Fréttablaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 46
30. júlí 2012 MÁNUDAGUR30
„Ég lærði húsasmíði á sínum tíma
og hef í raun aldrei titlað mig
hönnuð – ég bara framkvæmi,“
segir Leifur Welding sem er í
dag einn vinsælasti innanhús-
hönnuður landsins. Leifur hefur
komið að útlitshönnun um tuttugu
veitingastaða á landinu og verður
ekki uppiskroppa með verkefni í
bráð.
„Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á hönnun og með
námi vann ég hjá fyrir-
tæki sem hét A. Karls-
son. Ég vann í hús-
gagnadeildinni sem
seldi aðallega til veit-
ingastaða og hótela.
Viðskipta vinirnir
spurðu mig ráða
varðandi hitt og þetta
og svo vatt þetta upp
á sig og allt í einu
var ég farinn
að hanna
heilu kaffihúsin,“ rifjar Leifur
upp. Hann hóf síðar nám við
Háskólann á Bifröst og á sama
tíma stofnaði hann hönnunar-
verslunina Saltfélagið ásamt
öðrum. Hann seldi hlut sinn í
versluninni árið 2007 og hefur
síðan þá helgað sig hönnunar-
starfinu.
Inntur eftir því hvað þurfi til að
veitingastaður virki segir
Leifur staðina standa
og falla með hug-
myndinni á bak við
þá. „Ég sest niður
með eigendunum
og saman vinnum
við að grunnhug-
mynd, svo er hannað
utan um hana. Maður
hannar í raun utan
um reksturinn,“ út-
skýrir Leifur og bætir
við að umhverfi veitinga-
staða skipti gesti nú næstum jafn
miklu máli og maturinn sjálfur.
Að hans sögn hefur mikil breyt-
ing orðið á veitingarekstri hér á
landi síðustu sjö árin og leggi fólk
mikinn metnað í innviði staðanna.
„Samkeppnin er orðin svo mikil
og þess vegna verða menn að hafa
staðina einstaka, bæði í mat og
umhverfi.“
Þegar Leifur er að lokum
spurður að því hvort hann verði
aldrei uppiskroppa með hug-
myndir er hann fljótur til svars:
„Ég hef í það minnsta ekki orðið
uppiskroppa ennþá,“ segir hann
hlæjandi. „Ég lifi og hrærist í
þessu og þetta er það skemmti-
legasta sem ég geri. Ég reyni
líka að ferðast mikið til að fá inn-
blástur og til að safna upplifun-
um.“ sara@frettabladid.is
GOTT Á GRILLIÐ
LEIFUR WELDING: ÉG HEF ALDREI TITLAÐ MIG HÖNNUÐ
Útlitið skiptir nánast jafn
miklu máli og maturinn
VINSÆLL HÖNN-
UÐUR
Leifur Welding er
einn vinsælasti
innanhúshönn-
uður landsins
í dag. Hann
hefur hannað
útlit yfir fimmtán
veitingastaða.
Meðal þeirra staða sem Leifur
hefur hannað eru Fiskfélagið,
Sjávarkjallarinn, Grillmarkaðurinn,
UNO, SushiSamba, Roadhouse,
Lifandi markaður, Geysir Hauka-
dal, Sushigryfjan, Kaffi Atlanta og
hinn nýuppgerði Fjalaköttur. Hann
hannaði einnig Steikhúsið við
Tryggvagötu sem opnar bráðlega.
VINSÆLIR STAÐIR
SEM LEIFUR HANNAR
Aníta Hirlekar útskrifaðist með BA í fata-
hönnun frá virta listaháskólanum Central
Saint Martins í London í síðustu viku og hefur
fengið inngöngu í eftirsóknarvert meistara-
nám hans. Sama nám hefur verið stökkpallur
fyrir þekkta hönnuði á borð við Alexander
McQueen.
„Við vorum fjórar úr bekknum sem komust
inn af sautján sem sóttu um,“ segir Aníta og
telur að 10 til 15 grunnnámsnemar skólans
hafi komist inn í meistaranámið. Fyrir utan
McQueen námu John Galliano, Paul Smith,
Sarah Burton og Stella McCartney við
skólann.
Aníta útskrifaðist af fatahönnunarbraut
með áherslu á mynstur. Útskriftarlínan er
þó ekki byggð á þrykkingu mynsturs heldur
þæfði hún blúndu, ull og ýmis efni saman.
Grunnnámið náði yfir fjögur ár og fór
eitt þeirra í starfsnám fyrir tískuhús
Christian Dior og Diane Von Fursten-
berg.
Útskriftarsýningin fór fram í júní og
fékk hún að taka þátt í stærri sýningu.
„Allir sýndu í skólanum en daginn eftir
voru ég og 42 aðrir valdir úr þessum
rúmlega 140 manna hópi til að sýna á
flottari tískusýningu fyrir fjöl-
miðla. Það komu eiginlega allir
þangað, eins og Vogue, Style.com
og Catwalking.com,“ segir hún.
Flíkur Anítu hafa vakið
nokkra athygli. Veftíma-
ritið Afflante birti umfjöll-
un og Rough Online notaði
kjól í myndaþætti sínum The
Graduate. „Það eru fleiri verkefni á dag-
skrá. Þessi stílisti hefur látið mynda
aðra kjóla og þeir birtast í mynda-
tökum. Tímaritið ID hefur einnig
verið í sambandi og fékk kjól í
myndatöku en ég veit ekki hvað þeir
gera,“ segir hún.
Aníta sýnir næstu útskriftarlínu í
febrúar 2014. „Útskriftar nemar
meistaranámsins sýna oft á
London Fashion Week og ég
stefni allavega á það,“ segir
hún. - hþt
Fetar í fótspor Alexanders McQueen
„Mér finnst best að grilla
heimatilbúna hamborgara. Ég
set meðal annars jalapeno-ost,
chilli-pipar og beikonkex í hakkið
til að gera þá sterka og góða. Svo
hef ég kartöflur í ofni með.“
Ólafur Halldór Ólafsson, ritstjóri tónlistar-
síðunnar Straum.is.
ANÍTA hefur vakið nokkra athygli
fyrir útskriftarlínu sína frá Central
Saint Martins og fengið inn-
göngu í meistaranám skólans.
Heilsueldhúsið
Við berum út sögur af frægu fólki
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Birtingur treystir okkur fyrir
öruggri dreifingu á Séð og heyrt
B
ra
n
de
n
bu
rg
BESTU BROTIN
ÚR ÞÁTTUM FM 957
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
„Það er mjög skemmtilegt að
takast á við þá ábyrgð að vera
fyrsta kona stjórnarinnar. Í
flestum löndum eru kvikmynda-
tökumenn karlkyns en með
hverju árinu eykst fjöldi kvenna,
það er kvikmyndatökukvenna, í
þessu skemmtilega starfi,“ segir
kvikmyndatöku konan Birgit Guð-
jónsdóttir sem braut blað í sögu
Sambands evrópskra kvikmynda-
tökumanna í febrúar þegar hún
var kjörin fyrst kvenna í stjórn
félagsins frá upphafi.
Sambandið ber heitið European
Federation of Cinematographers
og er skammstafað IMAGO. Birgit
var kjörin fyrir BVK, félag kvik-
myndatökumanna í Þýskalandi.
Hún er einnig meðlimur IKS,
félags íslenskra kvikmyndatöku-
stjóra.
Birgit fæddist á Íslandi og ólst
hér upp til 7 ára aldurs. Þá fór hún
á flakk en leitaði til Íslands á ung-
lingsárunum. Fljótt fór hún aftur
á vit ævintýranna sem leiddu
til alþjóðlegra starfa við kvik-
myndatöku. Nú hefur hún búið í
rúman áratug í Berlín og kennir
við helstu kvikmyndaskóla Þýska-
lands. Hún hefur kvikmyndað
bæði kvikmyndir og heimilda-
mynd og unnið að stórmyndum á
borð við Goodbye Lenin og The
Bourne Supremacy. Þá kvik-
myndaði hún nokkra þætti Lög-
regluhundsins Rex og hlaut Gullna
túlípanann á kvikmyndahátíðinni
í Istanbúl í Tyrklandi í fyrra fyrir
kvikmyndatöku á þarlendu kvik-
myndinni Our Grand Depair.
-hþt
Fyrst kvenna í stjórn IMAGO
KVIKMYNDATÖKUKONA Birgit hefur látið til sín taka á sviði kvikmyndatöku undan-
farin ár og myndað fjölda kvikmynda og heimildamynda.