Fréttablaðið - 04.09.2012, Síða 2
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
KÍNA Ling Jihua, einn af nánustu
samstarfsmönnum Hu Jintao
Kínaforseta, hefur verið sagt upp
störfum. Ástæðan er talin tengj-
ast bílslysi í vor,
þar sem sonur
Jihua sat undir
stýri á dýrum
Ferrari-bíl.
Stutt er í
landsþing kín-
verska Komm-
únistaflokks-
ins, þar sem
Hu lætur af
völdum. Stjórn-
málaskýrendur telja hugsanlegt
að brotthvarf Lings tengist einnig
átökum um arftaka Hus.
Kínverskir ráðamenn hafa
undan farið orðið fyrir vaxandi
gagnrýni vegna lúxuslifnaðar. - gb
Mannaskipti í Kína:
Missti embætti
vegna sonarins
HU JINTAO
OMAR AL ZOEBRI Upplýsingaráðherra
Sýrlands ætlar að veita Brahimi alla
mögulega aðstoð. NORDICPHOTOS/AFP
SÝRLAND, AP Sýrlenski herinn varp-
aði í gær sprengjum á bæinn al
Bab, sem er skammt frá tyrknesku
landamærunum. Árásirnar kostuðu
að minnsta kosti 19 manns lífið.
Átökin í landinu hafa kostað
meira en 23 þúsund manns lífið frá
því þau hófust snemma á síðasta ári.
Lakhdar Brahimi, nýr friðar-
erindreki Sameinuðu þjóðanna og
Arababandalagsins, segist ekki hafa
mikla trú á að friður náist í landinu
á næstunni.
Hann sagði forvera sinn í þessu
erfiða embætti, Kofi Annan, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, einnig hafa gert allt
sem hann gat, en þetta væri mjög
erfitt verkefni: „Við ræddum þetta
nokkrum sinnum og ég get ekki séð
að ég hefði gert neitt öðruvísi en
hann.“
Hann hvatti síðan Tyrkland, Sádi-
Arabíu og Katar til þess að hætta að
senda uppreisnarmönnum vopn og
veita þeim æfingaaðstöðu.
Omar al Zoebri, upplýsingaráð-
herra Sýrlands, sagðist hins vegar
ætla að veita Brahimi alla þá aðstoð
sem hann gæti: „Við munum veita
honum hámarksaðstoð, rétt eins og
við veittum Kofi Annan.“ - gb
Nýr friðarerindreki SÞ og Arababandalagsins í Sýrlandi lítt bjartsýnn:
Telur verkið nánast ómögulegt
GEORGE OSBORNE Verður fjármálaráð-
herrann látinn hætta? NORDICPHOTOS/AFP
BRETLAND, AP Þeir David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands, og
Nick Clegg aðstoðarforsætisráð-
herra hyggjast stokka upp í ríkis-
stjórn sinni, sem hefur starfað í
rúm tvö ár.
Glíman við efnahagskrepp-
una hefur ekki gengið vel og nú
mælist samdráttur í fyrsta sinn
síðan 2009. Stjórnin hefur þurft
að hætta við ýmsar aðgerðir í
efnahagsmálum, sem hefur dreg-
ið úr trúverðugleika hennar.
Búist er við að tilkynnt verði
um breytingar á ráðherraliði
stjórnarinnar í dag. Mesta óviss-
an snýst um það hvort George
Osborne fjármálaráðherra verð-
ur látinn taka pokann sinn. - gb
Cameron stokkar upp:
Breytingar
á ráðherraliði
ÍÞRÓTTIR „Það þarf einfaldlega kol-
vitlaust veður,“ segir Hrafnkell
Sigtryggsson, sem annast mál
Red Bull Storm Chase-seglbretta-
keppninnar hér á Íslandi.
Áætlað er að tíu af fremstu segl-
brettaköppum heims taki þátt í
umræddri keppni í haust. „Það er
fylgst með sjö stöðum í heiminum.
Ef spár benda til þess að það verði
snarvitlaust veður einhvers stað-
ar þá er liðinu hóað út þangað,“
útskýrir Hrafnkell. Um er að ræða
tíu keppendur, dómara, björgunar-
fólk og kvikmyndatökulið.
Aðrir staðir sem til greina koma
eru Hatteras-höfði í Bandaríkj-
unum, norðvesturströnd Írlands,
Costa de la Muerta (Strönd dauð-
ans) á Spáni, Bretagne-skagi á
Frakklandi, Omaezaki í Japan og
Tasmanía sem þykir líklegust í
augnablikinu.
„Aðstæðurnar sem verið er að
leita að eru 28 metrar á sekúndu
eða meira,“ segir Hrafnkell sem
kveður reyndar dálítið tæpt að
Ísland verið fyrir valinu þetta
haustið. „Það er helst ef það koma
leifar af fellibyl sem það verður
nógu hvasst.“
Keppendurnir eru að sögn
Hrafnkels flestir þátttakendur í
heimsbikarnum í íþróttinni sem
Hrafnkell líkir við snjóbretta-
keppni. Menn fái stig eftir því
hversu hátt er stokkið, eftir því
hversu vel stökkin eru útfærð og
því hversu stórum öldum menn nái
að fleyta sér áfram á.
Að sögn Hrafnkels hreifst
breskur maður sem var hér á ferð
í apríl í fyrra af aðstæðum hér
og spurðist fyrir um þær meðal
íslenskra seglbrettamanna. Það
hafi leitt til þess að gamall segl-
brettakappi, sem er nú aðaldómari
í bæði heimsbikarnum og Storm
Chase-keppninni, hafi fengið auga-
stað á landinu. Hrafnkell aflaði því
upplýsinga fyrir þá um ýmsa staði
frá suðvesturhorni landsins austur
að Vík í Mýrdal.
„Landeyjahöfn er mjög spenn-
andi. Sandrifið fyrir utan höfn-
ina er ansi líklegt til þess að búa
til stórar öldur,“ segir Hrafnkell,
sem kveður svæðið í kringum
Vestmannaeyjar og Landeyjahöfn
ákjósanlegt. „Það er ekkert sem
truflar vindinn og þægileg sand-
strönd þar sem auðvelt er að fara
út með sæþotur sem eru hluti af
öryggisviðbúnaðinum. Og ekki
spilla fyrir stikkorð eins og eld-
gos og Eyjafjallajökull.“
Á heimasíðu Storm Chase-
keppninnar má lesa að Ísland hafi
marga kosti. Ókosturinn sé myrk-
ur þegar komið sé fram í miðjan
október og kuldi þegar nóvember
er genginn í garð. „En þeim finnst
þetta spennandi. Ef það kemur
stór lægð geta stórir hlutir gerst.
Þetta er séns,“ segir Hrafnkell Sig-
tryggsson vongóður.
gar@frettabladid.is
Þurfa að lágmarki
28 metra á sekúndu
Möguleiki er á að tíu úr hópi fremstu seglbrettakappa heims keppi við Ísland,
sem er einn af sjö stöðum sem koma til greina fyrir svokallaða Red Bull Storm
Chase-keppni. Svæðið við Landeyjahöfn og Vestmannaeyjar þykir ákjósanlegt.
ÞVÍ VERRA ÞVÍ BETRA Allt eðlilegt fólk heldur sig innandyra í uppáhaldsveðri fremstu
seglbrettakappa heims sem stefna nú mögulega til Íslands.
HEILSA Með því að hreyfa sig og
stunda heilbrigt líferni á áttræð-
isaldri geturðu aukið lífslíkur
þínar til muna. Þetta kemur fram
í nýrri rannsókn sem var unnin
af vísindamönnum við háskóla-
sjúkrahúsið Karolinska í Svíþjóð.
Í frétt BBC kemur fram að
rannsakaður hafi verið lífsstíll
1.810 manna sem voru komnir
yfir 75 ára aldurinn. Samkvæmt
niðurstöðunum lifðu karlmenn
með heilbrigðasta lífsstílinn sex
árum lengur en hinir og konur
fimm árum lengur. - fb
Heilbrigt fólk yfir 75 ára:
Lífslíkur aukast
um mörg ár
SVÍÞJÓÐ Vefsíður sænsku ríkis-
stjórnarinnar, hersins og fleiri
sænskra opinberra stofnana lágu
niðri klukkustundum saman í gær.
Það voru nafnlausir tölvuþrjót-
ar sem stóðu fyrir árásum á vef-
síðurnar, að eigin sögn til stuðn-
ings Julian Assange, stofnanda
lekasíðunnar Wikileaks. Þetta full-
yrða þeir á Twitter-síðunni.
Assange hefur reynt að koma sér
undan framsali frá Bretlandi til
Svíþjóðar, þar sem saksóknari vill
yfirheyra hann vegna ásakana um
kynferðisbrot. - gb
Tölvuþrjótar gegn Svíþjóð:
Lokuðu síðum
stjórnar og hers
SJÁVARÚTVEGUR Ekki þokaði í samningsátt á fundi
Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins
um makrílveiðar í London í gær. Of mikið ber enn á
milli aðila varðandi skiptingu aflans, en í sameigin-
legri yfirlýsingu allra aðila segir að samnnings-
umleitanir muni halda áfram á reglubundnum
haustfundi ríkjanna í næsta mánuði og að allir eru
sammála um að virða vísindalega ráðgjöf.
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra fór
fyrir íslensku sendinefndinni, en Maria Damanaki,
sjávarútvegsstjóri fór fyrir ESB-nefndinni, og Lis-
beth Berg-Hansen sjávarútvegsráðherra fór fyrir
hinni norsku.
Steingrímur sagði í viðtali við Stöð 2 í gær að ekki
hafi verið við Íslendinga að sakast hvernig fór.
„Við mættum til þessa fundar og vorum tilbúnir
eins og við höfum verið til þess að sýna ákveðinn
sveigjanleika varðandi okkar hlutdeild gegn því að
það kæmi þá sæmilega ríflegur aðgangur að lögsög-
um hinna ríkjanna á móti og auðvitað í þágu þess að
ná fram heildarsamkomulaginu sem hefur verð-
mæti í sjálfu sér fyrir alla aðila,“ sagði Steingrímur.
Damanaki og Berg-Hansen sendu frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu þar sem þær lýstu yfir von-
brigðum með að ekki hafi náðst niðurstaða. Þær
boðuðu auk þess nánara samstarf um þetta lykilmál
og nota til þess „öll tiltæk ráð“ eins og segir í yfir-
lýsingunni.
Evrópuþingið mun síðar í mánuðinum taka
afstöðu til þess hvort beita eigi viðskiptaþvingunum
í makríl deilunni. - þj
Árangurslaus samningsfundur strandríkjanna um makrílveiðar:
Of mikið ber enn á milli aðila
MAKRÍLVINNSLA Samningaviðræður Íslands, Noregs, Færeyja
og ESB í gær báru ekki árangur. Næsta tilraun til samninga
verður gerð í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Reynir, getið þið ekki bara
spólað áfram?
„Aðalatriðið er að halda áfram
og nýta það góða sem kom út úr
þessu.“
Miklar umræður hafa verið á Hornafirði
vegna mikils umframkostnaðar bæjar-
sjóðs í tengslum við gerð sjónvarpsþátta.
Reynir Arnarson, formaður bæjarráðs,
sagði í bæjarstjórn að ekki væri hægt að
spóla aftur á bak og byrja upp á nýtt.
STJÓRNSÝSLA Ögmundur Jónas-
son innanríkisráðherra telur sig
hvorki þurfa að segja af sér né
biðjast afsökunar vegna brots á
jafnréttislög-
um. Þetta sagði
hann í Kastljósi
á RÚV í gær-
kvöldi .
Nokkur þrýst-
ingur hefur
verið á Ögmund
frá hans eigin
flokksmönnum
eftir að Kæru-
nefnd jafn-
réttismála sagði hann hafa gerst
brotlegan þegar hann réði karl í
stað konu í embætti sýslumanns
á Húsavík. Björn Valur Gísla-
son, þingflokksformaður Vinstri
græns, sagði á vef sínum að ef
dómstólar kæmust að þeirri niður-
stöðu að ráðherra hafi breytt rangt
í þessu máli, yrði Ögmundur að
víkja úr embætti. - þj
Innanríkisráðherra í Kastljósi:
Segir afsögn
ekki nauðsyn
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
SPURNING DAGSINS
Ef það kemur stór
lægð geta stórir hlutir
gerst.
HRAFNKELL SIGTRYGGSSON
UMSJÓNARMAÐUR SEGLBRETTA-
KEPPNI Á ÍSLANDI