Fréttablaðið - 30.07.2012, Síða 18

Fréttablaðið - 30.07.2012, Síða 18
FÓLK| Þórey er með vinnustofu á Korpúlfsstöðum þar sem hún fæst við ýmis verkefni. Þórey segir að listamenn séu alltaf að vinna því þeir séu sífellt að sækja sér innblástur og það sé alltaf hægt að læra meira. Hún er menntuð myndlistakona og er enn að sækja námskeið í myndlist. Í haust heldur hún á myndlistar- námskeið til Barcelona. ■ gunnhildur@365.is BJÖRT STOFA Hér þykir Þóreyju best að byrja daginn. MYND/ERNIR ÓENDANLEIKI Skúlptúr eftir Þóreyju. MYND/ERNIR FJÖLSKYLDUVEGGUR Dætur Þóreyjar, Ingi- björg og Kristín Heiða Magnúsdætur. MYND/ERNIR Fyrir stuttu opnaði sýning í Louisi-ana-safninu í Kaupmannahöfn sem ber yfirskriftina „New Nordic – Arki- tektúr og sérkenni“. Þar er leitast við að veita gestum innsýn í sérkenni norræns arkitektúrs. Fimm arkitekta stofum frá Norðurlöndunum var boðin þátttaka í sýningunni og þær beðnar um að byggja einn sýningarskála hver sem bæri staðar- háttum, sérkennum og reynsluheim þeirra vitni. Arkitektastofunni Studio Granda var boðin þátttaka fyrir Íslands hönd. „Það er mikil viðurkenning fyrir okkur og við teljum okkur heppin að hafa fengið tækifæri til að hanna íslenska skálann sem er einn af fimm miðpunktum sýningarinnar,“ segir Steve Christer, arki- tekt og eigandi Studio Granda. Skálinn er samsettur úr tveimur báru- járnsskeljum sem umlykja rautt hraun- berg og innganga í skálann er um sextíu sentímetra vítt op. Gólf er stráð muldu hraunbergi sem snarkar og brestur í þegar gengið er um skálann. „Við reyndum að ná þeirri tilfinningu að það sé hægt að vera einn með sjálfum sér en um leið hluti af einhverju sem er miklu stærra en maður sjálfur sem persóna. Við vildum koma því á framfæri að möguleiki á þessari einveru er svo mikilvægur,“ segir Margrét Harðardóttir arkitekt og eigandi Studio Granda. Mikið hefur verið lagt í sýninguna og eru gagnrýnendur í Danmörku á einu máli um að hér sé á ferðinni stórkost- leg og fræðandi sýning. Sýningin gefur greinar góða mynd af samnorrænum stefnum í arkitektúr landanna en greinir jafnframt frá sérkennum hvers lands og hvernig umhverfi og þjóðhættir móta stíl. Við inngang sýningarinnar hafa þrjátíu stofur og einstaklingar verið fengnir til þess að gefa innsýn í menningu hverrar þátttökuþjóðar. Aðilarnir voru beðnir um að túlka sérkenni sinnar þjóðar hver á sinn hátt og er um að ræða vídeó, inn- setningar, nytjahluti, bækur og fleira sem mætir gestum við inngöngu á sýninguna. Sýningin stendur til 21. október 2012. ■ lilja.bjork@365.is MIKIL VIÐURKENNING ARKITEKTÚR Studio Granda Arkitektar gerðu sýningarskála Íslands á sam- norrænni sýningu sem nýlega opnaði á Lousiana-safninu í Kaupmannahöfn. ■ SETTU HRAÐAMET Það er aðeins lítill minnihluta- hópur sem hefur gaman af því að þrífa. Til eru ráð fyrir okkur hin til þess að gera húsverkin þó nokkuð bærilegri. Það má til dæmis hafa góða tónlist í gangi á meðan ryksugað er, hækka hana í botn og jafnvel dilla sér í takt við hana. Svo er hægt að fara í keppni við sjálfan sig í klósett- þrifum eða í upp- vaskinu og reyna svo að bæta hraða- metið í hverri viku. Þá má horfa á uppáhaldsþáttinn uppi í sófa á meðan gengið er frá þvottinum. Ef þessum ráðum er fylgt eftir, þá verða húsverkin miklu skemmtilegri. HÚSVERKIN SKEMMTILEGRI Tónlist og tjútt við húsverkin BÁRUJÁRN OG HRAUNBERG Íslenski skálinn á sýningunni í Louisiana- safninu er gerður úr bárujárnsskeljum sem umlykja rautt hraunberg og innganga í skálann er um sextíu sentímetra vítt op. ■ FRAMHALD AF FORSÍÐU Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Verslunin Belladonna á Facebook Flott föt fyrir flottar konur st. 40 – 58 Núna færð þ ú 25% viðbótar -afslátt af öllum úts öluvörum ÚTSÖLULOK ÚTSALAN 25-60% afsláttur af öllum vörum hefst í dag

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.