Fréttablaðið - 30.07.2012, Page 13
MÁNUDAGUR 30. júlí 2012 13
Forkólfar Sjálfstæðis flokksins rifja nú upp frjálshyggjufræði
sín og boða lækkun skatta á ein-
staklinga og fyrirtæki á sama
tíma og sligandi reikningar falla á
ríkissjóð sem rekja má til banka-
hrunsins. Engu má hlífa við niður-
skurði segir Bjarni Benediktsson,
formaður flokksins, og vísar þar
til nærri 50 milljarða króna kostn-
aðar í ríkisreikningi sem fellur á
ríkissjóð í eitt skipti vegna falls
SpKef og tapreksturs Byggða-
stofnunar og Nýsköpunarsjóðs á
undanförnum árum. Það er einkar
hollt fyrir sjálfstæðismenn að hafa
hugfast hverjir báru mesta ábyrgð
á því tjóni sem almenningur ber nú
vegna SpKef.
Bjarni sneiðir hjá öllu sem
dregur tennurnar úr röksemdum
hans. Það er sjálfsagt að nefna
það við hann að um þessar mundir
mælist 0,7 % verðhjöðnun hér á
landi samkvæmt mælingum Hag-
stofunnar. Það eru góð tíðindi fyrir
heimili og fyrirtæki í landinu því
við það lækkar verðbólga yfir tólf
mánaða skeið úr 5,4 % í 4,6%.
Svo mega Bjarni flokksfor maður
og aðrir úrtölumenn hafa það hug-
fast að atvinnuleysi er um eða
undir 5 prósentum samkvæmt
nýju mati Vinnumálastofnunar og
Hagstofunnar. Slíkur er vöxturinn
í hagkerfinu þrátt fyrir meinta
skattaáþján ríki stjórnarinnar,
að atvinnuleysið er nú með því
minnsta í allri Evrópu og þegar
komið niður að þeim stað sem
ríkis stjórnin taldi að það yrði í
lok árs 2013 samkvæmt yfirlýs-
ingu með stöðugleikasáttmála
sem gerður var við aðila vinnu-
markaðarins árið 2009.
Framtöl og önnur frumgögn
skattayfirvalda sýna að vaxta-
kostnaður heimilanna vegna hús-
næðisskulda var meira en 10%
lægri í fyrra en árið áður. Auk þess
sýna sömu gögn að tekjur heimil-
anna voru að jafnaði 8 til 9 prósent-
um hærri í fyrra en árið áður.
Þetta kemur svo ágætlega heim
og saman við þá staðreynd að van-
skil lána minnka hröðum skrefum.
Síðari hluta árs 2010 voru þau 22%
en voru tæp 13% í lok mars á þessu
ári.
Niðurskurðarstefna í öngstræti
Það má líka halda því til haga sem
fjármálaráðherra hefur þegar
látið koma fram um eign ríkisins
í Landsvirkjun. Varúðarsjónarmið
ráða því að bókfært verð eignar-
hlutar ríkisins í orkufyrir tækinu
er liðlega 60 milljarðar króna en
skráð eigið fé Landsvirkjunar
losar engu að síður 200 milljörðum
króna. Þykir sjálfstæðismönnum
ekki gott að þarna skuli leynast 140
milljarðar í almannaeigu þótt ekki
séu þeir bókfærðir?
Ætli forysta Sjálfstæðisflokks-
ins afneiti því sem „óþægilegri
staðreynd“ að allar spár sýna að
landsframleiðslan aukist nálægt
3% hér á landi á þessu ári? Breski
Íhaldsflokkurinn, sem beitir niður-
skurðar- og aðhaldsstefnu þeirri
sem sjálfstæðismenn boða, á í
erfið leikum eftir að tíðindi bárust
um 0,7 % samdrátt landsfram-
leiðslunnar. Sérfræðingar óttast
að þetta verði til þess að lánshæfis-
mat Breta lækki og Cameron for-
sætisráðherra viðurkennir í fjöl-
miðlum að niðurskurðarstefnan,
sem sætir vaxandi gagnrýni, hafi
ekki borið tilætlaðan árangur.
Átökin um skiptingu gæðanna
Gegn hatrammri baráttu Lands-
sambands íslenskra útvegs-
manna og Sjálfstæðisflokksins
tókst snemmsumars að leiða í lög
hækkun veiðigjalda fyrir afnot
af ríkulegum auðlindum í eigu
þjóðarinnar. Í heildina verður
gjaldið 13 til 15 milljarðar króna á
næsta ári. Það er ágætt fyrir kjós-
endur að vita að margir ráðamenn
Sjálfstæðisflokksins hafa strengt
þess heit að láta það verða sitt
fyrsta verk að afnema þetta gjald
komist þeir til valda. Nú vill svo
til að útgerðin hagnaðist vel á falli
krónunnar sem kostaði almenning
í landinu 20 til 30 prósenta kaup-
máttarrýrnun í kjölfar hrunsins.
Svo vill líka til að þær vaxta bætur,
sem greiddar verða heimilunum í
landinu í vikunni, nema svipaðri
upphæð og það veiðigjald sem
lagt hefur verið á sjávarútveg-
inn. Um 18 þúsund fjölskyldur fá
sem nemur 30 þúsund krónum á
mánuði í vaxtabætur og 6 þúsund
til viðbótar fá allt að 50 þúsund
krónum á mánuði. Þörfin fyrir
vaxta bæturnar minnkar eftir því
sem við vinnum okkur hraðar út úr
kreppunni.
Svigrúm til að liðsinna barnafjöl-
skyldum
Við vitum vel að enn kreppir
skórinn sums staðar og eftir því
sem útgjaldaþörfin dregst saman,
til dæmis vegna minnkandi
atvinnuleysis, skapast meira svig-
rúm til þess að aðstoða þá sem
enn eiga um sárt að binda fjár-
hagslega. Við hvert prósentustig
sem atvinnuleysi dregst saman
um minnka útgjöld atvinnuleys-
istryggingasjóðs um 3 milljarða
króna. Þannig hefur ríkisstjórnin
uppi áform um að auka stuðning
við barnafjölskyldur með hækkun
barnabóta. Reynslan hefur kennt
okkur að það er markviss aðgerð
sem nær til ungra skuldugra fjöl-
skyldna með börn á framfæri.
Sömuleiðis er ætlunin að hækka
fæðingarorlofsgreiðslur og lengja
fæðingarorlofið í áföngum.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
lætur hafa eftir sér að við höfum
ekkert val um að skera niður. En
fólkið í landinu hefur val um það
hvort það kýs yfir sig grímulausa
frjálshyggjuna aftur sem sér
fátt annað til ráða en miskunnar-
lausan niðurskurð velferðarinnar
og ívilnun fyrir þá sem best eru
settir í samfélaginu með ríflegri
skattalækkun.
En landsmenn hafa nú kynnst
annarri stefnu en fram kemur í
margtuggðu stefi frjálshyggju-
manna um niðurskurð hjá hinu
opinbera og einkavæðingu. Það
er lífskjarasókn sem byggist á
blönduðum aðgerðum. Þar er
áhersla lögð á jöfnuð og varðstöðu
um velferðarkerfið.
Ætli forysta
Sjálfstæðis-
flokksins af-
neiti því sem „óþægilegri
staðreynd“ að allar spár
sýna að landsframleiðslan
aukist nálægt 3% hér á
landi á þessu ári?
Línurnar skýrast
Stjórnmál
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
AF NETINU
Spinn, spinn á miðju sumri
[...] Ríkisstjórnin sem skilar af sér
næsta vor hefur ekki búið við
vinsældir – en hins vegar skilað
miklum árangri sem nú er að verða
alveg heiðskír. Fyrir fram er full
ástæða til að ætla að sá árangur
nýtist jafnaðarmönnum til að bjóða
kjósendum nýjan samning um
samstarf. Þar skiptir auðvitað máli
hvaða áherslur verða uppi við hjá
kjósendum og öðrum framboðum.
Mér sýnist núna að stóra spurningin
ætli að verða um markmið og leiðir
um efnahag og lífskjör, jöfnuð, vel-
ferð og skatta. Þar þarf Samfylkingin
engu að kvíða. Vonandi snúast
kosningarnar líka um atvinnustefnu
og græna hagkerfið, um tækifæri
og hættur í umhverfismálum,
um menntir og menningu – ekki
heldur þar þurfa jafnaðarmenn að
skammast sín.
blog.pressan.is/mordur
Mörður Árnason
Fiskað í gruggugu vatni
Það eru harðar kosningar í
vændum næsta vor. Maður verður
að vona að enginn flokkur ætli
að fara að gera út á andúð á
flóttamönnum og útlendingum
eins og hér er boðað. Að lýsa
þessu sem “pólitísku átakamáli” er
mjög kaldrifjað – virðist ekki gert
í öðrum tilgangi en að fiska eftir
atkvæðum í gruggugu vatni. En
þarna er gefinn ákveðinn tónn –
sá sami og í ógeðfelldum leiðara
Morgunblaðsins um daginn – það
er óskandi að þeir verði ekki fleiri
sem spinna þennan þráð. Og svo
má spyrja hvað orðið „rétthugsun“
merkir í þessu sambandi – er það
kannski samheiti við mannúð?
eyjan.pressan.is/silfuregils
Egill Helgason