Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.09.2012, Blaðsíða 14
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR14 Jón Margeir fagnaði vel og innilega eftir að hafa tryggt sér gullið í 200 metra skrið- sundi. Þetta eru fyrstu verð- laun Íslendings á Ólympíu- móti síðan í Aþenu 2004. Íslenska þjóðin samfagnaði Jóni Margeiri Sverrissyni þegar hann tryggði sér gullverðlaunin í 200 metra skriðsundi í flokki hreyfi- hamlaðra með nýju heimsmeti á Ólympíumóti fatlaðra í London á sunnudag. Þetta eru fyrstu verðlaun Íslendings á Ólympíumóti fatlaðra síðan í Aþenu árið 2004. Þá vann sundkonan Kristín Rós Hákon- ardóttir gull og brons og sprett- hlauparinn Jón Oddur Sigurðsson hlaut tvenn silfurverðlaun. Tárin runnu í stríðum straum- um þegar Jóni Margeiri var innilega fagnað af fjölskyldu og vinum að sundi loknu, enda var hann þar að uppskera ríkulega eftir áralanga taumlausa vinnu. Auk þess flykktust tugir aðdá- enda um kappann sem hafði ekki undan að skrifa eiginhandarárit- anir. Þrír íþróttamenn eru í íslenska hópnum auk Jóns Margeirs, sund- konan Kolbrún Alda Stefáns- dóttir og frjálsíþróttafólkið Matt- hildur Ylfa Þorsteinsdóttir og Helgi Sveinsson. Matthildur keppir í 200 metra hlaupi á morgun, Jón Margeir og Kolbrún Alda stinga sér aftur í laugina á fimmtudaginn og á föstudag keppir Helgi í 100 metra hlaupi og spjótkasti. thorgils@frettabladid.is Sigurvíma sundkappans Jóns Margeirs SIGURREIFUR Jón Margeir kom í fyrstur í mark í 200 metra skriðsundi á nýju heimsmeti, 1:59,62 mínútum. Hann fagnaði að vonum vel. NORDICPHOTOS/GETTY Á FLJÚGANDI FERÐ Jón Margeir náði fljótt forystu í sundinu. Keppinautar hans sóttu að honum á lokasprettinum, en glæstur sigur vannst að lokum. MYND/JÓN BJÖRN VIÐ ENDAMARKIÐ Kolbrún Alda Stefánsdóttir kemur hér í mark. Hún keppir á ný á fimmtudag. MYND/JÓN BJÖRN LANGSTÖKK Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir keppir hér í langstökki. Hún lenti í áttunda sæti, en hún er einungis fimmtán ára og á því sannarlega fram- tíðina fyrir sér. MYND/JÓN BJÖRN KEPPENDUR MEÐ RÁÐHERRA Ísland sendir fjóra keppendur til leiks á Ólympíumótið. Hér er íslenski hópurinn með velferðarráðherra í móttöku í sendiráðinu í London. MYND/JÓN BJÖRN STOLTIR FORELDRAR AFREKSMANNS Foreldrar Jóns Margeirs fögnuðu stráknum að sjálfsögðu innilega eftir gullsundið. Marg- menni dró að og vildu tugir aðdáenda heilsa upp á nýkrýndan meistara. MYND/JÓN BJÖRN Íslenskir keppendur gera það gott á Ólympíuleikum fatlaðra sem fer fram í London

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.