Fréttablaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
ÚTLENDINGAMÁL Kristín Völundardóttir, forstjóri
Útlendingastofnunar, segir markmið innanríkis-
ráðherra um sex mánaða hámarksafgreiðslutíma
mála aldrei munu nást fyrr en í fyrsta lagi í árslok
2013 – og þá að því gefnu að fjármagn fáist til að
ráða inn fleira fólk sem allra fyrst.
Ögmundur Jónasson lýsti þessu markmiði í við-
tali við Fréttablaðið á föstudaginn.
„Við erum nær þessu markmiði að því leytinu
til að það er búið að lýsa því yfir að það sé vilji
til að við fáum þessa peninga, en það eru engir
peningar komnir sem þýðir að við erum ekki búin
að auglýsa eða ráða. Það er alveg ljóst að þegar við
fáum peningana þá gerist þetta ekkert undir eins.
Við þurfum að þjálfa fólk upp þannig að ég sé ekki
fyrir að þetta verði komið í samt lag fyrr en síðla
árs 2013, jafnvel 2014,“ segir Kristín.
Allt ráðist þetta þó af því hvenær peningarnir
fáist. „Því lengur sem við þurfum að bíða eftir
þeim, því seinna verðum við búin að vinna niður
halann,“ segir hún.
Með því að ráða tvo lögfræðinga núna muni
málsmeðferðartíminn ekki nást niður í sex mánuði
nema á mjög löngum tíma, að óbreyttum fjölda
þeirra sem hingað koma – sem sé mjög ólíklegt –
kannski árið 2017 eða 2018.
- sh
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Fasteignir.is
veðrið í dag
30. júlí 2012
177. tölublað 12. árgangur
FASTEIGNIR.IS30. JÚLÍ 201230. TBL.
Heimili fasteignasala kynnir: Hraunteigur – vel skipulögð sérhæð ásamt bílskúr. Frábær staðsetning við Laugardalinn. Töluvert endurnýjuð eign.
E ignin skiptist í 131,8 fm íbúð á hæðinni, 4,2 fm geymslu í kjallara og 19,7 fm bílskúr. Heildarstærð eignarinnar er 155,7 fm.
Komið er inn í anddyri með flísum. Þá tekur við bjart hol með parketi á gólfi. Barnaherbergi með parketi. Rúmgott barnaherbergi með parketi og skápum. Rúmgott bjart hjónaherbergi með parketi og skápum. Eldhús með parketi á gólfi, vönduð eikarinnrétting, Siemens -tæki, borðkrókur. Baðher-bergi flísalagt í hólf og gólf, bað-kar með sturtu yfir, innrétting.Stór borðstofa með parketi, gengið út á svalir í suður. Björt rúmgóð stofa með parketi, opið er á milli stofanna.
Í kjallaranum er sérgeymsla með hillum og sameiginlegt þvotta-
hús. Innfelldur bílskúr með sér-bílastæði fyrir framan fylgir.Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2003, meðal annars eldhúsið, baðherbergið og gólfefni. Að sögn seljanda hefur rafmagn og dren einnig verið endurnýjað.Mjög góð staðsetning í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, Laugardalinn og alla þjónustu.Nánari upplýsingar eru veittar hjá Heimili, fasteignasölu sími 530-6500.
Hæð á góðum stað við Laugardalinn
Húsið stendur við Hraunteig og er vel skipulagt.
Borðstofan er rúmgóð.
Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Erla Dröfn
Magnúsdóttir
lögfræðingur
Ásdís Írena
Sigurðardóttir
skjalagerð
Ruth
Einarsdóttir
sölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali
Gústaf Adolf
Björnsson
lögg. fasteignasali
Finndu okkur
á Facebook
Rúnar GíslasonLögg. fasteignasali
audur@fasteignasalan.is
Viltu selja?Vegna mikillar sölu vantar mig 2ja og 3ja herbergja íbúðir í hverfum 101 og 105 Reykjavík. Ákveðnir kaupendur bíða eftir réttu eigninni.
Talaðu endilega við Auði í síma 824-7772 eða audur@fasteignasalan.is
KJARNA - ÞVERHOLTI 2 • 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI: 586 8080 • FAX: 586 8081
WWW.FASTMOS.IS
Einar Páll Kjærnestedlögg. fasteignasali.einar@fastmos.is
Lækjartún - 270 Mosfellsbær
Mjög fallegt 235,2 m2 einbýlis-hús á tveimur hæðum meðbílskúr ið
Álfhólsvegur 200
Save the Children á Íslandi
SÆKIR INNBLÁSTUR
HVERT SEM HÚN FERALLTAF AÐ LÆRA Þórey Magnúsdóttir, myndlistakona opnaði sýningu áSóloni á dögunum Á h i ili h
HEIMARÆKTAÐAR KRYDDJURTIRRæktun kryddjurta er skemmtileg og um leið bragð-góð leið til að lífga upp á eldhúsgluggann sem og matreiðsluna. Úrval kryddjurta sem hægt er að rækta er mjög fjölbreytt og er basilíka þar á meðal.
HUGGULEGT
Þóreyju finnst best að byrja daginn í fallega hvíta sófanum með útsýnið fyrir framan sig.MYND/ERNIR
NÝ BÓK
FRÁ
HUGLEIKI
Húsavíkurjógúrt
á tilboði
Aðdáendur gráta
Samband Kristen Stewart
og Roberts Pattinson hangir
á bláþræði.
popp 22
VÆTA V-TIL Í dag verður dálítil
rigning eða súld V-til en styttir
upp síðdegis. Stöku skúr S- og
A-til en bjartara N-lands. A eða
SA 3-8 m/s en að 10 m/s NA-til.
Hiti 10-20 stig.
VEÐUR 4
13
14
16
13
13
Forstjóri Útlendingastofnunar segir málshraða ekki munu aukast undir eins:
Ná markinu í fyrsta lagi í lok 2013
Við þurfum að þjálfa
fólk upp þannig að
ég sé ekki fyrir að þetta verði
komið í samt lag fyrr en síðla
árs 2013, jafnvel 2014.
KRISTÍN VÖLUNDARDÓTTIR
FORSTJÓRI ÚTLENDINGASTOFNUNAR
LÍF OG FJÖR Í LUNDÚNUM Það er óhætt að segja að það sé góð stemning í Lundúnaborg
þessa dagana enda standa Ólympíuleikarnir sem hæst. Þessir Ástralir gerðu sér í það minnsta dagamun í mið-
borginni í gær. Ragna Ingólfsdóttir badmintonkona hefur leik á leikunum í dag og þá keppir Eygló Ósk Gústafs-
dóttir í 200 metra fjórsundi. Sjá síðu 24. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Haraldur og Valdís unnu
Mikil dramatík var á
Íslandsmótinu í höggleik.
sport 26
DÝRALÍF Kanadískur maður var
heppinn að komast lífs af þegar
skot hljóp úr riffli hans þegar
hann var að eltast við mús.
Dale Whitmell, fjörutíu ára
gamall fjölskyldufaðir, reyndi
að kremja mús með skeftinu á
riffli sínum þegar hann gisti í
tjaldi á Wawa-svæðinu í Ontario.
Hann hafði hins vegar ekki gert
sér grein fyrir því að byssan var
hlaðin og varð því heldur brugðið
þegar skot hljóp úr byssunni og
straukst við enni hans.
Að sögn lögreglunnar á Wawa-
svæðinu slapp Whitmell með
skrekkinn. Hann var fluttur á
nærliggjandi sjúkrahús en var
útskrifaður stuttu síðar enda bara
með skrámur á enninu. Hann á
yfir höfði sér kæru fyrir gáleysis-
lega meðferð á skotvopni.
„Hann var mjög heppinn,“ var
haft eftir talsmanni lögreglunnar.
Ekki er vitað um afdrif músar-
innar.
Kanadabúi slapp ómeiddur:
Fékk í sig skot
á músaveiðum
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur
áform um að lengja fæðingar orlof
og hækka barnabætur á fjár lögum
næsta árs. Jóhanna Sigurðar dóttir
forsætisráðherra segir það hafa
verið til umræðu í ríkisstjórn
hvernig nýta eigi hugsanlegt svig-
rúm í ríkisfjármálum á næsta
fjárlagaári.
„Það er þrennt sem við erum með
augun á: barnabæturnar, fæðingar-
orlofið og vaxtabætur fyrir þá sem
eru í verstri stöðu að því er varðar
greiðsluvanda,“ segir Jóhanna.
Hún segir samstöðu um það í
ríkisstjórninni að barnafjölskyldur
fái forgang þegar færi gefst. Hún
bendir jafnframt á að stefnt sé að
því að ná jöfnuði í ríkisfjármálum
árið 2014. „Við höfum reynt að hlífa
velferðarmálunum eins og kostur er
í gegnum þessar þrengingar og náð
mjög miklum árangri. Við sjáum
fram á að það muni skýrast á næst-
unni hvort við getum gert eitthvað
í barnabótum og fæðingarorlofi.“
Barnabætur og fæðingarorlof
hafa lækkað í kjölfar kreppunnar.
Til marks um það höfðu hámarks-
greiðslur Fæðingaorlofssjóðs
lækkað um 235 þúsund krónur frá
því í lok árs 2008 þar til í upphafi
árs 2010 þegar greiðslurnar námu
300 þúsund krónum.
Guðbjartur Hannesson sagði í
apríl á þessu ári að hann byggist
við því að kynntar yrðu breytingar
á fæðingarorlofinu samhliða fjár-
lagafrumvarpi í haust.
Spurð hvort formleg vinna sé
hafin við þessar breytingar segir
Jóhanna: „Jú jú, hún hefur verið
í undirbúningi og það er farið að
leggja línur í því sem ég hef nefnt.
Ég geri ráð fyrir því að við sjáum
þessu stað í fjárlagafrumvarpinu
sem lagt verður fram í september.“
„Þá yrðu settir auknir fjár munir
í barnabætur og líka í hækkun á
greiðslum í fæðingarorlofi. Ég er
að vona að við getum stigið skref
áfram í þessu máli.“
Jóhanna segir ástæður þess að
barnafjölskyldur fái forgang vera
að þær eigi í mestum vand ræðum.
„Mesti vandinn er hjá stórum
barnafjölskyldum og það er frekar
greiðsluvandi heldur en skulda-
vandi sem hrjáir þær.“
- bþh / sjá síðu 13
Barnabætur og fæðingar-
orlofsgreiðslur hækkaðar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir vinnu hafna við að finna hærri barnabótum og fæðingaror-
lofsgreiðslum stað í nýjum fjárlögum. Barnafjölskyldur fá forgang þegar færi gefst til frekari útgjalda.
Upplifa vonleysi
Sólveig Jónsdóttir
rannsakaði hörmungarnar
í Bosníu og Hersegóvínu.
viðtal 10
þúsund krónur er
upphæðin sem
hámarksgreiðslur úr Fæðing-
arorlofssjóði hafa lækkað um
frá lokum árs 2008.
235
Einn af mið-
punktum sýningar
Studio Granda tekur þátt í
sýningunni New Nordic.
fólk 2