Fréttablaðið - 30.07.2012, Síða 40

Fréttablaðið - 30.07.2012, Síða 40
30. júlí 2012 MÁNUDAGUR24 sport@frettabladid.is ÁSGEIR SIGURGEIRSSON endaði í fjórtánda sæti í keppni í loftskammbyssu á Ólympíuleikunum á laugardaginn. Ásgeir fékk 580 stig af 600 mögulegum og jafnaði þar með sinn besta árangur á alþjóðlegu móti. Hann var aðeins þremur stigum frá því að komast áfram í átta manna úrslitin. „Þetta var samkvæmt mínum allra björtustu vonum og ekki annað hægt en að vera ánægður með þetta,” sagði Ásgeir. „Auðvitað hefði verið gaman að fara áfram í átta manna úrslit en ég er enn að safna reynslu.” Allt um leiki gærkvöldsins er að fi nna á 1-0 Nichlas Rohde (35.) Skot (á mark): 10-5 (5-2) Varin skot: Ingvar Þór 1 - Abel 4 BREIÐABLIK (4-3-3): Ingvar Þór Kale 6 - Gísli Páll Helgason 6, Þórður Steinar Hreiðarsson 6, Renee Troost 7, Kristinn Jónsson 7 - Finnur Orri Margeirsson 6, Andri Rafn Yeoman 6, Tómas Óli Garðarsson 7 ( 81. Jökull I Elísabetarson -) - Árni Vilhjálmsson 5 (73. Rafn Andri Haraldsson -), Haukur Baldvinsson 6 (64. Ben Everson 5), *Nichlas Rohde 8. ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 5 - Arnór Eyvar Ólafsson 5, Matt Garner 6, Rasmus Christiansen 4, Þórarinn Ingi Valdimarsson 3, Guðmundur Þórarinsson 6 - George Baldock 5, Ian David Jeffs 5 (60. Eyþór Helgi Birgisson 5) - Tryggvi Guðmundsson 4 (64. Andri Ólafsson 5), Tonny Mawejje 3 (83. Víðir Þorvarðarson -), Christian Steen Olsen 5. * MAÐUR LEIKSINS Kópavogsvöllur, áhorf.: 748 Gunnar Jarl Jónsson (7) 1-0 0-1 Ellert Hreinsson (10.), 1-1 Jóhann Þórhallsson (33.), 1-2 Mark Doninger (38.), 2-2 Davíð Þór Ásbjörnsson (63.), 2-3 Halldór Orri Björnsson (72.), 3-3 Ingimundur Níels Óskarsson (82.) Skot (á mark): 6-14 (5-6) Varin skot: Bjarni Þórður 2 - Ingvar 2 FYLKIR (4-4-2): Bjarni Þórður Halldórsson 5 - Elís Rafn Björnsson 5, Davíð Þór Ásbjörnsson 6, Finnur Ólafsson 5, Kjartan Ágúst Breiðdal 5 - Ingimundur Níels Óskarsson 7, Ásgeir Börkur Ásgeirsson 5, Oddur Ingi Guðmundsson 6, Tómas Joð Þorsteinsson 5 - Björgólfur Takefusa 6 (84. Magnús Þórir Matthíasson -) Jóhann Þórhallsson 6 (89. Rúrik Andri Þorfi nnsson -) STJARNAN (4-3-3): Ingvar Jónsson 3 - Jóhann Laxdal 6, Tryggvi Steinn Bjarnason 4, Daníel Laxdal 5, Hörður Árnason 4 - Alexander Scholz 5, *Halldór Orri Björnsson 7, Atli Jóhannsson 6, Kennie Chopart 6 (67. Gunnar Örn Jónsson 6), Ellert Hreinsson 6, Garðar Jóhannsson 5 (35. Mark Doninger 6) * MAÐUR LEIKSINS Fylkisvöllur, áhorf.: 1017 Erlendur Eiríksson (6) 3-3 0-1 Matthías Guðmundsson (58.) Skot (á mark): 13-9 (4-4) Varin skot: Duracak 3 - Ólafur Þór 4 SELFOSS (4-2-3-1): Ismet Duracak 6 - Endre Ove Brenne 6, Hafþór Þrastarson 7, Bernard Petrus Bronz 6, Marko Hermo 4 - Babacar Sarr 6, Jon Andre Royrane 6 (68 Egill Jónsson 6) - Tómas Leifsson 7 (90 Magnús Ingi Einarsson), Jón Daði Böðvarsson 5, Ólafur Karl Finsen 8 (68 Moustapha Cisse 4) - Viðar Örn Kjartansson 7 VALUR (4-5-1): Ólafur Þór Gunnarsson 6 - Jónas Tór Næs 6, Atli Sveinn Þórarinsson 7, Halldór Kristinn Halldórsson 7, Matarr Jobe 7 – *Matthías Guðmundsson 8 (78 Hörður Sveinsson), Kristinn Freyr Sigurðsson 7, Guðjón Pétur Lýðsson 6, Rúnar Már Sigurjónsson 7, Þórir Guðjónsson 6 (82 Hafsteinn Briem) – Kolbeinn Kárason 6 * MAÐUR LEIKSINS Selfossvöllur, áhorf.: 588 Kristinn Jakobsson (7) 0-1 STAÐAN Í DEILDINNI KR 12 7 3 2 24-15 24 FH 11 7 2 2 29-12 23 Stjarnan 13 5 7 1 28-22 22 ÍBV 12 6 2 4 21-12 20 Fylkir 13 5 5 3 19-22 20 Breiðablik 13 5 4 4 11-14 19 Valur 13 6 0 7 17-17 18 ÍA 12 5 3 4 19-23 18 Keflavík 12 4 3 5 19-18 15 Fram 12 4 0 8 15-19 12 Selfoss 13 2 2 9 13-26 8 Grindavík 12 1 3 8 15-30 6 NÆSTU LEIKIR Í DEILDINNI Fram - FH Í kvöld kl. 19.15 Keflavík - Grindavík Í kvöld kl. 19.15 KR - ÍA Í kvöld kl. 20.00 ÍBV - KR Mið. 8. agúst kl.18.00 ÍA - Fylkir Mið. 8. agúst kl.19.15 FH - Selfoss Mið. 8. agúst kl.19.15 Grindavík - Fram Mið. 8. agúst kl.19.15 Valur - Breiðablik Mið. 8. agúst kl.19.15 Stjarnann - Keflavík Mið. 8. agúst kl.20.00 PEPSI-DEILDIN ÓL2012 Ragna Ingólfsdóttir hefur í dag leik á Ólympíuleikunum í Lundúnum en hún mætir í kvöld Akvile Stapusaityte frá Litháen í fyrri leik sínum í F-riðli einliða- leiks kvenna í badminton. Hún mætir svo Jie Yao frá Hol- landi á morgun en einn kemst áfram úr hverjum riðli í 16-manna úrslitin. Yao er ein sextán sterkustu keppanda mótsins sem var raðað í riðlana og hefur Ragna aldrei mætt henni áður. Hún hefur hins vegar unnið Stapusaityte í öll fjögur skiptin sem þær hafa mæst. Leiðinleg inn á vellinum Hún kann þó ekkert sérstaklega við þá litháísku. „Hún er frekar leiðinleg inn á vellinum – öskrar mikið og er ekkert mjög við- kunnan leg. Ég hlakka ekki neitt sérstaklega mikið til að spila við hana en það er bara verkefni sem ég þarf að leysa. Ég öskra bara á móti,“ sagði hún í léttum dúr. Hún græðir á því að viðureign hennar við Yao sé sú síðasta í riðlinum. „Ég get séð leikinn þeirra og punktað eitthvað hjá mér um Yao. En hún er mjög góð – fædd í Kína en spilar fyrir Hol- land. Hún hefur alltaf verið ofar- lega á Evrópu meistaramótum.“ Á möguleika að komast áfram Ragna hefði getað fengið mun erfiðari riðil og á sannarlega möguleika á að komast áfram. Sjálf er hún í 81. sæti heimslistans, þrettán sætum fyrir ofan Stapusai- tyte en talsvert fyrir neðan Yao, sem er í því 20. En Ragna er reynslunni ríkari eftir að hafa keppt í Peking fyrir fjórum árum og er í mjög góðu líkam legu standi. Hún segir mark- miðið einfalt. „Ég ætla bara að reyna að vinna hvern einasta leik. Ég fékk þennan riðil og í sanni sagt veit ég ekki hversu mikla möguleika ég á á að fara áfram. Ólympíuleikar eru svo allt öðruvísi en öll önnur mót og því ætla ég bara að nálgast þetta eins varlega og ég get – taka bara eitt stig fyrir í einu. Það er hægt að æfa mikið og undirbúa sig eins vel og kostur er en staðreyndin er sú að maður hefur ekki hugmynd um hvað bíður manns þegar fyrsti leikurinn hefst.“ Ragna segir að undirbúning- urinn hafi gengið vel eftir að hún kom í Ólympíuþorpið í síðustu viku. Að vísu er sá galli að keppnis- höllin, Wembley Arena, er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá Ólympíugarðinum. „Það var langt að fara á æfingar fyrstu dagana en á laugardaginn færði ég mig yfir á hótel sem er mun nær höllinni. Þar verð ég á meðan badmintonkeppnin stendur yfir en kem svo aftur í þorpið,“ sagði hún. Viðureign Rögnu og Stapusai- tyte hefst klukkan 18.42 í dag og á Ragna þar með möguleika á að verða fyrsta íslenska badminton- konan frá upphafi til að vinna viður eign á Ólympíuleikum, en Íslendingar kepptu fyrst í greininni á Ólympíuleikum árið 1992. ÉG ÖSKRA BARA Á MÓTI Ragna Ingólfsdóttir hefur í dag leik á Ólympíuleikunum í Lundúnum en í kvöld mætir hún litháískum keppanda. Hún er nú að keppa á sínum öðrum leikum en með sigri í kvöld brýtur hún blað í sögu badmintons á Íslandi. KLÁR Í SLAGINN Í KVÖLD Ragna Ingólfsdóttir verður í kvöld fyrsta badmintonkonan til að keppa á tveimur leikum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu unnu sinn fyrsta leik á Ólympíu- leikunum í gær þegar þeir mættu Argentínumönnum í þriðja sinn á rúmri viku, 31-25. Ísland hafði spilað tvo æfingaleiki við Argentínu fyrir leikana og það borgaði sig, því strákunum tókst að gera nóg til að hafa betur gegn hættulegum andstæðingi. „Skylduverkið var kannski að spila þennan fyrsta leik en eins og við sáum þá er Argentína ekki með lélegt handboltalið. Sá sem heldur því fram veit bara ekkert um handbolta,“ sagði Arnór Atlason ákveðinn en hann byrjaði í stöðu leikstjórnanda í gær í fjarveru Snorra Steins Guðjónssonar. Snorri Steinn spilaði svo síðustu 20 mínútur leiksins og gerði það ljómandi vel, enda sigu strákarnir fram úr á lokakaflanum og unnu öruggan sex marka sigur. Hreiðar Levý Guðmundsson spilaði einnig síðustu 20 mín- úturnar og var valinn maður leiksins. Enda varði hann tólf skot, þar af þrjú víti, og fór á kostum. „Það er ótrúlega gaman að þetta sé komið í gang aftur. Við erum búnir að bíða eftir þessu síðan við töpuðum fyrir Frökkum í Peking fyrir fjórum árum síðan. Það var frábært að spila í þessari æðis- legu höll og við fíluðum okkur vel. Aðalmálið er þó að við fengum tvö stig,“ sagði Arnór. Það gekk þó á ýmsu hjá íslenska liðinu sem á heilmikið inni fyrir næstu leiki. „Það er alltaf eitthvað sem má laga en heilt yfir erum við sáttir. Við fengum nú varla sókn þar sem við vorum sex gegn sex í fyrri hálfleik og við áttum stundum í erfiðleikum með að finna dauðafærin. En það er samt fínt að skora 31 mark.“ Landsliðsþjálfarinn Guð mundur Guðmundsson skrifaði slæma byrjun Íslands í leiknum á sviðs- skrekk. „Menn eru búnir að bíða eftir þessu í fjögur ár og undirbúa sig í allt sumar fyrir þennan fyrsta leik. Svo komum við í þorpið og var biðin eftir þessum leik erfið, sem og óvissan vegna meiðsli þeirra Arons, Snorra og Ólafs Bjarka.“ Hann var þó sáttur við leikinn, þó að ýmislegt megi bæta. „Það vildu allir gefa allt sitt í leikinn en til að byrjað með vantaði meiri grimmd í leikmenn. Menn voru hikandi og þess fyrir utan virtist ólánið elta okkur – við misstum öll fráköst út af eða til þeirra auk þess sem dómararnir dæmdu mikið á okkur.“ Næst spilar Ísland gegn Túnis í fyrramálið og á Arnór von á erfiðari leik en gegn Argentínu. „Við mættum Túnis í Frakklandi og það var ekki auðvelt. Þeir eru líkamlega mjög sterkir og við þurfum nú að taka upp boxhanskana. Það verða slagsmál og læti.“ - esá Íslenska landsliðið í handbolta vann sex marka sigur á Argentínu í fyrsta leik sínum á Ólympíuleikunum: Nú þurfum við að taka upp boxhanskana HREIÐAR LEVÝ FAGNAR Lokaði íslenska markinu í lokin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Valgarður Gíslason fjalla um ÓL 2012 eirikur@frettabladid.is - valli@frettabladid.is 10.45: 200 m fjórsund kvenna Eygló Ósk Gústafsdóttir, 2. riðill 18.09: Badminton kvenna Ragna Ingólfsdóttir mætir Akvile Stapusaityte frá Litháen. MÁNUDAGINN 28. JÚLÍ ÓL 2012 Íslendingar á ÓL2012 Eygló Ósk Gústafsdóttir synti í sinni fyrstu grein af fjórum á Ólympíuleikunum í Lundúnum í gær. Hún keppti í 100 metra baksundi og var aðeins sjö hundraðshluta frá Íslandsmeti sínu. Hún synti á 1:02,40 mínútu sem skilaði henni í 32. sæti. „Auðvitað langaði mig að fara hraðar en þetta var samt mjög fínt,“ sagði hún eftir sundið í gær. „Ég var mjög stressuð fyrir sundið en leið svo mjög vel í lauginni. Það var fínt að taka allt stressið út í þessari grein.“ Í dag keppir hún í 200 metra fjórsundi en besta greinin hennar er 200 metra baksund, sem hún keppir í á fimmtudaginn. „Þetta er allt á réttri leið hjá mér enda búin að æfa mjög vel. Það kemur svo bara í ljós hvað gerist.“ - esá Eygló Ósk nærri Íslandsmeti: Tók út stressið EYGLÓ ÓSK Synti í fyrsta sinn á Ólympíu- leikum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ísland-Argentína 31-25 (15-14) Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 9 (11), Ólafur Stefánsson 6/4 (9/4), Róbert Gunnarsson 4 (5), Ingimundur Ingimundarson 3 (3), Arnór Atlason 3 (4), Aron Pálmarsson 3 (9), Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 (3), Alexander Petterson 1 (6), Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundss. 12/3 (19/4, 63%), Björgvin Páll Gústavss. 11 (29/4, 38%), Hraðaupphlaup: 13 (Guðjón Valur 7, Ingimundur 3, Ásgeir Örn 2, Aron) - Argentína 4 Fiskuð víti: 4 (Róbert 2, Arnór 2) Mörk Argentínu (skot): Diego Simonet 5 (9), Guido Riccobelli 4 (4), Federico Fernandez 4/2 (7/3), Sebastían Simonet 4 (9), Andrés Kogovsek 3 (3), Federico Pizzarro 3/3 (5/5), Gonzalo Carou 1 (2), Damián Migueles 1 (4), Juan Manuel Vazquez (1), Pablo Portela (1), Federico Vieyra (6), Varin skot: Matias Schulz 9 (30/2, 30%), Fernando Garcia 6 (16/2, 38%). TÖLFRÆÐIN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.