Fréttablaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 30. júlí 2012 13 Forkólfar Sjálfstæðis flokksins rifja nú upp frjálshyggjufræði sín og boða lækkun skatta á ein- staklinga og fyrirtæki á sama tíma og sligandi reikningar falla á ríkissjóð sem rekja má til banka- hrunsins. Engu má hlífa við niður- skurði segir Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, og vísar þar til nærri 50 milljarða króna kostn- aðar í ríkisreikningi sem fellur á ríkissjóð í eitt skipti vegna falls SpKef og tapreksturs Byggða- stofnunar og Nýsköpunarsjóðs á undanförnum árum. Það er einkar hollt fyrir sjálfstæðismenn að hafa hugfast hverjir báru mesta ábyrgð á því tjóni sem almenningur ber nú vegna SpKef. Bjarni sneiðir hjá öllu sem dregur tennurnar úr röksemdum hans. Það er sjálfsagt að nefna það við hann að um þessar mundir mælist 0,7 % verðhjöðnun hér á landi samkvæmt mælingum Hag- stofunnar. Það eru góð tíðindi fyrir heimili og fyrirtæki í landinu því við það lækkar verðbólga yfir tólf mánaða skeið úr 5,4 % í 4,6%. Svo mega Bjarni flokksfor maður og aðrir úrtölumenn hafa það hug- fast að atvinnuleysi er um eða undir 5 prósentum samkvæmt nýju mati Vinnumálastofnunar og Hagstofunnar. Slíkur er vöxturinn í hagkerfinu þrátt fyrir meinta skattaáþján ríki stjórnarinnar, að atvinnuleysið er nú með því minnsta í allri Evrópu og þegar komið niður að þeim stað sem ríkis stjórnin taldi að það yrði í lok árs 2013 samkvæmt yfirlýs- ingu með stöðugleikasáttmála sem gerður var við aðila vinnu- markaðarins árið 2009. Framtöl og önnur frumgögn skattayfirvalda sýna að vaxta- kostnaður heimilanna vegna hús- næðisskulda var meira en 10% lægri í fyrra en árið áður. Auk þess sýna sömu gögn að tekjur heimil- anna voru að jafnaði 8 til 9 prósent- um hærri í fyrra en árið áður. Þetta kemur svo ágætlega heim og saman við þá staðreynd að van- skil lána minnka hröðum skrefum. Síðari hluta árs 2010 voru þau 22% en voru tæp 13% í lok mars á þessu ári. Niðurskurðarstefna í öngstræti Það má líka halda því til haga sem fjármálaráðherra hefur þegar látið koma fram um eign ríkisins í Landsvirkjun. Varúðarsjónarmið ráða því að bókfært verð eignar- hlutar ríkisins í orkufyrir tækinu er liðlega 60 milljarðar króna en skráð eigið fé Landsvirkjunar losar engu að síður 200 milljörðum króna. Þykir sjálfstæðismönnum ekki gott að þarna skuli leynast 140 milljarðar í almannaeigu þótt ekki séu þeir bókfærðir? Ætli forysta Sjálfstæðisflokks- ins afneiti því sem „óþægilegri staðreynd“ að allar spár sýna að landsframleiðslan aukist nálægt 3% hér á landi á þessu ári? Breski Íhaldsflokkurinn, sem beitir niður- skurðar- og aðhaldsstefnu þeirri sem sjálfstæðismenn boða, á í erfið leikum eftir að tíðindi bárust um 0,7 % samdrátt landsfram- leiðslunnar. Sérfræðingar óttast að þetta verði til þess að lánshæfis- mat Breta lækki og Cameron for- sætisráðherra viðurkennir í fjöl- miðlum að niðurskurðarstefnan, sem sætir vaxandi gagnrýni, hafi ekki borið tilætlaðan árangur. Átökin um skiptingu gæðanna Gegn hatrammri baráttu Lands- sambands íslenskra útvegs- manna og Sjálfstæðisflokksins tókst snemmsumars að leiða í lög hækkun veiðigjalda fyrir afnot af ríkulegum auðlindum í eigu þjóðarinnar. Í heildina verður gjaldið 13 til 15 milljarðar króna á næsta ári. Það er ágætt fyrir kjós- endur að vita að margir ráðamenn Sjálfstæðisflokksins hafa strengt þess heit að láta það verða sitt fyrsta verk að afnema þetta gjald komist þeir til valda. Nú vill svo til að útgerðin hagnaðist vel á falli krónunnar sem kostaði almenning í landinu 20 til 30 prósenta kaup- máttarrýrnun í kjölfar hrunsins. Svo vill líka til að þær vaxta bætur, sem greiddar verða heimilunum í landinu í vikunni, nema svipaðri upphæð og það veiðigjald sem lagt hefur verið á sjávarútveg- inn. Um 18 þúsund fjölskyldur fá sem nemur 30 þúsund krónum á mánuði í vaxtabætur og 6 þúsund til viðbótar fá allt að 50 þúsund krónum á mánuði. Þörfin fyrir vaxta bæturnar minnkar eftir því sem við vinnum okkur hraðar út úr kreppunni. Svigrúm til að liðsinna barnafjöl- skyldum Við vitum vel að enn kreppir skórinn sums staðar og eftir því sem útgjaldaþörfin dregst saman, til dæmis vegna minnkandi atvinnuleysis, skapast meira svig- rúm til þess að aðstoða þá sem enn eiga um sárt að binda fjár- hagslega. Við hvert prósentustig sem atvinnuleysi dregst saman um minnka útgjöld atvinnuleys- istryggingasjóðs um 3 milljarða króna. Þannig hefur ríkisstjórnin uppi áform um að auka stuðning við barnafjölskyldur með hækkun barnabóta. Reynslan hefur kennt okkur að það er markviss aðgerð sem nær til ungra skuldugra fjöl- skyldna með börn á framfæri. Sömuleiðis er ætlunin að hækka fæðingarorlofsgreiðslur og lengja fæðingarorlofið í áföngum. Formaður Sjálfstæðisflokksins lætur hafa eftir sér að við höfum ekkert val um að skera niður. En fólkið í landinu hefur val um það hvort það kýs yfir sig grímulausa frjálshyggjuna aftur sem sér fátt annað til ráða en miskunnar- lausan niðurskurð velferðarinnar og ívilnun fyrir þá sem best eru settir í samfélaginu með ríflegri skattalækkun. En landsmenn hafa nú kynnst annarri stefnu en fram kemur í margtuggðu stefi frjálshyggju- manna um niðurskurð hjá hinu opinbera og einkavæðingu. Það er lífskjarasókn sem byggist á blönduðum aðgerðum. Þar er áhersla lögð á jöfnuð og varðstöðu um velferðarkerfið. Ætli forysta Sjálfstæðis- flokksins af- neiti því sem „óþægilegri staðreynd“ að allar spár sýna að landsframleiðslan aukist nálægt 3% hér á landi á þessu ári? Línurnar skýrast Stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra AF NETINU Spinn, spinn á miðju sumri [...] Ríkisstjórnin sem skilar af sér næsta vor hefur ekki búið við vinsældir – en hins vegar skilað miklum árangri sem nú er að verða alveg heiðskír. Fyrir fram er full ástæða til að ætla að sá árangur nýtist jafnaðarmönnum til að bjóða kjósendum nýjan samning um samstarf. Þar skiptir auðvitað máli hvaða áherslur verða uppi við hjá kjósendum og öðrum framboðum. Mér sýnist núna að stóra spurningin ætli að verða um markmið og leiðir um efnahag og lífskjör, jöfnuð, vel- ferð og skatta. Þar þarf Samfylkingin engu að kvíða. Vonandi snúast kosningarnar líka um atvinnustefnu og græna hagkerfið, um tækifæri og hættur í umhverfismálum, um menntir og menningu – ekki heldur þar þurfa jafnaðarmenn að skammast sín. blog.pressan.is/mordur Mörður Árnason Fiskað í gruggugu vatni Það eru harðar kosningar í vændum næsta vor. Maður verður að vona að enginn flokkur ætli að fara að gera út á andúð á flóttamönnum og útlendingum eins og hér er boðað. Að lýsa þessu sem “pólitísku átakamáli” er mjög kaldrifjað – virðist ekki gert í öðrum tilgangi en að fiska eftir atkvæðum í gruggugu vatni. En þarna er gefinn ákveðinn tónn – sá sami og í ógeðfelldum leiðara Morgunblaðsins um daginn – það er óskandi að þeir verði ekki fleiri sem spinna þennan þráð. Og svo má spyrja hvað orðið „rétthugsun“ merkir í þessu sambandi – er það kannski samheiti við mannúð? eyjan.pressan.is/silfuregils Egill Helgason

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.