggispróf og fékk liðið því ekki að taka þátt í aksturs- hlutanum. Ari segir flesta meðlimi liðsins vera að útskrifast úr námi og því taki nýr hópur við bílnum. Bæta þurfi nokkur smá- atriði en bíllinn sé þó miklu full komnari en bíll síðasta árs. Segist Ari eiga von á því að með lagfæringum í vetur standist hann allar kröfur á næsta ári. - mþl Hópur íslenskra háskólanema tók nýverið þátt í hönnunarkeppninni Formula Student í Bretlandi í annað sinn: Háskólanemar smíðuðu kappakstursbíl frá grunni ÍSLENSKA LIÐIÐ Alls 20 úr hópnum ferðuðust með bílnum á Silverstone-kappaksturbrautina í Bretlandi. STJÓRNSÝSLA Um 407 milljóna króna tap verður af rekstri tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu á þessu ári miðað við óbreyttar forsendur. Þetta kemur fram í niðurstöðum úttektar sem ráðgjafafyrirtækið KPMG gerði á rekstri og skipulagi Hörpu fyrir eigendurna; ríkið og Reykjavíkurborg. Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra segir hal la- reksturinn alvarlegan. Hún úti- lokar ekki að tapið lendi að hluta á skattgreiðendum, þó reynt verði til þrautar að láta reksturinn bera sig. Katrín segir hallarekstur Hörpu skýrast af því að áætlanir hafi ekki gengið eftir. Um helmingurinn af tapi ársins er vegna vanáætlunar á fasteignagjöldum, en aðrir þættir vega einnig þungt, segir Katrín. Til dæmis sé rekstur á húsinu hærri en áætlað var, og tekjur af veitingasölu og bílastæðahúsi undir væntingum. Tekjur af tónlistarflutningi og menningarstarfsemi í húsinu hefur verið samkvæmt áætlun á árinu. Alls hafa 250 þúsund gestir sótt 367 tónleika og menningar- viðburði í húsinu. Tekjur af ráð- stefnuhaldi eru hins vegar langt undir áætlun. „Ég held að það sé ekki ólík- legt að við getum séð fram á meiri tekjur af ráðstefnuhaldi í fram- tíðinni. Sá bransi virðist vera skipulagður mjög langt fram í tímann, núna eru að koma inn bókanir fyrir árin 2016 og 2017. Svo við getum átt von á því að það gangi betur,“ segir Katrín. Halldór Guðmundsson tók við starfi forstjóra Hörpu í byrjun ágúst. Hans fyrsta verkefni verður að vinna fimm ára rekstrar áætlun fyrir húsið, og þar með leita leiða til að spara í rekstri og auka tekjur, segir Katrín. Reiknað er með að ný rekstraráætlun liggi fyrir í haust. Á sama tíma stendur til að kynna nýja eigendastefnu ríkis og Reykjavíkurborgar þar sem sett verða fram markmið eigendanna með rekstri Hörpu. Einnig stendur til að einfalda mjög fyrirkomulag rekstursins. Þegar einkaaðilar hófu undir- búning að byggingu og rekstri hússins stofnuðu þeir átta félög til að halda utan um rekstur mis- munandi eininga. Nú stendur til að færa reksturinn í eitt félag í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar. Katrín segir að með því muni nást ákveðin hagræðing, en mestu muni um aukið gagnsæi og betri stjórnarhætti eftir að reksturinn verður kominn í eitt félag. brjann@frettabladid.is Yfir 400 milljóna króna tap af rekstri Hörpu í ár Hallarekstur á Hörpu er alvarlegur og ekki útilokað að tapið lendi á skattgreiðendum segir menntamálaráð- herra. Stór hluti tapsins er til kominn vegna vanáætlaðra fasteignagjalda. Ráðstefnuhaldið fer hægt í gang. RÓLEG BYRJUN Tekjur af ráðstefnuhaldi í Hörpu eru langt undir áætlunum, og virðist sá hluti rekstrarins fara hægt af stað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEISTU SVARIÐ? 1. Hvað heitir bankastjóri Seðla- banka Evrópusambandsins? 2. Hvar fer Unglingalandsmót UMFÍ fram um helgina? 3. Hefur bensínverð á Íslandi fylgt þróun gengis og heimsmarkaðsverðs? SVÖRIN 1. Mario Draghi. 2. Á Selfossi 3. Já. Stígar í Þórsmörk kortlagðir Mikið verk hefur verið unnið við endurbætur á stígum í Þórsmörk í sumar. Samhliða hefur verið unnið að nákvæmri kortlagningu stíganna, sem eru samtals um 90 kílómetrar á lengd. Verkið er unnið í sjálfboða- vinnu. Til stendur að bæta merkingar á stígunum á næstu vikum. ÚTIVIST þúsund manns hafa sótt tónleika og menn- ingarviðburði í Hörpu. 250 NEYTENDUR Gríðarleg aukning varð á niðurhali í gegnum 3G-net Tals í júlí í kjölfar þess að fyrir- tækið lækkaði verð á þjónustunni. Viktor Ólason, forstjóri Tals, segir íslenska snjallsíma notendur vilja nota netið mikið í símum sínum og að þeir geri kröfu um að þjónustan sé ódýr. Í tilkynningu frá Tali kemur fram að niðurhal í gegnum 3G-net fyrirtækisins jókst um 250 prósent og hagnaðurinn tæp- lega fjórfaldaðist í mánuðinum. Tal hóf nýverið að bjóða 10 gíga- bæta niðurhal á mánuði fyrir 500 krónur sem er umtalsvert ódýrara en hjá öðrum símafyrir- tækjum samkvæmt íslenska tækniblogginu Símon.is. - mþl Tal býður 3G ódýrast: Notkun á 3G- neti eykst sífellt SNJALLSÍMI Aukin útbreiðsla snjallsíma hefur valdið mikilli aukningu í notkun 3G-netþjónustu. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.