Fréttablaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 31
| FÓLK | 3HEIMILI
Allir ættu að kannast við Arne Jacobsen, danska arkitektinn og vöruhönnuðinn sem hannað
hefur þekktustu stóla heims.
Arne var gyðingur, fæddur árið
1902 í Kaupmannahöfn. Eftir mennta-
skóla ætlaði hann sér að verða list-
málari en faðir hans hvatti hann til
þess að fara í Konunglega danska
listaháskólann að læra arkitektúr. Í
skólanum skaraði Arne fram úr og
vann til nokkurra verðlauna á meðan
hann var enn nemandi.
Í seinni heimsstyrjöldinni neyddist
Arne til þess að flýja Danmörku yfir til
Svíþjóðar, þar sem hann var í
felum í tvö ár og náði ekkert
að hanna á meðan. Eftir það
byrjaði Arne að blómstra.
Hann hannaði SAS-hótelið
í Kaupmannahöfn, danska
þjóðarbankann (Danmarks
Nationalbank) og margar fleiri
byggingar. Þekktastur er hann þó
fyrir hönnun sína á húsgögnum en hann
hannaði einn frægasta stól veraldar,
Eggið. Fleiri frægir stólar eftir hann eru
Svanurinn, Sjöan og Gíraffinn. Sjöan
er sá stóll sem flestar eftirlíkingar eru
til af í öllum heiminum og segir það til
um hvað 57 ára gömul hönnun Arne er
tímalaus.
HÖNNUN SEM STENST
TÍMANS TÖNN
TÍMALAUS HÖNNUN Arne Jacobsen er einn þekktasti hönnuður allra tíma.
Stólarnir hans eru enn í dag frægustu stólar heimsins.
ARNE
JACOBSEN
Einn virtasti
arkitekt og
hönnuður sem
sögur fara af.
■ VINSÆLT
Hortensíur hafa verið mikið í tísku undanfarið, jafnt í skreytingum
sem til prýði heima við. Hortensíur eru sérstaklega vinsælar í brúð-
kaupsskreytingar. Þær lifa utanhúss á
sumrin. Hægt er að fá þær í mismun-
andi litum en bláar og skær grænar
hafa mest verið notaðar í skreyt-
ingar. Hortensíur voru stofublóm
á ís lenskum heimilum í áratugi. Á
undanförnum árum hefur blómarækt
í stofum minnkað verulega, en þess
meira eru blómin höfð til skrauts á
pallinum.
Borð íslensk-ameríska hönnuðarins Chucks Mack verður aðalsmerki skrif-stofuhúsgagnalínu Design House Stock-
holm fyrir heimili en fyrirtækið sérhæfir sig
í norrænni samtímahönnun á húsgögnum,
ljósum, fatnaði og borðbúnaði.
Leiðir Chucks og Design House Stockholm
lágu saman á DesignMatch, sem fer fram ár
hvert í tengslun við HönnunarMars. Hönnun
hans vakti athygli Anders Färdig, eiganda og
forstjóra Design House Stockholm, og Piu
Karlsson, framkvæmdastjóra vöruþróunar
fyrirtækisins. „Ég hef alltaf tekið þátt í Design-
Match en það er vettvangur sem reynist
hönnuðum sem vilja koma sér á framfæri vel.
Forsvarsmönnum Design House Stokkholm
leist vel á það sem ég var að gera og fannst
það passa inn skrifstofuhúsgagnalínu fyrir-
tækisins. Mér líkar hugmyndafræði þeirra
vel og lít á þetta sem virkilega gott tækifæri,“
segir Chuck. Í haust hefst nánari vöruþróun
en borðið kemur opinberlega á markað fyrri
hluta árs 2014. Chuck heldur þó réttinum til
að gera sérútgáfur á hönnuninni hér heima.
Þetta er langt frá því að vera fyrsta rósin í
hnappagat Chucks. Hann er hönnuður hins
þekkta Giraffi-stóls og árið 2008 hlaut hann
hin virtu Red Dot-verðlaun fyrir borðið Table
29. Chuck handsmíðar ætíð frumgerðir verka
sinna og sömuleiðis húsgögn eftir pöntun.
Samningur hans við Design House Stockholm
þykir gott dæmi um ágæti DesignMatch.
„Kaupstefna Hönnunarmiðstöðvar og
Norræna hússins, DesignMatch, hefur á fáum
árum sannað tilveru sína. Þetta módel sem
við notum virðist vera nokkuð einstakt og
bæði kaupendur og hönnuðir kunna vel við
fyrirkomulagið. Þessi samningur er mjög gott
dæmi um það og merkilegur fyrir margra
hluta sakir, ekki síst fyrir hve stórt og áhrifa-
mikið Design House Stockholm er í raun,“
segir verkefnastjóri HönnunarMars Greipur
Gíslason. ■ vera@365.is
VERÐUR
AÐALSMERKI
SAMNINGUR Í HÖFN Íslensk-ameríski hönnuð-
urinn Chuck Mack hefur undirritað samning við
sænska fyrirtækið Design House Stockholm um
framleiðslu á skrifborðinu Fákar.
CHUCK MACK
HANDSMÍÐAR ALLAR
FRUMGERÐIR Hér má
sjá handsmíðaða frum-
gerð borðsins
TÍSKUBLÓMIÐ
Hortensíur eru vinsælar í brúkaup og heima við.
Dolmio pastasósan er 100% náttúruleg. Hver
krukka inniheldur 10 safaríka tómata og ítölsk
krydd. Í Dolmio pastasósum eru engin aukaefni.
Hvenær er þinn DOLMIO dagur?
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
2
8
7
7
EINSTAKT
„Þetta módel
sem við notum
virðist vera nokkuð
einstakt og bæði
kaupendur og
hönnuðir kunna vel
við fyrirkomulagið.“