Fréttablaðið - 04.08.2012, Blaðsíða 24
FÓLK|
draumur? „Ég væri til í að syngja á La Scala í
Mílanó. Og reyndar væri ég líka alveg til í að
syngja með Bono í U2,“ segir Dísella og hlær.
ÞRJÁR SYSTUR MEÐ TÓNLEIKA
Í vikunni ætla þær systur, Dísella, Ingibjörg og
Þórunn Lárusdætur að halda tónleika saman
í Hlégarði í Mosfellsbæ, nánar tiltekið næst-
komandi fimmtudag. „Þetta verða léttir og
skemmtilegir tónleikar. Okkur finnst svo gaman
að syngja saman og spila á trompetana þannig
að við ákváðum að láta af þessu verða,“ segir
Dísella og bætir hlæjandi við: „Af því það var
svo gríðarleg eftirspurn.“
Það hlýtur að vera allt annað að koma fram
með systrum sínum en óperusöngvurum í
New York en hver er munurinn? „Við erum svo
afslappaðar og fíflumst gjarnan á sviðinu. Við
erum alveg á sömu bylgjulengd svo það eru
allavega pottþétt tveir sem hlæja,“ segir hún og
hlær. „Við spiluðum mikið með pabba í gamla
daga og okkur finnst gaman að halda í lúðra-
blásturinn.“
Þær systur vonast til að sjá sem flesta á
fimmtudaginn kemur í Hlégarði í Mosfellsbæ og
lofa góðri skemmtun – bæði fyrir sig og aðra.
■ halla@365.is
HUGSAR HEIM
Dísellu langar til þess
að senda son sinn, Bjart
Lárus, í skóla á Íslandi.
GRÍNARAR
„Við erum svo
afslappaðar saman
og fíflumst gjarnan
á sviðinu. Við
erum alveg á sömu
bylgjulengd svo
það eru allavega
pottþétt tveir sem
hlæja.“
Dagskrá Barnahelgar í Vatns-firði hófst í gær með náttúru-skoðun. „Það verður þétt-
skrifuð dagskrá hjá okkur í dag
fyrir fjölskylduna í heild og líka fyrir
krakkana sem geta komið einir og
sér á vissa atburði,“ segir Linda Guð-
mundsdóttir, landvörður á sunnan-
verðum Vestfjörðum og skipuleggj-
andi hátíðarinnar.
Hún segir hugmyndina með há-
tíðinni vera þá að hvetja fólk til að
staldra við í friðlandinu í Vatnsfirði.
„Það eru margir sem koma og gista og
halda svo áfram til dæmis á Rauða-
sand eða Látrabjarg eftir eina nótt.
Fólk stoppar á tjaldsvæðinu hjá okkur
en fer ekkert út fyrir það. Það er svo
margt að sjá og hægt að gera í frið-
landinu. Fjölskyldur geta komið og
séð allar fallegu perlurnar og fræðst
betur um svæðið.“
Vatnsfjörður er friðlýst svæði. Með
friðlýsingunni er verið að reyna að
vernda náttúruna og dýralífið
en líka að fá fólk til
að koma og njóta
náttúrunnar og
svæðisins. „Þetta
er svolítið falið
svæði, rólegt og
kyrrlátt og mjög
fallegt. Það eru ekki
margir sem leggja leið sína
hingað en þeir sem koma
koma yfirleitt á hverju
ári. Við hvetjum þá sem
eru nú þegar á svæðinu eða á ferðinni
í kring að koma og taka þátt í dags-
kránni. Við vonumst líka til að heima-
fólk og fólk af sunnanverðum Vest-
fjörðum verði duglegt að mæta.“
Hátíðin er stíluð inn á fjölskyldur
og er engin skipulögð dagskrá á
kvöldin. „Við erum bara með sérstaka
barnadagskrá en ekki með neitt sér-
stakt skipulagt fyrir fullorðna fólkið.
Tilgangurinn með þessari hátíð er að
reyna að opna og kynna umhverfið,
söguna og jarðfræðina fyrir krökk-
unum á skemmtilegan hátt. Hægt
er að gista á tjaldsvæðinu við Hótel
Flókalund og þar er allt til alls, heitar
sturtur, veitingastaður, kaffihús, sund-
laug og fjörupottur,“ segir Linda.
Um miðjan dag í dag verður sög-
ustund við Gíslahelli en Gísli Súrsson
útlagi er talinn hafa falið sig í helli
sem er í enda fjarðarins. Sögð verður
sagan af Gísla og fá börnin að klifra
ofan í Gíslahelli sem er lítil og óvistleg
hola en góður felustaður. Eftir sög-
ustundina verður haldinn ratleikur.
Á morgun verður farið
í lautarferð við Lómat-
jörn þar sem landvörður
verður á svæðinu með
kíki og fuglahandbók.
Hann mun einnig fræða
gesti um Hrafna-Flóka
sem var landnámsmaður
í Vatnsfirði. Þá verða einnig farnar
daglegar fjölskyldugöngur í Surtar-
brandsgil. ■ lilja.bjork@365.is
ÞÉTT DAGSKRÁ UM BARNAHELGI
FJÖLSKYLDUVÆNT Nú um helgina verður haldin í fyrsta skipti hátíðin Barnahelgi í Vatnsfirði. Þar verður meðal annars boðið upp
á sögustundir, náttúruskoðun fyrir börn, ratleik og lautarferð. Hægt er að gista á tjaldsvæðinu við Hótel Flókalund.
FRIÐLAND
Vatnsfjörður við Ísa-
fjarðardjúp er frið-
lýst svæði þar sem
er mikið dýralíf og
gróðursælt. Brjáns-
lækur, þar sem ferjan
Baldur stoppar, er
í Vatnsfirði og því
hentugt að keyra á
Stykkishólm og taka
ferjuna yfir.
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Blómapottar Mikið úrval afblómapottum í
öl lum stærðum
og gerðum
SUMAR
ÚTSALA
GUY FIERI HEIMSÆKIR EINSTAKA VEITINGASTAÐI Í DINERS, DRIVE-INS & DIVES Á FOOD NETWORK | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á WWW.STOD2.IS
FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427