Fréttablaðið - 30.07.2012, Síða 10

Fréttablaðið - 30.07.2012, Síða 10
30. júlí 2012 MÁNUDAGUR10 Sunny 8 No toe Sokkabuxur Tálausar Þunnar Sólbrúnt útlit fullkomnar í sandalana/bandaskó FRÉTTAVIÐTAL: Sólveig Jónsdóttir sérfræðingur í þjóðernishyggju og þjóðernisátökum „Þeir eru alltaf að finna fleiri graf- ir,” segir Sólveig Jónsdóttir, blaða- maður á Nýju lífi, sem dvaldist í Bosníu og Hersegóvínu í maí. Hún er stjórnmálafræðingur með meistaragráðu í þjóðernishyggju og þjóðernisátökum frá Edinborgar- háskóla og lagði sérstaka áherslu á þjóðernisátök í námi sínu. Hún lærði því mikið um Bosníustríðið. „Mig langaði að sjá þetta sjálf, því ég hef lesið svo mikið og skoðaði þetta mikið í náminu. Maður heyrir ekkert af þessu í fréttunum núna.“ Bosníustríðið geisaði frá 1992 til 1995 og kostaði yfir hundrað þús- und manns lífið. Eftir að stríðinu lauk var 32 þúsunda enn saknað. Vilja geta grafið eitthvað Þegar Sólveig fór út í maí var ekki verið að vinna að uppgreftri úr fjöldagröfum, en hún segir þó alltaf einhverja vinnu í gangi sem tengist Bosníustríðinu. „Í júlí á hverju ári eru þeir jarðsettir sem borin hafa verið kennsl á yfir árið og undir- búningur fyrir það var í fullum gangi þegar ég var þarna.“ Í ár voru jarðsettar líkamsleifar 520 manna sem myrtir voru í Srebrenica fyrir sautján árum. Nú hafa verið borin kennsl á 6.800 lík. „Sumir vilja bara fá eitthvað til að grafa, þó það sé bara eitt bein. Svo finnst kannski eitthvað meira seinna og þá þarf að opna grafirnar aftur. Þetta er ótrúlega skrítið og það er mjög áhrifaríkt að vera þarna,“ segir Sólveig. Hún segist þó hafa átt í erfiðleikum með að ná utan um aðstæðurnar. „Maður er þarna í mjög sorglegum kringum- stæðum oft, til dæmis í fjöldagraf- reit þar sem líkamsleifar fólks eru, þegar kona segir manni frá því að hún hafi misst alla. Misst syni sína, manninn sinn og bróður sinn. Ég á bróður, pabba og mága, maður nær ekki utan um þetta, þetta er svo fáránlegt.“ Hún ferðaðist um allt landið og segir það fallegasta land sem hún hefur heimsótt. „Þegar við keyrðum frá Sarajevo til Srebrenica fengum við að heyra hvað hefði gerst á hverjum og einum stað. Öll leið- in er blóði drifin. Við sáum lítið þorp þar sem voru bara tóm hús, og svo var kirkjugarður í miðjunni þar sem allir íbúar þorpsins eru grafnir. Við sáum líka fótboltavöll í algjörri niður níðslu en við hliðina á honum var spánnýr völlur. Sá gamli var aftökustaður, þar sem menn voru teknir af lífi. Og það voru ekki bara hermenn sem gerðu það heldur Serbar frá nálægum bæjum. Það gerir þetta líka svo erfitt, þetta voru fyrrverandi nágrannar fólks.“ Engir peningar til að laga kúlna- förin á húsunum Sólveig segir líka fáránlegt til þess að hugsa hversu stutt er síðan atburðirnir áttu sér stað og hversu stutt frá þeir áttu sér stað. „Það er skrítið að koma á stað þar sem sjást kúlnaför á húsunum. Það er sautján ár síðan, en af hverju hefur ekkert verið gert eða lagað? Það eru ekki til neinir peningar. Og þetta er fyrir augunum á fólki alla daga. Þegar svona gerist, fólk innan sama lands- ins er að berjast, þá mætir fólk alltaf manneskju sem það veit eða hefur heyrt af að hafi gert eitthvað í stríðinu. Það er rosalega grunnt á friðinum, sem var náttúrulega bara skipulagður af alþjóðasamfélaginu. Í kjölfar Dayton-samkomu- lagsins var það eiginlega þannig að múslímarnir, Bosníakar, fengu megnið af Sarajevo og Serbarnir sem áður höfðu búið í borginni fóru í út hverfin. Þeir sem fluttust inn í borgina höfðu flúið frá austurhluta Bosníu, svo þetta var sveitafólk sem hefði ekki flutt til borgarinnar undir venjulegum kringum stæðum. Það er rosaleg kergja þarna á milli. Serbarnir kvarta yfir því að það spretti upp moskur eins og gor- kúlur en múslímarnir benda á að Serbar hafi eyðilagt 300 moskur í stríðinu og verið sé að byggja þær upp aftur.“ Mál ekki útkljáð nema með blóði Allir sem Sólveig ræddi við telja að átök muni blossa upp á nýjan leik í landinu. „Við fáum endalausar fréttir núna af ástandinu á Írlandi, í Portúgal og Grikklandi. En í Bosníu er upp undir 40 prósenta atvinnu- leysi og rosaleg spilling. Allir sem ég talaði við halda að þetta muni gerast aftur. Eins og ein kona lýsti því þá eru þarna mál sem verða ekki útkljáð nema með blóði, og það er einhvern veginn ekkert hægt að gera. Það eru engin inngrip.“ Sól- veig segir ástandið í landinu mjög flókið, en lítið sé að gerast. „Það eru mörg lög af vonleysi, sem allir eru að upplifa. Ef fólk er ekki með vinnu, sér ekki fram á að fá vinnu, og á ekki peninga til að flytja úr landi myndast pirringur og ólga. Þá er leitað að sameiginlegum óvini, einhverjum til að kenna um. Þetta er mjög eldfimt.“ Sólveig segir það sína upplifun að verið sé að reyna að sópa málefnum landsins undir teppið, vegna þess hversu mikil mistök hafi verið gerð. „Það er ekki verið að veita þessu neina athygli. Þarna er eitthvað kraumandi og ég er hrædd um að ekkert verði gert fyrr en það er of seint og þetta hefur gerst aftur. Það hafa verið herferðir, aldrei aftur Srebrenica, aldrei aftur Rúanda. Hvað á að gera til að það verði aldrei aftur? Þegar Auschwitz upp- götvaðist þá átti slíkt aldrei aftur að geta gerst, en svo leið ekkert svo langur tími. Í Srebrenica voru Sam- einuðu þjóðirnar á svæðinu. Þetta var klúður alþjóðasamfélagsins.“ Fólkið í landinu hefur misst alla trú á virkni alþjóðasamfélagsins, segir Sólveig. Fréttir af handtökum og málaferlum gegn þeim sem báru ábyrgð á stríðinu hafa þó áhrif. „Það myndast ólga þegar menn eins og Mladic nást, og þegar framvinda verður í réttarhöldunum. Fólk seg- ist vona að hann verði sakfelldur, þegar fyrir okkur ætti það ekki að vera nein spurning. Fyrir mörgum Serbum er hann líka þjóðhetja. En þó hann verði dæmdur fær fólk ekki fjölskyldurnar sínar aftur.“ Upplifa mörg lög af vonleysi Sólveig Jónsdóttir blaðamaður er sérfræðingur í þjóðernishyggju og þjóðernisátökum og hafði lengi langað til Bosníu og Hersegóvínu áður en hún fór þangað í maí. Hún segir grunnt á friðinum, fólk sé minnt á átökin á hverjum degi og flestir telji að þau muni blossa upp aftur. Sólveig sagði Þórunni Elísabetu Bogadóttur frá fólkinu og ástandinu í landinu. SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR Hún starfar sem blaðamaður á Nýju lífi en er stjórnmálafræðingur að mennt með meistaragráðu í þjóðernishyggju og þjóðernisátökum frá Edinborgar- háskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Í ár voru jarðsettar líkamsleifar 520 manna sem myrtir voru í Srebrenica fyrir sautján árum. Nú hafa verið borin kennsl á 6.800 lík. Stríðið í Bosníu-Hersegóvínu, sem geisaði á árunum 1992 til 1995, var hluti af átökunum sem fylgdu upp- lausn gömlu Júgóslavíu. Eftir að Króatía og Slóvenía höfðu slitið sig laus og fengið sjálfstæði sitt staðfest fylgdi Bosnía þar á eftir með sjálfstæðisyfirlýsingu á vordögum 1992. Staðan var þó talsvert flóknari í Bosníu þar sem þar voru þrjú meginþjóðarbrot, Bosníakar (Bosníumús- límar), Króatar og Serbar, sem bárust á banaspjótum. Sveitir Bosníu-Serba hófu árásir á höfuðborgina Sarajevo í apríl og júgóslavneski herinn slóst í lið með þeim stuttu síðar. Þegar þar var komið við sögu voru einungis Serbía og Svartfjallaland undir fána Júgóslavíu þar sem Slobodan Milosevic réði ríkjum. Strax á fyrstu vikum ófriðarins voru múslímar reknir í stórum stíl í burt frá austurhluta landsins og sveitir Bosníu- Serba undir stjórn Ratko Mladic réðu um tveimur þriðju hlutum landsins. Næstu misseri hélst ástandið svo til óbreytt en árið 1994 mynduðu Bosníakar og Króatar bandalag gegn Serbum. Það var ekki fyrr en vorið 1995 sem hlutirnir fóru að þróast í samkomulagsátt. Eftir að Serbar höfðu virt úrslitakosti Sameinuðu þjóðanna að vettugi hófu sveitir NATO loftárásir á skotmörk í Serbíu, sem þvinguðu Bosníu-Serba að samningsborðinu. Í Dayton í Bandaríkjunum náðist samkomulag í nóvember, sem fól í sér stofnun sambandslýðveldis þar sem Bosníakar og Króatar fengu rúman helming land- svæðisins gegn tæpum helmingi sem fór til Bosníu- Serba. Alþjóðlegt friðargæslulið hefur séð um að halda þar friðinn síðan. Bosníustríðið reyndist versti hildarleikur Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar þar sem þúsundir manna, kvenna og barna létust í þjóðernishreinsunum. Þegar upp var staðið höfðu á annað hundrað manns týnt lífi og um tvær milljónir höfðu neyðst til að flýja heimkynni sín. Hildarleikur á Balkanskaga

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.